Þjóðviljinn - 27.10.1974, Side 24

Þjóðviljinn - 27.10.1974, Side 24
DJÚÐVIUINN Sunnudagur 27. október 1974. Fanfani: I einkaviðræðum eru allir jákvæðir. Lausn á kreppunni (Einascita) Verðbólgumynd — og verkamenn snúa heim erlendum vettvangi Þegar þetta er skrifað er ekki vitað hvort formanni kristilega demókrata- flokksins ítalska/ Amintore Fanfani, tekst að mynda enn eina stjórn sem kennd er við vinstri og miðju. Kristilegir demó- kratar hafa haft stjórnar- forystu á italiu frá stríðslokum í hvorki meira né minna en 36 rikis- stjórnum. Venjulega leituðu þeir samstarfs við aðra borgaralega flokka, en það var einmitt Fanfani sem árið 1964 boðaði „opnar dyr til vinstri", með öðrum orðum stjórnaraðild sósialista, sem áður höfðu i fiestum greinum haft samflot við kommúnista. Þetta þótti mjög róttækt tiltæki þá, en hefur i reynd ekki breytt miklu i itölsku þjóðfélagi. Um tiu ára skeið hafa sósialdemókratar, sósialistar og repúblikanar verið algengastir félagar kristilegra i ráðherrastólum með ýmsum til- brigðum i verkaskiptingu, en niðurstaðan er ekki sérlega upp- örfandi. Allra sist ef litið er á efnahagslegt og pólitiskt ásig- komulag Italiu nú um stundir. Og þú lika, Fíat Það er sama hvert litið er. Votugáttarmál allskonar eru daglegt brauð á Italiu — i vor komst til dæmis upp um stór- felldar mútugreiðslur oliufélaga til italskra stjórnmálamanna. Hætta sú, sem steðjar að lýðræðislegum stjórnarháttum frá hægri hefur hvað eftir annað verið staðfest af sprengjukasti fasista á fundi andstæðinga sinna og fregnum um samsæri innan hersins og leyniþjónustunnar. Efnahagsleg kreppa er þegar raunveruleiki. Verðbólgan er þegar i um 20% og viðskiptahalli mikill. 1 borginni Torino, sem áður var einatt vitnað til sem dæmis um hið italska efnahags- undur, hafa Fiat-bilaverksmiðj- urnar skipað 71 þúsundi starfs- manna sinna að vinna aðeins þrja daga i viku a.m.k. næstu fjóra mánuðina. Afturkippur i efna- hagslifi annarra Vesturevrópu- rikja hefur orðið til þess að itölskum verkamönnum i Vestur- Þýskalandi hefur verið sagt upp Ammebdola: við höfum þann slæma ávana að standa við gefin lofirð og bætait þeir nú við ærinn her atvinnulaysingja. Þvi er spáð innan tiþar muni um miljón manns ganga atvinnuiausir á Italiu. Tilboö kommúnista Kreppan er það margþætt og langvinn, að menn spyrja reyndar ekki svo mjög að þvi, hvort Fanfani tekst að mynda enn eina miðjustjórn, sem ekki réði við vandamálin fremur en aðrar slikar, eða hvort efnt verði til nýrra kosninga, sem varla myndu breyta styrkleikahlut- föllum á þingi svo neinu næmi. Sú pólitisk spurning sem oftast er borin fram á Italiu lýtur að möguleikum á að kommunistar fái aðild að stjórn landsins. Foringjar kommúnista, Berlinguer og Amendola, hafa sjálfir itrekað tilboð flokks sins um að þeir séu reiðubúnir til að axla sinn hluta ábyrgðar af stjórn i landinu. Berlinguer gerði snemma á þessu ári grein fyrir þvi sem hann nefnir „sögulega málamiðlun”. Hér er i raun um að ræða útfærslu á fyrri hug- myndum kommúnista um að knýja fram breytingar á gerð italsks þjóðfélags með samstarfi verklýðsflokkanna og annarra vinstrisinna. Útfærslu sem felur einnig i sér pólitiskt samkomulag við kristilega demókrata, eða mikinn hluta þess flokks. Kommúnistar