Þjóðviljinn - 25.08.1974, Side 11
Sunnudagur 25. ágdst 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
Poppflokkurinn Pelican ásamt meðreiðarsveinum. Frá vinstri: Björgvin Gislason, ómar óskarsson, As-
geir Óskarsson, Hlöðver Smári Haraldsson, Pétur Kristjánsson, Jón Ólafsson og Kristján Guðmunds-
son.
Pelican heldur hljóm-
leika í Austurbæjarbíói
A miðvikudaginn verða haldnir
miðnæturhljómleikar I Austur-
bæjarbiói og hefjast þeir kl. 23.30.
Það er poppflokkurinn Pelican
sem þar treður upp og fiytur hann
þar lög af væntanlegri plötu sinni
ásamt öðrum nýjum og gömlum
lögum.
Hljómsveitin Pelican er skipuð
eftirtöldum mönnum: Asgeir
Óskarsson lemur húðir og önnur
slagverk, Björgvin Gislason leik-
ur á gltar, pianó og fyrirbærið
„mini-moog synthesizer” sem er
rafknúin hljóðvél, Jón Ólafsson
leikur á bassa og tekur lagið,
Ómar Óskarsson leikur á gitar og
syngur og Pétur Kristjánsson er
aðalsöngvari hópsins.
Á hljómleikunum fá þeir liðs-
auka og eru það þeir Hlöðver
Smári Haraldsson úr hljómsveit-
inni Islandiu sem leikur á áður-
nefndan moog og Kristján Guð-
mundsson sem lék i hljómsveit-
inni Bravó frá Akureyri en hún
var við lýði á sokkabandsárum
poppsins hér á landi.
Hljómleikunum er skipt i
tvennt og heitir sá hlutinn sem
fluttur verður fyrir hlé ,,1 ró og
næði”. Þar flytja þeir félagar
ellefu lög og eru sex þeirra af
væntanlegri breiðskifu flokksins
sem á að heita Uppteknir. Eitt lag
er af plötu sem hljómsveitin
Náttúra gaf út fyrir tveimur ár-
um eða svo og heitir Magic Key.
Afgangurinn er ný lög.
Eftir 20 minútna hlé tekur við
„Meira fjör” en þá verða flutt niu
lög. Eitt þeirra er af Magic Key,
fjögur af Uppteknir en afgangur-
inn hefur ekki veriðfestur á skifu.
011 eru lögin eftir meðlimi flokks-
ins að undanteknum Sprengisandi
Kaldalónsjer þeir félagar hafa út-
sett. Af þeim félögum er Ómar
Óskarsson afkastamestur i laga-
samningu og á hann alls tiu lög á
hljómleikunum. Björgvin kemur
fast á hæla honum með sjö,og svo
eiga þeir Asgeir og Jón sitt lagið
hvor.
Um hljóðstjórn á hljómleikun-
um sér gamalkunn hetja úr popp-
heiminum, Sigurður Arnason,
sem lengi lék á bassa I Náttúru og
öðrum merkum hljómsveitum,
sem horfnar eru af vettvangi.
Þorvaldur Helgason hefur yfir-
umsjón með öllum tækjabúnaði,
sem er ósmár, og Pjetur Maack
sér um sviðsskreytingu. Sá sem
heldur um spottana og „arran-
sjerar” hlutunum er Ómar Valdi-
miarsson blaðamaður. Þess má
geta að miðaverði er mjög stillt i
hóf ef borið er saman við nýaf-
staðna og umdeilda hljómleika
Nazareth. Kosta þeir 600 krónur
og fást I bióinu.
