Þjóðviljinn - 21.07.1974, Qupperneq 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 21. júll 1974.
A Héraði
Nú er runninn upp fimmti dag-
ur ferðalags okkar. Og eflaust
ætla margir að taka honum með
heldur meiri ró en þeim fyrri. Nú
er vel hugsanlegt að snúa sér að
Vegna blaðaskrifa á slnum
tima um rekstur EDDU-hótel-
anna, standa sumir i þeirri mein-
ingu að þau séu ekki starfrækt.
Þetta er hinn mesti misskilning-
ur, hóteiin starfa af fullum krafti,
og þið finnið þau á eftirtöldum
Hinar beinu ferðir Vængja til
Mývatns eru athyglisverðar.
Hægt að fljúga héðan til kl. 10 á
morgni og leggja af stað aftur kl.
6 og þá kostar slik ferð með há-
Helgi Pétursson hefur undan-
farin sumur boðið upp á sérstakar
3 daga sumarleyfisferðir um
Snæfellsnes og hefjast þær á
mánudögum með brottför frá BSI
þvi að stunda hið ljúfa lif á Hér-
aði. Ef veðrið er gott, mun eflaust
margur geta hugsað sér að flat-
maga inni i Hallormsstaðaskógi, i
Atlavik eða þar nærri, til kvölds.
Kannski er einhver orðinn þreytt-
ur á skrinukosti og vill kanna getu
kokkanna á Egilsstöðum eða á
Hallormsstað.
stöðum: Skógum, menntaskólan-
um á Akureyri, Húsmæðra-
skólanum á Laugarvatni, að
Húnavöllum, Eiðum, Reykjum i
Hrútafiröi, Kirkjubæjarklaustri,
menntaskólanum að Laugarvatni
og að Varmalandi I Borgarfirði.
degisverði og kynnisferð samtals
kr. 5.750, en flugfarið eitt sér
kostar 2.400 krónur hvora leið.
Trúlega verða föstudagsferðirnar
vinsælastar, en þá er boðið upp á
gistingu á hótel Reynihlið (2ja
manna herbergi) aðfaranótt
laugardagsins og kostar slik ferð
með allri þjónustu kr. 7.565.
kl. 10. Gist er I Borgarnesi og
Stykkishólmi og kunnugur leið-
sögumaður leiðir ferðalanginn I
allan sannleika um það sem fyrir
augu ber.
Og á Egilsstöðum er tilvalið að
sinna ögn þörfum farkostsins.
Kannski þarf að skipta um oliu —
alveg áreiðanlega þarf að þrifa
skrjóðinn og kannski fá gert við
dekk.
Annars er bévitans blikkbeljan
ekki of góð að rúlla með okkur
kringum Löginn. Eða eru menn
lika eftirvæntingarfullir að kanna
nágrannahéruð Egilsstaða?
Hvernig væri að skreppa fram I
Hjaltastaðaþinghá. Og Seyðis-
fjörður — það væri eiginlega illt
til afspurnar, að hafa brunað um
Austfirði en gleymt að skoða
höfuðstaðinn, Seyðisfjörð.
Og það væri reyndar jafn slæm
goðgá að koma ekki við á Eiðum,
skólasetrinu fræga.
En það er rétt að
hafa það i huga, að allar þær leið-
ir, sem hér hefur verið bent á, eru
ekki farnar á fáum minútum. Og
það þykir eflaust rúmlega dags-
verk að aka kringum Löginn, sið-
an á Seyðisfjörð og loks allt aust-
ur i Njarðvik yfir Vatnsskarð. Og
þvi er rétt að benda enn einu sinni
á, að ferðaáætlun þessi er ekki ó-
frávikjanleg. Og vonandi er eng-
inn I svo mikilli timaþröng, að
hann geti ekki eytt tveimur, eða
jafnvel þremur dögum á Héraði
og stundað „útrásir” þaðan á for-
vitnilega staði. Þá væri lika hægt
að slá tvær flugur I einu höggi og
sinna ljúfa lifinu svolitið lika.
