Þjóðviljinn - 06.10.1974, Page 11

Þjóðviljinn - 06.10.1974, Page 11
Sunnudagur G. október 1974. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11 Á aldarfjórðmigsafmæli DDR Það vekur eftirtekt ferðamanns, hve lífrænn svipur er yfir miöbænum I mörgum stórborgum DDR. Þaö stafar ekki hvaö sist af þvi, að stjórnvöld stefna beinlinis aö þvi aö setja þar ibúðarhverfi innan um verslunarháhýsin. — Þessi mynd er af stærsta kvikmyndahúsinu i Dresden. Þaö er list aö gera sér gagn úr litlu og ódýru. Þessi mynd var tekin sið- astliðiö sumar á barnaheimili i Erfurt; rollingarnir virtust óþreytandi að veltast ofan á hjólbörðunum eöa skríöa undir þeim. Eftir Jón Thor Haraldsson Á morgun mánudaginn 7. október, á Þýska alþýðu- lýðveldið 25 ára afmæli. Það er ekki úr vegi að minnast þessara tímamóta litillega, kannski ekki hvað síst fyrir það, að í afstöðu margra islendinga til DDR speglast enn hugarfar, sem oft er kennt við kalt stríð. Þessum sömu íslendingum er raunar nokkur vorkunn: islenskir kennslubókahöfundar hafa visvit- andi hallaö á riki sósíalismans, og siðan tekur Morgunblaðið við, þessi almannagjá islenskrar lágkúru. Það er ómaksins vert að styðja fullyrðinguna dæmum. Aftan við eina kennslubókina i sögu er kafli, sem nefnist „Yfirlit atburða siðustu ára”, svo mörg eru þau eignarföll. Kaflinn er allur i afturhaldsátt og upp- ljómaður af dúfusakleysi Vestur- veldanna t.d. er stofnun Nato þannig lýst: „Landvinninga- stefna Rússa og ásælni i Austur- Evrópu varö til þess, að árið 1949 gerðu flest riki Vestur-Evrópu og Bandarikin og Kanada með sér hernaðarbandalag, sem nefnist Atlantshafsbandalagið (Nato).” Annað er eftir þessu, t.d kaflinn um Kóreu-striði, þótt ekki verði hér rakið. En svo er vikið að DDR: „Miklar deilur hafa orðið milli Rússa og vesturveldanna út af framtiðarskipan Þýskalands 1949 voru hernámssvæði Bandarikj- anna, Breta og Frakka sameinuð i Sambandslýðveldið Vestur- Þýskaland. Rússar svöruöu meö þvi aö stofna austurþýska rlkiö á sinu her- námssvæöi”. (Leturbreyting min). Tónninn leynir sér ekki: Hernámssvæði Vesturveldanna eru „sameinuö”, en Rússar „svara meö þvi aö stofna” DDR. Hér er kominn kjarni þess borgaralega áróðurs á Islandi, sem jafnan leitast við að afskrifa DDR, og raunar hvert „austan- tjaldsland" annað, — sem ómerkilegt leppriki. Fleira má telja: önnur sögu- kennslubók kemst vo að orði: „Náin samvinna var milli hernaðary firvalda Vestur- veldanna þriggja, og var hernámssvæðum þeirra stjórnað sem einni heild, en hernámssvæði Sovétrikjanna einangraðist frá þeim. Þjóðverjum var smám saman veitt talsverð sjálfstjórn, og 1949 runnu hernámssvæöi Vesturveldanna saman i eitt riki: Sambandslýðveldið Þýskaland, en ekki hlaut það þó sjálfsforræði að fullu fyrr en nokkrum árum siðar. Rússar stofnuöu þá annaö riki á hernámssvæöi sínu: Þýska alþýðulýðveldið, og fara kommúnistar þar með stjórn”. Glöggt er það enn, hvað þeir vilja: „Þjóöverjum” er smám saman veitt talsverð sjálfstjórn, þegar kennslubókarhöfundur á við hernámssvæði Vesturveldanna. Hér endurómar sú krafa stjórnarinnar i Bonn, að hún ein geti talað fyrir munn Þjóðverja. Hernámssvæði Vesturveldanna „renna saman”i eitt riki, Rússar „stofna þá annaö ríki á hernámssvæöi sinu”. Kennslubækur hafa sem kunnugt er óhugnanlega til- hneygingu til að staðna, það eru gamalkunn sannindi uppeldis- fræðinnar, að vitleysa, sem eitt sinn kemst inn i kennslubók, á þaðan vart afturkvæmt. Hætt er þvi við, að nemendur i gagn- fræðaskólum hins borgaralega Islands megi enn um sinn hafa það, að reynt sé á allan hátt að litillækka DDR i þeirra augum. Bílastæði á tveim hæðum Borgarráð hefur samþykkt tillögur sem hafa munu f för með sér breytingar á umferð- inni á miðbæjarsvæðinu. Gert er ráð fyrir að settir verði upp stöðumælar á fleiri stöðum en v?rið hefur: A bak- lóð