Þjóðviljinn - 27.10.1974, Side 19

Þjóðviljinn - 27.10.1974, Side 19
Sunnudagur. 20. október. 1974 ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA 19 Umsjón: Vilborg Dagbjartsdóttir Verölauna- getra u n Kompunnar Eftirfarandi kafli er úr islenskri barnabók. Honum fylgja nokkrar spurningar, en þeim er ekki hægt að svara nema hafa lesið bókina. Eftir sex vikur verður svo dregið úr réttum svörum — og verðlaunin verða ný bók. Utanáskriftin er: Þjóðviljinn, Skólavörðustig 19, Reykjavik. Kompan. Hann stendur upp i rúminu, klædd- ur hvitri náttskyrtu að ofanverðu, stripaður að neðanverðu. Hörund hans er hvitt og ungt, nema um hné, þar er það mórautt. Tærnar myndu ýmsir telja svartar, en þá væri of mikið sagt, enda fæst enginn um það, úr þvi Þuriður er ekki heima, — og hann stekkur fram úr rúminu, svo að gólfið glymur undir holum iljum hans. 1 stóru spegilbroti, sem mamma hans hefur hengt á rauðan skáp frammi i horninu, getur hann séð allra þokkalegasta pilt með blá augu, hátt enni og sveipa i ljósu hári upp frá kollvikum. Það er hægt að horfa á sig i spegli, þegar enginn sér til. Hann er ánægður, hann má vera svona. Siðan fer hann að leita að nær- buxum sinum á borðinu og kemur þá auga á neftóbaksdós föður sins á borðshorninu. Þá fer hann að hlæja, þvi honum dettur alltaf svo margt i hug. 1. Úr hvaða bók er þessi mannlýs- ing? 2. Eftir hvern er bókin? 3. Hvað heitir pilturinn? 4. Hvað datt honum i hug að gera? 5. Teiknið mynd af honum eftir lýs- ingunni. Aumingja Öli, það striddu honum allir. Þegar hann kom út, i sunnu- dagafötunum sinum, hiuðu krakk- arnir á hann og sungu i kór: Óli fór i fýlu á laugardaginn var hitti hana Grýlu og skeit i buxurnar. KROSSGÁTAN f§§ * A i Ht J U 4 m > m m \; > Elli 12 ára sendi þessa krossgátu. Það þarf engar skýringar með henni. örvarnar sýna hvar orðið byrjar. Kompan þakkar Ella og vonast eftir meiru frá honum. Ekki tók betra við á mánudag, þeg- ar hann kom i skólann. 1 friminútun- um fóru krakkarnir að striða honum á Bertu. Þau bentu á hann og sungu: Óli fór til Bertu bakariistertu og bað hana að kyssa sig, þá sagði Berta bakariisterta: Ekki nema þú elskir mig. Á leiðinni heim mætti hann tveim smástrákum sem kölluðu á eftir hon- um: ,,Óli-póli-skita-róli!” „Hvers vegna létuð þið mig heita Ólaf, en ekki Magnús”, sagði hann þegar hann kom heim, ,,allir striða mér bara af þvi ég heiti Óli”. En hefði það verið nokkuð betra? Hvað hefðu krakkarnir sungið, ef hann hefði heitið Magnús? Sendið Kompunni teikningar, Ijós myndir, sögur og vísur eftir ykkur sjáTf VIPPU - BÍLSKÖRSHURÐIN Logerstærðir miðað við múrop: Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm - 210 - x - 270 sm Aðror tUtrðir. imíðcðfir eftir beiðni GLUGQAS MIÐJAN 12 - SW 38220

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.