Þjóðviljinn - 27.10.1974, Qupperneq 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 27. október 1974.
Umsjón: Vilborg Harðardóttir
BARÁTTA
EÐA
HÁTÍÐ?
Þetta er alþjóðlegt merki kvennaársins, gert fyrir SÞ af teiknar-
anum Valerie Pettis i New York. Merkið er sett saman úr tákni
friðarins, — dúfunni, jöfnunarmerki stærðfræðinnar og kven-
tákni liffræðinnar.
Alþjóðlegt kvennaár
Sameinuðu þjóðanna 1975.
Til hvers? Til að halda há-
tíð og minnast þess að kon-
ur eru til? Varia. Þeir sem
gerðu tillögu um þetta ár
til allsherjarþings sam-
einuðu þjóðanna höfðu í
huga baráttuár. Það á að
berjast fyrir jafnrétti
karla og kvenna á alþjóð-
legum og þjóðlegum vett-
vangi og þung áhersla er
lögð á að konur taki þátt í
baráttunni fyrir lausn
þeirra margvíslegu vanda-
mála sem blasa við þjóðum
heimsins. Einkunnarorð
ársins eru: Jafnrétti. Þró-
un. Friður.
Undanfarna daga hafa birst i
dagblöðunum fréttir af þvi sem i
undirbúningi er i tilefni þessa árs
hér á landi, tillögur samstarfs-
nefndar kvennasamtaka i mörg-
um liðum. Það á að halda ráð-
stefnu, halda fundi með fyrir-
lestrum, gefa út frimerki, halda
sýningu og skorað hefur verið á
leikhús og fjölmiðla að minnast
ársins osfrv.
Allt er þetta svosem gott og
blessað og ekki i sjálfu sér hægt
Þátttaka f alþjóðlega kvennaár-
inu nær ma. til þess, að við styðj-
um baráttu kúgaðra þjóða fyrir
frelsi sinu. Þessi kona er félagi i
MPI.A, þjóðf relsishrey fingu
Angola.
að hafa neitt á móti einstökum
atriðum, nema þá helst þvi, að
þessi kvennanefnd skuli skora á
kvenfélög stjórnmálaflokka að
undirbúa félaga sina sem best til
þátttöku i stjórnmálastarfi og
væri i meiri jafnréttisanda að
beita sér fyrir þvi að þessi félög
verði lögð niður. En i heild er
verkefnavalið heldur yfirborðs-
legt og minnir einna mest á há-
tiðahöld. Það á þó ekki að fara að
halda upp á 1101 árs búsetu
kvenna á Islandi svona til að bæta
upp, hve litinn hlut þær áttu að
þjóðhátiðahaldinu i sumar?
Gleymdist baráttan? Hvar
eru tengslin við alþjóðlega bar-
áttu? Og hvar eru fulltrúar laun-
þegasamtakanna i landinu?
Sérverkefnin einbeittari
Sérverkefni þeirra samtaka
sem staðið hafa að samstarfs-
nefndinni um undirbúning
Kvennaársins hér á Islandi virð-
ast meira i þeim anda, sem mót-
aði ákvörðun SÞ um þetta ár en
þau sameiginlegu. Þannig ætlar
td. Kvenfélagasamband Islands
að undirbúa námshringaverkefni
um stöðu kvenna i þróunarlönd-
unum til að senda út i héraðasam-
böndin, vonandi með þeim
árangri að konur i okkar rika
landi finni samstöðu með systrum
sinum i arðrændu löndunum. Og
rauðsokkar ætla að beita sér fyrir
dagsverkfalli kvenna hér á næsta
ári til að sýna fram á mikilvægi
vinnúframlags þeirra i atvinnu-
lifinu og á heimilunum.
Það er lika jákvætt, að Kven-
réttindafélag íslands skuli ætla
að vinna að þvi að konur i laun-
þegasamtökum taki meiri og
virkari þátt i störfum stéttar-
félaga, en hefði ekki verið miklu
einfaldara að fá fulltrúa þessara
kvenna til samstarfs strax i
nefndinni og að þær hefðu þá tek-
ið þátt i að móta undirbúning árs-
ins og sjálfar beitt sér fyrir
hvatningu meðal kvenna i sinum
félagasamtökum?
