Þjóðviljinn - 23.10.1974, Side 5
Miðvikudagur. 23. október. 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
SJÓNVARP
Dódó
BX 307
Nú er útlit fyrir góða kvöld-
skemmtun. Sjónvarpinu hefur
tekist að krækja I eintak af
mynd, gerðri af fegurðarsam-
keppni (kvenna), haldinni ný-
lega i Maníla á Filipseyjum.
Fjöldi föngulegra stúlkna keppti
þar um titilinn „ungfrú alheim-
ur”. Einn þátttakenda var is-
lenskur, Anna Björnsdóttir að
nafni. Þjóðviljanum er ekki
kunnugt um sigra önnu á þess-
um vettvangi, en ljóst er að
karlpeningur þessa lands mun
stifur sitja við imbakassa i
kvöld. Hver skyldi sigra?
Losaralegar fregnir frá
Manila herma, að keppnin þar
hafi þótt marka timamót i
stelpusýningum, þar eð aldrei
fyrr hafa eins sterk ræktunar-
einkenni komið fram. Sérfræð-
ingar hafa nú um hrið lagt
mikla áherslu á ávalan hupp,
minnkandi áhersla er lögð á
barm, en rófubein er farið að ná
ótrúlega langt niður. Kannski er
rétt, að birta hér lýsingu sér-
fræðingsins Flosa ólafssonar á
fyrirmyndar- stúikunni, en sú
stúlku-gerð hefur náðst fram á
siðustu árum eftir þrotlausa
ræktun og vel skipulagðar sýn-
ingar á hinum ýmsu ræktunar-
svæðum. Lýsing hins þekkta
sérfræðings, Flosa, er þessi:
Haus i lengra lagi, hryggur
sterkur, lágt sett halarót, fót-
staða ágæt, júgur fallega löguð
og vel borin uppi, góð yfirlina,
húð fremur þykk, en mjöltun
góð.
Þessi ummæli þarfnast vart
skýringa,' enda fylgir hér með
mynd af Dódó BX 307 (móðir
Didi úr Garði, faðir Nökkvi frá
Hólmi), en þessi stúlku-gerð
mun einmitt sú sem allir rækt-
unarmenn, sérfræðingar og
sýningarstjórar miða ræktunar-
starf sitt við og ætla sér að ná
fram innan tiðar.
Sýningin i kvöld hefst I sjón-
varpinu klukkan 21.25.
—GG
Rœkjan í
Húnaflóa:
„Fjöldi
fólks í
óvissu”
Rækjan I Húnaflóa er orðin
heitt deilumál norður þar og nú
hefur Þjóðviljanum borist bréf
frá þeim aðila á Blönduósi, sem
hleypt hefur ugg i brjóst þeirra
sem stundað háfa rækjuveiði og
rækjuvinnslu undanfarin ár.
Fyrirtækið Særún h.f. sótti um
leyfi til rækjuveiði og vinnslu i
Húnaflóa, en sjávarútvegsráðu-
neytið ákvað að veita ekki
Særúnu h.f. leyfið að svo stöddu. í
bréfi frá Særúnu h.f. segir m.a.
svo:
,,Er tilkynnt var sú ákvörðun
ráðuneytisins að láta leyfaútgáfu
til Blönduóssbáta biða, er tæplega
einn dagur þar til veiðar byrja og
nokkrir dagar þar til rekstur
verksmiðjunnar á Blönduósi á að
hefjast. Fyrirvaralaus frestun á
leyfaútgáfu án nokkurra skýringa
hefur sett fjölda fólks i stórkost-
lega óvissu með atvinnu sina og
valdið bátum og verksmiðju fjár-
hagstjóni.
Við viðurkennum fyllilega rétt
annarra byggðarlaga við Húna-
flóa til þátttöku i rækjuveiðunum,
bæði þeirra, sem hafa stundað
þær um lengri tima, eins og
Hólmavik og Drangsnes og einnig
hinna, sem aðeinshafa tekið þátt i
veiðum og vinnslu I eina til tvær
vertiðir, eins og Hvammstangi og
Skagaströnd. Við krefjumst að-
eins jafnréttis og eðlilegrar hlut-
deildar i leyfðum afla, en neitum
að viðurkenna, að önnur fyrirtæki
eða byggðarlög hafi einokun á
rækjuveiðum og rækjuvinnslu...”
Hreppsnefndir Kaldrananes-
hrepps og Hólmavikur hafa og
látið i sér heyra vegna umsóknar
Særúnar hf. á Blönduósi, og voru
skrif þessara aðila birt i Þjóðvilj-
anum i gær.
Enn þegir NTB
Verið að kanna ódýrari fréttaleiðir
Enn þegir fjarritinn okkar sem
um langt skeið hcfur flutt blaðinu
erlendar fréttir frá norsku frétta-
stofunni NTB. Eins og fram hefur
komið i fréttum stöðvuðu norð-
menn sendingar til íslands fyrir
nokkru vegna vangoldinnar
skuldar islenska rikisins vegna
þessara fréttasendinga.
Sú skuld var reyndar greidd
skömmu eftir að sendingar hættu.
