Þjóðviljinn - 27.10.1974, Page 10

Þjóðviljinn - 27.10.1974, Page 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 27. október 1974. ÁRNI BERGMANN SKRIFAR UM HANN HEYRÐI ÞÁ MEIRA AÐ SEGJAJARMA Guðbergur Bergsson; nýr þátttakandi I leik leiðans. Guðbergur Bergsson. Her- mann og Didí. Það sefur i djúpinu. Önnur bók. Helga- fell 1974. 151 bls. Hermann og Didi er framhald af Það sefur i djúpinu sem út kom i fyrra og gerist reyndar á sama degi og sú bók. Fólkinu i bókinni hefur verið stefnt saman af sama tilefni: bað er verið að jarða ömmu önnu. En þetta fólk hefur reyndar spásserað út og inn um kápurnar á bókum Guðbergs. Og hann telur sig hafa höndlað. Það er aðeins að nokkru leyti rétt, að lesandinn fái æ fleiri fasta við- miðunarpunkta i heimi Guðbergs. Persónurnar eru til — en þær eru ekki allar þar sem þær eru séðar. Hamskiptum hefur fækkað, en samt halda persónurnar áfram að ganga hver inn i aðra. Persónu- leiki i venjulegum skilningi er blekking i þessum heimi. Rétt eins og höfundur leggur áherslu á að þurrka burt mun á ytri atvik- um og hugsuðum.Hermann hugs- ar sér, að hann steli byssu og skjóti á systur sina Didi. Og þetta atvik, sem gerist i huga drengs- Jónssynieða jafnvel Músinni sem læðistog til Hermanns og Didiar, það er alveg eins hægt að snúa röðinni við. Og það er hægt að lesa önnueina. Og svo framveg- is. Hvar sem er fáum við nokkuð heildstæða mynd af mannlifi i nánd við her og fisk. Myndin er heildstæð ekki aðeins vegna þess, að vettvangurinn er hinn sami eða svipaður og svo persón- urnar, heldur og vegna þess, að fyrirbærin eru flest af sömu ætt: ömurleika, leiða, viðbjóðs. Þessi svið hefur Guðbergur þaulræktað af þeirri einbeitingu, næmi, minnisgreind, sem oft hafa verið skjól annað en geðveikrahæli, og vita hvort það kemur ekki vitinu fyrir hann”. (bls 34). Það kemur líka á daginn, að Svanur hefur verið barinn hæls og hnakka á milli „en hann heldur sinu striki" Enda segir Anna að það sé ekki hægt að hefna sin á fólki eins og Svani, þvf það fylgi ekki sömu lögmálum og aðrir. (bls 28). Nið og klám Guðbergur hefur sem sagt bryddað upp á sigildu efni: rithöf- undurinn, listamaðurinn gegn samfélaginu. Hann skoðar við- Leiðarvísir um helstu persónur Guðbcrgs. Birtur án ábyrgðar. Minnt skai á það, að Már er drukknaður, en móðir hans, Sveina, leitar að hon- um endurfæddum meðal fiska. Magnús hefur iofaö að giftast önnu til aöstanda við mágsskyldur. Katrin gerir tilkall til að vera systir önnu, gott ef ekki hún sjálf. Hermann er sonur hermanns úr ástandinu. smám saman virðist hægt að festa á kort þessa „vitleysu skyldleika og tengsla” sem Anna talar um hryssingslega. Loksins er hægt að henda reiður á þeim Hermanni og Svan, sem voru þetta lika dularfullir i Astum samlyndra hjóna. Hermann er sonur önnu, sem var gift Má, sem fór f sjóinn. Svanur er sonur Pét- urs, sem er bróðir Más, og Sveins sem er giftur Katrinu. Við vitum lika nokkurn veginn, hvað af þessu fólki býr i höfuðstaðnum og hvað i Grindakeflanjarðvikinni suður með sjó. Allt er þetta lið saman hnýtt. Meira að segja Lóa, ókunna konan sem kemur til að vera við jarðarförina, henni