Þjóðviljinn - 03.11.1974, Side 17

Þjóðviljinn - 03.11.1974, Side 17
Sunnudagur. 3. nóvember 1974. ÞJÖÐVILJINN — StÐA 17 Haustlyftingar í myndlistum Að þessu sinni víkjum við að þeim miklu og f jöl- breytilegu tíðindum sem gerast á hverju hausti, þegar listamenn okkar vega upp á móti skamm- degisþróuninni í umhverf- inu með djörfum mótbár- um sólrænna lita sem þeir hafa saf nað um sumartíð á isa köldu landi. Hann hefur gefið oss hörpudisk Eins og að likum lætur eru sýn- ingar margar um þessa dagana. Til dæmis sýnir Týri Týra i húsa- kynnum Varðbergs, en það félag um samstarf vestrænna þjóða hefur nú hætt pólitisku vafstri eins og vera ber og skipuleggur nú aðeins tónleika og myndsýn- ingar. Týri hefur að undanförnu lagt sig mjög eftir formi hörpu- disksins, og er hér um verulega þróun að ræða frá þvi að hann stúderaði igulkerið á árunum eins og frægt var á árunum, þegar Parisarblaðið Femme fatale hrópaði upp i sárri angist eftir sýningu Týra: Hann stingur, þessi mörlandi! Mesta verk Týra að þessu sinni er kompósisjón úr 39 hörpudiskum, einum fyrir hvert aldursár Týra. Þetta er áhrifasterkt verk og magnað i blæbrigðarikri einhæfni sinni. Þó get ég ekki að þvi gert, að mér finnst hörpudiskur þriðji frá hægri að ofan heldur fýldur i lit sinum. Aftur á móti er fimmti hörpudiskur á sömu slóðum fullur af þeirri spennu milli litar og forms sem okkur dreymir um á eftirvæntingarstundum sálarinn- ar. Eilífðarviðleitnin Skólabróðir Týra frá École de Toutes les Artes, sýnir i Félags- höll Samvinnuskriffinna, en Sam- bandið hefur, eins og kunnugt er, fyrir skemmstu ákveðið að hætta verslunarstarfsemi og reka aö- eins leiklistarfræðslu og mynd- sýningar. Þessi skólabróðir Týra, Kári Brjánsson, hefur um skeið unnið þarft brautryðjandaverk i þvi að samhæfa andlit forstjóra i kaupfélögum litum og striga, unnið markvisst að eyða óþarfri spennu milli inntaks og túlkunar- aðferða á þessum sérstaka vett- vangi. En að þessu sinni bregður Kári vana sinum og einbeitir sér að þvi sem hann kallar impres- sjónir úr eilifðinni, að þvi sem er og verður hvort sem Louvre, Tate Gallery, Prado, Ermitage og Listasafn Islands liða undir lok eða liða ekki undir lok. Hann leggur til dæmis sérstaka alúö við hringinn, eggiö, mánans boga, al- heimsgatið ef svo mætti segja, sem hefur orðið æ vinsælla i is- lenskri afstraktlist á siðari árum. Þróun til gatsins Heyndar er gatið merk niður- staða, einskonar syntesa þrjátiu ára þróunar afstraktmálverks- ins. Þessi þróun hefur liðið áfram frá harðsnúnum og hornhvössum ferningum hins stærðfræðilega flatarmálverks, sem eftirstriðs- málarar stunduðu með það fyrir augum að setja fram sitt skipu- lag, sina röð og reglu andspænis ringulreið og sársaukafullu siö- ferðilegu endurmati eftir hildar- leik striðsins. Siöan lét hin horn- hvassa stefna undan fyrir ofur- valdi litarins sem drekkti linunni bókstaflega svo að hún var i kafi i ein tiu ár að minnsta kosti. Hinn sterki litur sem braut af sér allar viðjar og rann frjáls úr túpum og sprautum i gamansömu samspili tilviljunar og lauslegrar áætlunar — þessi litur endurspeglaði léttúð og vonir neysluþjóðfélagsins, bensineyðslu þess, skartgirni og