En vonandi leggst enginn i sukk
— áfangarnir, sem framundan
eru, eru lika erfiðir, og öku-
maðurinn verður að halda vöku
sinni. Og úr þvi við erum farnir að
predika, þá er rétt að minna
menn á að fara varlega I Njarð-
vikurskriðum, ætli menn að aka
þangað.
Vegurinn um Njarðvikurskrið-
ur hefur verið skorinn i skriðurn-
ar, en hann er breiður og alls ekki
hættulegur — kannski er það
krossinn við vegarbrúnina, sem
vekur mönnum óhug. Krossinn
þann verðum við að skoða, þvi
hann er sagður mjög forn. Hann
er með latneskri áletrun, og á
hann er rist ártalið 1307. Er talið,
að hann sé frá þeim tima, og að
honum hafi verið haldið svo vel
við að hann dugir enn. Þjóðsagan
Hérað —
Nú liggur- það fyrir blikkbelju
vorri að bruna um mikið lands-
svæði. Við reiknum með að vera
við Mývatn næstu nótt, en þang-
að er hægt að fara ýmsar leiðir og
misjafnlega langar.
Þeir sem ekki hafa sérstakan á-
huga á Vopnafirði, Þistilfirði eða
Langanesi, munu eflaust bruna
beina leiö fram allan Jökuldal,
siðan yfir Möðrudalsöræfi og
Jökulsá á Fjöllum á brúnni við
Grimsstaði og þaðan um Náma-
skarð til Mývatns.
En hvaða leiðir er þá um að
velja?
Við getum reyndar ekiö upp á
Möðrudalsöræfi, skoðað þar
fræga kirkju, sem Jón bóndi
Stefánsson byggði á sinni tið, og
kannski þegið hressingu — og
sveigt siðan til austurs eftir veg-
inum niður i Vopnafjörð. En það
er styttri leið að aka yfir Hellis-
heiði, sem hlýtur að vera fær á
þessum tima, og þaðan I Vopna-
fjörð.
Og frá Vopnafirði er enn um
leiðir að velja. Annað tveggja,
hafi maður komið Hellisheiði, er
að drifa sig upp á Möðrudalsöræfi
og halda til Mývatns, en hitt er að
aka Sandvikurheiði yfir að
Bakkaflóa, þaðan um Brekkna-
heiði út að Þórshöfn á Langanesi.
segir, að hann hafi verið reistur á
þessum stað, vegna þess að þarna
hafi óvætturinn Naddi verið sung-
in til sinna réttu heimkynna I
neðra, og var krossinn settur
þarna i öryggisskyni, svo sá vondi
skratti komi ekki upp aftur.
Mývatn
Langanes er reyndar forvitni-
legtaf ýmsum ástæðum. A nesinu
sjálfu búa ekki margar mann-
eskjur, þar hefur hvert býlið af
öðru farið i eyði — og ekki er langt
siðan þeir lögðu á flótta ofan af
Heiðarfjalli, Amerikanarnir sem
sátu þar i bröggum sinum og
hlustuðu eftir ferðum Rússa.
Herstöðin á Heiðarfjalli var
sett á laggirnar á þeim tima sem
Amerikanar voru hvað hræddast-
ir við Rússa — og skermarnir
tveir, sem enn gnæfa á fjallinu,
eru eins konar minnisvarði um
mestu hræðslu sem upp hefur
sprottið I heimspólitikinni: Eyru
Dullesar kalla sumir Langnes-
ingar skermana góðu. 1 sumar
var vakin athygli á óhræsilegum
viðskilnaði Kananna á Heiðar-
fjalli. Og þessa dagana hafa
menn frá tslenskum aðalverktök-
um á Keflavikurflugvelli legið við
á fjallinu með jarðýtu og eru að
hreinsa upp úrganginn frá Kan-
anum.
En það er vist óhætt að benda
mönnum á forvitnilegri rústir á
Langanesi, en braggahræ Kanans
— og hvernig væri að skrölta alla
leið út I þá frægu Skoruvik, þar
sem enn er búið?
