Þjóðviljinn - 23.10.1974, Side 12
UOÐVMNN
Þriðjudagur. 22. október. 1974.
F ormlegt
vopnahlé
portúgala
og MPLA
Nýlendustríðunum
loksins endanlega
lokið
LUANDA 22/10 — AlþýöU-
hreyfingin til frelsunar
Angólu (MPLA) hefur nú
gert formlegt vopnahlé við
portúgalska herinn í iand-
inu, en sjö vikur eru síðan
MPLA hætti vopnavið-
skiptum við portúgala. Er
þetta samkvæmt frétt í
blaðinu Provincia de Ang-
ola, sem gefið er út í Lu-
anda, höfuðborg landsins.
Blaðið segir einnig að
MPLA muni opna skrif-
stofu í Luanda 25. þessa
mánaðar.
FNLA og Unita, þær
tvær hreyf ingar aðrar sem
berjast fyrir sjálfstæði
Angólu, hafa þegar samið
vopnahlé við portúgala. í
vopnahléssamningunum
felst viðurkenning portú-
gölsku stjórnarinnar á
þeim sem löglegum hreyf-
ingum. Búist er við að á
næstunni verði reynt að
sameina f relsishreyf ing-
arnar þrjár í ein samtök,
er komi sér saman um
myndun bráðabirgða-
stjórnar hliðstæðri þeirri,
er nú ríkir í Mósambik.
Með vopnahléi portúgala
og MPLA er formlega lok-
ið nýlendustríðum portú-
gala, er stóðu yfir tiátt á
annan áratug.
Vandrœðin aukast
í Norður-írlandi
óeirðir og hermdarverk færast nú á ný I aukana í Norður-ír-
landi, og eiga herskáir mótinælendur og kaþólikkar þar sem fyrr
högg hvorir I annars garði. En fólkinu hefur furðanlega tekist að
læra að lifa með þessu ástandi, eins og til dæmis börnin á mynd-
inni, sem leika sér á götu i Belfast í námunda við brennandi bila
og strætisvagna.
Frakkar yfirlýsa:
ísrael skili öllum
herteknu svæðunum
Heita palestínumönnum stuðningi
AMMAN 22/10 — Jean
Sauvagnargues, utanrfkisráð-
herra Frakklands, lýsti þvi yfir i
dag I viðræðum við Hússein
Jórdanfukonung að frakkar væru
fullkomlega sammála jórdönum
um að israelsmenn skyldu skila
öllum hernumdum arabiskum
löndum, þar á meðal vestur-
bakkahéruðunum svokölluðu.
Einnig tók Sauvagnargues fram
að frakkar styddu rétt palestinu
manna til sjálfsákvörðunar og
israelsmanna til þess að lifa I
öryggi innan öruggra og viður-
kenndra landamæra.
I gær ræddi Sauvagnaruges við
Jasser Arafat, leiðtoga PLO, i
Beirút, og þótti sá fundur heldur
betur tíðindum sæta þar eð vest-
rænn utanrlkisráðherra hefur
aldrei áður rætt við framámann
úr baráttusamtökum palestinu-
manna. A þeim fundi hét franski
utanrikisráðherrann palestinu-
mönnum stuðningi á vettvangi
Sameinuðu þjóðanna, en hvatti þá
jafnframt til að fara sér ekki
mjög geyst i kröfum. Talið er vist
að með þessu séu frakkar að
reyna að tryggja sér vinsemd
arabisku oliuframleiðslurikj-
anna.
Talið er vist að þeir Sauvagna-
rgues og Hússein hafi á fundi sin
um rætt kröfur þess siðarnefnda
til vesturbakkasvæðanna I
Palestinu, en þar búa nú um
750.000 palestinumenn. Hússein
hefur áður sagt að komist sam-
kunda arabiskra ráðamanna,
sem koma saman i Marokkó nú i
vikunni, að þeirri niðurstöðu að
PLO undir forustu Arafats skuli
teljast réttur valdaaðili vestur-
bakkans, muni Jórdanfa afsala
sér öllum kröfum til þess svæðis.
✓
1
Mótmælaalda
Suður-Víetnam
Saigon sunnudag — Mikil
mótmæli voru höfð uppi
gegn ógnarstjórn Thieus
víða í Suður-Víetnam í dag.
Um þúsund mótmælendur
brenndu myndir af Thieu
og kveiktu í bíl í Saigon. í
Húe söfnuðust 3 þúsund
manns saman og kröfðust
þess að Parísarsamning-
Iðnnemar taki
sér verkfallsrétt
Alþýðubandalagið
Námshópar um sósialisma og nútima þjóðfélag:
Námshópar I Reykjavik koma saman einu sinni i viku. Hópur I á mánu-
dagskvöldum, hópur II á þriðjudagskvöldum og III og IV á miðviku-
dagskvöldum kl. 20.30 að Gret tisgötu 3. Þátttakendur, sem ekki hafa
skráð sig i ákveðna hópa, tilkynni þátttöku á skrifstofu Alþýðubanda-
lagsins i Rvik, en nú eru siðustu forvöð.,.
1 kvöld kl. 20.30 kemur hópur III og IV saman að Grettisgötu 3.
Námshópur i Kópavogi
Námshópur um sósialisma og nútimaþjóðfélag kemur saman I Þinghól
i Kópavogi I kvöld kl. 20.30.
