Þjóðviljinn - 13.03.1975, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 13.03.1975, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 13. marz 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Bingó aldarinnar hefst á sunnudag Bingó fjóra nœstu sunnudaga i Háskóla- bíói á vegum knattspyrnufélagsins Þróttar Mikil Bingó-alda hefur gripiö um sig hér i höfuðborginni. Nú hefur knattspyrnufélagið Þróttur ákveðið að skjóta öðrum ref fyrir rass og efna til „bingós aldarinn- ar” i Háskólabiói fjóra sunnu- dagseftirmiðdaga I röð, þ.e. 16. mars, 23. mars, 6. aprll og 13. apríl Bingóin hefjast kl. 2 stundvis- lega og verður Svavar Gests stjórnandi. Spilaðar verða 20 um- ferðir i hvert skipti. Vinningaskráin verður þessi I grófum dráttum: 1. 56 sólarferðir með Ferðaskrifstofunni SUNNU til Mallorca. Búið verður I glæsileg- um ibúöum þar syðra og notið allra hugsanlegra lystisemda sem sólareyjan Mallorca hefur upp á að bjóða. Verðmæti hverrar ferðar er rúmlega 50.000.00 kr. 2. Bifreið að gerðinni FIAT 127 að verðmæti kr. 653.000.00 Spilað verður um bifreiðina þ. 13/4 i sér umferð og þeir sem komið hafa á öll hin þrjú skiptin fá ókeypis 1 bingóspjald gegn framvisun sérstakra miða sem afhentir verða i hvert skipti. Stórglæsi- legur vinningur og gifurlega heillandi. 3. 24 aðrir stórglæsilegir vinningar af öllum tegundum og gerðum. Verðmæti vinninga er samtals tæpar 4 miljónir, og með þvi að reikna með húsfylli i hvert sinn fá þátttakendur 70-80% ágóðans i sinn hlut eftir þvi sem forráðamenn bróttar tjáðu blaða- mönnum. Þá er það nýjung, að þegar drégið verður um hver skuli hreppa vinning i það og það skiptið fá allir einhvern vinning. Miðasala hefst i Háskólabiói i dag kl. 4 V örubílstjóraf élagið ÞRÓTTUR Framboðsfrestur vegna stjórnarkjörs 1975. Frestur til að skila tillögum um stjórn og trúnaðarmannaráð Vörubilstjórafélags- ins Þróttar fyrir árið 1975, er til kl. 17, mánudaginn 17. mars 1975. Hverri tillögu skulu fylgja meðmæli minnst 18 fullgildra félagsmanna. Tillög- um ber að skila á skrifstofu félagsins. Kjörstjórn Vörubilst jóraf élagsins Þróttar. í HÁSKÓLABÍÓ sunnudagana l6.og 23. marz, einnig 6.og 13.apríl og hefst ki. 14 öll skiptin Miðasala hefst f dag kl. 17 af eiiendum vettvangi Próaöur landbúnaðurskapar forsendur fyrir iðnvœðingu t september siðastliðnum hlaut Ginea-Bissau sjálfstæði eftir 500 ára ánauð portúgala. Siðan hefur hin vestræna pressa steinþagað um framvindu mála i landinu eins og hún hafði raunar gert lengst af meðan alþýða landsins barðist fyrir frelsi. Langvarandi ófriður hefur ó- hjákvæmilega slæm áhrif á efnahag þjóða sem við hann búa. Þegar þjóðfrelsisöflin höfðu leitt baráttuna til sigurs voru þau samt ekki það sem brýnast var að bæta fyrir á efnahagssviðinu. Meinið sem ráðast varð á orsakaðist af alda löngu arðráni portúgala á gæð- um landsins og ibúa þess. landssvæði undan oki portúgala. 1 stað hinnar einhæfu jarðhnetu- ræktar var lögð áhersla á að hefja matvælaframleiðslu landsins aftur til vegs. Tækifær- ið var notað til að innleiða nýja framleiðslutækni, svo sem að auka notkun áburðar og rækta fleiri hrisgrjónategundir en hrisgrjón eru helsta fæða lands- manna. í bænum Madina do Boé hefur verið reist miðstöð fyrir tilraun- ir á sviði landbúnaðar og verið er að stofna aðra slika sunnar i landinu. t þessum miðstöðvum er bændunum kennt að beita hentugum aðferðum við land- búnað og einnig er þar rekih til- raunastarfsemi i fiskirækt. 1 landbúnaði var nokkur visir Hrisgrjónarækt er helsti matvælagjafi Gineu-Bissau. Skattar og jarðhnetur Ginea Bissau er .fyrst og fremst landbúnaðarland og lengi vel rikti þar sjálfsþurftar- búskapur. En nýlenduveldi græðir litið á sjálfsþurftarbú- skap. Til þess að bæta úr þvi voru settar á ibúana gifurlegar skattaálögur. Alltvar skattlagt: menn þurftu að greiða skatt af húsnæði og pálmavini, greiða þurfti leyfisgjald af veislum, giftingum, jarðarförum o.s.frv. Til þess að gera bændunum kleift að greiða alla þessa skatta var lögð mikil áhersla á jarð- hneturækt. Bændurnir seldu portúgölunum jarðhnetur og fengu fyrir þær það verð sem nægði fyrir sköttunum. Smátt og smátt vék almenn akuryrkja og kvikfjárrækt fyrir jarðhnetu- ræktinni og árið 1959 voru 22% alls jarðnæðis i landinu lögð undir jarðhneturækt. 