En þá settu norðmenn það skil-
yrði fyrir þvi að sendingar hæfust
að nýju að þeir fengju tryggingu
fyrir áframhaldandi greiðslum.
Höskuldur Jónsson i fjármála-
ráðuneytinu skýrði blaðinu frá
þvi að siðasta greiðslan hafi verið
fyrir timabilið 1. júni til 15. októ-
ber og hafi hún numið á áttunda
hundrað þúsunda islenskra
króna. Hefur hún þegar verið
greidd.
Nú hefur fjármálaráðuneytið
falið pósti og sima að athuga
hvort ekki megi fá þessar fréttir
til landsins á ódýrari hátt. Bjóst
Höskuldur við þvi að niðurstöður
þeirrar athugunar lægju fyrir i
dag, þriðjudag. Þá verður tekin
endanleg ákvörðun um það
hvernig sambandi við NTB verð-
ur háttað i framtiðinni.
A meðan verðum við að sætta
okkur við þögn NTB. —ÞH
Martin Lökken heldur námskeið Blaöinu hefur borist frétt frá Martin Lökken sem er dansk- ur sálfræðingur og hefur und- anfarnar vikur staðiö fyrir námskeiöum I „grúppudýna- mik” eöa hópefli I Munaöar- nesi og aö Jaðri. Þátttakendur hafa að meiri- hluta verið stúdentar I félags- visindum og starfsfólk upp- eldisstofnana. Form. nám- skeiðsins gerir þó engar menntunarkröfur til þátttak- enda i þvi og getur þvi hver sem er haft gagn af námskeið- inu. Markmið námskeiðsins er að efla lifsgleði fólks og auka persónufrelsi þeSs. Þar sem margar óskir hafa komið fram um fleiri slik námskeið hefur Martin Lökk- en fallist á að halda eitt nám- skeið til viðbótar og verður það haldið að Jaðri helgina 25.-27. október. Námskeiðið verður opið öllum sem áhuga hafa en þó hafa þátttakendur i fyrri námskeiðum forgangs- rétt. Nánari upplýsingar má fá hjá Sveini Allan Mortens i sima 37262 á daginn og 36726 á kvöldin en hann tekur einnig við þátttökubeiðnum.
r"
w
RAFAFL
Vinnufélag
rafiðnaðar-
manna
Barmahlið 4
HUSEIGENDUR,
HÚSBYGGJENDUR
• önnumst allar nýlagnir og
viðgerðir á gömlum raflögn-
,um.
• Setjum upp dyrasima og lág-
spennukerfi.
• Ráðgjafa og teikniþjónusta.
• Sérstakur simatimi milli kl.
1-3 daglega, simi 28022.
Auglýsingasíminn er
17500
FUNDIR
opinberra
starfsmanna
um siðustu kjarasamninga, efnahags- og
skattamál o.fl. Tveir fulltrúar BSRB hafa
framsögu á eftirtöldum stöðum
Fimmtud. 24. okt. kl. 20.30
Keflavik — Iðnskólinn
Hafnarf jörður — Alþýðuhúsið
Selfoss — Hótel Selfoss
Föstud. 25. okt. kl. 20.30.
Akranes — Iðnskólinn
Húsavik — Félagsheimilið
Laugard. 26. okt. kl. 2 e.h.
Stykkishólmur — Gagnfræðaskólinn
ísafjörður — Gagnfræðaskólinn
Siglufjörður — Gagnfræðaskólinn
Neskaupstaður — Egilsbúð
Höfn, Hornafirði — Gagnfræðaskólinn
Vestmannaeyjar — Hótelið
Sunnudagur 27. okt. kl. 2 e.h.
Blönduós — Blönduósskóli
Akureyri — Barnaskóli Akureyrar
Egilsstaðir — Barnaskólinn
Starfsmenn rikisins og sveitarfélaga eru
hvattir til að fjölmenna og sýna áhuga á
auknum tengslum landsbyggðarinnar og
heildarsamtakanna.
FRÆÐSLUNEFND BSRB
F ramhaldsnámsskeið
fyrir
málmiðnaðarmenn
Föstudaginn 1. nóvember munu hefjast
kvöldnámskeið fyrir málmiðnaðarmenn
samkvæmt samningi i milli Málm- og
skipasmiðasambands íslands og
Sambands málm-og skipasmiðja.
Eftirtalin námskeið verða haldin:
1. Námstækni.
2. Vinnuheilsufræði
3. Vinua og verðmyndun.
4. Efnisfræði.
5. Rennismiði
6. útflatningar.
7. Mælitækni.
8. Plastsuða.
Fleiri námsefni munu bætast við eftir
áramót.
Fyrstu námskeiðin, sem jafnframt eru
tilraunanámskeið, verða haldin i Iðn
skólanum i Hafnarfirði.
Námskeiðsgjald ásamt námsbókum fyrir
námskeið allt að 60 stundum er kr. 7000,00
og greiðist við innritun.
Upplýsingar og innritun fer fram í
Iðnskólanum i Hafnarfirði daglega frá kl.
10/00 til kl. 14/00. |
FRÆÐSLUNEFND MALMIÐNAÐARINS