Alþýðubandalagið i Kjósarsýslu
heldur aðalfund að Hlégarði i Mosfellssveit nk. mánudagskvöld 28.
október kl. átta siðdegis (ekki sunnudag, eins og auglýst var i gær).
Aðalfundur AB i Kópavogi
Aðalfundur Alþýðubandalagsins i Kópavogi verður haldinn mánu-
daginn 28. október kl. 20.30 I Þinghól.
Dagskrá:
Inntaka nýrra félaga.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kosning fulltrúa á landsfund.
önnur mál. Stjórnin
Vetrarfagnaður
Alþýðubandalagið i Kópavogi efnir til vetrarfagnaðar laugardaginn 26.
október i Þinghóli klukkan 21:00.
Hefjum vetrarstarfið með þvi að mæta vel. — Stjórnin.
Viðtalstimi borgarfulltrúa
Sigurjón Pétursson, borgarráðsmaður Alþýðu-
bandalagsins, verður til viðtals i dag kl. 17—18, á
skrifstofu flokksins að Grettisgötu 3. Siminn er
28655.
Um siðustu helgi var haldið
þing Iðnnemasambands lslands
að Hótel Esju. Þingið sátu um 80
manns af öllu landinu. A þinginu
voru samþykktar ályktanir um
kjaramál, iðnfræðslu, félagsmál
iðnnema og almenn þjóðmál.
Einnig var sambandinu kosin ný
stjórn.
í ályktun þingsins um kjaramál
var harðlega mótmælt þeirri
ákvörðun rikisstjórnarinnar að
binda visitöluna og bent á að lág-
launabætur væru einungis til þess
að blekkja verkalýðinn. Sett var
fram krafa um að þingkosin
nefnd kannaði stöðu atvinnuveg-
anna og sögusagnir um rekstrar-
erfiðleika þeirra.
Skorað var á iðnnema að fara i
verkfall ef til þeirra kemur og
taka sér þannig verkfallsrétt en
hann hafa þeir ekki haft til þessa.
Jafnframt krefjast iðnnemar
þess að fá aðgang að Lánasjóði is-
lenskra námsmanna.
I ályktun um þjóðmál var sett
fram krafa um brottför hersins
og að landið stæði utan hernaðar
bandalaga. Heldur bæri þjóðinni
að styðja aðrar kúgaðar þjóðir i
frelsisbaráttu þeirra. I þvi sam-
bandi var skorað á islendinga að
Framhald á 11. siðu.
unum væri f ylgt og að end-
ir yrði bundinn á spilling-
una í landinu.
I þessum mótmælaaðgerðum
tóku þátt bæði búddistar og kaþó-
likkar en þessi tvö öfl hafa haldið
uppi harðri baráttu gegn Thieu
undanfarnar sex vikur. Lögregl-
an dreifði mannfjöldanum I Sai-
gon og var einn maður barinn af
mikilli grimmd i þeim átökum.
A sama tima sprengdu þjóð-
frelsisherirnir brú eina i loft upp
24 km frá Saigon. Var þetta stór
og mikil brú og fóru um hana bæði
bilar og járnbrautir.
reuter.
Irar unnu
frar sigruðu islenska unglinga-
landsliðið i siðari leik liðanna,
sem fram fór i Belfast i gær-
kvöldi. Lokatölur urðu 3—1 en i
leikhléi var staðan 2—0 fyrir ira.
Þátttöku Islands I evrópukeppni
ungalandsliða er þar með lokið.
Leifar frummanna
finnast í Chile
SANTIAGO 22/10 — Bandarískur
fornfræðingur, James Parkinson
að nafni, hefur að sögn fundið vel
varðveittar likamsleifar af
tveimur manneskjum frá steinöld
i eyðimörkinni i norðurhluta
Chile. Hafa steinaldarmenn þess-
ir verið næsta likir öpum I útiiti og
allir loðnir, en báru klæði og
höfðu áhöld, svo að telja verður
þá með mönnum. Þeir tveir, sem
fundust, hafa verið næsta miklir á
velli i lifanda lifi, þvi að hæð ann-
ars var 1.90 metrar og hinn 1.95 á
hæð.
Ekki fylgdi það sögunni frá
hvaða timabili steinaldar frum-
menn þessir væru og á hvern hátt
þeir hefðu varðveist svo vel.
Yiðræður við v-þjóðverja
til Bonn I gær til viðræðna við
vestur-þýsk stjórnvöld um „land-
helgisdeiluna” (eins og mönnum
er tamt að nefna veiðiþjófnaðinn
þegar stefnt er á samninga við
ránsmennina). Af hálfu Islensku
rikisstjórnarinnar er sagt að
samninganefndarmennirnir hafi
engar tillögur með sér héðan að
heiman.
Nefnd 4ra manna ,,tii að kanna
viðhorfin” er nú farin til Vestur-
Þýskalands vegna veiðiþjófnaðar
þýskra togara i Islenskri land-
helgi.
Þeir Hans G. Andersen þjóð-
réttarfræðingur, Már Elisson
fiskimálastjóri, Jón Arnalds
ráðuneytisstjóri og Kristján
Ragnarsson hjá LIO fóru áleiðis
BLAÐ-
BURÐUR
Þjóðviljann vantar blað-
bera í eftirtalin hverfi:
Seltjarnarnes
Höfðahverfi
Skúlagata
Alfheimar
Sligahlíð
Kleppsvegur
Sogamýri
Vinsamlegast hafið
sarnband við af-
greiðsluna.
DWDVIUINN
I simi 17500 |