Þjóðviljinn - 23.10.1974, Side 10

Þjóðviljinn - 23.10.1974, Side 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur. 23. október. 1974. 22 Febrúar 1965 15 Organistinn lét gamminn geisa lengi vel áöur en hann var allt i einu kominn i miðjan sálminn og hinar fáu hræður i kapellunni hertu sig til að ná honum og laun- uðu forsöngvurunum tveimur. Borck hafði heilsað fólkinu jafnóðum og það kom: föður- bræðrum, föðursystrum, syst- kinabörnum, þremenningum. Meðhjálpari hafði séð til þess að enginn nema hann settist á fremsta bekk, nokkur skref frá kistunni. Það var eins og organistinn væri viljandi að lengja og stytta laglinurnar, likt og hann vildi fyr- ir hvern mun komast úr takti við þá fáu I kapellunni sem höfðu söngrödd. Eftir nokkra stund fóru þeir að týna tölunni og Borck gerði sér ljóst að fljótlega yrði hann einn eftir. Hann leit á litla bæklinginn sem meðhjálparinn hafði dreift. Annað versið var komið vel af stað, meðan hann var ennþá að draga andann eftir hið fyrsta: óðum sólin ævi minnar lækkar alltaf heimsins gleðiljósum fækk- ar Hann heyrði einn kirkjugest fyrir aftan sig hætta i miðri lag- linu og sjálfur hélt hann áfram með auknum styrk: breytist allt og hverfur þá og þá þú sem aldrei breytist vert mér hjá. 1 þetta sinr. var hann viðbúinn þvi að ekkert hlé var gert milli versanna og eftir snöggan andar- drátt var hann reiðubúinn á ný: Kom þú ekki' i konungsvaldi striðu, kom með þinni elsku, likn og bliöu — Meðan hann söng gaut hann augunum upp að mjóu gluggun- um undir lofti kapellunnar, en gegnum þá sást i bút af kuldaleg- um, gráum himni og naktar birki- greinar. Framhja auðu númera- töflunni renndi hann augunum aftur að blómum skreyttri furu- kistunni. Hann hafði ekki nægt Imyndunarafl til að imynda sér föðurinn inni i þessu hylki sem virtist alltof stórt: litla, syfjaða manninn, sem virtist rýrna i hvert sinn sem hann sá hann und- ir lokin. An þin glaða enga stundu lit ég, án þin falla i hverju spori hlýt ég Organistinn hafði dregið út fleiri takka og reyndi að fylla kapelluna með voldugum hljómi, sem hann hafði haldið niðri hing- aö til. Forsöngvararnir hækkuðu róminn, nokkrar raddir tóku und- ir á ný.og Borck hækkaði sjálfur róminn, en uppgötvaði að ekkert heyrðist til hans: Herra, i dimmu og björtu vert mérhjá — Hann varð að láta hina syngja versin til enda á eigin spýtur Likaminn undir ábreiöunni hafði rýrnað og rýrnaðj og loks hafði hann orðið að halda aftur af sér tii að aðgæta ekki hvort nokkuð væri eftir af honum. Lokaorðið reyndi hann að syngja með, en hann heyrði ekki i sjálfum sér. Organ- istinn hélt áfram — aftur með mjóróma tón i eins konar eftir- spili sem lauk þó með glymjanda, sem varð til þess aö allir fóru að velta fyrir sér hvort þeir ættu að standa upp. Borck fann augu þeirra hvila á sér. Ef hann stæði upp, myndu hinir gera það llka. Meðan á faðirvorinu stóð, fann Borck að sjálfsöryggið kom á ný, en það hafði dvinað að mun undir sálmasöngnum. Og i forspilinu að Fögur er foldin var eins og örugg ró gagntæki hann. Faðirinn var ekki lengur i kistunni, hann var hvergi. Himinninn, i litlu fer- hryndu gluggunum uppi undir þaki, var kuldagrár. En voriö kæmi bráöum, dagarnir voru þegar farnir að lengjast, og gegn- um eina rúðuna sá hann um leið og hann settist aftur, feitan svart- þröst tylla sér á birkigrein, svo að hún svignaði. Hann var fullfær um að taka i hendur krikjugest- anna. Hann átti dálitiö erfitt með að muna eftir þeim sumum: nokkr- um starísbræörum föðurins sem áttu sér aöeins rætur i bernsku Borcks og hann þekkti kannski ekki alltof