Hljómleikar þessir verða að
teljast til jákvæðra tiðinda úr
poppheiminum, enda Pelican ef-
laust ein albesta hljómsveit
landsins á sinu sviði. Mættu aðrir
popparar bera gæfu til að feta i
fótspor þeirra og lifga upp á
hljómlistarlif borgarinnar þvi
þaö er mjög sjaldgæft að tækifæri
gefist til að hlýða á vandaða
popptónlist við góð skilyrði,
þ.e.a.s. án þess að tónlistin þurfi
að standa i hörkubaráttu við
glasaglaum og fylleriislæti á
öldurhúsum borgarinnar. —ÞH
i ■ »ir
,1 f nk
w W i ®Sl|I i
Aðstandendur Light Nights. Frá vinstri: Ingþór Sigurbjörnsson, Kjartan Eggertsson, Kristln Magnús
Guðbjartsdóttir, Simon ívarsson, Ingibjörg Snæbjörnsdóttir sem sér um ljósabúnað og Halldór Snorra-
son framkvæmdastjóri.
Light Nights
að hœtta
Eins og komið hefur
fram í fréttum hefur hóp-
ur fólks, leikara og tón-
listarmanna, boðið erlend-
um ferðamönnum upp á
sýnishorn íslenskrar
menningar f lutt á ensku að
Hótel Loftleiðum í sumar
og fjögur sumur þar áður.
Ganga þær undir nafninu
Light Nights.
Nú fer sýningum þessum að
fækka og verða þrjár þær siðustu
á mánudag, þriðjudag og mið-
vikudag. Sýningarnar eru i ráð-
stefnusal hótelsins og hefjast
klukkan 21.
I þessum sýningum koma fram
þau Kristin Magnús Guðbjarts-
Framhald á bls. 13
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
LANDSPÍTALINN:
AÐSTOÐARLÆKNAR óskast á
Blóðmeinafræðideild og á mein-
efnafræðideild RANNSÓKNA-
STOFU spitalans frá 1. október n.k.
eða eftir samkomulagi. U m er að
ræða stöður i 6 mánuði með mögu-
leika á framlengingu. Umsóknar-
frestur er til 20. september n.k.
Upplýsingar veitir yfirlæknir
deildarinnar, simi 24160.
MEINATÆKNIR Óskast á
RANNSÓKNADEILD spitalans frá
1. október n.k. eða eftir samkomu-
lagi. Upplýsingar veitir yfirlæknir
deildarinnar, simi 24160.
AÐSTOÐARLÆKNIR óskast við
Taugalækningadeild nú þegar, eða
eftir samkomulagi. Upplýsingar
veitir yfirlæknir deildarinnar, simi
24160.
RITARI (læknaritari) óskast til
starfa á BARNASPÍTALA
HRINGSINS helzt frá 3. september
n.k. eða eftir samkomulagi.
Stúdentspróf eða sambærileg
menntun ásamt góðri vélritunar-
kunnáttu nauðsynleg. Upplýsingar
veitir starfsmannastjóri, simi 11765.
AÐSTOÐARMATRÁÐSKONA
óskast til starfa i eldhúsi spitalans
nú þegar eða eftir samkomulagi.
Húsmæðrakennaraskólamenntun
eða önnur sambærileg menntun
nauðsynleg. Upplýsingar veitir
matráðskonan, simi 24160.
STARFSSTÚLKUR óskast til starfa
i eldhúsi spitalans. Vinnutimi frá kl.
9.00 — 15.00. Upplýsingar veitir
matráðskonan, simi 24160.
RANNSÓKNASTOFA HÁSKÓLANS:
AÐSTOÐARLÆKNIR óskast til
starfa á liffærameinafræðideild nú
þegar eða eftir samkomulagi. Upp-
lýsingar veitir yfirlæknir, simi
19506.
KLEPPSSPÍTALINN:
FÓSTRA óskast til starfa á DAG-
HEIMILI fyrir börn starfsfólks
spitalans. Upplýsingar veitir for-
stöðukona spitalans, simi 38160.
STARFSSTÚLKA óskast til starfa á
DAGHEIMILINU. Upplýsingar
veitir forstöðukona spitalans, simi
38160.
Reykjavik, 23. ágúst 1974.
SKRIFSTOFA
RIKISSPÍTALANNA
EIRlKSGÖTU 5, SÍM111765