Þjóðviljinn - 21.07.1974, Blaðsíða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 21. júll 1974.
hægt að halda þaðan án þess að
hafa ekið „fram í fjörð”, eins og
Eyfirðingar segja, þ.e. að aka
fram fjörðinn, helst að vestan-
verðu, fram að Möðruvöllum
„frammi i firði” og siðan út dal-
inn að austanverðu. Þannig næst
nokkuð góð heildarsýn yfir þetta
mikla landbúnaðarhérað, og við
getum á leiðinni skemmt okkur
við aö rifja upp fornfræg bæja-
nöfn.
Við sleppum þvi hér að tala sér-
staklega um Akureyri — náttum
okkur þar á tjaldstæðinu eða á
einhverju hótelanna. Og enn er
rétt að itreka, að þótt við stefnum
að þvi að æða burtu úr höfuðstað
Norðurlands i fyrramálið, þá er
það svo sannarlega þess virði að
gleyma þessari ferðaáætlun og
eyða hér einum degi, helst fleir-
um, og kanna mannlif hér, söfn og
næsta umhverfi.
Akureyri
— Skagafjöröur
— Reykjavík
Þessi áfangi gæti reyndar allt
eins heitið Akureyri—Reykjavik,
þvi að viðbúið er að mjög margir
hringvegarþeysaranna hafi
kannað Norðurland öllu betur en
Suðausturland og Austfirði, og
vilji þvi halda til Reykjavikur i
einum spretti frá Akureyri.
En margir munu þó ætla sér að
kanna Eyjafjarðarsýslu ræki-
lega. Og þá er að aka sem leið
liggur fram Kræklingahlið i
Hörgárdal — og annað hvort fram
öxnadal og yfir öxnadalsheiði i
Skagafjörð, eða um Galmar-
strönd, Árskógsströnd fyrir
mynni Svarfaðardals gegnum
Dalvik og um ölafsfjörð út á
Siglufjörð yfir Lágheiði.
Reyndar þurfum við að leggja á
okkur nokkurn krók til að komast
á Siglufjörð — en sá krókur er vel
þess virði, þvi Siglufjörður er fag-
ur staður og forvitnilegur fyrir
margra hluta sakir.
Þessi gamli sildarnær er nú
mjög að lifna við, eftir að stjórn-
völd beittu sér fyrir endurbygg-
ingu atvinnutækja byggðarlags-
ins — nú blómstrar þar mannlif
og athafnagleði i stað atvinnu-
leysis og drunga sjöunda áratugs-
ins.
Frá Siglufirði ökum við um
Fljótin, það fræga aðsetur mestu
skiðakappa landsins, og við ökum
um Hofsós inn á Sauðárkrók.
Og nú er rétt að slá botn i leið-
arvisi þennan — svo ófullkominn
sem hann er, þvi það væri ósann-
gjarnt gagnvart fögrum sveitum
Skagafjarðar, Húnavatnssýslu og
Borgarfjarðar, að telja upp það
sem gleður augað við þjóðveginn
— sérhvert það atriði, sem stað-
næmst yrði við, ætti i raun skilið
nákvæma umfjöllun i löngu máli.
Og ef við brunum þjóðveginn yfir
Holtavörðuheiði um Borgarfjörð
til Reykjavikur, þá verðum við að
lofa sjálfum okkur nýjum leið-
angri fljótlega um inndali hérað-
anna, um Snæfellsnes- og
Hnappadaissýslu, Dalasýslu og
Vestfirði. En að sinni þökkum við
samfylgdina.
„Það vekur líka
furðu hve smá-
smugulegir þið eruð”
Formaður félags íhaldsstúdenta ritar lœrifeðrum
sínum í hópi VL-manna
Markús K. Möller, formaður
Stúdentafélagsins Vöku, sem er
samtök þeirra stúdenta við
Háskóla Islands, er fylgja Sjálf-
stæðisflokknum að málum, hefur
óskað eftir að dagblöðin birtu opið
bréf frá honum til fimm háskóla-
kennara, sem stóðu að undir-
skriftasöfnun VL manna i vetur.
Bréfið er alllangt og sér Þjóð-
viljinn ekki ástæðu til að birta það
i heild.
