Þjóðviljinn - 25.08.1974, Síða 9
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 25. ágúst 1974.
Sunnudagur 25. ágúst 1974. þ.iápyiLJINN — SÍÐA 9
« » -
Jet-
straumur
1900—1950
Vindkort
Noröurmörk monsúnsins (áður)
Monsún
Vindhreyfingar
frá 1900 til 1950
Lönd á Sahelsvæöinu
•*»*•*
VA
Vindhreyfingar núna
Monsún |
§P<Í7 W/
J Norðurmörk monsúnsins (núna) -
■ (!: r
■ : , 1 ■ K
: .
■'s’
ER
ÍSÖLD
FRAM-
UNDAN?
Þetta kort á absýna verðurfarsbreytingar sem orðið hafa á siðustu árum. Kortið er talið nokkuð gott, en
afar ýkt. Við sjáum t.d. hvernig monsúnmörkin hafa færst f suður og reyndar markalinur allra veður-
farsbeltanna. Færslan er ekki svona mikil eins og kortið sýnir, en það sýnir þó tilhneiginguna.
Frá tjaldstæði I Þýskalandi. Þar I landi hefur rignt geipilega mikið I
sumar, og Þjóðverjar eru margir þeirrar skoðunar, að „bestu árin séu
liðin”.
Hvernig verður veðrið á
næstu áratugum eða næstu
aldirnar? Getum við átt
von á ísöld? Erum við á
leið inn í hlýindatímabil?
Eða er veðrið alla tíð eins/
ef öllum minniháttar
sveiflum er sleppt?
Hér á islandi hefur verið
En sólin skin ekki alltaf hér. Og
hún skin ekki alltaf i útlöndum,
þótt ýmsir standi i þeirri trú.
Sumarið hér hefur verið sólrikt.
Sumarið i norðanverðri Evrópu
hefur veriö rigningasamt. I Norð-
ur-Þýskalandi sást aðeins til sól-
ar þrjá daga júlimánaðar. Og þá
urðu nú þýskir áhyggjufullir.
Sólarleysið i Hamborg i júli
varð til þess, að blaðið Spiegel
setti nokkra blaðamenn i að
skrifa langhund einn um versn-
andi veðurfar i heiminum, kom-
andi isöld, misheppnuö sumar-
leyfi Hamborgaranna og fleiri
Þjóðverja, lækkandi hitastig og
fleira i þeim dúr.
Kannski skrifa þeir góðu Þjóö-
verjar I svolitlum ýkjustil, en
þegar á heildina er litiö, þá er
niöurstaða þeirra ekki svo galin
— og það ber að lita á heildarút-
komuna, ekki „mælingar á stöku
stað”, það gera veöurfræðingar
a.m.k.
Við báðum Pál Bergþórsson,
veöurfræöing, að segja nokkur
orð við okkur, vegna isaldarspáa
þeirra, sem nú eru til umræöu i
þýskum blööum. Páll gaf nú litið
út á þær og vildi litið hafa meö
þau skrif að gera, en benti okkur i
staðinn á ýmis merk rit til að
lesa. Eftirfarandi speki er úr bók-
inni Hafisinn, timaritinu Science
og viðar frá.
Rigning þar —
sólbirta hér
„Bylgjulengdin er yfirleitt slik,
að þaö er samræmi milli góðviðr-
is hér og dumbungs á Norður-
löndunum og jafnvel suður i Mið-
Evrópu”, sagði Páll Bergþórs-
son, „og af sliku má ekki draga of
miklar ályktanir”.
Rigningin i Þýskalandi hefur
gott í sumar. Þurrkar hafa
verið langæir, og þótt hit-
inn hafi ekki slegið nein
met/ þá hefur verið hlýtt.
Þeir, sem eytt hafa sumar-
leyfinu hér heima, eru ekki
síður brúnir á kroppinn, en
þeir sem hafa þeyst til
Mæjorku.
reyndar verið fjári mikil. Sums
staðar hefur allt farið á flot hvað
eftir annaö, og ferðamenn, fólk i
sumarleyfi, hefur bókstaflega
flúið norðurhluta Þýskalands.