var á sinum tima nauðgað af Tómasi Jónssyni, þeim fræga manni úr metsölubók. Söguþræðinum hefur margoft verið gefið á kjaftinn með þeim afleiðingum að lesand- inn ruglaðist heldur betur i rim- inu. Þó fær hann fleiri og fleiri fasta punkta i hendur. Það kemur á daginn að erfisdrykkjan i Her- mann og Didi- er haldin nokkru áður en grindavikurliðið fer i bæ- inn sautjánda júni eins og frá greinir i Astum samlyndra hjóna. Margt er skrýtið i skáldsögunni En lesandinn fær heldur ekki að vera i friði með þá ratvisi sem ins, það verður til þess að i „veru- leikanum” kemur fullorðna fólkið hlaupandi; það hefur heyrt skot- hvell, en drengurinn er ekki með byssu nema i höfðinu á sér. Nema hvað Anna veit hvað hefur gerst, þvi „Ég heyri i þér hugsanirnar” segir hún við son sinn. Og i þriðja lagi er haldið áfram að leika með hæpin landamerki skáldskapar og veruleika. Kannski eru orð önnu ekki hennar eigin orð „heldur ávæningur af orðum Svans” sem skrifar bækur. Katrin lýsir þvi yfir, að hún sé systir önnu en ókunnugá konan mótmælir þvi með rokum. En bætir svo við: „Það er svo ótrú- lega margt skrýtið I skáldsög- um”. — Til þess eru þær, svaraði Katrin, annars nægði okkur lifið, þar sem allt fylgir föstum reglum og óhaggandi. Án upphafs og endis Allt þetta bendir lesandanum rækilega á það úrræði, að hann sé ekki að eltast við persónur og feril þeirra. Guðbergur er að skrifa bálk um sitt næmi á islenskan veruleika siðustu tuttugu-þrjátiu ára. Hann skrifar hann þannig, að viö getum byrjað að lesa hvar sem er og hætt hvar sem er. Það er hægt að lesa sig frá Tómasi upp á hann borin og ekki er ástæða til að fjöryrða um einu sinni enn. Svanur birtist Þá gætu menn spurt: er þá nokkur ástæða til að halda áfram að lesa Guðberg Bergsson? Er hann ekki alltaf að endurtaka sig? Þessi spurning er alls ekki ástæðulaus, en þó verður svarið neitandi. Guðbergur ræður yfir svo útsmoginni þekkingu á við- fangsefninu, að hann getur alltaf brugðið upp nýjum athugunum, bætt við nýjum hlekkjum á langri festi neikvæðisins. 1 Hermann og Didikemur hann meira að segja loksins með persónu sem er furðumikið „öðruvisi” en aðrar. Persóna þessi er Svanur. Svanur er skáld og kannski verðandi listmálari. Hann var ráðinn til að skrifa ævisögu Páls, höföingja plássins og kjördæmis- ins, en i stað þess að skrifa skikkanlega ævisögu tiundar hann uppáferðir Páls, þjófnað og brask og breytir aðeins litillega nöfnum. „Sannleikurinn á að standa ofar sómatilfinningunni” segir Anna sem er stórhrifin af framtaki Svans. En hún er ein um þá hrifningu. Allir aðrir eru með hundshaus út i Svan. Sveinn seg- ir, að það eigi ekki að „láta hann fáf fé, engan mat, ekkert húsa- brögð fólksins við Svani við nag- stæðar aðstæður: alls konar fólk er 1 erfisdrykkju i litlu plássi. Út- koman er sú, að fyrirlitningin er gagnkvæm og alger á milli skáldsins og erfiðismannanna. „Alþýðan” hefur engan áhuga á Svani, nema þegar hann striðir mönnum með þvi að leiða þá út i fáránlegt hjal um verðlag á mál- verkum frægðarmanna. Að öðru leyti getur hann i mesta lagi búist við hryssingslegum athugasemd- um um að hann viti svo sem