Þjóðviljinn - 27.10.1974, Síða 20
20 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN
Hallgrímur
og tóbakið
„Sálin i útlegð er...”,
mynd sjónvarpsins um
Hallgrim Pétursson er
það atriðið á vikudag-
skránni sem langt yfir
aðra liði gnæfir. Von-
andi hefur þeim Jökli
Jakobssyni og Sigurði
Sverri Pálssyni vel tek-
ist verk sitt i sumar.
Hallgrim þekkja menn
hér og reyndar i fleiri
löndum fyrir Passiu-
sálmana, en raunar eru
margir elskir að Hall-
grimi fyrir hans verald-
lega skáldskap — og
finnst jafnvel minna til
um passiusálma en
margt annað eftir af-
mælisbarnið
Við birtum hér til gamans
Tóbaksvisur séra Hallgrims, en
þær sýna vel, að þótt Hallgrimur
sé i vitund margra aðeins ,,and-
legt” skáld, þá var hann jarð-
bundinn eigi að siður.
Tóbaksvísur
Neftóbak
Tóbak nef neyðir,
náttúru eyðir,
upp augun breiðir,
út hrákann leiðir,
minnisafl meiðir,
máttleysi greiðir
og yfirlit eyðir.
Piputóbak
Tóbak róm ræmir,
remmu framkvæmir,
tungu vel tæmir,
tár af augum flæmir,
háls með hósta væmir,
heilann fordæmir
og andlit afskræmir.
Tuggutóbak
Tóbak góm grætir,
gólf tiðum vætir,
veislu vel bætir,
vessann upp rætir,
kappa oft kætir,
komendum mætir,
amann uppbætir.
Tóbakið hreint,
fæ gjörla og greint,
gjörir höfðinu létta,
skerpir vel sýn,
svefnbót er fin,
sorg hugarins dvin.
Sannprófað hef ég þetta.
Það er ljóst af þessum visum,
að séra Hallgrimur hefur verið
sannur visindamaður i eðli.
Tóbakið var nýjung á hans tið
fyrir 300 árum, en prestur hefur
eigi að siður kannað allar gerðir
þess og kann verkunum
tóbaksins vel.
Jökull Jakobsson sagði okkur i
gær, að ætlunin væri að dusta
helgirykið af séra Hallgrimi i
kvöld, leiða fram manninn á bak
við hátiðleikann og fortjald sög-
unnar. Einhvern veginn hefur
maöur það á tilfinningunni, að
hinn „mannlegi” séra Hallgrim-
ur sé jafnvel enn hugnanlegri en
hinn „heilagi”.
—GG
ALMENNUR
stúdentafundur
verður haldinn i stúdentaheimilinu við
Hringbraut, mánudaginn 28. október kl. 3
s.d.
Dagskrá:
1. Horfur og aðgerðir i lánamálum
2. Tillaga stjórnar stúdentaráðs um að
leggja niður Stúdentafélag Háskóla ís-
lands.
Stjórn S.H.Í.
Miðvikudaginn 30. okt. hefst námskeið að
Norðurbrún 1, fyrir konur, sem taka eða
hafa hug á að taka börn i daggæslu. Kennt
verður á miðvikudögum og föstudögum,
Kl. 20—22. Kennsluefni: Föndur, leikir,
söngur, sögur.
Sffi Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
W Vonarstræti 4 sími 25500
Einangrun — Spónaplötur o.fl.
Tilboð óskast i eftirfarandi:
Hljóðeinangrunarplötur — spónaplötur —
gibsonitplötur — glerullareinangrun —
smiðavið (Prima fura).
Útboðsgögn eru afhent á skrifátofu vorri.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844
8 um helgina
/unnudopui
18.00 Stundin okkar.Tóti er lit-
ill, sænskur strákur, sem
við fáum að kynnast nánar i
næstu þáttum i teiknimynd-
um fyrir minnstu börnin.
Dvergarnir Bjartur og Búi
fara I veiðiferð, og það gerir
llka Grimsi, vinur ólafs Jó-
hanns Sigurðssonar, i sögu
sem heitir „Állinn”. Þá
syngja söngfuglarnir um
Krumma, og nokkur börn
sýna fatnað úr ull. Einnig er
i Stundinni spurningaþáttur
og loks sjáum við þýskt æv-
intýri um Margréti Snjöllu
og Kobba, bróður hennar.
18.55 IIlé
20.00 Fréttir
20.25 Dagskrárkynnin og aug-
iýsingar
20.35 „Sáiin I útlegð er....”