kynlifsbólgu. En svo kom, að svo við búið mátti ekki standa og sneru lista- menn, sem höfðu misst niður lit- inn svo að hann flæddi út um allt eins og tjara i miklum hitum, listamenn tóku að stefna á nýjan aga. Linan var dregin upp úr lita- hafinu á nýjan leik. Hún hafði lin- ast i baðinu og var nú ekki lengur bein og hvöss og harðneskjuleg eins og áður heldur bogin og mjúk og kvenleg. Bogar og hringir og göt hafa síöan verið aðal hins islenska afstraktskóla, um leið og litinum hefur heldur ekki verið gleymt með öllu. Myndir Kára i þessum dúr eru misjafnar, til dæmis likaði mér alls ekki hin slappa fylgni i mynd- inni bak við hurðina né heldur óvissan i heildarskiptingu mynd- flatarins i horninu til vinstri. En myndin nr. 28. fyrir miðju er að minu viti öldungis meistaraverk. Þar er hringform eitt og yfirgefið á miðri grárri eyðimörk. Það er mikið lif i þessum litla hring en mikill þrúgandleiki i grámanum. Þarna eru sameinuð á snjallan hátt manneskjuleg viðhorf, kveinstafir um kynferðislegt munaðarleysi,um einsemd manns og konu i grámósku stórborg- anna, heimspekileg dýpt hins upprunalega forms og örugg og marksækin skipan myndflatar- ins, þar sem öllum óþarfa hefur verið kastað fyrir borð á hval- fangara samtiðarinnar. Hart undir tönn Hannibal Benónýsson opnaði fyrir skemmstu sýningu i Lands- smiðjunni, en Landssmiðjan hef- ur eins og kunnugt er hætt að smiða vélar og útbúnað i frekt ginið á tæknivæðingunni og hefur verjð breytt i starfs- og sýningar- vettvang fyrir myndhöggvara. Hannibal kallar sýningu sina stúdiu i lifrænum strúktúr i blaða viðtali og eru þaö orð að sönnu. Skúlptúrar hans eru nefnilega úr harðfiski. Sumir skúlptúrarnir eru gerðir með svokallaðri zen- búddiskri aðferð (að hjálpa til- viljuninni) — verða þeir til með þvi móti að Hannibal nagar harð- fisk (aðeins vestfirskan eins og hann á kyn til) af handahófi i myrkri. Aðrir skúlptúrar eru til orðnir með aðferð, sem Hannibal nefnir tæting og hefur hann notið aðstoðar tveggja systursona sinna við framkvæmd þessarar aðferðar. I þriðja lagi er notuð aðferð, sem Hannibal kallar ,,já- kvæða” og byggir á hóflegri notk- un matarlims i þágu flókinna stúrktúrella formsamstæðna. Fara myndirnar, ljósgular i sin- um salta einfaldleika, einkar vel við hvita veggi smiðjusalsins sem var. Min sýning er eina myndlistar- sýningin á Islandi sem hefur ilm, sagði Hannibal við mig á dögun- um. Sýningin hefur gengið vel, fimm myndir hafa selst, en eina átu listelskir strákar af Skúlagöt- unni. Skaöi. GAMBIA Nú hafa verið ákveðnar sjö 18 daga ferðir til Gambíu í vetur. Verður brottför frá Keflavík eftirtalda daga: 30. nóvember 22. febrúar 14. desember 8. marz 28. desember 22. marz 8. febrúar Verð er: frá kr. 53.900,oo til 64.900,oo eftir brottfarardegi og tegund gistingar. Flogið er um Kaupmannahöfn í báðum leiðum og er gisting ásamt morgunverði þar innifalin bæði fyrir og eftir ferðina á Hotel Mercur. í Gambíu er innifalin gist- ing ásamt hálfu fæði á meðan dvalist er. Sætamagn er takmarkað. Hafið sam- band við ferðaskrifstofu yðar, skrifstof- ur flugfélaganna og umboðsmenn. FLUGFÉLAG LOFTLEIDIR /SL A:\DS

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.