Þjóðviljinn - 21.07.1974, Page 17
Sunnudagur 21. jtiH 1974. ÞJÓDVILJINN — StÐA 17
Sigurjón
Framhald af 3. siðu.
Tilbreyting í hausum
Á vinnustofu Sigurjóns horfa
allmörg andlit, sem hann hefur
mótað i leir, á gestina. Við spyrj-
um, hvort hann geri mikið af
mannamyndum.
— Ætli ég hafi ekki gert hátt i
200 hausa. Mér finnst mikil til-
breyting i að gera mannamyndir
annað slagið. Hér áður fyrr hafði
ég mikið gagn af þessu. T.d. þeg-
ar ég var úti i Danmörku. Það gat
bjargað við bágbornum fjárhag
að gera einn haus eða svo.
Hér er til dæmis mynd af Einari
Olgeirssyni. Ég hafði gaman af
að gera þá mynd, enda er Einar
stórfróður maður.
— Gerirðu mannamyndir hér í
vinnustofunni?
— Já, ég læt menn taka sér sæti
á þessum palli, og Sigurjón sýnir
okkur pall, sem unnt er að snúa á
alla vegu. — Svo verð ég að reyna
að vera skemmtilegur, svo að
fyrirmyndin sofni ekki. Það getur
orðið býsna erfitt að gera hvort
tveggja isenn, móta andlitsdrætti
i leir og finna upp nýjar og nýjar
skemmtisögur.
Ég steypi alla mína hausa sjálf-
ur I gips, enda lærði ég til þess
verks i byrjun náms mins i Kaup-
mannahöfn.
Lærði fyrst húsamálun
Við förum nú með Sigurjóni út i
garð og virðum fyrir okkur högg-
myndir hans með stórbrotna
Laugarnesfjöruna i bakgrunni.
Ég kynntist snemma Laugar-
nesinu, segir Sigurjón. Ég lærði
húsamálun hjá Einari Gislasyni i
Brennu og vann oft við að mála
holdsveikraspitalann, sem hér
stóð, á sumrin.
Ég útskrifaðist sem málara-
sveinn frá Iðnskólanum 1927.
Þetta var eina leiðin fyrir mig til
að komast út til náms. Þó dugðu
ekki peningarnir, sem ég hafði
safnað mér, nógu lengi. Á miðjum
öðrum vetri talaði ég við prófess-
orinn minn og segi: — Ja, nú verð
ég þvi miður að hætta. Hann vildi
fá að vita ástæðurnar og sagðist
ætla að athuga málið. Siðan fór
•hann i sendiráðið og talaði við
Svein Björnsson, en hann hafði
samband við Krabbe, og mér var
hjálpað um peninga.
Seinna gerðist ég aðstoðarmað-
ur prófessors mins og enn siðar, á
striðsárunum, gerði ég myndir
fyrir opinbera aðila i Danmörku
og var þá sæmilega settur fjár-
hagslega. Þetta voru tvær heljar-
stórar granitmyndir, einlO tonn á
þyngd, sem nú standa framan við
ráðhúsið i Vejle.
Faðmlögin
Þessi mynd heitir faðmlögin,
segir Sigurjón og bendir okkur á
höggmynd af tveimur verum i
innilegum farðmlögum. — Hún er
jafngömul veru íslands i Nato.
Þú ert enn býsna róttækur i
skoðunum á þjóðfélagsmálum,
spyrjum við.
Já, ég gekk i kommúnistaflokk-
inn úti i Danmörku 1939, og þar
kynntist ég mörgum frábærum
mönnum. Þá var býsna heitt i
kolunum, Finnagaldurinn stóð
sem hæst. Ég fylgist alltaf með
hvað er að gerast i pólitikinni.
Annars hef ég aldrei kunnað við
myndlistina i Sovét, segir Sigur-
jón, þegar við förum að ræða um,
að hér áður fyrr hafi kommún-
istaflokkarnir mænt einum of
mikið til austurs. — Þetta voru
steindauðar myndir hjá þeim.
