Þjóðviljinn - 27.10.1974, Qupperneq 5
Sunnudagur 27. október 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
cyMyndir
úr sögu verkalýðshreyfingar og sósíalískra samtaka
Verkföll norðanlands og sunnan
Hvítliöarnir
Ýmsir hafa orðið til að stað-
festa þá skoðun, að mynd nr. 2,
sem tekin var er aðförin var
gerð að Ólafi Friðrikss. 1921 sé
ekki af verkamönnum og fylgis-
mönnum Ólafs, nema örfáum.
Þarna eru á ferð hvitliðarnir
(með hvita borða um handlegg)
og leiða handtekna verkamenn
á milli sin. Við höfum fengið
upplýsingar frá Eliasi Valgeirs-
syni fv. rafveitustjóra á Ölafs-
vik, um nöfn tveggja hvitlið-
anna, en væri þökk á fleirum og
þá ekki siður ef einhver þekkir
verkamennina á milli þeirra.
Elias telur sig þekkja þann
sem fremst fer, það sé Haraldur
Johannesservog svo þann i ljósu
buxunum og háu stigvélunum,
sem hann telur vera Karl Þor-
steinsson bakara. Hann minnist
þessara atburða frá þvi að hann
var strákur hér i Reykjavik og
fór auðvitað á vettvang til að
horfa á. Mikill æsingur var útaf
þessu i bænum, segir hann, og
margir sem trúðu sögunni um
smitandi sjúkdóm rússneska
drengsins.
Fáir hafa enn haft samband
við okkur vegna myndanna frá
1. mai á ýmsum timum, enda
stutt siðan þær birtust, en
a.m.k. á þeirri yngstu ættu ýms-
ir að þekkja sjálfa sig.
Krossanesverkfallið
Að þessu sinni birtum við
myndir frá eftirminnilegum
verkföllum, norðanlands og
sunnan á fjórða áratugnum.
Litlu myndirnar tvær eru frá
Krossanesverkfallinu 1930, en
það verkfall stóð i hálfan mánuð
og lauk með sigri verkamanna.
Þar stóð nýstofnað verkalýðsfé-
lag I Glerárþorpi fyrir vinnu-
stöðvun við sildarverksmiðjuna
i Krossanesi, en formaður fé-
lagsins var kornungur piltur þá,
Steingrimur Aðalsteinsson, sem
siðar átti eftir að koma við sögu
islenskrar verkalýðshreyfing-
ar og stjórnmálanna.
Þegar verkfallið hófst var
langt komið að reisa mikinn
járnreykháf á verksmiðjuna og
hvildi hann I virtaug sinni „eins
og tortimingarvopn hangandi i
bláþræði yfir hinum miklu verð-
mætum: skúrum, húsum og vél-
um”, segir Jón Rafnsson i frá-
sögn sinni af þessu verkfalli i
bókinni „Vor i verum”. Það er
þessi frægi reykháfur, sem mest
var áberandi á myndunum.
Verksmiðjustjórinn i Krossa-
nesi var norskur, Holdö að
nafni, og þar unnu nokkrir norð-
menn auk islensku verkamann-
anna. Lýsir Jón þvi, hvernig
reynt var af hálfu atvinnurek-
enda að kljúfa liðið og koma þvi
inn hjá norðmönnunum að verk-
fallinu væri beint gegn þeim og
atvinnurétti þeirra i landinu. En
verkamönnum tókst að halda
samstöðu og einingu, útlendum
sem innlendum, félagsbundnum
og ófélagsbundnum, þótt ekkert
væri til sparað til að reyna að
blekkja þá til undanhalds og
sundrungar. Meðal þess sem
krafist var voru Akureyrarkjör
við alla vinnu i Krossanesi, og
eftir fárra daga verkfall vildi
verksmiðjustjórinn greiða þau
öllum nema löndum sinum,
norðmönnum. En sliku höfnuðu
heimamenn og sáu strax að boð-
ið var gert til að rjúfa sam-
heldni verkamannanna á vinnu-
staðnum.
Hvorki „góð” boð I einrúmi né
hótanir dugðu, segir Jón,
„Verkamenn Glerárþorps
standa fast saman um gerðar
kröfur og þá forystu sem þeir
hafa valið sér sjálfir. Verka-
lýðssamtök Akureyrar eru dag-
leg stoð þeirra og stóri bróðir i
baráttunni. Og verkamenn
finna heita samúð verkalýðs
fjarlægra staða i samúðar-
skeytum og fjársendingum.
