Þjóðviljinn - 27.10.1974, Page 15
Sunnudagur 27. október 1974. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
Handunnir
silfurmunir
— Ennfremur
trúlofunarhringa
Handsmíöaö
silfurhorn
með 12 steinum
UWU^'lií^ Lbzilirj. |
SIGMAR Ó. MARÍUSSO
Hverfisgötu 16a
þessi auglýsing er ætluð
ástföngnu fólki úti á landi.
Kæru •Iskcndur! Það er nú, sem við i Gulli og Sillri getum gert ykkur það kleift
að hringtrúlofast innan nokkurra daga, hvar sem þið eruð stödd á landinu.
1. Hringið eða skrifið eftir okkar fjölbreytta myndalista sem inniheldur eitt falleg-
asta úrval trúlofunarhringa sem vói er á og verður sendur ykkur innan klukkust.
2. Með myndalisfanum fylgir spj^ld, gatað i ýmsum stærðum. Hvert gat er núm-
erað og með þvi að stinga baugfingri i það gat sem hann passar i, íinnið þið
rótlu stærð hringanna sem þið ætlið að panta.
3. Þegar þið hafið valið ykkur hringa eltir myndalistanum skuluð þið skrifa
niður numerið á þeim, ásami stærðarnúmerunum og hringja til okkar og við
sendum ykkur hringana strax i póstkröfu.
Með beztu kveðjum,
(gttU i>tlíur
Lðugavegi 35 - Reykjðvik -)>imi 20620
MÓDELSMÍÐI
Gullhringir,
gullhálsmen,
silf urhálsmen
og trúlofunarhringar
í úrvali.
Hjálmar Torfason
Laugavegi 28/ 2. hæð
Sími 24202
Þér finnið réttu hringana hjá Jóhannesi
Leifssyni, Laugavegi 30. Skrifið eftir
myndalista til að panta eða komið í
verslunina og lítið á úrvalið sem er
drjúgum meira en myndalistinn sýnir.
Við smíðum einnig eftir yðar ósk og
letrum nöfn í hringana.
JÓHANNES LEIFSSON
Gullsmiður — Laugavegi 30 — Sími:
19209
SUNNUDAGSMARKAÐUR
áfram á bls. 21
glens
Einsi einbúi átti eina kú, og hún
hafði brotið á sér aðra afturlöpp-
ina. Þegar dýralæknirinn hafði
litið á hana, áleit hann að hægt
væri að bjarga henni, enda var
þetta kostaskepna.
Hann lét spelkur við brotna fót-
inn, og til að byrja með átti kýrin
að hanga i lykkju, sem brugðið
var undir bóginn á henni.
Einn góðan veðurdag slitnaði
lykkjan og dýrið seig á afturend-
ann.
Stuttu siðar um daginn hitti
dýralæknirinn Einsa og spurði
um liðan kýrinnar.
— Jú, sagði Einsi, — hún er
farin að geta setið.
Allir vita að hægur akstur get-
ur verið sérlega hvimleiður, eink-
um ef maður er að flýta sér og
einhver annar ökuþór heldur niðri
umferðarhraðanum. Um daginn
missti strætisvagnastjóri þolin-
mæðina, þegar smábifreið var
búin að halda honum fyrir aftan
sig i langan tima. Hann hallaði
sér út um gluggann og kallaði
hátt:
— Heyrið þér, maður minn! Ef
þér farið ekki að spýta i bráðlega,
verðið þér kærður fyrir að leggja
ólöglega!
Þegar eiginmaðurinn kom á
snyrtistofuna að sækja konuna
sina, varð hann dolfallinn af hinu
kvenlega andrúmslofti staðarins.
Hann snerist um sjálfan sig og
starði vandræðalega á um það bil
tiu konur, sem sátu þar, vafðar
blautum handklæðum.
Loks stamaði hann:
— Ég kom til að sækja konuna
mina, — vildi hún vera svo væn að
gefa sig fram?