En fer veðurfar ekki kólnandi?
„Jörðin er almennt að kólna”,
sagði Páll, ,,og þess gætir á einu
svæði i ár, ööru það næsta. Það er
ekki hægt aö dæma eftir einstök-
um tilfellum”.
Er hægt að segja til um veður-
farsþróun i framtiðinni?
„Það er með nokkrum likum
hægt að benda á breytingar dálit-
iö fram i timann — en ekki i nein-
um mæli”.
Kannski er veðurfræðin þau
visindi, sem hvað erfiöast er að
fóta sig á, en með timanum hafa
þó safnast aö mönnum þó nokkur
gögn, rannsóknir og kannanir,
sem segja frá veðurfarssveiflum
fyrri alda, og kannski má nokkuð
ráða af þvi. Og svo eru til at-
hyglisveröir fræðimenn, sem sett
hafa fram ógnvekjandi kenningar
um kólnandi veðurfar, versnandi
lifsskilyrði á jörðinni.
Einn þeirra manna er banda-
riski veöurfræöingurinn Reid A.
Bryson. Bryson ritaði langa
grein i timaritið Science, sem út
kom 17. mai i vor. Þar reynir
hann að fóta sig á kenningum
varðandi veöurfarsbreytingar.
Hve mikil þarf breyting á veður-
fari að vera, til að skipta máli?
spyr hann, og: Hve hratt getur
veðráttan breyst?
Bryson heldur þvi fram, að
veðurfar fari kólnándi núna af
mannavöldum.
Breytir maöurinn
veörinu?
Bryson heldur þvi fram. Hann
bendir á, að vegna ofnotkunar
mannsins á jörðinni, upplásturs,
rykagna, sem daglega berist i
tonnatugum út i andrúmsloftiö,
myndist belti þessara rykagna i
loftinu, og þessi belti hljóti aö
endurkasta töluvert miklu magni
sólarorku frá jörðinni.
Við spurðum Pál Bergþórsson
svolitið nánar um þetta:
„Vegna aðgerða mannsins, þá
magnast náttúrlegar breytingar
á veðurfari. Þróunin gengur
hraðar, en ef náttúran ein hefði
mátt ráða. Það er nokkuö eðlilegt
samband milli þessara þurrka i
Afriku og kólnunar jarðarinnar”,
sagði Páll.
Uppblástur, eldgos
og mengun
Ef uppblásturinn i veröldinni, i
Afriku og i Asiu, og jafnvel á Is-
landi, verður til að endurkasta
sólarljósinu frá jörðinni, hlýtur
fleira að hjálpa til við þá þróun.
Bryson bendir á það mikla
magn smákorna sem berist út i
andrúmsloftið við eldgos. Hann
reynir jafnvel að færa sönnur á,
að jörðin hafi kólnað i réttu hlut-
falli við fjölgun eldgosa á siðari
timum.
Og maðurinn bætir um betur.
Uppblástur er af hans völdum að
nokkru leyti, en það er hin gifur-
lega iðnaðarmengun lika. Hvers
kyns óhreinindi, eituragnir verk-
smiðja, berast i miklum mæli út i
andrúmsloftið daglega.
Þessar agnir hljóta að hafa sin
áhrif — og sá góði Bryson er lika á
þvi.
En kannski er varhugavert að
lita á skoðanir Brysons sem sið-
asta orðið I þessum efnum.
Island vinsælt
meðal veðurfræðinga
Islands er oftlega getið i skrifum
erlendra veðurfræðinga, og i þvi
sambandi er oft vitnað I athugan-
ir islenskra veöurfræðinga og
annarra náttúruvisindamanna.
Bryson, sem að ofan var nefnd-
ur, hefur t.d. sérstakt dálæti á at-
hugunum á heyafla islenskra
bænda með tilliti til hitastigs á
umliönum öldum.
Skýringin á þessum áhuga er
sú, aö tsland er staðsett á þeim
hluta norðurhvelsins, þar sem
hitabreytinga gætir áberandi
mikið. Ef jörðin kólnar, þá finn-
um við það á okkur hér. M.a. með
þvi að dregur úr grassprettu, haf-
is kemur nær landi o.s.frv.
