Þjóðviljinn - 13.10.1974, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 13.10.1974, Blaðsíða 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur. 13. október. 1974. Ástin 6 ára strákur fékk að lykta úr öllum flöskunum í baðherbergis- skápnum og giska á, hvað væri i þeim. Hann átti ekki i neinum erfið- leikum með að þekkja hárvatnið, svitasprayið, sáravatnið, brennslusprittið og handáburð- inn. En þegar röðin kom að ilm- vatnsflösku móður hans dró hann djúpt að sér andann og úrskurö- aði: — Þetta er ástarlykt! Mikið verk Það hefur veriö reiknað út, aö 100 tima til að geta gert jafnmikl- ar villur og mistök og tölvur geta gert á einum þúsundasta úr sek- úndu, — upplýsir kollegi okkar hjá AP, Hal Boyle. Skömm ,,Það er skömm fyrir konu ef eiginmaður hennar þarf að vinna.” Kákasiskur málsháttur. Þrátt fyrir þaö Og svo var það skiltiö það arna, sem margir Danir hafa hengt upp hjá sér. Skyldi nokkur önnur þjóð hafa jafn afslappaða afstöðu til ættjarðarástarinnar? Annars fer fyllilega að verða þörf á ein- hverju álika hjá okkur til mót- vægis þunglyndinu sem sækir að þegar maður skammast sin sem mest fyrir að vera sömu þjóðar og „frjálsir” menningarundirskrif- arar. Betra heima Þegar bandariska leikkonan Shirley MacLaine kom heim úr för sinni til Sovétrikjanna var hún m.a. spurð, hvað væri betra i bandarikjunum en i Sovét. Ekki stóð á svarinu: — Rússnesku veitingahúsin! Hvað er leiðindapúki? Leiðindapúki er maður, sem svarar mjög nákvæmlega þegar spurt er um liðan hans. Peningana eða lífið Júgóslavarsem sagðir eru hafa haldið karlmannaveldinu lengur en aörar Evrópuþjóðir (þótt karlmannasamfélagið virðist nú meira en nógu sterkt viðast hvar, a.m.k. að áliti rauösokka) nota sérstök rök sér til varnar i þessu máli. Konur hafa þar mun lægri laun en karlar, en það at- saka karlarnir þannig: — Þær hugsa meira um þægi- legheitin i vinnunni en launin og það er lika alveg rétt hjá þeim. Þess vegna lifa þær lika aö með- altali fjórum árum lengur en karlarnir. Hve gamall Kvikmyndaleikarinn Paui Newmann er hættur að vilja segja, hve gamall hann er. — Þið getið giskað á það, segir hann, en til aö gefa smáleiöbein- ingu get ég sagt ykkur, að ég er búinn að upplifa breiða hálsbindið þrisvar. Of mikið og of lítið t sænskri sjónvarpsdagskrá um Norður-lrland nýlega sagði irsk- ur prestur við spyrjandann: — Á trlandi er of mikið um trú- arbrögð og of litið af kristni. t ársbyrjun hefur Norræna húsiö kynningu á meistara sinum, finnska arkitektinum Alvar Aalto Hvaö er framundan í sýningar- sölunum Fjöisóttasta sýning ársins var á „borgarastéttinni” I Austurstræti Flestar meiriháttar myndlistarsýningar eru haldnar á vorin eða haustin. Á sumrin er víð- ast lítið um að vera, og um áramót kemur önnur ládeyða, enda hafa menn þá öðru að sinna s.s. inn- kaupum, hátíðahöldum og skattaframtölum, og því er þetta talinn óheppi- legur sýningatími. Haust- vertíðin er nú þegar haf in hjá sýningasölunum, en mig langar til að geta þess helsta sem fram- undan er og ég hef getað af lað mér upplýsinga um. Útisýningin I Austurstræti er vafalaust fjölsóttasta sýning ársins, og enn standa flest verk- in uppi, en verða tekin burt á næstunni. Tómas mun þó sitja eftir á þessum furðulega tróni sem undir hann hefur verið sett- ur. Uppsetning þeirrar myndar er þvf miður engin undantekn- ing