Þjóðviljinn - 23.10.1974, Blaðsíða 9
Miðvikudagur. 23. október. 1974. þjóÐVILJINN — SÍÐA 9
Independiente
S-Ameríkumeistari
Argentinska knattspyrnuliöið Indepcndiente varð S-Ameriku-
meistari i knattspyrnu þriðja árið i röö með þvi að sigra brasiliska
liðið Sao Paulo 1:0 um siðustu helgi. Þar meö verður það Independ-
iente sem leikur gegn Evrópumeisturunum Bayern Múnchen um
titilinn „besta félagslið heims”.
Þetta er I 5. sinn sem Independiente vinnur S-Amerlkumeistara-
titilinn.
Það er fyrirliði iiðsins Ricardo Pavoni sem skoraöi sigurmark
liðsins gegn Sao Paulo á 26. minútu leiksins, en brasillska liðið átti
mun meira I Ieiknum allan tlmann, en fór illa með marktækifæri
sin.
Þetta var 3ji leikur liðanna. Þann fyrsta, sem fram fór i Brasiliu,
vann Sao Paulo 2:1, leik númer tvö, sem fram fór I
Argentfnu, vann Independiente 2:0 og svo einnig úrslitaleikinn, sem
fram fór I Santiago i Chilc.
Lið Independiente, sem varð S-Amerlkumeistari I knattspyrnu.
Hreinn
kastaöi
18,80 m.
A innanfélagsmóti IR, sem að-
eins var fyrir kúluvarpara, I síð-
ustu viku, kastaði Hreinn Hall-
dórsson 18.80 m. sem er aðeins 10
cm frá fslandsmeti hans. Senni-
lega var þctta siðasta frjáls-
iþróttamót sumarsins, en þó er
smá möguleiki á að cnn eitt
innanfélagsmót á vegum ÍR fari
fram áður en frjálsiþróttafólkið
snýr sér að inniæfingum.
JR komið í
nýtt
húsnæði
og vetrarstarfsemin í fullan gang
Júdófélag Ileykjavikur hefur
nú byrj.að vetrarstarfsemina af
fullum krafti 1 nýju húsnæði að
Brautarholti 18, 4. hæð. Þarna er
stærsti júdóæfingasalur landsins
og aðstæður ailar mjög góðar,
m.a. gufuhaö.
Æfingar fyrir byrjendur, 15 ára
og eldri, eru á þriðjudögum kl.
8.30-9.30 og á föstudögum kl. 7-8
s.d. Drengir 10-14 ára æfa á
þriðjudögum og fimmtudögum kl.
6-7 s.d. Æfingar fyrir konur eru á
mánudögum og miðvikudögum
kl. 5.30-6.30. Framhaldsflokkur
karla æfir á þriðjudögum kl. 7-
8.30 og á fimmtudögum kl. 8.30-10
á samæfingu júdófélaganna.
Þá byrja nú sérstakar æfingar
fyrir „old boys”, og verða þær
fjórum sinnum i viku, þ.e. tvisvar
I hádeginu og tvisvar á kvöldin. A
þriðjudögum og föstudögum
verða ,,old-boys”-æfingarnar kl.
12.10-12.50, og á mánudögum og
miðvikudögum kl. 7-8 s.d. Samæf-
ing allra flokka er á laugard. kl. 2-
3.30.
Þjálfarar hjá JFR eru margir
af bestu júdómönnum landsins,
s.s. Michal Vachun landsþjálfari,
Sigurður H. Jóhannsson, Sigurjón
Kristjánsson, Svavar Carlsen
o.fl.
jjjcrclarécfi
Glæsileg
gjöf
Nýlega eru komnir á
markaðinn plattar sem
Bæjarstjórn Akraness gaf
Knattspyrnuráði Akraness i til-
efni af unnum sigri i
lslandsmóti 1. deildar 1974, og
eru þeir hugsaðir til styrktar
knattspyrnuiþróttinni á
Akranesi. Plattar þessir eru til
sölu hjá versluninni Óðni,
Akranesi. Plattar þessir sem
eru i litum eru framleiddir af
Gler og Postulin h.f., og
teiknaðir af Magnúsi Oddssyni
og Torfa Bjarnasyni.
Heimsmeistaramót í fimleikum
Turistjeva
hefur betur
eftir skyldu-
æfingarnar
í einvíginu við
Olgu Korbut
Heimsmeistaramótið i fimleik-
um er hafið i Varna i Búlgarlu, og
á fyrsta keppnisdeginum sl.
mánudag beindust allra augu að
einvigi þeirra Ljúdmilu Turist-
jevu, núverandi heimsmeistara,
og Olgu litlu Korbut sem sifellt
sækir á og kemur til með að veita
henni harða keppni á þessu móti.
Keppt var að sjálfsögðu I
skylduæfingunum fyrsta daginn,
og þar hafði Turistjeva betur eins
og búist var við, enda er það á
slánni og svifránni sem Olga
stendur best að vigi. Eftir skyldu-
æfingarnar var staðan þessi i
kvennaflokki:
1. Ljúdmila Turistjeva
Sovétr........... 38,95 stig
2. Olga Korbut
Sovét............ 38,65 stig
3. Hellmann A-Þýskal..38.00
4. Kim, Sovét........ 37,85
5. Dronova Sovétr. og
Medveczky Ungverjal. .. 37,55
7. Sikharulidze Sovétr.37,50
8. Csaszar Ungverjal. og
Saadi Sovétr....... 37,45
10. Schmeiser A-Þýsk..37,40
1 flokkakeppninni standa Sovét-
rikin langbcst að vigi með 190,80
stig, Næst kemur A-Þýskaland
með 186,20 stig, þá Ungverjaland
með 184,65 stig, Tékkóslóvakía
með 182,80 stig, Rúmenia með
180,85 stig, USA með 180,30 stig,
Japan með 180,05 stig, V-Þýska-
land með 178,35 stig, Pólland með
175,00 stigog Búlgaria með 174,40
stig.
Ljúdmila Turistjeva