Þjóðviljinn - 13.03.1975, Síða 6

Þjóðviljinn - 13.03.1975, Síða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 13. marz 1975. Agúst F. Petersen Björg Þorsteinsdóttir Einar Hákonarson Eyborg Guðmundsdóttir Guðmunda Andrésdóttir Hafsteinn Austmann Hringur Jóhannesson Jóhannes Geir . Louisa Matthíasdóttir Ragnheiður Jónsdóttir Ream Jens Kristleifsson Ragnheiður Jónsdóttir Örlygur Sigurðsson Guðmundur Benediktsson Hallsteinn Sigurðsson Jóhann Eyfells Jón Benediktsson Magnús Á. Árnason Fá lofsamlega dóma í Bergen Sýningunni „18 Islenskir mynd- listarmenn” lauk 9. mars sl., á sunnudaginn, I Kiruna. Sýning þessi var áöur I Bergen dagana 10.1, — 26.1., en 18. mars veröur sama sýning opnuö I Luleá. Þjóöviljanum hafa borist nokkrar blaöaúrklippur frá Bergen um sýningu þessa og er þar yfirleitt fariö lofsamlegum oröum um hana. t greinum þessum er yfir- leitt minnst á það að 3. — 17. nóv. sl. hafi veriö til sýnis í Bergen nokkurt safn fslenskra listaverka, i eigu I.istasafns lslands. Sýningin þá var liður I hátiðar- dagskrá, sem listamannasam- tökin I Bergen settu saman i til- efni ellefu alda afmælisins til aö hylla islenska menningu. Agnar Kl. Jónsson, ambassador islands i Osló, opnaöi sýninguna en viöstödd var þá ma. dr. Selma Jónsdóttir. Tilhrigðarik sýning Waldemar Stabell skrifar eftir- farandi um sýninguna i Morgen- avisen, Bergen: „Sýning félagsmanna FIM, sem nú gistir Bergen, hefur upp á aö bjóöa myndlistarverk frá siöustu tveim til þremur árum og eru um þaö bil fimm eöa sex myndir eftir hvem þátttakanda. Viö kynnumst þarna málverkum, grafíkmyndum og skúlptúr. Þetta er tilbrigöarik sýning, en einnig mætti vekja athygli á þvi, sem kalla mætti tengsl við „sameign” evrópskrar myndlistar. „Umhverfisraunsæi” eða tengsl viö það — eins og segja mætti — er til beggja vegna Atlants- hafsins. Hringur Jóhannesson f. 1932 og Louisa Matthiasdóttir f. 1917 eru fulltrúar þess á sýningunni. En ef við sleppum skóla og stil- einkennum má segja, að islensk list sé frábrugöin evrópskri sakir sterkra og hljómmikilla lita, sem málararnir nota einatt. Jóhannes Geir Jónsson f. 1927, Björg Þorsteinsdóttir f. 1940 og Agúst F. Petersen f. 1909 eru ólikir og sérstæðir málarar en aftferðir þeirra að setja saman litahljóma án hlés eða þagnar og jafnframt til aö hafa þá nægilega hvassa, eiga býsna margt sameiginlegt. Leiöin frá þessum „hrópandi” kóloristum til hinna einföldu og oft á tiðum trúarlegu form- tjáningar i hvitum og svörtum til- brigöalausum flötum Eyborgar Guðmundsdóttur f. 1924 er ekkert sérlega löng. Ástæöan er sú aö allir þessir málarar lita á hljóm- gæöi myndar sömu augum. Eyborg getur náö sterkum áhrifum með þvi að setja all- granna og fina tóna litanna milli þungra blakka af svörtu og hvitu. Einar Hákonarson • f. 1945, Hafsteinn Austmann f. 1934 og Guömunda Andrésdóttir f. 1922 áttu mörg verk á Urdi i nóvember, öll frá fyrstu árum sjöunda áratugarins. Myndir þeirra i dag — gerðar á siöustu 2-3 árum, leiða ekki i ljós nýtt myndmál.” Sami höfundur