Það var eins og þeir hefðu ekki
tima til að sinna alvarlegri mynd-
list. Þetta var allt i stil við mynd-
skreytingar i vikublöðum á borð
við Hjemmet og Familie Journal.
Langur vinnudagur
Nú var kominn timi til að
kveðja, og Sigurjón gekk með
okkur út á hlað. Við spyrjum,
hvaða stórverkefni séu á döfinni.
Ég hef ekkert stórt á prjónun-
um fyrir utan minnismerkið um
Jón konferensráð. En ég hef alltaf
nóg að gera. Helst vil ég vera að
dútla eitthvað alla tið.
— Það er þá langur vinnudag-
urinn hjá þér, spyrjum við.
Já, ég hugsa, að margur iðnað-
armaðurinn yrði hissa, ef hann
vissi, hversu langur vinnudagur-
inn er hjá manni.
Að svo mæltu kvöddum við Sig-
urjón, og hélt hver i sina átt.
Hann hefur án efa tekið til við að
móta hugmyndir sinar i mynd,
ljósmyndarinn fór inn i dimma
myrkrastofu til að framkalla það,
sem hann hafði fest á filmu, en
blaðamaðurinn settist niður við
ritvél sina og horfði á sólskinið
gegnum glerrúðu og var ekki i
vafa um, að menn á borð við Sig-
urjón ólafsson myndhöggvara
ættu öfundsvert hlutskipti.
ó.P.
Dómur
Framhald af 8. siðu.
upplesið, hvar inni hann uppá-
stendur, að þessara delinqventa
sök til endalyktar gangi, svo sem
þau hafi (eftir eigin meðkenn-
ingu) enn að nýju að blóð-skömm
opinber orðið....”
Nú taka dómendur til að spyrja
sakafólkið, Jón fyrstan. Er hann
spuröur I hverju viðurkenning
hans á þessu síðara broti hafi ver-
ið fólgin.
Jón segir, „að sýslumaður.
Hans Wium hefði sagt sér, að
systir hans, Sunnefa, hefði að
nýju lýst hann föður að þvi barni,
hvar uppá hann segist svarað
hafa: „Það mun verða svo að
vera, ef hún hefur lýst þvl, en ég
er ekki farinn að trúa þvi, að hún
hafi gjört það.” ”
„Aðspurður, hv'drt hann vissi
sig öldungis frían fyrir að hafa
drýgt blóðskömm og holdlegt
samræði með Sunnefu, síðan hans
og hennar barneign hefði I fyrra
sinn opinber orðið. Og var hann
fyrir réttinum hið frekasta mögu-
legt var áminntur að segja sann-
leikann. Svaraði: Að hann fyrir
Guði og sinni samvizku vissi sig
vera frían þar frá.”
Hver var faðirinn?
Þegar Sunnefa kemur fyrir
réttinn, játar hún, að hafa lýst
bróður sinn föður að slðara barn-
inu, en segist hafa gert fyrir
hræðslu sakir við Wlum sýslu-
mann. Hann hafi sagt henni, að
þetta brotið væri ekki verra hinu
fyrra.
„Aðspurð, hvör þá væri faðir að
hennar barni. Hún svarar: „Eng-
inn annar en sýslumaður Hans
Wlum, og ég lýsi hann föður að
þvi.” Alvarlega áminnt af réttin-
um að segja sannleikann — sagð-
ist fyrir Guði ekkert annað sann-
ara vita, en hún nú sagt hefði.”
Enn eru formgallar á má'li Wi-
ums og skikkar lögmaður hann
þvl að greiða 6 rikisdali til Hörgs-
lands hospitals (holdsveiki).
Sýslumanni hafði láðst að koma
með réttarskjölin til alþingis.
Liflátsdómur
Dómendum er nokkur vandi á
höndum I máli þeirra systkina.
