Þjóðviljinn - 06.10.1974, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 06.10.1974, Qupperneq 5
Sunnudagur 6. október 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5 Samanburður á vinstri og hœgristjóm í kjaramálum Þjóðviljinn hefur að undanförnu skrifað mikið um kjara- málin og samanburð á þeim tillögum sem rætt var um við vinstristjórnarviðræðurnar annars vegar og hins vegar þeim ráðstöfunum sem hægristjórnin hefur þegar gert. í þessum samanburði hefur komið fram það meginatriði, að i tillögun- um i vinstristjórnarviðræðunum var ekki gert ráð fyrir neinni skerðingu á launum sem eru um 40 þúsund krónur á mánuði og þar fyrir neðan. En ráðstafanir hægristjórnarinn- ar þýða þegar skerðingu allra launa, meðal annars lægstu launanna, svo og elli- og örorkulifeyris. Þjóðviljinn birtir hér nákvæmt yfirlit til samanburðar á þvi sem vinstristjórnin ákvað að gera sl. vor og svo tillögun- um i vinstristjórnarviðræðunum og hins vegar ráðstöfunum hægristjórnar innar. Vinstristjórn — vinstriviðræður Ráðstafanir vinstri stjórnar 1. júní 1974 átti kaupgjaldsvisi- talan að hækka um 15,5 stig eða sem samsvarar 14,5%. Með bráða- birgðalögum ríkisstjórnarinnar frá 21. maí var ákveðið að þessi hækkun skyldi ekki koma fram á tímabilinu frá 1. júní til 1. septem- ber, en jafnframt voru gerðar til- teknar ráðstafanir til þess að vega á móti þessari breytingu á kjara- samningum. Þessar ráðstafanir voru: 1. Auknar niðurgreiðslur á vöru- verði sem námu í kaupgjalds- vísitölu 8,0 stigum eða það sem hér er nef nt „k-stig"......8,0 2. Verðhækkun sú á landbúnaðar- vörum sem átti að taka gildi 1. júní — stafaði af auknum rekstrarkostnaði i landbúnaðin- um — kom ekki til fram- kvæmda og jafngildi í k-stigum .............................. 3. Verðhækkun á landbúnaðarvör- um, sem einnig hefði komið 1. júní vegna samsvarandi hækk- unar á kaupi bóndans og ann- arra launþega, kæmi ekki fram — jafngilti: k-stig.........1,8 4. Verðstöðvun skyldi gilda áfram og þannig komið í veg fyrir verðhækkanir sem metnar voru í k-stigum..................3,5 Mótaðgerðirnar (liðir 1-4) því allsk-stig....................15,5 Það er því sannað samkvæmt ofanrituðu að bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar frá í maf höfðu enga kjaraskerðingu í för með sér og voru láglaunafólki til hagsbóta vegna niðurgreiðslnanna á mjólk og kjöti. Tillögur í viðrœðunum um vinstri stjórn I viðræðunum um nýja vinstri- stjórn komu fram ýmsar tillögur um efnahagsmál. Alþýðubanda- lagið hafði fallist á nokkur atriði tillagnanna, og hefðu þau haft í för með sér eftirtaldar hækkanir á k-vísitölu: 1. Verðhækkanir sem fram voru komnar og heimilaðar yrðu, k- stig....................3,5 2. Verðhækkanir vegna 15% gengislækkunar, k-stig......4,8 3. Dregið úr niðurgreiðslum um sem svaraði: k-stig.........4,0 Hækkanir alls, k-stig.......12,3 Þess ber að geta að miðað var við áframhaldandi verðstöðvun þar sem ekki yrðu heimilaðar nema óhjákvæmilegar verðhækk- anir. Áhrif gengislækkunar hlutu að koma fram á næstu 2-4 mánuð- um eftir sjálfa breytingu gengis- ins. Gert var ráð fyrir að dregið yrði úr niðurgreiðslum í áföngum og meirihlutinn kæmi ekki fram fyrr en seint á árinu. Vegna ofangreindra verðhækk- ana átti að gera eftirtaldar mót- ráðstafanir: 1. Hækkun alls kaups upp að 40 þús. á mánuði miðað við dag- vinnu og tilsvarandi hækkun á öllu yfirvinnukaupi.........5,0% (Þessi kauphækkun átti að koma strax 1. september sl. og gaf það launamönnum nokkurn vinning þar sem verðhækkanir vegna gengislækkunarinnar hlutu að koma f ram á næstu 2-4 mánuðum). 