byggingarreits milli Laugavegar og Grettisgötu austan Barónsstigs. Við Hverfisgötu milli Barónsstigs og Snorrabrautar. Við Grettis- götu við mót Vitastigs, Frakkastigs og Klapparstigs. Þá var á borgarráðsfundin- um lögð fram tillaga umferð- arnefndar um heimild til hönnunar og gerðar kostnað- aráætlunar fyrir bifreiðastæði á tveim hæðum á Vitatorgi! Loks var samþykkt að taka upp stöðvunarskyldu, sem hér segir: A Flókagötu beggja vegna Rauðárstigs. A Gunn- arsbraut beggja vegna Flóka- götu. A Flókagötu við Snorra- braut. Og þó gætu þeir glöggskyggnustu farið að hugsa sitt ráð: kannski litilsháttar skima hafi læðst inn i einstaka foreldra lika. Islendingar velmargir meta flesta hluti til fjár. Kannski hafa þá einhverjir þeirra rekið augun i þá tölfræðilegu staðreynd, að DDR er nú 6. eða 7. mesta iðnaðarland heims, ég man ekki i svipinn, hvort er. Fjölmargir Islendingar hafa gist landið, kynnst þar sibatnandi lifskjörum, stórhug, menntakerfi.sem trú- lega er það besta i heimi, og félagslegum viðhorfum, sem taka langt fram öllu þvi, sem þekkist út hér á tslandi. Kannski rámar einhvern i það, að vinstri stjórnin sáluga gekkst fyrir þvi, að eðli- legu stjórnmálasambandi var komið á milli landanna. Nú fer þvi fjarri, að saga þessa unga sósialistarikis hafi alltaf verið einhver dans á rósum, verkamannauppreisnin 1953 og Berlinarmúrinn, ásamt skertu og raunar afnumdu ferðafrelsi, er til marks um það. Þeir atburðir eru enn furðu lifseigir á siðum borgarablaðanna, enda bregður íár hinu betra, telji hann sig vita hið verra. En þess vildi ég biðja, og það kæmi okkur islenskum vinum DDR best, að landar okkar láti DDR njóta sammælis, hlusti þó að minnsta kosti á röksemdir þarlendra, t.d. um Berlinarmúr- inn, og minnist þess, að sósial- istariki á þýskri grund er stað- reynd, sem ekki verður fram hjá gengið. Hvort mönnum likar betur eða ver. Sjálfum likar með þaö stór- um betur. Þekktur fiðluleikari heldur tónleika hér Þriöjudaginn, 9. október kl. 21 verða haldnir tónleikar á vegum Tónskóla Sigursveins D. Kristins- sonar i Félagsstofnun stúdenta við Hringbraut. Þar koma fram: fiðluleikarinn Manfred Scherzer og Jurgen Schröder, pianóundir- leikari. Manfred Scherzer er einn af fremstu listamönnum Þýska Al- þýðulýðveldisins á alþjóðavett- vangi. Hann er fæddur i Dresden árið 1933. Sautján ára gamall varð hann meðlimur Dresdner Stattskapelle, hinnar þekktu hljómsveitar, þar sem hann lék m.a. undir stjórn Rudolf Kempe og Franz Konwitschnys. A árun- um 1953 til 1973 starfaði hann sem konsertmeistari i Komische Oper i Berlin. Þá var hann einnig kon- Manfred Scherzer sertmeistari i Hátiðarhljómsveit i Bayreuth 1961 og 1966. Frá þvi 1973 hefur hann verið einleikari og konsertmeistari i Gewand- hausorchester Leipzig. Sem einleikari á gestahljóm- leikum hefur Manfred Scherzer m.a. komið fram i Sovétrikjun- um, Vestur-Þýskalandi, Sviss, Hollandi, Suður-Ameriku, Bret- landi, Frakklandi, Sviþjóð, Júgó- slaviu, Póllandi og Kina. A efnis- skrá hans er að finna verk eftir Mozart, Beethoven, Brahms, Mendelssohn, Bruch, Schumann, Reger, Matthus og Strauss. Undirleikari verður hinn ungi pianóleikari Jurgen Schröder, sem einnig hefur komið fram sem einleikari i Þýska Alþýðulýðveld- inu — DDR — og ýmsum borgum erlendis. I keppni tónlistaskóla i DDR varð hann i fyrsta sæti pianóleikara og i öðru sæti fiðlu- leikara. Listamennirnir eru staddir hér i tilefni 25 ára afmælis DDR og koma opinberlega fram aðeins þetta eina kvöld, en halda svo á- leiðis til tónleikahalds i Banda- rikjunum. SKAGFIRÐINGAR Fjölbreytt vöruúrval á hagstæöu verði. Greiöum hæsta verö fyrir framleiösluvöru ykkar. SAMVINNUMENN! Ykkar hagur er að versla við eigin samtök m Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki, Varmahlíö og Hofsósi.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.