Þjóðviljinn - 23.10.1974, Page 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur. 23. október. 197 4.
laupnum
Ebeneser Asgeirsson (t.v.) afhendir þeim Guörúnu Guðmunds-
dóttur og Guðmundi Karlssyni vinninginn i Sjónvarpsbingói Æg-
is, sem fram fór á siðasta ári.
Sjónvarpsbingó
Lionsklúbburinn Ægir i Reykjavik hleypir af stokkunum þessa
dagana bingóspili á þann hátt, að útdregin númer birtast i aug-
lýsingatima sjónvarpsins á hverju kvöldi þar til vinningshafi
gefur sig fram.
Vinningurinn er bifreið eftir eigin vali fyrir fimm hundruð
þúsund krónur, en verð bingóspjaldanna er kr. 300,00 og er sala
þeirra hafin hjá meðlimum Ægis i Reykjavik og einnig á nokkr-
um stöðum úti á landi, þar sem Lionsklúbbar starfa. öllum
ágóða Ægis er varið til barnaheimilisins að Sólheimum, en tekj-
um klúbbanna úti á landi er ráðstafað til liknarmála á viðkom-
andi stöðum.
Ættartengsl
og stjórnmál
Þessa dagana fara ihaldsat-
kvæðin hamförum yfir afstöðu
Sigurlaugar Bjarnadóttur til
kanasjónvarpsins. Nú siðast
staulast fram á ritvöllinn Guð-
laugur Bergmann úr Karnabæ.
Þaö sviður bersýnilega enn undan
þvi, þegar Sigurlaug tók hann á
hné sér og rassskellti frammi
fyrir alþjóð, nánar tiltekið i sjón-
varpinu. Að óreyndu hefði mátt
ætla, að helst væri mark á tak-
andi málflutningi Sigriðar Ás-
geirsdóttur, lögfræðings og
„varaborgarfulltrúa” ihaldsins
(flnt skal það vera). Flestum
mun þó hafa farið sem mér, að
þykja semmálflutningurhennar
hefði mátt vera ögn akademisk-
ari, svo ekki sé nú meira sagt.
En tilefni þessa greinarstúfs var
annars það, að i þessu fjaðrafoki
öllu skaut upp i huga mér ætt-
fræðilegum fróðleiksmola. Það er
kannski erigin tilviljun, hvernig
skiptast skoðanir þessara
kvenna, Sigurlaugar og Sigriðar.
Sigurlaug er sonardóttir Siguröar
I Vigur, eins hins einarðasta
foringja okkar i sjálfstæðis-
baráttunni við Dani. Sigriður er
dótturdóttir Hannesar Hafstein,
þess manns, sem aldrei virðist
hafa séð neitt annað I sjálfstæðis-
baráttunni en næsta skoplegt
brölt.
Svona skýtur hliðstæðunum upp
i huga manns. Það var einu sinni
haft eftir Birni Karel, að það væri
enginn vandi að vera réttu megin
I pólitik: „Það er bara að vera á
móti Heimastjórnarmönnum og
afkomendum þeirra”. — Kannski
það sé eitthvað hæft i þessu, hvað
þjóðfrelsismálin varðar?
Jón Thor Haraldsson
Dans á rósum
HFr sendi blaðinu eftirfarandi
visur og kannast liklega flestir
við tilefnið:
Ólafia féll, en frið
fékk með öðrum sveinum.
Aðeins til að vara við
vinnulúnum beinum.
Berskjaldaður gengur Geir
grunnreifur á rauöum ljósum.
Bauð til fundar — máski meir
maddömunni i dans á rósum.
Tvœr umferðir
eftir í
tvímenningnum
Eftir fjórar umferðir i
meistarakeppni Bridgefélags
Reykjavikur I tvimenning eru
landsliðspörin enn i þremur
efstu sætunum. Staðan er nú
þessi:
1. Guðlaugur R. Jóhannsson
— örn Arnþórsson 820 stig.
2. Einar Þorfinnsson —
Hjalti Eliasson 795 stig.
Félag Islenskra gullsmiða
var stofnað I Reykjavik 19.
október 1924 af 15 gullsmiöum
sem þá voru starfandi i
Reykjavik; siðar bættust viö 9
i Reykjavik og 5 utan af landi,
sem gerðust aöilar og þar með
taldir stofnendur.