2. Kauphækkun aftur 1. desember sem næmi 5% á dagvinnukaup sömu aðila og í lið 1. Hækkunin metin sem heildarhækkun við- komandi launa um............3,8% 3. Fjölskyldubætur skyldu hækka jafnhliða því að dregið yrði úr niðurgreiðslum og kjör lág- launafólks þannig ekki skert.......................4,0% Mótráðstafanir alls.........12,8% Augljóst var af þessu að lág- launafólk hefði ekki orðið fyrir neinni kjaraskerðingu samkvæmt þeim tillögum sem Alþýðubanda- lagið hafði fallist á í vinstrivið- ræðunum. Tillögur þessarvoru miðaðar við að gilda til 1. mars 1975. Þeim fylgdi tillaga sem samkomulag var um þess efnis, að á þessu tímabili skyldi ekki leyfa aðrar verðlagshækkanir en þær, sem beinlínis leiddu af gengislækkun- inni eða erlendum verðhækkunum. Fyrir launamenn var þvi ekki um áhættu að ræða nema á tímabilinu frá 1. des. til 1. mars, en gert var ráð fyrir nokkrum hækkunum á þessum tíma, sem komnar eru inn í dæmið hér að framan. I tillögun- um var svo gert ráð fyrir þvi að færu hækkanir fram yfir tiltekið mark 1. mars 1975 þá skyldi greiða þá hækkun að fullu í kaupi. Hægristjórn Ráðstafanir hœgri stjórnar Þessar hækkanir hefur hægri- stjórnin þegar ákveðið: 1. Gengislækkun 17% — hækkun í k-stigum...................6,0 2. Hækkun landbúnaðarvara, k- stig.......................5,7 3. Söluskattshækkun, k-stig...2,8 4. Verðlagshækkanir þegar ákveðnarog boðaðar, k-stig ....6,1 Hækkanir alls, k-stig..19,6 Fulltrúar stjórnarinnar hafa í útreikningum sínum reiknað með enn meiri verðlagshækkunum en hér eru taldar og ef ast víst enginn um að svo mun verða. Mótráðstafanir hægristjórnar- innar eru sem hér segir: 1. Hækkun láglauna frá l. októ- ber............................10,0% 2. Væntanleg hækkun fjölskyldu- bóta..........................1,5% Mótráðstafanir alls:..........11,5% Það ætti þvi að vera hverju mannsbarni Ijóst að bein kjara- skerðing láglaunafólks samkvæmt ráðstöfunum hægristjórnarinnar nemur 8-8,1%, en mun verða 12- 15% hjá launþegum almennt. Taka ber fram að þessar tölur eru miðaðar við það sem nú er komið f ram. En hversu mikil skyldi kjara- skerðingin verða um næstu ára- mót? Ekki er ólíklegt að hún verði þá 10-12% hjá þeim lægstlaunuðu og 14-19% hjá launafólki almennt. Og síðast en ekki síst ber að hafa það i huga að kaupgjaldsvísitalan á að vera bundin — hvað sem öll- um breytingum á verðlagi líður — fram til 1. júní. Það er þvi vissu- lega mikill munur á tillögum vinstristjórnarinnar og ráðstöfun- um hægristjórnarinnar í kjara- málum. Við þetta má svo bæta því að í viðræðunum um vinstristjórn var alltaf miðað við það að hluta- skiptakjör sjómanna yrðu óbreytt en hægristjórnin hefur ákveðið að lækka launahlut sjómanna um 900- 1.000 miljónir króna á ári, en það nemur líklega um 120-180 þúsund krónum á hvern sjómann á ári.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.