Að lesa í jökla
og mýrar
Það er hægt að komast að raun
um, hvernig veðurfar hafi verið
fyrr á öldum með þvi að greina
isótópa jökuliss. í sérprentun úr
bókinni Hafisinn, sem Almenna
bókafélagið gaf út fyrir nokkrum
árum, segir svo i grein Páls Berg-
þórssonar:„A fyrri hluta 12. aldar
þroskast korn á hverju ári á
Reykhólum, þó að ekki sé hægt að
segja sömu sögu frá tilraunastöð
landbúnaðarins þar á mildasta
áratugnum eftir 1930. Flestum er-
lendum loftslagsfræðingum ber
saman um, að viðtæk kólnun hafi
orðið á norðurhveli nálægt 1200.
Jöklar gengu fram i ölpum og
Alaska, og talið er, að i fjalllendi
Bandarikjanna hafi orðiö mikil
röskun á búsetu Indiána vegna
loftslags. Hér á landi verður um
þetta leyti mikil efnaleg hnignun,
eins og sagnfræðingar hafa bent
á. Eitthvert órækasta vitnið um
þessar loftslagsbreytingar eru þó
nýjar rannsóknir, sem gerðar
hafa veriö á súrefni i jökulis frá
Norðvestur-Grænlandi.
Samkvæmt þeim er lofstlag
milt þar I landi fram á seinni
hluta 12. aldar, furðu likt og kem-
ur fram á linuritum minum, en
kólnar þá skyndilega. Siöan helst
það yfirleitt svipað fram yfir
miðja 19. öld, en kólnar þá á ný...
Þetta var úr Hafisnum, og Páll
kom þar aöeins inn á rannsóknir á
súrefni i jökulis. Hann benti okk-
ur einnig á aðra aðferð visinda-
manna viö að ákvarða hitastig.
Fræ trjáa geymast vel gegnum
aldir i mýrum. Visindamenn hafa
nokkuð gert af þvi, að grafa fræ
upp i mýrum og kanna þau. Fræin
liggja I aldurslögum — það er
mikið um fræ, þegar hlý timabil
ganga yfir, en litið, ef kalt hefur
verið.
Þannig er hægt að gera sér
grein fyrir veðurfari fyrri alda.
En þýðir að spá fram i timann?
Það er kannski i lagi að spá is-
öld — ef við segjum að isöld verði
komin eftir svo sem 100 eða 200
ár. Þá erum við áreiðanlega kom-
in undir græna torfu eða hvitan
jaka.
Heitt á Spitzbergen
Páll Bergþórsson: Þróun veör-
áttu og breytingar á veðri eru
flókin mál að rýna i, og mörgum
hættir til aö skýra þau á of ein-
faldan hátt.
En það er kannski óhætt að
benda á eitt atriði. Hitabreyting-
ar finnast fljótlega hér á landi. Og
það viröist vera nokkur samsvör-
un i hitabreytingum hér og norður
á Spitzbergen. Ef hitastig lækkar
á Spitzbergen og er undir meðal-
lagi um langa hriö, þá lækkar hiti
einnig hér. Breytingin hér kemur
um þremur árum á eftir Spitz-
bergen.
Nú hefur hiti farið hækkandi
norður þar siöustu árin. Og ef
þessi samsvörun heldur áfram,
þá ætti þeirra hlýinda, sem þar
hafa verið, að gæta hér næstu ár.
Straumar í
lofti og legi
„Góðu árin eru að baki” grétu
þeir hjá Spiegel i Þýskalandi um
daginn, og voru handvissir um að
isöld færi i hönd. Þeir vitnuðu
m.a. i Bryson þann sem hér var
sagt frá og fleiri svartsýna veður-
fræðinga.
Hafisinn tekur sunnar nú en áð-
ur. Portúgalir hafa rekist á jökla
þar suðurundir þvi suðlæga landi,
og það verður með öðru t41 að
setja hroll að Þjóðverjum.