segir i 2. grein sinni ma: A sýningunni finnum viö enn- fremur góö grafisk verk og högg- myndir islenskra myndlistar- manna. Töfrandi eru teikningar og vatnslitamyndir örlygs Sigurðssonar (f. 1920). Ragn- heiöur Jónsdóttir (f. 1933) er góð- ur grafiskur listamaður. Yngsti þátttakandinn Jens Kristleifsson (f. 1950) sýnir dálit- ið torskilin en örugglega gerð dúkskurðarverk. Magnús A. Arnason (f. 1894) er þekktur lista- maöur bæði sem málari og mynd- höggvari. Hann teflir fram fin- gerðri stúdiu af syni sinum Vifli. Aðrar myndir eftir hann heita Geniveve og Karlinn i tunglinu. Ég þekki ekki forsendu siðast- talda verksins.en kröftug einbeit- ing anda i þessu höfði er sannar- legu islenskum myndhöggvara til mikillar sæmdar. Áhugaverðar höggmyndir sjáum við hjá Guð- mundi Benediktssyni (f. 1920) Hallsteini Sigurðssyni (f. 1945), Jóni Benediktssyni (f. 1916) og prófessor Jóhanni Eyfells, (f. 1923). Allt eru þetta listamenn, sem veita okkur rikulega hlut- deild i verkum sinum og ég er ekki i vafa um, að við eigum eftir að heyra frá þeim siðar meir.” Tók huga múiM Greinarhöfundurinn „TS” segir 18. janúar i Bergens Arbeiderblad um Ragnheiði Jónsdóttur: „Grafiski listamaðurinn Ragn- heiður Jónsdóttir var sá eini er tók huga minn með myndaflokki sinum 2001-2004. Táknheimur hennar viröist dularfullur og töfr- um gæddur. Hún kom forvitni minni af stað og myndsýn á hreyfingu. Hin flata- og skúlptúr- verkin eru ljós án þess aö segja mér nokkuö sérstakt. Þau eru góð verk en heldur ekki meira, ekki minna. Vitaskuld er það gleðilegt að þau skuli hafa til að bera gæði listar — en þau eru dálitið þreyt- andi I alþjóðlegum skilningi eins og hinn hefðbundni módernismi.” Kirichenko kveður Yuri A. Kirichenko, sem verið hefur sendiherra Sovétrikjanna á Islandi i tvö ár, hélt kveðjuhóf I sovéska sendiráðinu i fyrra- kvöld, en hann tekur nú viö embætti sendiherra i Osló. Við þetta tækifæri var þessi mynd tekin af sovésku og bandarisku sendiherrahjónunum ásamt aðalleikurunum I sovésku myndinni Solaris. Er ekki annaö að sjá en vel fari á með stór- veldafulltrúunum. Sendiherra Sovétrlkjanna á Islandi i stað Kirichenko verður væntanlega Fara Fanou, sem verið hefur aöstoöaryfirmaður Noröur- landadeildar sovéska utanríkis- ráðuneytisins. t Ragnheiður Jónsdóttir Ream fékk mjög vinsamlega dóma fyrir myndir sinar á sýningunni I Bergen.en hún á 6 myndir á sýningunni. Þessi mynd er af einu verka Ragnheiðar. Jóhannes Geir á 6 myndir á sýningunni. Hér er mynd af einu verka Jóhannesar. tslensk blanda „Islensk blanda” nefnist grein um sýninguna, sem birtist i Bergens Tidende. Höfundur er Harald Flor. Hann segir fyrst að þessi sýning hafi hvorki neitt sér- stakt stef að uppistöðu eða ákveðna hugmynd. Flor ber þessa sýningu saman.við sýningu I Bergen fyrir hartnær 5 árum I Bergens BilledgalerLog við slikan samanburð „hljómum við að komast að þeirri niðurstöðu, að núverandi sýning er miklum mun hefðbundnari i sniðum en sú fyrri, breidd hennar takmarkaðri og tilbrigðin færri" Greinarhöf- undur