Þjóðviljinn - 06.10.1974, Page 7

Þjóðviljinn - 06.10.1974, Page 7
Sunnudagur 6. október 1974. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7 Siglufjöröur — Skagafjörður — Sauöárkrókur Kristmundur Bjarnason, Sjávarborg: j rúmgóóu bóka- og vinnuherbergi að Sjávar- borg í Skarðshreppi situr f ræðaþulurinn og rit- höfundurinn Kristmundur Bjarnason og fræðir okkur um Jón ösmann, en Krist- mundur vinnur nú að því að gera bók um ævi Jóns, sem var að mörgu merkilegur á sinni tíð. „Jón Ósmann var Magnússon og upprunninn úr Hegranesi. For- eldrar hans voru búandi þar alla sina tið, i Utanverðunesi. Jón tók sér á siðustu árum nafnið Ós- mann og gerði það frægt, og ennþá kannast miðaldra fólk viða um land við Jón Ósmann. Hann sem flest er nú glatað. Hann var listelskur og söngelskur og lék nokkuð á harmonikku, en þetta eru allt eiginleikar, sem koma fram i móðurætt hans. Hann var talinn alveg frábærlega vel vax- inn, t.d. dáðust læknar og ýmsir aðrir að þessum skrokk. Jón gerði mikið af svokölluðum ferjuvisum, sem hann mælti af munni fram þegar hann var að ferja, og honum var alveg sama þótt allir heyrðu þær, en fór betur með hitt. Hann orti mikið af kvæðum, en ég hef aðeins haft upp á einu kvæði eftir hann, erfiljóði. Það er býsna gott. Hann orti til dæmis þessa visu, sem lýsir feriustarfinu: Kristmundur Bjarnason JÓN ÓSMANN var andlegur og líkamlegur atgerfismaöur var ferjumaður á vesturósi Héraðsvatna um áratuga skeið og var þar frá 1892 með svonefnda dragferju eða svifferju, sem var þá alveg nýtt fyrirbæri, að minnsta kosti hérlendis. Dragferju, en svifferja er að- eins finna nafn á dragferju, var þannig fyrir komið að strengur var strengdur yfir vötnin og festur báðum megin. Dragferjan, báturinn, var festur i þennan streng. Siðan var báturinn undinn með vindu yfir vötnin fram og til baka og alltaf hallur i straumn- um. Fyrsta dragferjan tók.8-10 hesta. Þetta er geysilegamerki- leg samgöngubót. Það þurfti ekki að taka ofan af reiðingshestum þegar farið var i kaupstað; það var hægt að riöa beint út i ferjuna. Seinna var svo smiðuð stærri ferja, sem mátti taka i 16-18 hesta með reiðveri. Uppfinningin var að nokkru leyti að minnsta kosti Islensk. Það var Sigurður Ólafsson á Hellulandi, sem mun hafa fundið upp þessa dragferju. Annars voru til annars lags ferjur sem hétu svifferjur, og liktust kláfi. En það þótti meira i munni að kalla þetta svifferjur. Yfir Vesturós tók yfirleitt, I sæmilegu veðri, ekki nema 15 minútur að ferja yfir. Þarna er straumur geysimikill, sjávarföll, og þurfti oft, ef illt var, tvo, þrjá menn til að snúa sveifinni, en Jón Ósmann lék sér að þvi einn. Hann var annálað hraustmenni, eins og hann átti kyn til, afkomandi séra Odds á Miklaþæ, sem var mikið hraustmenni. Búandmaöur var Jón aldrei. Hann var húsmaður hjá for- eldrum sinum alla tið. Hann var veiðimaður, trúlega landskunnur, á sel, og undi vel við veiðiskap, en vildi ógjarnan sinna föstum starfa. Eftir að hann giftist hélt hann sömu háttum, og vann litiö við heimilið. Selabyssa Jóns, sú hin mikla, sem var ekki á neins manns meðfæri að vera með nema hans, hún er i byggðasafninu i Glaumbæ. En það er búið að saga af hlaupinu, þvi menn gátu ekki valdið henni ekki til að leggja til hæfis. Jón var talinn prýðilega vel gefinn maður. Hann var hagyrðingur góður og ljóðelskur mjög og skrifaði geysimargt upp, Spyrni ég niður spils við grind, spanna iiðugt sveifartind, illt er skrið á árahind, sem út á hlið fer á móti vind. Jón var brennivinsmaður mikill, eins og raunar flestir skagfirðingar á 19. öld, og var orðinn fulloröinn þegar bindindis- hreyfingin kom til,og hún vann ekki á honum. Hann hætti að visu að drekka siðustu tvö árin; bæði var það nú vinbannið, og svo hitt að Jón vildi ekki brjóta lög, og vildi ekki þiggja „hunda- skammtinn” svokallaða, þótt vinur hans, Jónas læknir Kristjánsson, byði honum hann. Jón hneigðist mjög til kvenna, en það er einnig skagfirðinga háttur. Hann giftist einu sinni, og sagðist aldrei gera það aftur. A siðari árum sinum fór hann að búa til ýmis orð yfir hugtök. Hann var sérstaklega vel máli farinn og talaði frábærlega gott mál. Þegar dregur að aldamótum virðist þetta ekki nægja honum, og hann verður að fara að nefna hlutina eigin nöfnum, finna þau upp. Mörg hans orð eru lands- kunn enn i dag. Ég get til dæmis nefnt fjallgrimmur, sem rataði inn i skáldsögu Halldórs Laxness, Kristnihald undir Jökli. Einnig eldgrimmur. Jón átti brennivinskút mikinn, sem var áður sýrublpndukútur og hann kallaði Skudda, og svo kallaði hann brennivinið alltaf Skudda úr þvi og drykkjubræður hansvoru skuddabræður.Svo átti hann brennivinsflösku mikla, brúna. Hún hét Brúnka. / Jón hafði gaman af þvi að yrkja vitleysur eins og Fjölnismenn gerðu forðum og allir kannast við. Hann gerði og margar brenni- vinsvisur. Þessa visu gerði hann i byrgi sinu við ós Héraðsvatna, þarsem hann hafðist löngum viö: Starir hissa hreint min önd, hrafnar og rissur krunka; Fjallgrimm vissa á Furðuströnd, fallega pissar Brúnka. Eins og ég sagði áðan, gerði hann margar visur þegar hann var að ferja, eins og til dæmis þessa: Iléraösvatna á bláum böndum breiða ferju áfram kný. Fjallagrimm vissa á Furðuströndum; fær mér Skudda er aftur sný. Furðustrandir kallaði hann sandræmuna austan óss, og hefur þá liklega verið að vitna i Eiriks sögu rauða. Hann breytti þessari visu, eins og hann gjarnan gerði viö margar visna sinna að gamni sinu. Þá leit hún þannig út: Silung veiöir sjós með löndum, sá er ekki rýr. Fjallagrimm vissa á furðuströndum; fær sér Skudda og snýr. Þeir voru miklir vinir Jón Jónsson á Gilsbakka og Jón Ós- mann. Jón á Gilsbakka var bróðir Ara i Viðigerði i Eyjafirði, sem leikritin samdi og var þjóðkunnur maður á sinni tið, og mikill hag- yrðingur. Þessi Jón er faðir Hjör- The History of Ger- many Since 1789. Golo Mann. Translated from the German by Marian Jackson. Penguin Books 1974. Golo Mann er sonur Thomasar Mann og er nú prófessor i sagn- fræði við háskólann i Míinster og I Stuttgart. Mann skrifaði þessa bók á árunum 1953—57, i ensku út- gáfunni frá 1968 eru gerðar smá- vegis breytingar frá þeirri þýsku 1958. Höfundur rekur hér sögu þjóðverja og Þýskalands frá stjórnarbyltingunni frönsku fram á sjötta áratug þessarar aldar. Höf. fjallar ekki siður um þátt heimspekinga i mótun framvind- unnar en stjórnmálamanna. Hug- renningar höf. um sameiningu Þýskalands um það, sem glatað- ist og það sem vannst, eru eftir- tektarverðar. Bókin er mjög skemmtilega rituð, enda er efni- viðurinn, saga þjóðverja á þessu timabili furðuleg, full andstæðna og þverbresta. Bókin er öðrum þræði sagnfræðilegar og heim- spekilegar hugleiðingar um sögu j þjóðarinnar. leifs á Gilsbakka, sem nú er, ágætur hagyrðingur, fjörgamall maður orðinn. Einu sinni kom Jón Jónsson til vinar sins, og kom niður sneiðinginn hjá Ósklettinum, sem kallaður er; brúin stendur á Ós- klettinum núna. Jón kallaði þá til nafna sins niðri i fjörunni: Ertu þarna elskan min við eyrar sundiö? Lengi hef ég leitað þin og loksins fundið. Jón Ósmann var afrenndur að afli, talinn fjögurra manna maki, og svovel að iþróttum búinn að al- veg sérstakt var. Þegar hann var unglingur var ekki farið að kenna sund i Skagafirði, en Jón var TheTransport Revolu- tion from 1770. Philip S. Bagwell. Batsford 1974. Höfundurinn rekur sögu sam- gangna á Englandi frá 1770 og fram á okkar daga, hann rekur á- hrif breyttra samgönguforma og þær breytingar sem þau valda á samfélaginu, atvinnuháttum og byggðaháttum og siðan vixlverk- anir samfélagshátta og sam- gangna. Fyrrum voru ferðalög ill nauðsyn, hættulegt