á sýningunni, stöplar undir fleiri myndum eru hroðvirknis- lega valdir, t.d. þeir sem eru undir myndum þeirra Hall-* steins Sigurðssonar og Gerðar Helgadóttur. Ég er lika hrædd um að sýningarskráin hafi farið fram hjá flestum, þótt hún sé rúmar 30 siður, myndskreytt, með kynningum á þátttakend- um, greinum o.fl. Greinilegt er þvi að næst verður að vanda betur til framkvæmdar sýn- ingarinnar og frágangs verk- anna, en hitt er lika jafn vist að Austurstrætið verður tómlegt þegar myndirnar eru farnar. Af Listasafni tslands er litið að frétta, eins og venjulega. Þó er þangað von á myndum eftir Jón Stefánsson, sem safniö hef- ur keypt og nú eru I viðgerð er- lendis. Einnig er ætlunin að setja upp seinna I vetur eitthvaö af þeim myndum sem Gunn- laugur heitinn Scheving arf- leiddi safnið að. Þetta geta þó varla talist stórframkvæmdir hjá rikislistasafni, en svo fátið- ar eru fréttir þaðan, að við sjálft liggur að maður hrökkvi við þegar þar verður vart við lifs- mark. Nágranni listasafnsins, Nor- ræna húsið, er mun athafna- samara. Þar eru fyrirhugaðar margar sýningar i vetur, bæöi á myndlist o.fl. Þegar umbúða- sýningunni sem þar er nú lýkur, tekur við Karl Kvaran. Karl sýnir ekki oft, siðast i Bogasaln- um '71, og vakti sú sýning tölu- verða athygli og jafnvel blaða- deilur, en ekki er aö vita hvað gerist nú. Á eftir Karli kemur siðan leik- brúðusýning frá Jóni Guðmundssyni og svo norræn sýning. Fyrir henni stendur hópur sem kallar sig Den Nor- diske og hefur sýnt saman i nokkur ár, nú siöast 1 Charlottenborg og mun það vera nokkurn veginn sama sýn- ingin sem hingað kemur. Þátt- takendur verða m.a. frá Græn- landi og Færeyjum, og a.m.k. tveir islendingar, þau Ólöf Páls- dóttir og Tryggvi Olafsson. í desember verður húsiö með sýningu á gömlum myndum og ferðabókum, en i ársbyrjun verður þar kynning á finnska arkitektinum Alvar Aalto sem m.a. teiknaöi Norræna húsið, og efast ég ekki um að það veröi forvitnileg sýning. Byggingar- listasýningar eru fátiðar hér á þessu húsbyggingalandi, en þarna fáum við gott tækifæri til að kynnast verkum eins fræg- asta arkitekts samtimans, bæöi húsum, húsgögnum og jafnvel málverkum og höggmyndum. 1 tilefni kvennaárs Sameinuðu þjóðanna stendur Norræna hús- iö fyrir kvennaviku i mars, og i tengslum við hana verður sýn- ing á verkum islenskra kvenna, bæði myndlist og listiðnaði. Sýning þessi er ekki fullmótuð enn, þó mun þegar ákveðið að sýna aðeins nútimaverk. Sið- ust i röðinni af þeim sýningum sem þegar hafa verið ákveðnar er svo grafíksýning, og stendur félagið islensk grafik fyrir henni, en sá hópur hefur áður staðið saman að sýningum hér. Að Kjarvalsstöðum eru ekki fyrirhugaðar fieiri sýningar á þessu ári en sú sem nú stendur yfir, og reyndar er salnum óráð- stafað fram I mars. Þá verður sýning á verkum Guðmundar Einarssonar frá Miödal, en hann hefði orðið áttræður á næsta ári. Guðmundur var mjög fjölhæfur maður og fékkst við margt, bæði höggmyndir, mál- verk og leirmunagerð, auk margra annarra áhugamála, og er þvi ekki að efa að þarna væri hægt að setja saman mjög forvitnilega sýningu. Á eftir Guðmundi kemur ann- ar keramiker, Steinunn Marteinsdóttir, og siðan kín- versk grafik. Sú sýning mun nú vera á ferðalagi um Evrópu og kemur hún hingað á svipuðum tima og Islenskir grafikmenn sýna I Norræna húsinu, og gefur það