En hvað veldur veðurfars-
breytingum? Uppblástur, meng-
un og eldgos — já, en það verður
vist að taka ótal margt annað
með i reikninginn.
Hafstraumar hafa sannarlega
sitt að segja. Við urðum, tslend-
ingar, áþreifanlega varir við þær
breytingar sem urðu á högum
okkar, þegar hafisinn lagðist að
Norðurlandihér um árið. Það var
rétt um sama leyti að sildin hvarf
okkur. Skyndilega hætti þessi
nytjafiskur að koma að landinu,
en Norðmenn héldu áfram að
drepa hana norður i hafi.
Hvað olli? Ofveiði?
Breyting á hafstraumum hefur
án efa átt sinn þátt i þvi að færa
isinn að landinu — og sú breyting
hefur jafnframt valdið einhverj-
um grundvallarbreytingum á
iifsháttum sildarinnar — og i ráð-
leysi hefur hún sveimað noröur
frá landinu og inn I norskar sild-
arnætur lengst norður i Ballar-
hafi.
Veöurfarsbreytingar
i hernfföarskyni
Undanfarin ár hefur nokkuð
verið rætt um hugsanlegar breyt-
ingar, sem menn gætu framið á
veðurfari vegna hernaðar. Sovét-
menn og Kanar hafa jafnvel
gengið svo langt að gera með sér
einhvern samning þar að lútandi.
Við spurðum Pál Bergþórsson,
hvort hann teldi liklegt að menn
gætu breytt veðurfari i heiminum
skyndilega.
,,Já,” sagði Pall, „eflaust er
það hugsanlegt, en þá aðeins á af-
ar takmörkuðum svæðum Og viö
skulum bara vona að Amerikanar
og Rússar taki ekki upp á þvi að
senda hvorir öðrum lægðardrög
og hæðarsvæði yfir Atlantshafið
— við gætum orðið fyrir truflun-
um hér. Og hver veit nema Brés-
néf hefði áhuga á að láta eldi og
brennisteini rigna yfir Keflavik-
urherstöðina, i hefndarskyni fyrir
langæ frost innan Kremlarmúra i
mai. — GG
Valda þurrkarnir I Afrfku miklu um kólnun jarðarinnar? Sumir frreöimenn eru á þvi — uppblásturinn
endurvarpar geislum sólarinnar frá jöröinni.
Rætt við Þorstein Vilhjálmsson,
eðlisfræðing, formann Reykjavíkurdeildar
Norræna sumarháskólans
Samskipti
og
gagn rýn i
Dagana' 1.-10. ágúst
var haldið i Umeá i
norðanverðri Sviþjóð
sumarmót Norræna
sumarháskólans
(NSH). Blaðið hitti ný-
lega að máli formann
Rey k j a vikur deilda r
NSH* Þorstein Vil-
hjálmsson eðlisfræð-
ing, og lagði fyrir hann
nokkrar spurningar.
— Tókú margir tslendingar
þátt i sumarmótinu að þessu
sinni, Þorsteinn?
— Við vorum samtals átta.
Auk min voru þarna Björn Ste-
fánsson búnaðarhagfræðingur,
Hrafn Hallgrimsson arkitekt,
Páll Skúlason bókavörður,
Rannveig Jónsdóttir kennari,
Vikar Pétursson rafmagnsverk-
fræðingur, Vilborg Harðardóttir
blaöamaður og Vilborg Sigurð-
ardóttir kennari. Þátttakendur
voru samtals á þriðja hundrað.
— Hver er tilgangur sumar-
háskólans?
— Tilgangurinn er i stuttu
máli sá að stofn-a til samskipta
menntamanna úr mismunandi
greinum og auka gagnrýninn
skilning þeirra á sameiginleg-
um visindalegum vandamálum.
Aðferöir visindanna eru krufnar
til mergjar, sem og staða þeirra
i samfélaginu. NSH hefur oft-
sinnis fitjað upp á rannsóknum
á nýjum sviðum, sem hafa siðan
verið tekin upp sem kennslu-
greinar við hefðbundna háskóla.
—Geta aðeins menntamenn tek-
ið þátt i starfinu?