En þau hafa játað fyrra brotið og
lögmaður kveður upp dóm I þvl:
„Systkinin Jón Jónsson og
Sunnefa Jónsdóttir, sem að blóð-
skömm og barneign sln á miðlum
hafa 1739 opinber orðið og þann
glæp svo vel fyrir héraðs er þess-
um lögþingis-rétti laus, liðug og
óneydd meökennt, hafa bæði for-
brotiö sitt llf, og skal þvi nefndur
Jón með öxi hálshöggvast, en
konan Sunnefa I vatni drekkj-
ast....”
En lögmaður er slður en svo
miskunnarlaus. Hann skýtur máli
þeirra til konungs og vlsar til
þess, hve ung þau voru, „þá þau
þessi stór-glæpur henti, bæði van-
vitug”. Og á meðan hans
Majestets allranáðugasta reso-
lution (ákvörðun) er ei þar upp á
fengin, skulu þau haldast sem
fangar sýslumanns.
Málið dregst
enn á langinn
Svo virðist sem þau systkin hafi
veriðnáöuð af konungi,a.m.k. eru
þau ekki liflátin. En það átti eftir
að dragast lengi að síðara barns-
málið yrði tekið fyrir.
Þaö er ekki fyrr en 1752, að
nefndardómur dæmir Hans Wium
frá embætti fyrir hirðuleysi og af-
glöp. Aftur á móti vann hann þá
synjunareið að þvi, að hann væri
ekki faðir slðara barns Sunnefu.
A alþingi 1756 játar svo Jón
Jónsson, að hann sé einnig faðir
siðara barns systur sinnar, en
Sunnefa stendur föst á þvi, að fað-
irinn sé enginn annar en sýslu-
maður Wium.
Vorið 1757 vildi það Wium til
happs, að Sunnefa dó, enda var
þess nú skammt að biða, að nið-
urstaða fengist I málinu. 11. júli
sama ár kveður yfirdómur upp
þann úrskurö, að Jón sé sekur og
skuli hann afhöfðast. Dóminum
var þó skotið til konungs, og I árs-
lok 1758 breytti konungur dauða-
dómnum i llfstlðar þrælkunar-
vinnu I Friðrikshafnarkastala.
Sýslumaður Wium undi ekki
dómsniðurstöðunni 1754, og skaut
hann máli sinu til hæstaréttar.
Þar var hann I mal 1756 sýknaður
af öllum ákærum. Tók hann þá
aftur við embætti sinu og slapp
við allar sektir.
Sunnefumálið hefur orðið
mörgum Islendingnum hugstætt,
enda jafnast það á við reyfara
nútímans, hvað spennu snertir.
Enn veit enginn með vissu, hvort
Sunnefa hafði á réttu aö standa.
Þvl er öllum frjálst að ráða þá
gátu, hverjum á sinn hátt. Hér
hefur mál þetta verið rakið til að
gefa lesendum blaðsins örlitla
nasasjón af, hvers konar efni
tveggja alda gamlar alþingis-
bækur hafa að geyma.
Skattskráin
Framhald af bls. 6.
látum við þó eina fljóta með hér.
Þar er að segja frá kaupmanni
einum hér I borg, sem amk. árið
1972 greiddi ekki eyrir I útsvar, og
fáar krónur i önnur opinber gjöld.
Þjóðviljinn gerði á sumri 1972
nokkra grein fyrir bágindum
manns þessa, en hér er á ferðinni
Þorbjörn Jóhannesson, sem
kenndur hefur verið við Borg, en
það er kjötbúðin hans.
Arið 1973 hefur verið gott ár I
versluninni Borg, þvl nú greiðir
Þorbjörn samtals I gjöld 2 miljón-
ir 287 þúsund krónur.
Og það sem meira er, að þessi
maður, sem svo bága afkomu
haföi fyrir svo stuttu slðan, hefur
haft um 3 miljónir I tekjur á
slðasta ári, þvi tekjuskatturinn er
992 þúsund krónur og útsvarið
299.400 krónur.
Til hamingju, Þorbjörn!
-úþ
Kýpur
Framhald af 1. siðu.
byssubát var sökkt út af borginni.