fyrirtæki, en með bættum samgöngum, járn- brautum, betri skipum og siðast flugvélum og bifreiðum, tók af- staðan til ferðalaga að breytast, ferðalög urðu skemmtiferðalög. Bættar samgöngur á Englandi ýttu mjög undir efnahagslegan blóma þar i landi, en jafnframt urðu þær mikill baggi á þjóðarbú- inu, vegna skipulagsleysis, sem stafaði af eignaformi samgöngu- tækjanna, svo sem járnbrauta, sem voru lengi vel i einkaeign. Það kom i ljós hversu óhentugur einkarekstur járnbrauta var, eft- ir að þær voru þjóðnýttar og járn- brautarkerfið samræmt. Höf. AFERLENDUM BÓKAMARKAÐI sundmaður ágætur, skautamaður frábær og allt eftir þessu. Þó finnst mér merkilegast við hann góðfýsi hans og örlæti. Hann aflaði allra manna mest; hann var slyngur veiðimaður til dæm- ís á sel og silung, og stundaöi alltaí slíkt i hjáverkum við ósinn. Jón gaf tiðum alla dagveiðina og allt út úr höndum sér. Hann leysti gjarnan alla fátæklinga, og efnaðri menn reyndar lika, út með gjöfum; ekki sist á hinum erfiðari árum. Barngóður var hann með afbrigðum. Jón átti alltaf brennivin. Svo átti hann alltaf sælgæti lika, reyktan lax, hákarl, gjarnan á stoð i kofanum, svo menn gætu fengið sér bita með sjálf- skeiðungnum með brennivininu. Eins mikill aflamaður og Jón var, og hefði getað orðið rikur af veiðiskapnum, var hann, vegna örlætis sins, svo skinandi fá- tækur, þegar hann missti heilsuna, að hann varð að skrifa fornvini sinum, sem var i góðum efnum, bréf, til að biðja fyrir ástkonu sina og barn hennar, en þau voru foreldrar hans orðnir fjörgamlir. Þegar Jóni verður ljóst hvernig komið er fyrir honum, heilsulaus og eignalaus, mun það hafa haft talsverð áhrif á andlega heilsu hans. Hann hafði þá lifað svo vel i samræmi við öreigakenningu sina, að þegar hann þarf sjálfur til að taka og er að missa heilsuna, þá er ekkert til. Lifskenning Jóns var sú, að eigin- lega ættu menn ekki neitt, þeir fengju allt að láni; ef einhver ætti eitthvað þá ætti hann að gefa það frá sér. Hann liföi forkostuglega eftir þessu. Mér hefur þvi miður ekki enn sem komið er, tekist að afla alls þess, sem um Jón má segja, en vonandi tekst það innan tiðar. Og þar sem þú spyrð um endalok Jóns, tel ég að best sé að orða það þannig, að hann hafi horfið i ósinn. Það var árið 1914. í kirkjubókum er hann sagður hafa drukknað. Jón var ákaflega mikill trú- maður. Þegar komið er að byrginu við Vestur-ós einn morguninn, það á að ferja mann yfir, þá er Jón horfinn. Byrgis- hurðin er opin. Þar er guðsoröa- bók á borði, eða kassa, og ofan á henni er miði þar sem Jón hafði skrifað ,,i Júsú nafni”. -úþ telur að um 400 mismunandi gerðir vagna og teina hafi verið i notkun, meðan athafnamenn ráku þessi fyrirtæki, óþægindi og kostnaður var gifurlegur, vegna skipulagsleysis og samkeppni. Höfundur ræðir framtiðarhorfur i samgöngumálum á landi og einn- ig á sjó og i lofti, en um þá þætti fjallar hann i sér köflum. Höf. rekur stefnur stjórnvalda i sam- göngumálum þetta timabil, og þær breytingar sem þær hafa valdið. Skrár og töflur fylgja með i texta auk bókaskrár i bókarlok. The Pelican Guide to English Literature. Vol. 6. From Dickens to Hardy. Edited by Boris Ford. Penguin Books 1973. Bókin hefur oft verið endur- prentuð og endurskoðuð, og er eitt bindið i ágætri enskri bók- menntasögu, sem unnin er af mörgum bókmenntafræðingum. Eaktar eru samfélagslegar for- sendur bókmenntanna og siðan er fjallar um bókmenntirnar og hina ýmsu höfunda. Viktoriuskeiðið er timabil skáldsögunnar, og þá voru uppi höfundar sem eru lesnir enn þann dag i dag af engu minni ánægju en þegar þeir tróöu enska grund. Sérkafli um byggingarlist timabilsins fylgir, og i bókarlok eru æviþættir höfundanna og bókaskrár. Þessi bókmenntasaga Pelican-útgáfunnar er alls sjö bindi.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.