— Nei, þátttaka stendur öll-
um til boða, sem geta haft gagn
af henni og lagt eitthvað af
mörkum. Til að mynda hafa
verkamenn tekið þátt i náms-
hópum, sem hafa fjallað um
sögu verkalýðshreyfingarinnar
og um umhverfi á vinnustöðum,
og skilst mér að það hafi gefist
vel.
— Er þetta þá ekki býsna
óvenjulegur háskóli?
— Jú, það er vist óhætt að
fullyrða, að hann á sér ekki
margar hliðstæður. M.a. hefur
hann engan fastan samastað,
nema ef við tinum til skrifstofu-
kytru i Kaupmannahöfn. Starf-
semi hvers árs fer þannig fram,
að fyrst eru valin kringum 10
verkefni. Staðardeildirnar, sem
eru 20 talsins um öll Norður-
lönd, ákveða hver þessara efna
þær taka á dagskrá hjá sér. í
byrjun árs eru svo settir á lagg-
irnar námshópar um þau efni á
viðkomandi staö. Hópar sem
fást við sama efni á mismun-
andi stöðum hafa siðan bréflegt
samband sin á milli eftir föng-
um og nokkrir menn úr hverjum
slikum hópi koma saman á
sumarmótinu og bera saman
bækur sinar. A haustin eiga
hóparnir svo að draga saman
niðurstöður sinar, en sumir
halda þó áfram meö sama efni
næsta ár.
— Við getum sagt aö þetta sé
I grófum dráttum, þungamiðj
an i starfseminni, en auk þess
eru haldnar sérstakar ráðstefn-
ur, seminör o.þul. um ákveðin
efni.
— Hvernig er aflað fjár til
starfseminnar?
— Fyrst er þess að geta, aö
allt námshópastarfið er ólaunað
og NSH hefur engan fastan
starfsmann nema fram-
kvæmdastjóra og starfsfólk á
skrifstofu. Helstu útgjaldalið-
irnir eru þvi ferðalög, póstur og
simi og fjölritun og prentun. Til
skamms tima veitti hvert Norö-
urlandanna um sig fé á fjárlög-
um til sumarháskólans. Eftir að
Norræna menningarmálaskrif-
stofan i Kaupmannahöfn kom til
sögunnar, er einni fúlgu veitt til
hennar, og hún skiptir henni siö-
an milli hinna ýmsu samnor-
rænu menningarmálastofnana.
Fjárveitingin frá þessari skrif-
stofu er þvi nær eina tekjuiind
NSH.
— Mig minnir að ég hafi ein-
hvern timann séö eitthvaö talaö
um fjárhag sumarháskólans i
blööum — getur það verið rétt?
— Já, það kemur heim. Málið
er það, að fjárveitingin hefur
verið skorin ótæpilega niöur.
1973 nam hún einni miljón
danskra króna, en á þessu ári
fær NSH hálfa miljón i eiginlega
fjárveitingu frá menningar-
málaskrifstofunni en auk þess
300þúsund af ráðstöfunarfé nor-
rænu ráöherranefndarinnar. 1
tillögum skrifstofunnar fyrir
næsta ár er svo aöeins gert ráö
fyrir hálfri miljón danskri.
— Hvernig stendur á þessum
niðurskuröi?
— Ja, nú ættirðu kannski að
spyrja einhverja aðra en mig,
en ég veit þó, að fyrir nokkrum
árum urðu nokkur blaðaskrif á
Norðurlöndum um sumarhá-
skólann. Það voru einkum
ihaldssamari stjórnmálamenn i
Danmörku, sem gengu þarna
fram fyrir skjöldu og gagn-
rýndu verkefnaval NSH, sem
þeir töldu bera fullmikinn keim
af marxisma. Fyrsti niður-
skurðurinn mun hafa verið
gerður undir áhrifum frá þess-
um blaðaskrifum, en samtimis
var sett niður sérstök nefnd með
einum fulltrúa frá hverju Norð-
urlandanna til að gera úttekt á
starfsemi NSH. Fulltrúi Islands
i nefndinni var Guðaugur Þor-
/aldsson núverandi háskóla-
rektor. Þessi nefnd kynnti sér
starf sumarháskólans allræki-
lega og skilaði skýrslu i júni s.l.