Félagasamtökin MFIK eru ekki
með i þessari samstarfsnefnd, en
eru þó einnig að undirbúa verk-
efni fyrir kvennaárið. Að þvi er
Þjóðviljinn hefur fregnað undir-
búa samtökin menningar- og bar-
áttusamkomu á alþjóðadegi
kvenna 8. mars.
Vörumst lognmolluna
Eins og áður er sagt er ekki
hægt að vera á móti þvi sem
fyrirhugað er að gera á næsta ári
hér á landi, en óskandi er að
margt fleira og umfram allt bar-
áttuglaðara eigi eftir að koma
fram, t.d. frá þeirri nefnd, sem
ASl og BSRB eru nú að skipa i til-
efni ársins. Sú ráðstefna sem á að
halda i júni gæti lika orðið upphaf
meiri vakningar islenskra
kvenna ef vel tekst til um verk-
efnaval hennar og hún verður
ekki notuð til þess eins að fagna
þeim áföngum sem náðst hafa.
1 umræðum um þetta ár gætir
nefnilega talsvert þeirrar til-
■hneigingar að staldra við, lita til
baka og hugsa sem svo: þetta er
nú bara þó nokkuð gott hjá okkur.
Það má halda upp á það. En við
skulum varast lognmolluna. Enn
erum við það afturúr i okkar jafn-
réttisbaráttu hér á Islandi, að það
er full þörf á öllum þeim baráttu-
kröftum sem við eigum yfir að
ráða. Og við skulum heldur ekki
gleyma, að við erum hluti af
heiminum og þvi ber okkur að
taka þátt i viðtækari baráttu en
þeirri sem nær til Islands, t.d.,
eins og tekið er fram i yfirlýsingu
SÞ um árið, baráttunni gegn kyn-
þáttakúgun, baráttunni gegn ný-
lendustefnu og fyrir sjálfræði
þjóða, baráttunni við hungurvof-
una og baráttunni fyrir friði. — vh
þegar hann haffti náö þeim af mérl
upp at> mitti, fór hann sjálfur að
afklæöast. Annar tyrkneskur her-
maður stóö og horföi á okkur og
hélt á nfu mánaöa gömlu barni.
Eg reyndi a& láta sem ég ætti
bamiö, I von um aö þeir vægöu
mér. En þeir hlógu aö mér og,
hentu barainu frá sér. Mér var
nau&gaö og eftir nokkrar mfndtur
leiö yfir mig.
Þegar ég kom aftur til sjálfrar]
mln sá ég fimmtán hermenn aöra
standa f kring og horfa á. Sá sem
haf&i nauögaö mér var aö taka af
mér úriö og trúlofunarhringinn.
Hinir ætluöu aö nauöga mér lfka,
en einn þeirra kom í veg fyrir þaö
og sagöi hinum a& hegöa sér ekki
eins og skepnur.
Skáru af hendur
og fætur
önnur kona, Frósa Meitani,
þrjátfu og tveggja ára, slapp meö
naumindum undan tyrkneskum
hermönnum, sem ætluöu aö
Grfskar flóttakonu^á Kýpur. Þrlm var nau&gaö, eiginmenn þeirra og
unnustar limlestir og skotnir.
Karlar drepnir ■
konum nauðgað
Lýsing kýpurgrikkja á tyrkneska innrásarliðinu
■Blaöinu hafa borist bæklingar og
fréttabréf frá upplýsingaskrif- .. „-.jfc ''v.twJE'T1'
stofu kypurstjórnar i Nikoslu.þar ' •’y-^‘ /”■
ORÐ
sigaretta. En i þvi sambandi
mætti spyrja: Til hvers er verið
að hafa einkasölu rikisins á
varningi og leyfa svo ein-
staklingum að hirða umboðs-
launin án þess að þurfa að hafa
nokkuð fyrir innflutningi eða
dreifingu? Sama mun gilda um
BELG
Eins og salt f sár
— Þegar ég sá þessa klausu
Morgunblaðsins sagði H.H.
hafði ég nýlega lesið i Þjóð-
viljanum átakanlegar lýsingar
kvenna frá Kýpur á aðförum
tyrkneskra hermanna þar,
hvernig þeir limlestu og myrtu
feður þeirra, syni og eiginmenn
og nauðguðu konunum. Er þetta
það eina um þessa hluti sem
Morgunblaðinu þykir frá-
sagnarvert? Takið eftir fyrirj-
sögninni. Hörmungar þessa
fólks eru ekki aðalatriðið sam-
2000 hreinar
meyjar til
Astralíu
Melbourne, Ástralíu.