Sjónvarpið lét geta þessa
mynd I sumar um séra Hall-
grim Pétursson. Leiðsögu-
maður visar hópi ferðafólks
um helstu söguslóðir
skáldsins, svo sem Suðurnes
og Hvalfjarðarströnd, og
rekur æviferil hans eftir til-
tækum heimildum, en inn á
milli er fléttað leiknum
atriðum úr lifi hans. Með
hlutverk Hallgríms fer Jón
Jóel Einarsson. Höfundar
myndarinnar eru Jökull
Jakobsson og Sigurður
Sverrir Pálsson. Kvik-
myndun Sigurliði Guð-
mundsson. Hljóð Jón Á.
Árason.
21.50 Julie Andrews. Breskur
skemmtiþáttur, hinn fyrsti i
flokki þátta, þar sem söng-
konan Julie Andrews og
fleiri flytja létt lög og
skemmtiatriði. Þýðandi
Heba Júliusdóttir.
22.40 Að kvöldi dags. Sr.
Marteinn P. Jakobsson
flytur hugvekju.
22.50 Dagskrárlok
monudflgui
20.00 Fréttir og veður
20.30 Dagskrárkynning og
auglýsingar
20.40 Onedin skipafélagið.
Brezk framhaldsmynd. 4.
þáttur. Dýru verðikeypt.
Þýðandi Óskar Ingimars-
son. Efni 3. þáttar: James á
í miklum fjárhagsörðug-
leikum, og Callon beitir
áhrifum sinum til að láta
krefja hann um hafnar-
gjöldin af mikilli óvægni.
Daniel Fogarty kemur i
land eftir erfiða ferð. Hann
skundar á fund Elisabetar,
en hún tekur honum fálega,
og þykir nú litið koma til
unnusta sins i samanburði
við Albert Frazer. Um
kvöldið hittast þau um borð
i skipi James og sættast
eftir harðar deilur. James á
I erfiðleikum með geymslu-
húsnæði fyrir hinar tómu
vinámur, en Frazer hleypur
undir bagga og býður
honum aðstöðu I skipa-
smiðastöð föður sins.
Skömmu siðar heldur
James til írlands, til fólks-
flutninga. Við brottförina
hittir hann Daniel Fogarty,
sem segist nú vera viss um,
að Elisabet muni giftast
sér,en ekki Albert Frazer.
21.35 tþróttir. Meðal annars
svipmyndir frá iþróttavið-
burðum helgarinnar. Um-
sjónarmaður ómar Ragn-
arsson.
22.05 Orkukreppan. Brezkur
fræðslumyndaflokkur.
Þriðji og síðasti þáttur.
Sólarorkan.Þýðandi og þul-
ur Jón O. Edwald.
22.55 Dagskrárlok
D
um helgina
/unnudci9ui
8.00 Morgunandakt Séra
Pétur Sigurgeirsson flytur
ritningarorð og bæn.
8.10 Fréttir og veðurfregnir
8.15 Létt morgunlög Lou
Whiteson og hljómsveit
hans leika.
9.00 Fréttir. Útdráttur úr
forystugreinum dag-
blaðanna.
9.15 Morguntónleikar.
11.00 Kirkjuvlgsluguðs-
þjónusta i Hallgrímskirkju
á 300. ártiö séra Hallgrims
PétursSonar. Biskup
tslands herra Sigurbjörn
Einarsson, prédikar og
vígir nýjan kirkjusal.
Vigsluvottar: Geir Hall-
grimsson forsætisráðherra,
séra Óskar J. Þorláksson
dómprófastur og sóknar-
prestarnir dr. Jakob
Jónsson og séra Ragnar
Fjalar Lárusson. Hinn
siðastnefndi þjónar fyrir
altari með biskupi. Organ-
leikari: Páll Halldórsson.
Einnig leikur strengjasveit
frá Tónlistarskólanum i
Reykjavik.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.10 Hallgrimur Pétursson og
Passfusálmarnir Jón
Hnefill Aðalsteinsson fil. lic.
ræðir við dr. Sigurð Nordal,
herra Sigurbjörn Einarsson
biskup og Árna Björnsson
cand, mag. — Áður
útvarpað I des. 1970 —
14.00 A listabrautinni Jón B.
Gunnlaugsson kynnir
listafólk.
14.40 Óperukynning: „Don
Pasquale” eftir Donizetti.
16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 „Vonir” saga eftir
Einar H. Kvaran Ævar R.
Kvaran leikari les söguna
og gerir grein fyrir ritun
hennar. Með þessum lestri
lýkur Ævar þáttum sinum
frá íslendingum I Vestur-
heimi, en þar samdi Einar
H. Kvaran söguna, sem
einnig gerist vestanhafs.