5 af stofnendum félagsins
á lifi og sumir enn I starfi og
reka eigin fyrirtæki. Veröa
þeir nú gerðir að heiðursfélög-
um I tilefni af hálfrar aldar af-
mælinu. Það eru eftirtaldir
menn: Guðjón Bernharösson,
Guðmundur Þorsteinsson,
Kjartan Asmundsson, Leifur
Kaldal og Óskar Gíslason.
Stofnuð hafa verið útflutn-
ingssamtök gullsmiða, sem
unnið hafa I samráði við út-
flutningsmiðstöð iðnaðarins
3. Guðmundur Pétursson —
Karl Sigurhjartarson 776 stig.
4. Hallur Simonarson —
Þórir Sigurðsson 762 stig.
5. Hörður Arnþórsson —
Þórarinn Sigþórsson 741 stig.
6. Einar Guðjohnsen —
Guðmundur Árnason 709 stig.
7. Hermann Lárusson —
Ólafur Lárusson 708 stig.
8. Gunngeir Pétursson —
Viðar Gunngeirsson 706 stig.
9. Bragi Erlendsson —
Rikharöur Steinbergsson 689
stig.
10. Jón Gfslason — Snjólfur
Ólafsson 684 stig.
og tekið þátt I sýningum og
kaupstefnum erlendis.
1 tilefni af 50 ára afmælinu
gefur F.l.G. 50 þúsund krónur
til kaupa á verkfærum, sem
verða skal vísir að verk-
kennslu I þessu fagi i iðnskól-
anum.
Unniö er aö gullsmiöatali,
sem ná skal yfir alla þá gull-
smiði, sem vitaö er um að hafi
unnið að iðninni. Er þaö Þór
Magnússon þjóöminjavörður,
sem hefur þaö verk meö hönd-
um.
Safnaö hefir verið saman
gömlum verkfærum, sem gef-
in voru sem visir að iðnmiðja-
safni.
Núverandi stjórn félagsins
skipa: Dóra Jónsdóttir, for-
maður, Jens Guðjónsson, rit-
ari, og Guðmundur Björnsson,
gjaldkeri.
11. Gyl.fi Baldursson —
Sveinn Helgason 683 stig.
12. Helgi Sigurðsson — Jón
Baldursson 679 stig.
Næsta umferð verður spiluð
i kvöld, miðvikudaginn 23.
október, en vegna utanfarar
landsliðsins verður siðasta
umferöin spiluð laugardaginn
26. október kl. 2 e.h.
Aldur
SÍS- fólksins
Athugun var nýlega gerð af
Starfsmannahaldi Sambands-
ins á aldursgreiningu starfs-
manna Sambandsins hér i
Reykjavik. Greiningin náði til
530 fastráöinna starfsmanna.
Meðalaldur þeirra reyndist
vera 37.71 ár. Karlar voru
67.92%, en konur 32.08%. Að
öðru leyti reyndist aldurs-
greiningin vera þessi:
Innan 21 árs voru 15.47%,
21—30 ára 26.22%, 30-40 ára
16.60%, 40—50 ára 18.11%,
50—60 ára 13.21%, 60—70 ára
9.43%, yfir 70 ára 0.96%.
Trommugjöf
Robert Grauso afhendir Árna
Kristjánssyni trommu til
Sinfónluhljómsveitarinnar að
gjöf.
Fyrir skömmu barst
Sinfóniuhljómsveit Islands
höfðingleg gjöf frá þekktri
bandariskri hljóðfærasmiðju,
C.F. Martin Co. Gjöf þessi er
sérsmiðuð ,,snare”-tromma,
sérstaklega gerð fyrir leik
með sinfóniuhljómsveitum.
Tromman er af gerðinni
Fibes. Hönnuður Fibes,
Robert Grauso, lét þess getið
þegar hann afhenti Arna
Kristjánssyni gjöfina, að
tromma þessi væri aðeins ör-
litill vináttu- og þakklætisvott-
ur til islenskra tónlistar-
manna. Hann hefði átt þvi láni
að fagna aö kynnast Islensku
tónlistarlifi hérlendis fyrir ná-
kvæmlega tuttugu árum, og
kynni vel að meta vináttu-
tengsl, sem þá hefði veriö
stofnað til.