VÍSNA-
ÞÁTTUR
HAUST- OG
VETRARVÍSUR
I gær var fyrsti vetrardagur,
og þvi er kannski ekki úr vegi að
birta nokkrar haust- og vetrar-
visur, kannski eina vor- eða
sumarvisu svona til að minna
okkur á að alltaf kemur vor á
eftir vetri.
Antonia Petra Jónsdóttir
kveður um haustið:
A haustin fölnar hvert blóm
á beði
við brjóstin jarðar og sofna
rótt,
en vakna aftur til vorsins
gleði
sem veitir lifinu styrk og
þrótt.
Einar B. Björnsson frá Eyjum
i Breiðdal kveður að hausti:
Blómin fölna, bliknar lauf,
blása svalir vindar,
drúpir burkni i klettaklauf,
klæðast hvitu tindar.
Heiðló þagnar, hrimar jörð,
haustið brýst til valda.
Vænta má að veðrin hörð
vilji rétti halda.
Einar Friðriksson frá Reyð-
arfirði kveður:
A hærur minar haustsól skin,
horfið er bjarta vorið,
mér við fætur gröfin gín,
geigar ei hinsta sporið.
Vesturislendingurinn Hjálm-
ar Gislason kveður um haustið:
Frjósa tár um foldarbrár,
fennir i ár og gjótur,
hækkar spár um hrið og fár,
himinninn grár og ljótur.
Þórunn Rikha rðsdóttir
Sfvertsen fyrrum húsfreyja að
Höfn i Melasveit kveður um
haustið:
Vetur riður geyst i garð,
grimmar hriðar vekur,
byljum sviður bóndans arð,
björg og hliðar skekur.
En svo til að minna á að vorið
kemur aftur skulum við heyra
hvernig hún kveður um vorið:
Grænka hólar, gráta ský,
gróa vetrar sárin.
Blessuð sólin björt og hlý
brosir gegnum tárin.
Jón M. Pétursson frá Hafnar-
dal sendi okkur þessa visu fyrir
skömmu, og hún á vel við i dag:
Nú cr Esjan orðin grá
eins og gömul kerling,
hnyklabrúnum hangir á
hriðarbólstra felling.
Okkur hafa borist nokkrar
skemmtilegar visur sem við
munum birta i næsta þætti, sem
verður blandaðri en þættirnir
hafa verið til þessa.
BOTNAR
Þá er komið að botnunum við
fyrsta fyrripartinn okkar sem
var svona:
Nú skal þjóðin færa fórn
og fylla auðvaldsskassann:
Tveggja hluta tuddastjórn
trúi ég ekki að pass'ann.
Jón M. Pétursson.
Meðan ágeng ihaldsstjórn
undir syngur bassann.
N.
En var það ekki vinstri stjórn
sem veikti rikiskassann.
Andreas Guðnason.
En réttur lýðs að rikisstjórn
mun reiða brandinn hvassan.
P.S.
Svona er að hafa sterka stjórn
sem styður efri klassann.
Björn Jónsson.
Hefur þessi hægri stjórn
herlið til að pass'ann.
Náttfari.
Gefur argri ihaldsstjórn
aftur reisupassann.
K.J.
Itóla hægri rikisstjórn
og raula moggabassann.
H.B.
Hcildsalar i hægri stjórn
hagnast á að pass’ann.
Ónefndur vestfirðingur.
Okkar nýja ihaldsstjórn
ætlar svo að pass’ann.
S.H.
Fagna mætti ef fánýt stjórn
fengi rcisupassann.
J.G.
Fláráð ihalds ægistjórn
ætti að fá reisupassann.
Smári Ragnarsson.
Geirs og óla glæpastjórn
gráðug vill svo pass'ann.
Valdimar Lárusson
Óli Jó er enn i stjórn
og íhaldið að pass’ann.
Baldur Guðlaugsson
Fyrr en siðar forhert stjórn
fá mun reisupassann.
Sami.
Armóð gauiar ihaldsstjórn,
ÓIi raular bassann.
G.J.
Og að lokum nýr fyrripartur:
Kólna fer um lög og láð,
lifið býst til varnar.
S.dór.