Formaður Vöku ber lof á
prófessorana fyrir framtak
þeirra við undirskriftasöfnunina,
en þegar kemur að kærumálun-
um á hendur stúdentum, blaða-
mönnum og rithöfundum þá
vakna áhyggjur Vökustúdentsins.
Um þau efni segir Markús
Möller i niðurlagi bréfs sins til
háskólakennaranna:
„Þessar málsóknir eru heldur
ekki vel fallnar til að kynna al-
menningi málin. öðru nær. Þær
gefa Þjóðviljaklikunni og fylgi-
fiskum hennar kjörið tækifæri til
að slá ryki i augu fólks með of-
sóknahjali og ritskoðunarþvætt-
ingi. Mönnum blöskra lika fjár-
kröfur ykkar, sem ekki verður
séð að þjóni tilgangi. Ykkur þykir
e.t.v. sem ansdstæðingar ykkar
muni vera tilfinninganæmastir i
buddunni og læri lexiuna best i
gegnum hana. Þar gæti ég tæp-
lega samsinnt ykkur.
Það vekur lika furðu hve smá-
smugulegir þið eruð, að tina til
hverja hnútu, sem að ykkur var
kastaö, hversu lifilf jörleg og
langsótt sem hún kann aó vera.
Slikar aðfarir eru broslegar, og ef
nokkuð þá vekja þær andúð. Auk
þess hafið þið þar til nýlega gert
ónóga grein fyrir málstað ykkar
og ekki ansað róginum. Ef ósann-
indin fá að hljóma nógu oft i friði,
kemur þar, að þau virðast trúleg.
Þessi kenning var að visu ekki
fundin upp á Þjóðviljanum, en
engu að siður er vanhugsað að
svara ekki grófum og itrekuðum
ásökunum um óheiðarleg vinnu-
brögð. Þótt þið vitið sjálfir hvern-
ig málum er háttað og teljið hent-
ast að fela þau dómstólunum, þá
ber mönnum sem fást við stór-
pólitisk verkefni lýðræðisleg
skylda til að sjá um, að almenn-
ingur fái sannar fregnir af at-
burðum. Sé þessa ekki gætt, er
grundvellinum kippt undan heil-
brigðri skoðanamyndun.
Michel Poniatovsky innanrikis-
ráðherra Frakklands kom yfir-
mönnum frönsku rannsóknarlög-
reglunnar mjög á óvart nýlega,
þegar hann fyrirskipaöi aö allar
spjaldskrár yfir róttæka vinstri
menn skyldu eyðilagðar.
Siðan 1968 hefur lögreglan
fylgst mjög vandlega með öllum
samtökum, sem grunuð eru um
að vera vinstri sinnuö, og gert
spjaldskrá yfir alla menn sem
koma nálægt þeim. Hafa sumir
efast um að þessar aðgerðir lög-
ÞRANDHEIMI — Fimm þús-
und ára gömul málverk i helli I
Þrændalögum hafa upplitast og
eyðilagst vegna þess að sett hafa
verið rafmagnsljós I hellinn.
Tæknifræðingur einn, Alf So-
land, skýrði frá þessu I blaða-
grein eftir að hann hafði farið nið-
ur i hellinn og tekið eftir þvi að
málverkin voru orðin miklu
óskýrari en þau voru á nýlegum
ljósmyndum. Hann fór þá að at-
huga málið og komst þá að þvi að
sterk birta frá rafljósum sem
komiðvarfyrir til að auðvelda al-
menningi aðgang að hellinum,
hefur eyðilagt litina, sem gerðir
eru úr blöndu af ýmsum jarðefn-
um og dýrablóði.
Þessi hellamálverk voru máluð
á yngri steinöld eða snemma á
bronsöld, og varðveittust þau
óskemmd i þúsundir ára vegna
Af þessum orsökum verð ég að
lýsa yfir óánægju vegna þeirrar
stefnu, sem þið hafið tekið.”
reglunnar séu fyllilega i sam-
ræmi við stjórnarskrána.
Eyðilegging þessara spjald-
skráa er þáttur I framkvæmd
kosningaloforða Giscard
d’Estaing um að hætta ýmsum
vafasömum aögerðum fyrirrenn-
ara sinna eins og simhlerunum
og sliku. En vikubl. Le Nouvel
Observateur benti þó á að örlög
spjaldskránna skiptu litlu máli
lengur, þvi að það er nefnilega
búið að setja þá alla inn á raf-
eindaheila...