Tyrkir hófu atlöguna með stór-
skotahríð á borgina af sjó, auk
þess sem flugvélar þeirra réðust
að herbækistöðvum Kýpur-
Grikkja.
Þegar eftir innrásina hófust
bardagar milli griskættaðra
manna og tyrkneskættaðra I
Nikosiu og var samkvæmt bresk-
um heimildum byrjað að skjóta
frá tyrkneska borgarhlutanum.
Geisuðu þar enn harðir bardagar
er slöast fréttist. Erlendir frétta-
menn urðu varir við að tyrkneskir
fallhlífahermenn skipulögðu
tyrkneska borgarbúa til orrust-
unnar.Beitt er vélbyssum og
sprengjuvörpum og á hálftima
fresti renna tyrkneskar orrustu-
flugvélar sér yfir borgina og ráð-
ast að stöðvum Kýpur-Grikkja
með skothrlð og sprengjum. Er-
lendu fréttamennirnir, sem sam-
ankomnir eru á hóteli nokkru I
borginni, segja,að hundruð tyrk-
neskra hermanna sæki nú I áttina
til griska borgarhlutans. Eldar
loga vlða I Nikosiu og meðal ann-
ars stóðu aðalbækistöðvar kýp-
rlska þjóðvarðarliðsins I björtu
báli eftir loftárásir Tyrkja. Það
var sem kunnugt er þjóðvarðar-
liðið og foringjar þess frá gríska
hernum, sem framkvæmdu
valdaránið fyrir fimm sólar-
hringum.
Sfðustu fréttir herma að bar-
dagar hafi lognast út af við Kýr-
enlu, en tyrkneskar flugvélar
halda þó ennþá áfram loftárásum
þar um slóðir.
Grlska stjórnin gaf I morgun út
tilskipun um allsherjarhervæð-
ingu og fyrr hafði verið tilkynnt
að langar lestir skriðdreka, bryn-
vagna, flutningabila og sjúkra-
bíla væru á leiðinni til landamæra
Grikklands og Tyrklands I
Þrakiu. 1 Aþenuborg gengu kvik-
sögur um að til vopnaviðskipta
milliherja þessara tveggja Nató-
rikja myndi koma þá og þegar.
Svo er að heyra að tyrkneska
stjórnin hafi endanlega ákveðið
innrásina i nótt, eftir að Joseph
Sisco, aðstoðarutanrikisráðherra
Bandarikjanna, kom til Ankara
frá Aþenuborg með þau skilaboð
að griska stjórnin hafnaði þeirri
kröfu Tyrkja að beita áhrifum
sinum til þess að valdaræninginn
Sampson yrði settur af og Maka-
rlos erkibiskup settur á ný inn i
forsetaembætti. 1 Washington og i
aðalstöðvum Nató I Briissel eru
menn að ærast af áhyggjum yfir
þvl að þetta geti leitt til þess að
Tyrkir segi sig úr Nató, en vitað
er að samúð Sovétmanna er með
Tyrkjum. Fastaráð Nató hefur
svo til látlaust setið á fundum slð-
an innrásin hófst, og mun við-
leitni þess i bráðina beinast I þá
átt að reyna að hindra að vlga-
ferlin breiðist út. Breska stjórnin
hefur lýst yfir megnri vanþóknun
sinni á aðgerðum Tyrkja, en
breska herliðið á Kýpur hefur enn
ekki blandað sér I bardagana.
Vitað er að hæði Bandarlkjamenn
og Bretar hafa herflota til taks
við Kýpur, ásamt með land-
göngusveitum og flugliði.
Tyrkneski herinn er um það bil
þrefalt öflugri en sá griski, en
báðir eru herirnir þrælvopnaðir
allrahanda nýjustu vigvélum frá
Nató og þá einkum Bandarlkjun-
um. 1 herjum Tyrkja eru samtals
nærri hálf miljón manna, auk
þess sem þeir geta með litlum
fyrirvara kvatt út mikið af vara-
liði.
