Þjóðviljinn - 03.11.1974, Side 19
Sunnudagur. 3. nóvember 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 19
á Freyjugötu þrjú
og þegjuðu nú.
Sumir hafa hana svona:
Flintstone og frú
á Framnesvegi þrjú
og það ert þú.
Þegar ég var litil kunnu allir
þessa klausu:
Eniga meniga súkken di
obel dobel domm og di.
Dú skal komme austen vest
riða pomp með hnúð og ess
Ex press dopel dess.
Þessi var lika vinsæl:
Gekk ég upp á eina brú
sá þar standa unga frú.
Hún var éins og kálffull kú.
Kannski það hafi verið þú!
Hér er önnur frá sama tima:
Arka barka búningar arka
ella mella miðja
monn sjonn tonn túlla bonn
isa bisa topp stopp.
Það væri gaman að fá frá
ykkur fleiri svona þulur. Sendið
Kompunni það sem þið kunnið.
Skrifið lýsingu á þeim leikjum
sem þið notið þær við. Loks
væri forvútnilegt að heyra um
vinsælustu leikina. Bæði leiki
sem þið farið i úti og inni,
heima og i skólanum.
Hver
á
að
vera
hann?
Krakkarnir i skólaportinu
kunna margar þulur, sem þau
nota til að komast að þvi hver á
að vera hann i stórfiskaleik eða
siðasta. Oftast heyrast þessar
tvær:
úllen dúllen doff
kikke lane koff
koffe lane bikke bane
úllen dúllen doff.
Og
Ugla sat á kvisti
átti börn og missti:
Ól hún eitt
ól hún tvö
ól hún þrjú
það varst þú.
Stöku sinnum heyrist:
Ugla sat á eyju
átti börn i bleyju:
Eitt, tvö, þrjú
það varst þú.
Það kemur fyrir að stelpurn-
ar fara með þessa, þegar þær
ætla i teygjutvist en eru ekki
ásáttar hver á að byrja:
Ella mella kúadella
oss kross Gullfoss.
Bæði strákar og stelpur
kunna hins vegar þessa, sem er
ekki gömul:
Flintstone og frú
KRAKKAR!
Sendið Kompunni teikningar, Ijós-
myndir, sögur og vísur eftir ykkur sjálf
stóru
spegil-
broti
I stóru spegilbroti, sem
mamma hans hefur
hengt á rauðan skáp
frammi í horninu, getur
hann séð allra þokkaleg-
asta pilt með blá augu,
hátt enni og sveipa í
Ijósu hári upp frá koll-
vikum. — Elli 12 ára
teiknaði þessa mynd og
sendi ásamt svörum í
verðlaunagetraun Komp
unnar.
Umsjón: Vilborg
Dagbjartsdóttir