Robert Grauso, sem er m jög
þekktur trommuleikari, mun
veita isienskum kollegum sin-
um tilsögn i trommuleik á
meðan hann dvelur hérlendis.
En einnig hefur komið til tals
að hann komi fram á hljóm-
leikum. Þá hefur Grauso æft
18 manna hljómsveit FtH und-
anfarið.
Kaupfélags—
stj.skipti
Um þessar mundir lætur
Grétar Snær Hjartarson af
starfi kaupfélagsstjóra við
Kaupfélag Isfiröinga. Við þvi
starfi mun taka Einar
Matthiasson, sem verið hefur
kaupfélagsstjóri I Stöðvar-
firöi. Við starfi hans hjá Kaup-
félagi Stöðvfirðinga tekur
ungur maður, Guðmundur
Gislason að nafni.
AUGLYSING
um umferð í Kópavogi
Samkvæmt heimild í 65. gr. umferðarlaga nr.
40 frá 23. april 1568/ og að fengnum tillögum
bæjarstjórnar Kópavogskaupstaðar, eru hér
með settar eftirgreindar reglur um umferð í
Kópavogi:
1. VOGATUNGA: Niðurlag 6. töluliðar aug-
lýsingar um umferð í Kópavogi frá 30.
desember 1971 breytist þannig, að í stað
orðanna ,,Umferð um Vogatungu víki fyrir
umferð um Digranesveg samkvæmt regl-
um 2. mgr., sbr. 4. mgr. 48. gr. umferðar-
laga (stöðvunarskylda)" komi: ,,Umferð
um Vogatungu viki f yrir umf erð um Digra-
nesveg samkvæmt reglum 2. mgr., sbr. 3.
mgr. 48. gr. umferðarlaga (biðskylda)".
2. SKELJABREKKA: Bann við innakstri í
norður á Hafnarfjarðarveg frá Skelja-
brekku (rétt sunnan eystri brúar við Ný-
býlaveg). Umferð um Dalbrekku til norð-
urs víki fyrir umferð úr Skeljabrekku inn á
Dalbrekku samkvæmt reglum 2. mgr., sbr.
3. mgr. 48. gr. umferðarlaga (biðskylda).
3. BORGARHOLTSBRAUT: Bann við vinstri
beygju af Borgarholtsbraut til norðurs að
tengivegi Hafnarf jarðarvegar (vestan
brúar). Einstefna verður um þann tengiveg
til suðurs, þar til annað verður ákveðið.
Heimilt er að aka af Borgarholtsbraut til
norðurs eftir götuslóða austan Kirkjuholts.
Einstefna verður um þann götuslóða til
norðurs.
4. Tengivegur milli Digranesvegar og Hafn-
arfjaröarvegar: Umferð um tengiveg í
norður (austan brúar) frá Digranesvegi
víki fyrir umferð um Hafnarfjarðarveg
samkvæmt 2. mgr., sbr. 3. mgr. 48. gr. um-
ferðarlaga (biðskylda). Einstefna til norð-
urs.
Reglur þessar eru settar samkvæmt heimild í
2. mgr. 65. gr. umferðarlaga nr. 40 f rá 23. apríl
1968, og koma til framkvæmda þegar í stað.
AAeð auglýsingu þessari eru numin úr gildi
þau ákvæði eldri auglýsingar um umferð í
Kópavogi, sem brjóta i bága við ákvæði aug-
lýsingar þessarar.
Bæjarfógetinn i Kópavogi
1. október 1974
Sigurgeir Jónsson
Félag islenshra gullsmiða 50 ára
Fimm stofnfélagar I Félagi islenskra gullsmiða eru enn á lifl og
voru gerðir að heiðursfélögum I tilefni hálfraraldar afmæiis fé-
lagsins 19. október. A myndinni eru heiðursfélagarnir fimm:
Óskar GIslason.Kjartan Asmundsson.Guðjnundur Þorsteinsson,
Guðjón Bernharðsson og Leifur Kaldal.