Eitthvað fimmtánhundruð til
tvö þúsund erlendir ferðamenn
eru taldir vera á Kýpur, flestir
frá Vesturlöndum og margir frá
Norðurlöndum. Getur tafist að
koma þeim frá eynni, þvi að
Tyrkir hafa gert flugvöllinn við
Nikosiu ónothæfan með sprengju-
árásum. Þar réðust þeir meðal
annars að norskri flugvél, sem
var á leið með norska hermenn
heim frá Austurlöndum nær, og
löskuðu hana verulega.
Siðustu fréttir fra Nikoslu
hermdu,að fulltrúar Sameinuðu
þjóðanna reyndu að koma á
vopnahléi á þeim grundvelli að
Nikosia yrði lýst óvarin borg og
að kýpriska þjóðvarðarliðið héti
þvi að ráðast ekki á Kýpur-Tyrki.
Reuter-frétt hermir að þjóðvarð-
arliðið muni að öllum likindum
hafna þeim kostum.
Tyrkir kalla innrás sina á Kýp-
ur lögregluaðgerðir til þess að
steypa af stóli ólöglegri stjórn, og
visa I þvi sambandi á samning
Bretlands, Grikklands og Tyrk-
lands um skipan mála á Kýpur.
Ætlaði að sökkva
Framhald af 1 siðu
vopna. Skipstjóranum var ræki-
lega bent á að hann tæki á sig al-
varlega ábyrgð ef skjóta þyrfti á
skipið. En Taylor var hinn vig-
reifasti og sagði eftirlitsskipinu
að hann léti frekar skjóta skipið i
kaf en að gefast upp, þvi að hann
hefði fjórum sinnum tapað mál-
um fyrir landhelgisgæslunni og
þætti sér nóg um.
Rétt eftir hádegi fór varðskipið
mjög nærri togaranum og skaut
fjórum lausum skotum m.a. á
brúna. Siðan var aftur gefin við-
vörun og varðskipið tilkynnt
Taylor með festu að nú yrði skotið
föstum skotum, og um leið var
hann beðinn að flytja allan mann-
skap togarans fram i skipið þvi að
skotið yrði á skipið aftan til. Þá
var enn brýnd fyrir honum sú
hætta sem hann setti skipshöfn
sina I með þvi að sinna ekki kröf-
unni um að stöðva skipið. Auk
þess var honum bent á fjárhags-
legt tjón útgerðarinnar ef skipið
yrði skotið niður og atvínnumissi
margra sjómanna ef skipið fær-
ist. Taylor flutti nú mannskapinn
fram I skipið en sýndi enga til-
burði til stöðvunar.
Föst skot
Um hálffjögurleytið var skotið
föstu skoti yfir togarann og þar
næst þremur skotum föstum.
Skotið var aftan til yfir skipið um
afturgálgann. Kl. rúmlega fjögur
var honum svo sýnd full alvara,
og fyrsta skotið lenti I skipið aft-
antil. Fór skotið I gegnum siðuna
og upp um dekkið þvi að velting-
ur var. Þá var skotið i gegnum
varahlera, og þvi næsta var skot-
ið i gegnum bakborðshliðina, og
fór það skot i gegnum vatnstank-
inn. Alls var skotið 10 föstum
skotum, en úrslitaskotið lenti aft-
antil við miðju.
Guðjón Arngrimsson
3 stýrimaður var
þá skyttan
Fór það i gegnum skipið, rauf
rafstraum sem stjórnaði skurði
skrúfunnar svo að skipið fór i aft-
urábak-skurð og stöðvaðist siðan.
Auk þess rauf skotið rafmagn fyr-
ir lensdælur svo að skipið gat ekki
lensað lekann. Skömmu áður
hafði togarinn snúið við I áttina til
eftirlitsskipsins þar sem það
hafði dregist nokkuð aftur úr.
Sagðist Taylor þurfa að koma
sjúkum manni yfir I skipið. Var
mannaður gúmibátur frá togar-
anum sem sigldi til eftirlitsskips-
ins. Er báturinn kom að Hausa,
reyndist hinn sjúki maður vera
Taylor sjálfur sem ætlaði að
laumast þarna um borð en var
gerður afturreka.