vel þá. Organistinn var enn að spila meðan þeir risu hóstandi úr sætum sinum og gengu i átt til dyranna, þar sem hann haföi tekið sér stöðu. Borck tók i hendur þeirra, skiptist á fá- einum orðum við þá sem hann þekkti, og heyrði til þeirra fyrir utan kapelluna meðan þeir ræddu hver ætti að sitja i hjá hverjum eöa hverjir ætluðu að panta bila saman. Fljótlega var orðið tómt inni og úti. Athygli hans beindist æ meira að ungri, svartklæddri konu, sem hafði komið meðal hinna siðustu og ekki talað við neinn hinna. Hún hafði ekki staðið upp strax eftir Fögur er foldin,heldur setið kyrr á stól sinum aftast i kirkjunni likt og hún hefði allt i einu komið auga á eitthvað'I heftinu sem útdeilt var og hún þyrfti að athuga nán- ar. Nú stóð hún á fætur og gekk framhjá auðum stólunum og I átt til Borcks. Litil, hanskaklædd hönd var rétt að honum. — Ég veit ekki hvort þér munið eftir mér. Auk organistans voru þau ein eftir i kapellunni; fyrir utan var farið að ræsa bilana og þeir óku burt hver af öðrum yfir frosna mölina. Borck hristi höfuðið. — Jetta Merrild. Ég aðstoðaði á sjúkraheimilinu. Ég sinnti föður yðar I vetur og mér fór aö þykja væntum hann;hann var svo góður maður. Hann talaði mikið um yð- ur. Borck þrýsti litlu, stinnu hönd- ina. Stúlkan hafði bundið svarta slæðu yfir hárið og hún duldi ekki hve stutt hárið var. Andlitið var fölleitt og nefið stutt, munnurinn litill, málaöur með ljósum vara- lit, augun grænbrún og skær, og vandlega málaður bogi yfir hvoru auga; þegar hún kom nær honum fann hann óvænt sterka og höfuga ilmvatnslykt; henni virtist kalt þrátt fyrir svörtu kápuna með skinnkraganum. — Við höfum bara rekist hvort á annað i ganginum, sagði hún, einu sinni eða tvisvar. Ég var oft- ast á næturvakt. Ég vona að yður finnist það ekki uppáþrengjandi af mér að koma hingað — við töl- uðum svo oft saman hann faðir útvarp Miðvikudagur 23. október 7.00 Morgunútvarp. Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for- ustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00 Morgunstund barnanna ki. 8.45: Rósa B. Blöndals held- ur áfram að lesa „Flökku- sveininn” eftir Hector Mal- ot (9). Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög milli liða. Kirkju tónlistkl. 10.25. Morguntón- leikarkl. 11.00: John Ogdon ög Allegri kvartettinn leika Kvintett I a-moll fyrir pianó og strengi op. 84 eftir Edgar Elgar / Cleveland hljóm- sveitin ieikur Tilbrigði eftir William Walton um stef eft- ir Hindemith. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.30 Með sínu lagi. Svavar Gests kynnir lög af hljóm- plötum. 14.30 Fólk og stjdrnmáLAuð- unn Bragi Sveinsson les þýðingu sina á endurminn- ingum Erhards Jacobsens (6). 15.00 Miðdegistónleikar. Boris Christoff, Flaviano Labo, Ivo Vinco, Ettore Bastian- ini. Ietta Stella o.fl. söngv- arar flytja atriði úr óper- unni „Don Carlos” eftir Verdi ásamt kór og hljóm- sveit Scala óperunnar; Gabriele Santini stj. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.25 Popphornið. 17.10 Tónleikar. 1 17.40 Litli barnatiminn.Gyða Ragnarsdóttir sér um þátt- inn. 18.00 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Landslag og leiðir.Stein- dór Steindórsson fyrrver- andi skólameistari talar um Eyjafjörð innan Akureyrar. 20.00 Einsöngur I útvarpssal: Sigriður Eiia Magnúsdóttir syngurlög eftir Skúla Hall- dórsson, sem leikur undir á pianó. 