þar er aö finna hlutlæga og
hleypidómalausa lýsingu á
NSH, og niöurstöður og tillögur
nefndarinnar eru býsna jákvæð-
ar. Það skýtur þvi nokkuð
skökku við, að embættismenn
menningarmálaskrifstofunnar
skuli leggja til, að haldið verði
áfram að skera fjárveitinguna
niður, enda minnast þeir hvorki
á úttektarnefndina né álit henn-
ar I greinargerð fyrir tillögum
sinum.
— Að lokum Þorsteinn: Tel-
urðu starfsemi sumarháskólans
eiga sérstakt erindi við okkur
Islendinga?
— Já, ég tel hiklaust að gagn-
rýnir islenskir menntamenn og
aðrir, sem hafa áhuga á mark-
miði NSH eins og ég lýsti þvi
lauslega hér i byrjun, ættu aö
hugleiða hvort þeir hefðu ekki
bæði gagn og gaman af þvi að
veita sér smáhvild frá lifsþæg-
indakapphiaupinu til að taka
þátt i námshópastarfi og kynn-
ast þvi sem er að gerast eða
verið er að ræða úti i heimi um
hin ýmsu mál sem NSH tekur
upp. Okkur íslendingum hættir
annars til að einangrast hér úti i
miöju hafi, þannig að við getum
i hæsta lagi fylgst með á ein-
hverju þröngu sérsviði. Auk
þess veita sumarmótin ágætt
tækifæri til að stofna til per-
sónulegra kynna.
— Mér er ekki kunnugt um
neitt form norræns samstarfs,
sem er jafnvænlegt til árangurs
og það sem Norræni sumarhá-
skólinn hefur valið sér.
Evrópuráöstefna skáta 1974
Fyrsta til sjötta september n.k.
veröur Evrópuráðstefna skáta
haldin hér á landi, nánar tiltekið á
Hótel Loftleiðum. Ráðstefnu
þessa munu sækja um 200 erlend-
ir þátttakendur frá um 20 Evr-
ópulöndum, auk fulltrúa héðan
frá islandi.
Þetta verður i fyrsta skipti sem
Evrópuráöstefnurnar verða bæði
fyrir drengja- og kvenskáta, en
þar til nú hafa þessar ráðstefnur
verið aðskildar, eftir kynjum,
enda aðeins um helmingur land-
anna, sem hefur einhverja telj-
andi samvinnu milli kven- og
drengjaskátabandalaga.
Hér á Islandi hafa skátar verið i
sameiginlegu bandalagi s.l. 30 ár,
eða lengur en i nokkru öðru landi.
Er það meðal annars ástæðan til
þess, að þessi fyrsta sameigin-
lega Evrópuráöstefna er haldin
hér á landi.
1 samræmi við uppbyggingu
ráðstefnunnar, þá verður megin-
viðfangsefni hennar annars veg-
ar: „Hvernig getur skátastarfið
bestkomið til móts við aðkallandi
þarfir unglinga i Evrópu?” og
hinsvegar: „Sameiginleg mennt-
un og samstarf kynjanna”. Af
öðrum viðfangsefnum ráðstefn-
unnar má nefna: Skátastörf með-
al afbrigðilegra hópa, Uppbygg-
ing i nýjum bæjarhverfum og
sambandiö milli landanna i Evr-
ópu.
Auk beinna fundarstarfa munu
ráðstefnugestir heimsækja skáta
i starfi i skátaheimilum hér i
Reykjavik og næsta nágrenni, og
fara i ferð um Suðurlandsundir-
lendið, meö viðkomu á Úlfljóst-
vatni, sem miðstöð fyrir foringja-
þjálfun og sem útivistarsvæði
fyrir skáta.
Eitt kvöldið verður öllum þátt-
takendum ráðstefnunnar boðið á
islensk heimili til kvöldverðar og
kynningar.
Einnig munu ráðstefnugestir
þiggja boð opinberra aðila og fara
i skoðunarferð um Reykjavik.