ekki neitt, enda vinni hann ekki neitt (bls 74). Svanur svarar i sama dúr; hann segir: „Þið eruð bara hlutir, eitthvað sem skóíian hefur mótað og stjórnað”. „Og hann sá að þetta fólk er „eins og hverjar aðrar rollur, sem fannst vera gott að láta smala sér og rýja sig. Hann heyrði þá meira að segja jarma”. (bls 84). Viðskipti Svans rithöfundar við Pál plásshöfðingja og „millistétt- ina” honum næst eru nokkuð önn- ur. Þetta fólk heldur uppi stór- fenglegum samræðum þar sem hátiðlegar glósur úr menningar- skrifum eru hristar saman við al- mennt uppskafningstal um frægðarmenn. („Ekki er Þór- bergur slakari i persónusköpun- inni. Hann samræmir svo vel, finnst mér, formið og innihaldið innan heildar verksins, sagði handavinnukennarinn. Mér finnst vera svo gott handbragð á öllu hjá honum”.bls 101). Þetta fólk hefur fátt að segja við strákinn Svan, sem hefur enn ekki „hlotið sina viðurkenningu” heldur skrifað nfð og klám um sitt byggðarlag. Það er aðeins Páll, sem gefur sig nokkuð að honum, þótt hann hafi orðið mest fyrir braðinu á „nið- inu” — enda hefur hann þá yfir- burði, sem auðurinn gefur. Hann gæti vel átt það til að kaupa „litla mynd I mildum litum” af Svani. Og um „þvættinginn sem þú skrifar um mig” segir Páll: „Ég er of önnum kafinn maður til að geta erft við fólk. Menn mega hugsa, gera, segja hvað sem þeir vilja, bara ef þeir vinna og mæta á réttum tima og skila sinum af- köstum”. Þessi skoðun á skáldi og samfé- lagi er fyrir margra hluta sakir hin fróðlegasta. Það er viss hefð sem heldur áfram i þessari stöðu — sitthvað er skylt með Svani og Ólafi Kárasyni, sem heldur nennti ekki að vinna fyrir sér eins og alþjóð veit. En sá er munur á Pétri þrihross i Ljósvikingnum og Páli Pálssyni i Hermann og Didi, að Pétur beinlinis ofsækir skáld fyrir „klám og guðlast” enda lifði hann á góðviðrisdögum fasism- ans. Páll erhins vegar maður sins tima — þess sem Marcuse kallar vlst „repressive tolerance”, um- burðarlyndi kúgun mengað. Kappræðubrot Auk þessa verður lesanda mjög starsýnt á þátt Svans vegna þess, hve margt er sameiginlegt með mati Svans og öðrum lýsingum Guðbergs. Svanur sér erfiðis- menn i Hermann og Didi sömu augum og Guðbergur sér þá á matstofunni í Tómasi Jónssyni. Bækur Guðbergs eru ekki siður nið og klám og guðlast en bók Svans. Þessar hliðstæður halda áfram að spila i lesandanum, þar til honum finnst hann hafa komist nær Guðbergi Bergssyni en oft áöur. Tobba segir: „Hann situr einn heima við að spéa og sprok- setja fólk. Heldur þú að manneskjan sé einungis eitthvert dautt leikfang handa þér til að ráöskast með, hampa og tæta I sundur”? Svanur vikur sér undan spurningum önnu með orðunum : „Hvers vegna þarf ég að vita, hvað ég meina? Hvers vegna spyrðu ekki um, hvað ég sjái og hvað ég skynji . . . .” (bls 93). Og það kemur á daginn, að Svanur hefur kennt foreldrum sinum að „vera óánægð. Óánægjan er fyrsta sporið i þá átt að maðurinn geti gengið andlega uppréttur, segir hann” (bls 33). Allt hljómar þetta sem eðlileg tilsvör i kappræðu um rithöfundarferil Guðbergs Bergs- sonar. Arni Bergmanw

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.