20.20 Sumarvaka a. Smali hverfur frá Þorlðkshöfn Stefanla Ragnheiður Páls- dóttir les frásöguþátt eftir Jón Gislason b. Þristrenda glerið Guðmundur Þor- steinsson frá Lundi flytur fjögur frumort kvæði. c. Marieriurnar. Hjörtur Páls- son flytur stutta frásögu eft- ir Þorstein Björnsson frá # sjónvarp 18.00 Fllahirðirinní tsresK framhaldsmynd fyrir börn og ungiinga. Skrúðgangan mikla Þýðandi Jóhanna Jó hannsdóttir. 18.25 Gluggar. Breskur fræðslumyndaflokkur fyrir börn og unglinga. Þýðandi og þulur Jón O.Edwald. 18.50 Butraldi, Sovésk leik- brúðumynd,’ eins konar framhald af myndinni um krókódilinn Gena og vini hans. Þýðandi Hallveig Thorlacius. 19.00 Hlé. 20.00 Fréttir. Hrólfsstöðum. d. „Eitt er landið ægi girt”. Bárður Jakobsson lögfræðingur flytur þætti úr sögu sjó- mennskunnar; — fimmti hluti. e. Kórsöngur. Karla- kórinn Fóstbræður syngur Islensk þjóðlög i útsetningu Sigfúsar Einarssonar og Ragnars Björnssonar og lög eftir Emil Thoroddsen og Pál ísólfsson; Ragnar Björnsson stjórnar. Ein- söngvarar: Sigurður Björnsson og Gunnar Krist- insson. Carl Billich leikur á pianó. 21.30 Otvarpssagan: „Gang- virkið” eftir ólaf Jóh. Sig- urðsson.Þorsteinn Gunnars- son ieikari les (6). 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Til sölu Umsjón: Einar örn Ste- fánsson. 22.45 Nútimatónlist. Halldór Haraldsson kynnir. 23.30 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. 20.25 Veður og augiýsingar. 20.35 Orkukreppan, Bresk fræðslumynd I þremur þátt- um. 2. þáttur. Kjarnorkan. Þýðandi og þulur Jón O. Ed- wald. 21.25 „Ungrfrú Alheimur”. Sjónvarpsupptaka frá al- þjóðlegri fegurðarsam- keppni I Manilla á Filipps- eyjum fyrr á þessu ári. Þátttakendur i keppninni eru frá 65 þjóðum, og þeirra á meðal er Anna Björns- dóttir frá Islandi. Auk kepp- enda og dómara, koma fram i þættinum listamenn af ýmsu tagi og flytja skemmtiatriði. Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir. 23.10 Dagskrárlok. =:ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ HVAD VARSTU AÐ GERA 1 NÓTT? i kvöld kl. 20 föstudag kl. 20 laugardag kl. 20 ÉG VIL AUÐGA MITT LAND fimmtudag kl. 20 Leikhúskjallarinn: ERTU NU ANÆGÐ KERL- ING? i kvöld kl. 20.30 LITLA FLUGAN þriðjudag kl. 20.30. Miðasala 13,15—20. Simi 1-1200. The most biza rre murder weapon everused! Einvigið Óvenju spennandi, og vel gerð bandarisk litmynd um æðislegt einvfgi á hraðbraut- um Kaliforniu. Aðalhlutverk: Dennis Weaven. Leikstjóri: Steven Spielberg. ISLENZKUR TEXTI. Sýnd kl. 5, 7 9 og 11. Bönnuð börnum innan 12 ára. NÝJAB Simi 11540 "THE IMIFTIEST CHASESEQUENCE SINCE SILENT FILMS!" — PaulD. Zimmerman Newsweek THE TRENCH CONNECTION Æsispennandi og mjög vel gerð ný Oscarsverðlauna- mynd. Mynd þessi hefur alls- staðar verið sýnd við metað- sókn og fengið frábæra dóma. Leikstjóri: Wiiliam Fredkin Aðalhlutverk Gene Hackman Fernando Rey Bönnuð innan 12 ára Sýnd kl. 5, 7 og 9. Simi 31182 Manndráparinn Sérstaklega spennandi, ný, bandarisk kvikmynd með CHARLES BRONSON I aðal- hlutverki. Aðrir leikendur: Jan Michael Vincent, Keenan Wynn. Leikstjóri: MICHAEL WINNER Sýnd kl 5, 7, og 9. Sími 41985 Hús hatursins The velvet house rÆW Spennandi og taugatrekkjandi ný bandarisk litkvikmynd um brennandi hatur eiginkonu og dóttur. Leikstjóri: Viktors Ritelis. Leikendur: Michael Gough, Yvonne Mitchell, Sharon Burnley. Islenskur texti. Sýnd kl. 8 og 10 Mánudag til föstudags. Laugardag og sunnudag kl. 6, 8 og 10. Bönnuð börnum. 1 “ 1 \\ jj A m ö ] Slmi 16444 Sérlega spennandi og viðburðahröð ný bandarisk lit- mynd i Todd-Ao 35, framhald af myndinni Slaughter, sem sýnd var hér fyrir skömmu. Nú lendir Slaughter I enn háskalegri ævintýrum og á 1 sannarlega i vök að verjast. Jim Brown, Don Stroud. íslenikur texti. Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.