gott tækifæri til samanburð- ar. Grafik er tiltölulega ung list- grein hér á landi, og hefur skortur á verkstæðisaðstöðu staðið henni fyrir þrifum, en kínverjar geta á þessu sviði, eins og á svo mörgum öörum, státað sig af margra alda gam- alli hefð. Tvær siðustu sýningar vorsins að Kjarvalsstöðum verða svo á verkum þeirra Sveins Björnssonar máiara og Leifs Breiðfjörð sem er einn af fáum islendingum sem fæst við glermyndagerö. Aðeins tvær sýningar hafa veriöákveðnar hjá Galleri Súm, en fleiri eru á döfinni, þ.á m. 2-3 erlendar. Nú um helgina opnar Guðlaugur Bjarnason þar. Ég þekki litið til hans, nema hvað hann var með á 1. desember- sýningunni I galleriinu I fyrra. Um miðjan næsta mánuð kemur svo hópur semnefnir sig Trykkerbanden með stóra grafíksýningu. Þarna er þá komin þriðja grafíksýningin á vetrinum, en þessi listgrein hef- ur hingað til ekki hlotiö verð- skuldaða athygli hér, en von- andi að þessar þrjár sýningar breyti þar nokkru. Bogasalurinn hefur löngum verið vinsæll sýningarsalur, og margir listamenn hafa hvergi viljaö sýna nema þar. Nú eru nýir staðir komnir til, og verið getur að myndlistarsýningum þar fari að fækka, enda hefur þjóðminjasafnið fullan hug á að taka hann undir starfsemi sina. Safnið hefur um árabil búið við mjög þröngan húsakost og vill þvi gjarna fá þennan sal undir sérsýningar slnar, og verða þar tvær slíkar sýningar i vetur, en þess á milli veröur salurinn svo leigður út. Auk þessara staða sem nú hafa verið nefndir eru nokkrir aðrir sýningarsalir i bænum s.s. Hallveigarstaðir o.fl. Einn nýr hefur nú bæst við, en það eru Klausturhólar á horni Lækjar- götu og Austurstrætis. Þar sýnir nú Robert Clerc teikningar og málverk. Clerc er franskur, en hefur dvalið hér um hrið og sæk- ir myndefni sitt i islenskt lands- lag og atvinnuhætti. 1 þessum sal er fyrirhugað að hafa til skiptís sýningar og umboössölu á lisfaverkum. Listinn hér að framan er hvergi nærri tæmandi, en gefur vonandi nokkra mynd af þvi sem framundan er I sýningar- málum. 1 fljótu bragði virðist veturinn lofa góöu, en þó er áberandi hversu litið er um erlendar sýningar. Þær útlendu sýningar sem fyrirhugaðar eru koma auk þess frá mjög tak- mörkuðu svæði, nema Kina- sýningin. Þetta er raunar engin ný bóla, og sýnir það best ástandið i þessum málum að Súm er sá aðili sem flestar erlendar sýningar hefur haldið á undanförnum árum. Fyrir Galleri SUM stendur fámennur hópur listamanna, sem aö vlsu hefur nokkurn rikisstyrk til sýningahalds. Eðlilegt væri að rikið og Reykjavikurborg (og þá einnig önnur bæjarfélög) stæðu fyrir kynningu á erlendri mynd- listhér, og ætti það ekki að vera þeim fjárhagslega ofviða úr þvi að Súm getur haldið 2-3 erlendar sýningar á ári. Þarna virðist þvi skorta bæði vilja og framtaks- semi hjá hinu opinbera. Þetta minnir lika á, að það var Tónlistarfélagið sem var braut- ryðjandi I að koma hingað með erlenda tónlistarmenn, og hefur það félag likast til staðið fyrir fleiri hljómleikum með erlendum tónlistarmönnum en nokkur annar hér. Nú að undan- förnu hafa riki og bær — þ.e. i sinfóniuhljómsveitin og listahá tíö, tekið sig dálltið á hvað viövlkur tónlistinni, og væri þá ekki tilvalið að fara að taka til við myndlistina? Elisabet Gunnarsdóttir ELÍSABET GUNNARSDÓTTIR SKRIFAR UM MYNDLIST

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.