Þjóðviljinn - 06.10.1974, Side 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 6. október 1974.
Anders Bodelsen:
10
— Hetjunni!
— Sem hélt rósemi sinni og
hindraði skothrið.
— Hetjan er að velta fyrir sér
hvort tiltekinn yfirgjaldkeri geti
nokkru sinni fyrirgefið honum.
Hún þrýsti handlegg hans.
— Hans róast von bráðar.
— Hans?
— Cordelius. Hans Cordelius.
Hún leit undrandi á hann.
— bekkist þið náið? spurði
hann.
Hún horfði framhjá honum á
umferðina fyrir utan gluggann.
— Já, sagði hún loks. —
Vissirðu það ekki?
Hann fann mjöðm hennar
þrýstast að sér. Við hina hliðina
fann hann fyrir skjalatöskunni. I
beygju hallaðist hann út að hurð-
inni og honum fannst hann finna
fyrirharðri málmbrúninni á nest-
iskassanum gegnum leðrið. Strax
á eftir hallaðist hann aftur að
henni og ósjálfrátt lagði hann
arminn um háls hennar og herðar
til að rétta þau bæði af.
Hún hallaði höfðinu að honum.
— Er eins með þig og mig,
hvislaði hún, — að þér finnist
þetta eiginlega spennandi? Ég á
við að annars gerist eiginlega
aldrei neitt. Eða ertu bara agn-
dofa?
— Eiginlega hvort tveggja.
— Já, sagði hún og leit upp til
hans — forvitnislega, fannst hon-
um — nú er þetta að minnsta kosti
um garð gengið. Og við komum i
sjónvarpinu, Flemming.
Billinn stansaði hjá bankanum,
en þar var allt lokað og koldimmt.
Klukkan var orðin sex.
— Ætlarðu að koma með upp og
fá drykk? spurði hann.
Hún hristi höfuðið. Með skjala-
töskuna i hendinni gekk hann að
bilnum sinum sem hann hafði aft-
ur lagt á brúnni og hafði aftur
fengið gulan seðil undir vinnu-
konuna. Lögreglubillinn ók fram-
hjá, siðann Marcotinn hennar
Brúðkaup
Laugardaginn 15. júni voru gef-
in saman i hjónaband i Lang-
holtskirkju af séra Sigurði Hauki
Guðjónssyni Hulda Valtýsdóttir
og Björn Steinn Bergmann.
Heimili þeirra verður að Lauga-
vegi 8 b, Reykjavlk.
Studio Guömundar,
Þann 24. ágúst voru gefin sam-
an i hjónaband hjá bæjarfógetan-
um i Kópavogi Bryndis Kristjáns-
dóttir og Valdimar Leifsson.
Heimili þeirra verður i Los
Angeles, Kaliforniu, Banda-
rikjunum.
Studio Guðmundar, Garðastræti
2.
Þann 6. júli voru gefin saman i
hjónaband i Bústaðakirkju af
séra Ólafi Skúlasyni Stella S.
Kjernan og Sigurður Jónasson.
Heimili þeirra er að Miðvangi 41,
Hafnarfirði.
Studio Guðmundar.
Þann lágúst voru gefin saman i
hjónaband i Dómkirkjunni af séra
Þóri Stephensen Guðmunda
Kristjánsdóttir og Gunnar Guð-
jónsson. Heimili þeirra er að Sól-
vallagötu 40.
Þing INSÍ
verður haldið
18.-20. okt.
Miriam og hún flautaði i kveðju-
skyni. Báðir bilarnir óku andar-
taki siðar undir brúna niðri á
hraðbrautinni. Hann stóð og
horfði á eftir bakljósunum fjórum
uns þau hurfu. Siðan ók hann
heimleiðis og skotraði öðru
hverju augunum að baksýnis-
speglinum; enginn elti hann.
Hann opnaði skjalatöskuna á
eldhúsborðinu.opnaði nestiskass-
ann. Seðlabúntin með fimm
hundruð króna seðlunum lyftust
ögn. hann þreifaði með fingrun-
um eftir þvi hve mikið þau létu
undan þegar hann þrýsti á þau.
Það var eins og návist seðlanna
breytti öllu i ibúðinni, gerði hana
minni og opnari. Bill með háljósin
á kom akandi frá tjörninni,
beygði inn að vegarbrún og
stansaði við hliðina á bilnum
hans. Hann var á stærð við Volvo,
en þegar hann var kominn ofar i
brekkuna sá hann á gula ljósinu i
luktunum að það var Peugeot.
Hann litaðist um i eldhúsinu.