14. október. Reuter.
1 CLYDE Cameron verkalýðsmála-
ráðherra Ástralíu skýrði frá því í
dag, að 2000 hreinar méyjar frá
Kýpur væru væntanlegar til
Ástralfu á næstunni. Stúlkurnar
eru á aldrinum 12—20 ára og
flýðu heimili sín í átökunum á
Kýpur í júlí sl. Ráðherrann sagði:
„Astralía er talinn öruggur
dvalarstaður fyrir þær.“
Frétt Morgunblaðsins
Frétt Þjóðviljans
kvæmt henni. Nei, það er mest
gert úr því að stúlkurnar séu
„hreinar meyjar” og með
tviræðni i lok fréttarinnar jafn-
vel reynt að grinast með það.
Ég gnisti tönnum, þegar ég
las þetta. Það var eins og salt i
sár.
Hver er vinnutími
móður?
Lilja sagði að systir sin hefði
verið að sækja um endurinnrit-
un fyrir barn sitt i leikskóla
Sumargjafar og þurft að fylla
út eyðublað i þvi sambandi.
Meðal ailskonar upplýsinga,
sem þar var beðið um, var
„vinnutimi móður”.
Otfrá þvi fór Lilja að hugsa
um, hvort sá vinnutimi hefði
nokkurntima verið reiknaður út
og þá miðað við hvað? Hvað af
störfum konu á heimili telst til
móðurstarfa og hvað til
þjónustu við hana sjálfa og
bónda hennar? Og hvenær á
móðir, sem bundin er yfir ung-
um börnum, fri?
Hvað er einkvænisvera?
„Þú ert einkvænisvera” var
karlmaður látinn segja við konu
i leikriti i útvarpi i siðasta
mánuði. (I leysingum eftir
Helge Krog, Vilhjálmur Þ.
Gislason þýddi). Við hvað er
átt? spyr Anna, og sendir jafn-
framt gamla úrklippu úr Visi,
þar sem talað er um „þrjár
ókvæntar starfsstúlkur”
simstöðvar nokkurrar.
Alltaf strákur
Getið þið ekki farið að skipta
um mynd i blaðburðaraug-
lýsingunni ykkar þarna á Þjóð-
viljanum, spyr Edda eða amk.
haft stundum mynd af stelpu, en
ekki alltaf þennan strák með
derhúfuna. Nú, eða haft
teikningu af eldra fólki, ég veit
ekki betur en þið séuð sjálf að
segja, að þetta sé starf fyrir
eldri konur ekki siður en aðra.
Eg er orðin leið á stráknum.
Kringum lögin
Eins og allir vita er bannað að
auglýsa tóbak i blöðum og öðr-
um fjölmiðlum, skrifar Guðrún
Guðmundsdóttir og sendir
meðfylgjandi spjald. En það er
sannarlega farið kringum þessi
lög á ýmsan máta, td. þennan
hér, svo smekklegt sem það nú
er að nota likama kvenna til að
reka áróður fyrir sérstakri teg-
und heilsuspillandi neysluvöru.
Enginn er skrifaður fyrir
þeirra keppni, sem þarna er
auglýst, en samkvæmt póst-
hólfsnúmerinu sem senda á at-
kvæðin til er það amk. ekki
ÁTVR, sem stendur fyrir þessu.
Sennilega er það einhver sem
hefur umboð — og þá umboðs-
laun — fyrir þessa tegund
amiismwaatm
1SSTOS»»ARHIIW» MECUK
flestar tegundir áfengis. Ein-
hverjir umboðsmenn úti I bæ
hirða umboðslaunin, en starfs-
menn rikisins vinna verkið.
Einhver munur!
Við skulum enda á sögu, sem
Pétur Pétursson þulur lagði i
belginn.
Nýtt, rússneskt skip var hér i
höfninni og gafst ýmsum kostur
á að skoða það, þám. einum vini
Péturs. Þegar i land kom, varð
honum að orði:
— Já, það er nú einhver mun-
ur á þessum fleytum og islenska
flotanum. Þarna var 1.
stýrimaður bara kasóléttur!
—vh