leggur þvi mikla áherslu á að sýningin „18 islenskir mynd- listarmenn” bjóði ekki upp á neinn þverskurð Islenskrar myndlistar eins og hún er i dag. Minnir greinarhöfundur á þátt Islendinga i æskulýðs§ýningunni I Paris og telur mjög miður að þátttakendur þar skuli ekki eiga verk á umræddri sýningu En „ekki er réttmætt að láta þessar athugasemdir skyggja á þá stað- reynd að markvert framlag er að finna i þessu myndlistarúrtaki? „Jóhannes Geir Jónsson er áberandi persónuleiki i hópi málaranna. Expressjónistisk list hans með Ivafi landslagsáhrifa stendur föstum fótum i náttúru og lifi fólksins. Frá strangri myndbyggingu (Jarðarförin) hefur hann hreyfst yfir i ómeð- vitaðri lita- og efnismeðferð, þar sem næsta vimukenndri náttúru- tilfinningu er gefinn laus taumur- inn (Sumarnótt). Ágúst F. Petersen (hann er ekki ólikur Aagot Kramer i einstaka verk- um) og Ragnheiður Jónsdóttir Ream er ljóðrænni að skapgerð og Ragnheiður hefur raunar til að bera sterkari tilfinningu fyrir lit- um. Erfiðara á ég með að sætta mig viö vinnuaöferðir Louisu Matthiasdóttir en þær byggjast á dýrkun aöalatriða og breiðum strokum. Ýmis stig abstrakt-stefnu birt- ast I myndum miðkynslóðarinnar og hjá þeim yngri en myndrænar lausnir eru býsna misjafnar hvað frumleikann snertir. Fyrir- myndirnar koma skýrast i ljós hjá konstrúktifa málaranum Eyborgu Guðmundsdóttur, en einhæfrar hrynjandi gætir aftur á móti mest I verkum Guðmundu Andrésdóttur. Hafsteinn Aust- mann málar abstrakt i anda Parisarskólans. Kerfisbundni rytminn, sem hann glimir viö sýnist hafa opnað leið til áframhaldandi þróunar. Björg Þorsteinsdóttir og Einar Hákonarson vinna bæði á landa- mærasvæðum óhlutbundinn- ar listar annars vegar en figúratlfrar hins vegar. Björg hefur einkum komið til leiðar hárri myndrænni spennu. hlaðinn undirtónn er lika rauður þráður hjá Hringi Jóhannessyni. Hringur hefur lært bæði af Margritte og nýrealistunum og er höfundur þeirra verka á sýningunni, sem lengst verður munað eftir. Grafiklistarmennirnir eru fáir. Ragnheiður Jónsdóttir er einstæð i hópi þeirra (hún tók raunar þátt I grafíkbiennalinum i Fredrikstad á siðastliðnu ári). Myndaflokkurinn 2001-2004 bitur sig fastan i vitund okkar bæði vegna tækninnar og af hug- myndafræðilegum orsökum. Hið sama v.erður ekki sagt um þátt islensku myndhöggvaranna. Frumlegastur er Jóhann Eyfells. í litlu myndunum sinum fer hann með álið á ákaflega sérstæðan máta. Honum tekst að láta þessa málmtegund — sem venjulega er bæði fáguð og strokin — llta út eins _og storknaðan hraun- mola. Ánnars er það aö segja um myndhöggvarana að abstrakt- mennirnir Guðmundur Benediktsson og Hallsteinn Sigurðsson ásamt aldursfor- setanum Magnúsi A. Arnasyni túlka hefðbundin sjónarmið. Aftur á móti nálgast Jón Benediktsson sætleikann, stund- um iskyggilega mikið. Rétt er að vekja athygli á hinni miklu þátttöku kvenna á sýning- unni — á þessu ári, sem hátiðlega hefur veriö kynnt sem: Kvennaárið.”

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.