Togarinn tekinn
Þá voru mannaðir tveir gúmi-
bátar frá varðskipinu með 12
mönnum. Fóru þeir um borð I
togarann og tóku þar öll völd.
Ekki var nein fyrirstaða af hálfu
skipshafnar togarans. Þeir sem
fóruum borð I Forester voru undir
stjórn Friðgeirs Olgeirssonar 1.
stýrimanns sem var vopnaður
skambyssu, en auk hans voru:
Birgir Jóhannsson 2. stýrimaður
sem klæddur var froskbúning,
Guðjón Arngrimsson 3. stýrimað-
ur sem var vopnaður skambyssu,
Hjörleifur Pétursson bátsmaður
vopnaður riffli, Benedikt
Svavarsson 3. vélstjóri vopnaður
riffli, Jóhann Einarsson 4. vél-
stjóri, Leifur Guðmundsson bryti
og hásetarnir Jóhann ólafsson,
Jóhann Bjarnason, Þórður
Einarsson. Ingólfur Helgason og
Guðmundur Þórðarson. Voru þeir
allir vopnaðir kylfum.
Þegar varðskipsmenn komu
um borð, virtist ástandið frekar
slæmt vegna þess að dælur
skipsins voru óvirkar. Þá voru
fluttar fjórar dælur úr varð-
skipinu I togarann. Tók aðeins
tvær klukkustundir að dæla úr
skipinu og þétta skotgötin. Var
siðan siglt af stað til lands og
sigldu yfirmenn af varðskipinu
togaranum.
Hér lýkur frásögn Höskuldar
skipherra af atburðunum, en hin
skelegga framganga hans og
örugg stjórn við þessar alvarlegu
aðstæður, hefur vakið mikla
athygli. Fram til þessa hefur
breskum landhelgisbrjótum ætlð
tekist að sleppa undan islenskri
löggæslu siðan fiskveiðilögsagan
var stækkuð I 50 milur.
Hörskuldur sagði fréttaritara
Þjóðviljans að það væri alltaf al-
vörumál og tæki á taugarnar að
skjóta á mannað skip, enda hefði
það verið forðast i lengstu lög.
Skipshöfn Þórs hefði verið
samhent og allt hefði tekist vel.
Var með fullfermi
Gisli Sigurðsson sagði að tals-
vert af fólki hefði verið á bryggj-
unni á Seyðisfirði þegar varðskip-
ið kom með togarann þangað i
gærmorgun. Þar voru komnir
fulltrúar landhelgisgæslunnar og
einnig Bragi Steinarsson fulltrúi
saksóknara rikisins. Skýrslugerð
I málinu er umfangsmikil, og ekki
erbúist við að réttarhöld geti haf-
ist fyrr en á mánudag.
Þvi má bæta við að C.S. Forr-
ester er 700 lesta 5 ára gamall
skuttogari og hið mesta aflaskip.
Skipið var búið að vera 12 daga að
veiðum að þessu sinni og var á
siðasta úthaldsdegi þegar það var
tekið. Aflinn var orðinn rúmar 200
lestir,
Ford
hræddur um
dótturina
Gerald Ford, varaforseti
Bandarikjanna.á dóttur eina, sex-
tán ára að aldri og Súsönnu að
heiti.
Eftir þvi sem slúðurdálkahöf-
undur þess virta blaðs.Washing-
ton Post, segir, þá hefur Ford
fengið her leyniþjónustumanna til
að gæta öryggis stúlkunnar.
Ford kallaði til leyniþjónustu-
mennina vegna þess að margir
álita Súsönnu Ford eftirsóknar-
verða I augum mannræningja —
svipuð manngerð og Patty
Hearst, segja leynilöggarnir og
passa telpuna vel.
UH UL SKAHIGKIPIR
I .1( 7) KCRNniUS
JONSSOði
rVXárk SKOLAVOROUSI ÍG 8
t m BANKASJR4U6