Loks lokaði hann nestiskassanum
og lagði hann aftur I skjalatösk-
una. Eins og i bankanum voru
fæturnir farnir að titra undir hon-
um og hann hellti úr niðursuðudós
i skaftpott til að éta sig frá
titrandi fótleggjunum og lömuð-
um hnjánum. Meðan hann var að
hita upp matinn og borða hann,
fannst honum sem hann hefði
gleymt að læsa að sér. Allar dyr
og skápar i ibúðinni voru læst,
hann gekk úr skugga um það. Til-
finningin hvarf samt ekki.
Seinna sat hann fyrir framan
sjónvarpsskjáinn og horfði á.sitt
eigið andlit. Myndavélin nálg-
aðist það uns það fyllti allan skjá-
inn. Efst á myndinni birtist nafn
hans og starfsheiti og hvarf siðan
aftur. Þetta var rólegur maður
sem ihugaði orð sin vel. Meðan
röddin hélt áfram var sýndur
miðinn með prentstöfunum. And-
lithans sjálfs birtist aftur, i miðri
frásögninni varð hopp eins og i
teiknimynd, andlitið hafði breytt
um sjónarhorn við myndavélina,
röddin hafði hækkað i tónstigan-
um, þeir höfðu hlaupið yfir eitt-
hvað i frásögn hans. Hann sat
þarna og undraðist að þessi rólegi
maður skyldi vera hann sjálfur.
Hann mundi eftir kastljósinu sem
þeir höfðu beint að honum og um-
hugsunin um kastljósið rifjaði
upp fyrir honum ljósmyndirnar
fimmtiu sem hann hafði verið lát-
inn skoða.
....Þegar ég var búinn að lesa það
sem stóð á miðanum, fór ég sam-
stundis að tæma kassann. Ég var
sannfærður um að þetta var al-
vara og hann væri i rauninni með
skammbyssu i vasanum. t fyrstu
reyndi ég að leggja aöeins fram
hundrað krónu seðlana sem lágu i
efstu skúffunni. En hann skipaði
mér að opna þar næstu skúffu þar
sem fimm hundruð króna
seðiarnir iiggja, og ég þorði ekki
að neita. Af öryggisástæðum
kveikti ég ekki á aðvörunarkerf-
inu fyrr en hann var kominn út úr
bankanum.
Þarna höfðu þeir klippt og
Miriam birtist. í baksýn togaði
einhver i Simonsen til að fjar-
lægja hann úr myndinni. Miriam
talaði ekki i áttina að myndavél-
inni heldur sneri sér að spyrlin-
um; lýsing hennar á manninum
var fábrotin, hún gat hvorki skýrt
frá háralit né augnalit; hún
giskaði á að maðurinn væri svo
sem hálffertugur, sem Borck
áleit sjálfur að væri svo sem tiu
árum of mikið.
Cordelius. Myndaður við vinnu-
borðið sitt i glerbúrinu-, á borðinu
rafhlöðurakvélin og bakhliðarnar
á myndunum af eiginkonu og
börnum. Hann var i einhvers kon-
ar upplausn. Spurningarnar
beindust að innihaldi kassans.
— Fjárhæðin i kassanum — það
sem við geymum hér uppi — er aí
mestu á ábyrgð gjaldkera. Og ég
verð að játa að ég er furöu lostinn
yfir að heyra að það skyidu vera
næstum tvö hundruð þúsund i
kassanum. Og ég hef persónulega
i hyggju að vikja nánar að þvi sið-
ar. Sem skrifstofustjóri ber ég
auðvitað aðalábyrgðina, og að
sjálfsögðu mun ég ekki víkja mér
undan henni. En... vissulega
liggjum við alltaf með sérlega
stórar fjárhæðir á mánudögum.
Engu að siður álit ég að hér hafi
farið fram mjög gróft... mjög
gróft brot á reglum okkar.Klipp.
Á skjáinn kom kyrr mynd af
vélhjólinu með sænsku númerun-
um tekin i kastljósi milli tveggja
trjáa. Þulurinn tók til máls:
32. þing INSt verður haldið I
Reykjavik dagana 18, 19. og 20.
október n.k. Þingið verður I sal-
arkynnum Hótel Esju og verður
sett kl. 14.00 föstudag með setn-
ingarræðu Þorbjörns Guðmunds-
sonar formanns INSt og ávörpum
gesta.
Til þingsins koma fulltrúar frá
18 aðildarfélögum Sambandsins
viðs vegar að af landinu og verða
þeir alls milli 60 og 70.
Helstu málaflokkar sem fyrir
þinginu liggja eru: Iðnfræðslu-
mál, kjaramál, félagsmál og
ýmis önnur mál, sem iðnnema
varða sem og aðra þjóðfélags-
þegna. Varðandi iðnfræðslumálin
verður fjallað um væntanlegar
breytingar á iðnnámi, en lög um
iðnfræðslu eru nú i endurskoðun.
