Þjóðviljinn - 06.10.1974, Síða 1
UOWIUINN
Sunnudagur 6. október 1974 — 39. árg. 194. tbl.
Gjaldeyris- og
skattsvik uppá
tugi miljóna?
íslenskur fararstjóri fullyrðir að
íslendingar eigi fasteignir á Spáni
í einu dagblaðanna sl.
miðvikudag segir Gísli
Baldur Garðarsson, sem
starfað hefur sem farar-
stjóri hjá ferðaskrifstofu á
Spáni sl. sumar, að íslend-
ingar eigi fasteignir á
Spáni. Orðrétt segir Gísli:
ið hefði aldrei veitt leyfi til fast-
eignakaupa á Spáni.
Þar með er það útilokað að
þessar fasteignir hafi verið
keyptar löglega, nema þvi aðeins
að sjómenn, sem fá hluta launa
sinna greiddan i erlendum gjald-
eyri, séu þeir i millilandasigling-
um, hafi náð að nurla þessum
gjaldeyri saman til kaupa á fast-
eign. Slikt væri sennilega löglegt,
en þó þyrftu þeir þá að gefa fast-
eignina upp til skatts, vegna fast-
eignaskatta. Eins gætu flugmenn,
sem einnig fá hluta launa sinna i
Framhald á bls. 13
Skyldu einhverjirE
Islendingar
eiga íbúðir
i þessum
háhýsum í
Torremolinos?
1
m
m
m
t
— Nei, ég veit ekki um neinn is-
lending sem stundar sjálfstæðan
atvinnurekstur á Torremolinos,
en aftur á móti er nokkuð um það
að þeir eigi þar fasteignir.
Og nú verður manni spurn
hverjir eru það sem eiga fast-
eignir á Spáni, og hvernig gátu
þeir eignast þær á löglegan hátt?
Með þessa spurningu snerum
við okkur til gjaldeyriseftirlits-
ins. Þar fengum við þau svör að
þar hefði aldrei verið veitt gjald-
eyrisleyfi til fasteignakaupa á
Spáni.
Næst snerum við okkur til ráðu-
neytisstjóra fjármálaráðuneytis-
ins og þar fengust sömu svör.
Fjármálaráðuneytið hefur aldrei
veitt leyfi til fasteignakaupa á
Spáni og fullyrt var það sama og i
gjaldeyriseftirlitinu, gjaldeyrir
til sliks hefur aldrei verið veittur.
Þá lá næst fyrir að snúa sér til
viðskiptamálaráðuneytisins. Þar
fengum við þau svör að ráðuneyt-
Stórátak ígatna-
gerð á Vestfjörðum
Fyrir rúmum mánuði hófst
fyrsti áfangi að varanlegri gatna-
gerð á Vestfjörðum, en 9 sveitar-
félög standa að þessari áætlun
sem reiknað er með að standi i 5
ár. Vestfirðingar nota malbik en
ekki olfumöl eins og viða er notað
til þessarar gatnagcrðar. Rúmur
mánuður er siðan hafist var
handa fyrir vestan, en nokkuð
dróst að hægt væri að byrja
HANN GÆTIR OKKAR
Þetta er Harold G. Rich, aðmiráll á Keflavíkurflugvelli. Hann
hefur um fjögurra mánaða skeið verið æðsti yfirmaður herliðs-
ins hér og gætir okkar sem sjáaldurs auga sins, þannig að ekki
þurfum við að óttast rússa.
Þjóðviljamenn tóku þessa mynd af aðmlrálnum i skrifstofu
hans á vellinum, en á baksiðu birtist fyrsti hluti greinaflokks um
herinn og áhrif hans á umhverfið.
vegna þess að vél sú sem mal-
bikið leggur var ekki gerð fyrir
þá malbiksblöndu sem nota átti
og varð að breyta blöndunni
nokkuð.
Aætlað er að vinna fyrir
Bolungarvik, Flateyri, Þingeyri
og Isaf jörð á þessu ári og er þegar
lokið við að malbika á þremur
fyrsttöldu stöðunum. 1 gær var
svo hafist handa um malbikun á
ísafirði. Auk þessa hefur verið
malbikað fyrir vegagerðina. 1 allt
eru það á milli 6 og 7 km. sem
malbikaðir verða á þessum
fjórum stöðum i haust. Inni þvi er
2,5 km. fyrir vegagerðina, sem
m.a. malbikar vegaspottann milli
tsafjarðar og Hnifsdals.
Fyrir utan þær götur og vegi
sem lagt verður á I haust eru
einnig malbikuð plön fyrir frysti-
hús og fyrir tsafjarðarhöfn.
Að sögn Bolla Kjartanssonar
bæjarstjóra á tsafirði voru það 9
sveitarfélög á Vestfjörðum sem
stofnuðu fyrirtæki sem heitir
Atak, og sér um það framkvæmd-
ir við þessa varanlegu gatnagerð.
Þessi sveitarfélög eru tsafjörður,
Súðavik, Bolungarvik, Súganda-
fjörður, Flateyri, Þingeyri,
Patreksfjörður, Bildudalur og
Sveinseyri. Siðan á þetta sam-
eiginlega félag 1/9 i Oliumöl h/f
sem er fyrirtæki i eign þriggja
sveitarfélaga á Reykjanesi,
Ataks og 3ja verktaka. Hefur
Oliumöl h/f unnið að varanlegri
gatnagerð fyrir öll þessi sveitar-
félög auk vegagerðarinnar.
Bolli sagði að það sem unniö
yrði að á þessu ári myndi kosta
um 55 miljónir kr. fyrir utan það
sem gert yrði fyrir vegagerðina
en það kostar um 25 milj. kr. Um
siöustu áramót var gerð kostn-
aðaráætlun fyrir allt verkið i
heild og var þá reiknað með að
það myndi kosta 700 milj. en
sennilega hækkar þessi tala um
40%, hér er átt við það sem unnið
verður fyrir sveitarfélögin 9. Inni
þessari upphæð er endurnýjun
nauðsynlegra lagna, gangstéttir
og malbikun.
Þá hefur Atak áhuga á að fá
rikið til að malbika flugvelli á
vestfjörðum og að fyrirtækið fái
það verk auk þess sem það hefur
þegar og mun vinna fyrir vega-
gerðina. Bolli sagði að vonast
væri til þess að öllu verkinu yrði
lokið á 5 árum.
Sveitarfélögin fá lán úr lána-
sjóði sveitarfélaga til þessara
framkvæmda og má sem dæmi
nefna að þau fá 17 milj. kr. lán-
aðar af þeim 55 milj. kr. sem
áætlað er að framkvæmdir þessa
árs kosti. —S.dór
BLAÐIÐ í DAG
1 opnunni: 4. hluti
ferðalags -úþ
um Siglufjörð —
Skagafjörð —
Sauðárkrók
Bréf frá Kenya
Eygló
Eyjólfsdóttir
skrifar frá
Kenya
Sjá síðu 4
Vinstristjórn - hcegristjórn
Samanburður - sjá síðu 5