En áfanginn er strangur. Við
eigum eftir að aka fyrir Þistil-
Hvaö fæ ég fyrir
þessar 900 krónur?
FÍB rekur um helgar
10-11 bila til aðstoðar
við vegfarendur, og
veitir ekki af, þar sem
umferð er með mesta
móti úti umalltland
vegna þjóðhátiðar^Ein-
ar Flygenring, íram-
kvæmdastjóri FÍB,
sagði i spjaili við
fréttamann, að stað-
setning bilanna væri
ákvörðuð með tilliti tii
þess hvar fólk kæmi
helst saman um helg-
arnar.
Þessi þjónusta er ómissandi
fyrir ferðalanginn, en samt er
það svo, að margir telja 900
króna árgjald of hátt og hugsa
þá ekki út I hve mikil trygging
er fólgin i þvi að vera skuld-
laus félagsmaður i FÍB.
Félagsmenn ganga fyrir með
alla þjónustu,og starfsmenn
FtB sjá um að útvega vara-
hluti ef með þarf, setja sig I
samband við næsta verkstæði,
og ef vandinn er talsverður, þá
leggja FIB-menn á ráðin um
hvernig menn skuli haga sér I
hverju tilviki. Þetta er sem-
sagt ósköp svipað og hafa
heimilislækni með I ráðum.
Félagsmenn fá fyrsta hálf-
tima viðgerðartima ókeypis
og greiða siðan 100 krónur
fyrir stundarfjórðunginn. Ef
draga þarf bil, þá eru fyrstu 15
km ókeypis, og ef vegalengdin
er löng.fá menn verulegan
afslátt.
Þó að ökutæki séu nú um 63
þúsund, eru félagsmenn I FIB
ekki nema 8-9þúsund, og
miöað við þjónustu FIB er
furöulegt, að ekki skuli fleiri
sjá sér hag i að vera meðlimir,
þvi ef meðlimum fjölgar
verulega þá er hægt að auka
fjölbreytni þjónustunnar.
Félagsmenn, sem standa i
bilakaupum eða telja sig
hlunnfarna á verkstæðum,
njóta ókeypis lögfræðiþjón-
ustu, og hefur FIB tekist að
leiðrétta mörg mál, og er I
sumum tilfellum um allmiklar
fjárhæðir að ræða. Þá hefur
FIB skipt sér talsvert af
klögumálum vegna lélegrar
varahlutaþjónustu, enda er
það dýrt spursmál fyrir bileig-
anda að þurfa að láta 500-900
þúsund króna bil standa
mánuöum saman vegna þess
að varahlutir I bilinn eru ekki
til.
Þá tókst FIB eftir langt þref
að fá niðurfellt gjald af
útvörpum I bilum og sparaði
þar með bileigendum
talsverðar fjárhæðir á ári
hverju.
Þegar þetta er allt haft i
huga þá sést, að menn fá heil-
mikiö fyrir sinar 900 krónur.
sj
Ódýrt hringflug
Hringleiðin er ekki síður áhugaverð í tengslum við
flugið. Þannig hefur Flugfélag íslands tekið upp
hringflug til að tengja einstaka landshluta betur
saman og gefur eftirfarandi tilboð:
Fyrir 7.630 krónur er hægt að ferðast hringinn
Reykjavík, Isafjörður, Akureyri, Egilsstaðir, Horna-
f jörður, Reykjavík. Þaðer hægt að byrja ferðina hvar
sem er, og sé ísaf irði sleppt, þá kostar hún 6.080 krón-
ur. Að auki eru allir venjulegir afslættir i fullu gildi,
þ.e. fyrir hjón, fjölskyldur, hópa o.s.frv.
Þetta verður að teljast mjög gott boð, og skemmti-
leg nýbreytni hjá Flugfélaginu.
Misskilningur aö EDDU-
hótelin séu ekki opin
Flogiö til Mývatns
og gist þar
Þriggja daga ferðir
um Snæfellsnes