Deilunni lýkur með miklum
sigri.”
Hann segir lika frá þvi, að
haldinn hafi verið fundur verk-
fallsmanna á hverjum einasta
degi verkfallsins til að halda lið-
inu heitu og vakandi og eyða
blekkingum andstæðinganna.
Og tilraunum til að æsa sjómenn
gegn verkfallsmönnum var
svarað með að snúa sér beint til
sjómannanna og skýra sam-
stöðu þeirra I baráttunni gegn
þeim sem bæði beittu sér fyrir
lágu kaupi og lágu sildarverði. I
Krossanesverkfallinu hagnýttu
islenskir verkamenn sér
reynslu verkalýðssamtakanna i
öðrum löndum, segir Jón.
Kveldúlfsverkfallið
í Eyjum
Verkalýðssamtökin i Vest-
mannaeyjum háðu i mai
mánuði 1932 tviþætta baráttu.
Kveldúlfur hf. hafði riðið á vað-
ið með brot á fiskverkunartaxta
og ætlaði að notfæra sér at-
vinnuleysi i bænum og vandræði
manna af völdum þess til að
rýra launakjör verkafólksins,
en þeim leik var svarað með
vinnustöðvun. Jafnframt háðu
verkamenn harða baráttu á
hendur bæ og riki fyrir atvinnu-
bótum. Það jók á erfiðleikana,
að ýmsir sem boðið gátu smá-
vegis vinnu réðu til hennar ut-
anbæjarmenn og sumir útgerð-
armannanna létu jafnvel flytja
fisk til verkunar á aðra staði.
Þótti sýnt, að kauplækkun að
dæmi Kveldúlfs myndi flæða
yfir alla vinnustaði bæjarins ef
ekki yrði stungið við fótum.
1 „Vor i verum” lýsir Jón
Rafnsáon vel örðugleikum
verkafólksins, sem stóð fyrir og
skipulagði verkfallið á Kveld-
úlfsstöðinni. Það var aðeins fá-
mennur hópur, en meirihluti
starfsfólks þar ófélagsbundið og
talsvert um utanbæjarmenn og
m.a. stór hópur ungra stúlkna,
sem aldrei höfðu verið i neinu
stéttarfélagi, sumar úr skyldu-
liði hægrimanna og andstæð-
inga verklýðssamtaka. En það
tókst að sameina fólkið um
vinnustöðvun og verkfallsvaktir
og það sem meira er: „Fjöldi
atvinnulausra manna og kvenna
gefur sig fram til liðs við fisk-
verkunarfólkið i stað þess að
láta vonir andstæðinganna ræt-
ast með þvi að sælast eftir þeirri
vinnu, sem það hafði lagt niður
til að halda uppi launakjörum
stéttarinnar”, skrifar Jón.
Er ekki að orðlengja það, að
þessu verkfalli lauk einnig með
sigri verkafólks eftir 11 daga
baráttu og um það er lauk voru
flestir, ef ekki allir þátttakend-
ur, sem áður voru ófélags-
bundnir, komnir i verkalýðsfé-
lagið Drifanda. - Konur komu
mjög við sögu I þessari frægu
deilu og hafa ætið siðan verið at-
kvæðamiklar i verklýðssamtök-
um vestmannaeyinga.
Myndin (nr. 7) er af verkfalls-
verði i Kveldúlfsverkfallinu og
væri gaman að fá eitthvað af
verkafólkinu nafngreint.
Lánið myndir
Þá langar okkur að lokum að
skora á lesendur að lána, ef þeir
eiga, myndir til birtingar I þess-
um þætti og þá jafnframt að
leyfa eftirtöku á þeim handa
Dagsbrúnarsafninu, en þaðan
eru myndirnar sem hér birtast
komnar. Hafið samband við
Eyjólf Árnason bókavörð safns-
ins eða Vilborgu Harðardóttur
blaðamann i sima 17500.
—vh
Ffeirí
sólargeislar
Lœgra verðl
Þrátt fyrir alþjóðlega verðbólgu
hefur okkur tekist að lækka verðið
á sólargeislanum frá Flórida.
Fáið yður Tropicana i fyrramálið.
Það kostar minna en áður.
SÓL H.F.