Undanfarin ár hefur Rann-
sóknastofnun vitundarinnar stað-
ið fyrir námskeiðum i hinum
ýmsu hliðum mannúðlegrar sál-
arfræði. Segir I fréttabréfi frá
stofnuninni að áhugi á þeim fari
sivaxandi svo og áhugi á þessari
grein sálarfræði almennt.
Mannúðleg sálarfræði felur i
sér fráhvarf frá þeim tveimur
meginstraumum i sálarfræði sem
rikjandi hafa verið frá tilurð
fræðigreinarinnar, atferlisfræð-
innar og djúpsálarfræðinnar, seg-
ir I fréttabréfinu.
Segir þar að helstu einkenni at-
ferlisfræðinnar séu að hún tak-
markist við hlutlæga hegðun og
einföld lærð viðbrögð. Helstu ein-
kenni djúpsálarfræðinnar, sem
oftast er kennd við Freud, eru að
aðalviðfangsefni hennar eru
taugaveiklun og sálsýki. Mannúð-
arlega sálarfræðin setji sér hins
vegar það mark að ,,sjá manninn
i heild sinni sem meðvitaða
menningarveru, gæddan hæfi-
leika til sjálfstjórnar og ákvarð-
anatöku... Þannig er mannúðlega
sálarfræðin fyrst og fremst sál-
fræði hins heilbrigða sálarlifs og
eitt af aðalmarkmiðum hennar er
það, hvernig unnt sé að ýta undir
sálræna þróun fólks, efla sjálfs-
birtingu þess (selfactualization),
stuðla að þvi að fólk vaxi frá tak-
mörkunum sinum og erfiðleikum
I átt til fullrar birtingar hæfileika
sinna og eiginleika.”
Og nú eru fyrstu námskeið
Félagsmál iðnnema eru einnig
mjög til umræðu innan samtak-
anna um þessar mundir og verður
sérstaklega fjallað um þau mál
með tilliti til aukins fræðslu- og
upplýsingastarfs um málefni
samtakanna og iðnfræðslunnar i
landinu.
A þvi starfsári, sem nú er að
ljúka, hefur i fyrsta sinn verið
starfað eftir lögum, sem sam-
þykkt voru á siðasta þingi Sam-
bandsins og ollu verklegum
skipulagsbreytingum á öllu starfi
samtakanna. Þessi breyting hef-
ur þegar borið árangur með
árangursrikara starfi.
1 lok þingsins verður kjörin
stjórn samtakanna fyrir næsta
starfsár.
vetrarins að hefjast. Það fyrsta
nefnist Tónlistarlækningar — tón-
listarreynsla, oger Geir V. Vil-
hjálmsson þar leiðbeinandi.
Námskeiðið stendur i tvær vikur
og hefst á laugardaginn 5. okt.
Næsta námskeið nefnist Stjórn
vitundarinnar og er Geir einnig
stjornandi þess. Það hefst 9.
október og stendur i tvær vikur.
Þriðja námskeiðið er 3ja mán-
aða sálvaxtarnámskeið og hefst
það 27. nóvember. Verða haldnar
tólf kennslustundir. Leiðbeinend-
ur eru Geir og Ingibjörg Eyfells.
30. nóvember hefst svo nám-
skeið sem nefnist Draumar og
merking þeirra og veitir Geir þvi
forstöðu. Það stendur fram til 9.
desember.
20. desember hefst svo nám-
skeið i Grúppudýnamik og sam-
tengingu sálarlffsins fyrir kenn-
ar^sem stendur út febrúar,og enn
leiðbeinir Geir.
Viljinn og efling hans nefnist
námskeið sem hefst 11. janúar og
stendur i þrjár vikur. Leiðbein-
andi er Geir Vilhjálmsson.
Auk þessara námskeiða er
fyrirhugað að endurtaka tónlist-
arnámskeiðið i lok febrúar og 2.
april hefst annað námskeið i
stjórn vitundarinnar.
Námskeiðin eru öll haldin I hús-
næði stofnunarinnar að Skóla-
vörðustig 40 sem er bakhús. Þátt-
töku verður að tilkynna fyrir-
fram. —ÞH
Húsbyggjendur —
Einangrunarplast
Getum afgreitt einangrunarplast á Stór-Reykjavikur-
svæðið með stuttum fyrirvara.
Afhending á byggingarstað.
HAGKVÆM VERD. GREIDSLUSKILMALAR
Borgarplast hf.
Borgarnesi Sími: 93-7370.
Rannsóknastofnun vitundarinnar
Námskeið
að hefjast