þess að i hellinum var jafnt lofts-
lag — og myrkur.
1 greininni sagði Alf Soland að
sérfræðingar yrðu nú að taka
afstöðu til þess hvort það sé
yfirleitt ráðlegt að setja upp
rafmagnsljós i hellinum og hvort
ekki sé unnt aö draga úr þeim og
búa þannig um þau að þau valdi
ekki skaða. Það þarf lika að
rannsaka hvort eyðileggingin sé
orðin svo mikil að ekki sé unnt að
gera við málverkin.
Það er þvi miður ekki einsdæmi
þegar hellir finnst með fornum
málverkum að menn séu svo
áfjáöir i að græða á þvi að selja
mönnum aðgang að honum að
þeir gæti þess ekkert hvort mál-
verkin séu i hættu. Þannig stór-
skemmdust t.d. hin frægu mál-
verk i Laxcaux-helli i Suður-
Frakklandi.
Spjaldskrár um rót-
tæklinga eyðilagðar
Steinaldar
málverk
skemmast
REYKJAVÍK
ÞJÓÐHÁTÍÐ
3.-5. ÁGÚ5T 1974
LEIKHÚS, SÝNINGAR OG HLJÓMLEIKAR
Leikfélag Reykjavíkur:
Opið í allt sumar.
Sunnudag 21. júlí kl. 20.30: Fló á skinni.
Þriðjudag 23. júli kl. 20.30: islendingaspjöll.
Miðvikudag 24. júlí kl. 20.30: Kertalog.
Fimmtudag 25. júlí kl. 20.30: Selurinn hefur manns-
augu.
Föstudag 26. júlí kl. 20.30: Fló á skinni.
Laugardag 27. júlí kl. 20.30: íslendingaspjöll.
Miðvikudag 31. júlí kl. 20.30: Fló á skinni.
Fimmtudag 1. ágúst kl. 20.30: Islendingaspjöll.
Föstudag 2. ágúst kl. 20.30: Islendingaspjöll.
Sunnudag 4. ágúst kl. 20.30: islendingaspjöll.
Þjóðleikhúsið:
Fimmtudag 25. júli kl. 20.00: Eg vil auðga mitt land.
Föstudag 26. júlí kl. 20.00: Jón Arason.
Laugardag 27. júlí kl. 20.00: Ég vil auðga mitt land.
Miðvikudag 31. júlí kl. 20.00: Jón Arason.
Fimmtudag 1. ágúst kl. 20.30: Litla flugan í Leikhús-
kjallara.
Fösludag 2. ágúsl kl. 20.00: ÞjóBdansalélagiB.
Laugardag 3. ágúst kl. 20.30: Litta llugaa í Leikhús-
kjallara.
Sunnudag 4. ágúst kl. 20.00: Ég vil auðga mitt land.
Þriðjudag 6. ágúst kl. 20.30: Lítla flugan i Leikhús-
kjallara.
Miðvikudag 7. ágúst kl. 20.00: Jón Arason.
Miðasala opin frá 20. júli kl. 13.15—20 Simi 1-1200.
KjarvalsstaSir:
- v ---- ■ . ■ ui . i iti iiiaöymiiy
yhr próun islenzkrar myndlistar frá upphafi. Opin dag-
lega kl. 15—22 og á laugardögum og sunnudögum
kl. 14—22. Sýningunni lýkur 15. ágúst.
Kammersveit Reykjavlkur heldur hljómleika á Kjar-
valsstöðum sunnudaginn 4. ágúst kl. 17.00
Einsöngvari: Elisabet Erlingsdóttir.
Þjóðdansafélag Reykjavíkur:
2. ágúst föstudag kl. 20.00 í Þjóðleikhúsinu.
Dansar: Sigriður Valgeirsdóttir.
Tónlist: Jón Ásgeirsson.
Dansfólk úr Þjóðdansafélagi Reykjavíkur.
í Fossvogsskóla:
1. og 2. ágúst kl. 16.00—22.00.
Sýnishorn af vinnu nemenda úr sögu þjóðarinnar f
1100 ár. , j
í Laugardalshöll:
25. júlí—11. ágúst. Þróunarsýning atvinnuveganna.
Þjóðhátiöarnefnd Reykjavíkur 1974