hafa fært sin rök fyrir þvi, að án einhvers sliks samkomulags verði ekki komist hjá hinum tiðu pólitisku kreppum á Italiu. Þessum rökum fylgir mikill pólitiskur þungi: flokkurinn hefur 179 þingsæti (kristilegir 267), hann á von á um 30% atkvæða i kosningum, hann hefur stjórnað heilum héruðum upp á eigin spýtur með þeim árangri meðal annars, að þar er félagsleg þjónusta miklu betri en annars- staðar á Italiu og fjármála- spilling sýnu minni. Flokkurinn hefur sýnt ótvirætt sjálfstæði i afstöðu sinni til Sovétrikjanna, og fáir aðrir en rammir afturhalds- menn halda hann handbendi Moskvu. Og þar að auki geta foringjar flokksins bent á það með réttu, að i reynd hefur hann átt aðild að margvislegu lög- gjafarstarfi á italska þinginu. „Ekki timabært" En undirtektir kristilegra demókrata hafa verið heldur dræmar. Fanfani hefur verið talinn liklegastur foringja þeirra til að geta á ný „opnað dyr til vinstri”, en engu að siður byrjaði hann sinar stjornarmyndunartil- raunir nú á þvi, að það kæmi ekki til mála að ræða við kommúnista, enda engin þörf á þvi. 1 þessu samhengi er forvitnilegt að skoða viðtal sem bandariska vikuritið Newsweek birti á dögunum við Giorgio Amendola, sem er einn helsti foringi kommúnista. Hann segir þar, að hvað sem foringjar kristilegra demókrata láti eftir sér hafa opinberlega, þá þekki hann engan foringja þeirra, sem ekki hafi i einkaviðræðum, eða um sendi- boða lýst þvi yfir, að hann væri persónulega fylgjandi aðild kommúnista að stjórn. En sá böggull fylgir ævinlega skamm- rifi að þvi er jafnan við bætt, að það sé „ekki timabært enn”. Ummæli Kissingers Amendola lætur að þvi liggja, að afskipti Bandarikjanna af itölskum málum kunni að valda þessu hiki foringja kristilegra. Hann minnir á það, að Kissinger utanrikisráðherra hafi aldrei afneitað þeim ummælum sinum, að það kynni að vera nauðsynlegt að gripa til „leynilegra aðgerða’; til að forða þvi, að Italia „verði kommúnistaland”. Skugginn frá CIA og Chile rétt enn einu sinni. Amendola bætir þvi við, að kristilegir kunni að nota slik ummæli sem afsökun fyrir þvi að fresta stjórnaraðild kommúnista. Og það mætti einnig hugsa sér að kristilegir demókratar óttist að þeir fái ekki þá fjárhagslegu aðstoð sem þeir vilja frá félögum sinum I Efnahagsbandalaginu ef þeir gera sig liklega til að hafa samstarf við kommúnista. Sérkennileg staða Um skilmála fyrir samstarfi við kristilega demókrata komst Amendola að orði á þessa leið: Þeir flokkar, sem hafa til þessa unnið með kristilegum hafa annaðhvort verið veikburða eða auðsveipir. Við erum hvorugt. Við höfum þann afleita sið, að reyna að standa við loforð sem við gefum. Af þessum sökum finnst okkur, að forsenda fyrir stjórnaraðild okkar séu gagn- gerar endurbætur á Kristilega demókrataflokkinum. Framhald á 22. siðu. Að stjórna Ítalíu með kommúnist- um eða án þeirra straufría sængurfataefnið er nú fyrirliggjandi í mörg- um mynztrum og litum. Einnig í saumuðum settum. Kærkomin gjöf, hverj- um sem hlýtur. Sparið húsmóðurinni erfitt verk, sofið þægilega og lífgið upp á litina í svefnherberginu. Reynið Night and Day og sannfærizt. Samband íslenzkra samvinnufélaga Innflutningsdeild Sambandshúsið Rvík sími28200

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.