70% út- flutningsins voru sömuleiðis jaröhnetur. Fjármálaráðherra landsins. Vasco Cabral, útskýrði afleið- ingar þessarar þróunar þannig: — Þetta hafði hrapallegar af- leiðingar. Undirstöður sjálfs- þurftarskipulagsins brustu án þess að i kjölfarið fylgdi eðlileg iðnvæðing. Að frátöldum örfá- um stöðvum til að hreinsa hris- grjón, sögunarverksmiðjum og brugghúsum rikti algert efna- hagslegt tómarúm i Gineu- Bissau. Samvinna /,út úr neyðí' Þessu misræmi þurfti þjóð- frelsishreyfingin, PAIGC, að breyta og hafist var handa strax og henni tókst að frelsa einhver að samvinnubúskap 1 landinu áöur en bardagar hófust þar. Hann hefur veriö þróaður áfram og nú hefur verið komið á sam- vinnu milli heilla bæja. Sú teg- und samvinnu er reyndar af- leiðing striðsins. Portúgalir iðk- uðu mjög hermdarverk i suður- hluta landsins og oft tókst þeim að eyða hrisgrjónabirgðum heilla bæja. Þá komu bændur frá öðrum bæjum til hjálpar, aðstoöuðu við að endurbæta akrana og sáu bæjarbúum fyrir matvælum. PAIGC reynir nú að koma á samvinnurekstri á öðr- um sviðum, t.d. smiðaverkstæð- um, en striðsreksturinn tafði þær tilraunir. Verslun án peninga Mikilvægur liður I frelsun bændanna undan oki nýlendu- kerfisins voru alþýðuverslan- irnar. Þar gátu þeir komið meö umframbirgðir sinar, selt þær og keypt ýmsar nauðsynjar i staðinn. Fyrsta verslunin af þessu tagi var stofnuð árið 1964 en siðan hefur þetta fyrirkomu- lag breiðst út um landið. öll við- skipti i þessum verslunum eru i formi vöruskipta, peningar koma hvergi þar nærri. Verð- lagning fylgir þeirri reglu að bændurnir fá meira en portú- galarnir greiddu fyrir afurðir þeirra og vörurnar fá þeir ódýr- ari en hjá portúgölunum áður fyrr. Mikið af þeim vörum sem seldar eru i þessum verslunum eru gjafir sem þjóöfrelsisöflun- um hafa borist. Þær kaupa bændurnir fyrir hrisgrjón, Gínea- ■ i | • Bissau tndurreisn efnahagslífsins pálmaoliu, hunang, mais og fisk svo dæmi séu tekin. Afurðirnar eru svo sendar i sérstakar geymslur i Boké þar sem á- kveöið er hve mikið skal flytja út og hve miklu skal dreifa inn- anlands. sóknir hafa leitt i ljós aö hægt er að virkja bæði stórfljót landsins, Corrubal og Geba. Corrubal eitt saman getur séð öllu landinu fyrir raforku og samt ætti nokk- uð að vera eftir til útflutnings. En PAIGC hefur ekki i hyggju að afhenda útlendingum þessar auðlindir til nýtingar. Vasco Cabral litur hýru auga til þeirrar samstöðu sem óðum er að myndast meðal hráefna- framleiðenda. Hann segir: Þróunarlöndin verða að standa saman gegn heimsvaldarikjun- um. Þau verða að koma sér saman um aðferðir til að berjast ‘ gegn þeim sem raka saman gróða á hráefnum þeirra og auðlindum. Að vera sjálfum sér nóg- ur 1 stjórnarskrá Gineu-Bissau segir á einum stað að markmið rikisins sé ,,að binda endi á arð- rán manns á manni”. Til þess að ná þessu markmiði verður að fylgja ákveðinni efnahagsstefnu sem hefur velferð þegnanna að leiðarljósi. Vasco Cabral túlkar stefnu stjórnarinnar þannig: Við verðum að byggja á þeim veruleika sem við búum við og til að byrja með veröur efna- hagslifið að byggjast á landbún- aði jafnframt þvi að þróa hann áfram. Háþróaður landbúnaður getur svo oröið forsenda iðn- væðingar... Við verðum að byggja upp efnahagskerfi sem gerir okkur kleift að nýta auð- lindir okkar og með þvi að koma á hagkerfi sem er sjálfu sér nægjanlegt. (ÞH —Byggt á Kommentar) Hráefni Oft hefur veriö sagt um Ginea- Bissau að landið sé svo fátækt að það skipti engu máli fyrir heimsvaldalöndin. Er þá átt við að litið sé af hráefnum og orku i landinu. Þessu er Vasco Cabral ekki sammála. Hann segir: — I suðausturhluta landsins er á- framhald þeirra báxitnáma sem Lýðveldið Ginea nytjar. Einnig býr landið yfir fosfati, titanium, gulli og járni. Rann-

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.