17.20 Tónleikar: Danshljóm-
sveit austurriska útvarpsins
leikur.
17.40 Útvarpssaga barnanna:
„Hjalti kemur heim” eftir
Stefán Jónsson Gisli Hall-
dórsson leikari byrjar
lesturinn.
18.00 Stundarkorn með ung-
verska pianoleikaranum
Andor Foldes.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 „Atburð sé ég anda
minum nær” Andrés
Björnsson útvarpsstjóri les
Ijóð Matthiasar Jochums-
sonar um Hallgrim
Pétursson, kveðið á ártið
hans fyrirhundrað árum, og
flutt verður lag Askels
Snorrasonar við ljóðið.
Einnig les Gunnar
Stefánssondagskrárstjóri úr
kvæðum og sálmum Hall-
grims.
19.50 Sinfóniuhijómsveit
tslands leikur Stjórnandi:
Páll Pampichler Pálsson. a.
Lýrisk svita eftir Pál
ísólfsson. b. „Hugleiðingar
um islenzk þjóðlög” eftir
Franz Mixa.
20.15 Frá þjóðhátið Múlaþings
að Eiðum 6. og 7. júli.
Formaður þjóðhátiðar-
nefndar, Jónas Pétursson
fyrrum alþingismaður setur
hátiðina. Jóhannes Stefáns-
son framkvæmdastjóri i
Neskaupstað flytur hátiðar-
ræðu. Lúðrasveitir
Þröstur leikur og blandaðir
kórar úr héraðinu syngja.
Stjórnandi: Magnús
Magnússon. Ljóð eftir aust-
firsk skáld flytja Jónbjörg
Eyjólfsdóttir, Ármann Hall-
dórsson, Magnús Stefánsson
og Elin óskarsdóttir.
Kynnir Birgir Stefánsson.
21.30 Leiklistarþáttur i umsjá
örnólfs Arnasonar.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.
Danslög.
mónudogui
8.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15
(og forustugr. landsmála-
bi.), 9.00 og 10.00Ú
Morgunbæn kl. 7.55: Séra
Ólafur Skúlason flytur
(a.v.d.v.). Morgunstund
barnanna kl. 9.153 Rósa B.
Blöndals heldur áfram að
lesa söguna „Flökku-
sveinninn” eftir Hector
Malot i þýðingu Hannesar J.
Magnússonar (13).
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli liða. Búnaðar-
þáttur kl. 10.253 Ólafur E.
Stefánsson ráðunautur talar
um nautgripaslátrun og
kjötgæði. Mogunpopp kl.
10.40 Morguntónleikar kl.
11.00: Jascha Silberstein og
La Suisse Romande hljóm-
sveitin leika Sellókonsert i
e-moll op. 24 eftir Popper /
John Ogdon leikur Píanó-
sónötu i d-moll op. 28 eftir
Rakhmaninoff.
12.00 Dagskráin, Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Fólk og stjórnmál.
Auðunn Bragi Sveinsson
heldur áfram að lesa
þýðingu sina á
endurminningum Erhards
Jacobsens (9).
15.00 Miðdegistónleikar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(A&.15 Veðurfregnir).
16.25 Popphornið.
17.10 Tónlistartimi barnanna.
Stjórnandi: ólafur
Þórðarson.
17.30 Að tafliGuðmundur Arn-
laugsson rektor flytur skák-
þátt.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
19.35 Mælt mál. Bjarni
Einarsson flytur þáttinn.
19.40 Um daginn og veginn
Pétur Sumrliðason flytur
erindi eftir Skúla Guðj-
onsson á Ljótunnarstöðum.
20.00 Mánudagslögin
20.25 Blöðin okkar Umsjón:
Páll Heiðar Jónsson
20.35 Heiibrigðismálaþáttur:
A u g n s j ú k d ó m a r , I.
Guðmundur Björnsson
augnlæknir talar um hæg-
fara gláku.
20.50 Ljóð eftir norska skáldið
Rolf Jacobsen Þýðandinn,
Guðmundur Sæmundsson,
les.
21.10 F'antasia I f-moll fyrir
tvö pianó op. 103 eftir Franz
Schubert. Paul Badura —
Skoda og Jörg Demus leika.
21.30 Útvarpssagan: „Gang-
virkið” eftir ólaf Jóhann
Sigurðsson Þorsteinn
Gunnarsson leikari les (8).
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir. „Sá floga-
veiki”, smásaga eftir Jakob
Guntersen Hjörtur Pálsson
lektor les þýðingu sina.
22.40 Hljómplötusafnið i
umsjá Gunnars Guð-
mundssonar.
23.35 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.