Þjóðviljinn - 13.03.1975, Síða 9
Fimmtudagur 13. marz 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
Laxárdeilan enn í sölum alþingis
Óráð að hrófla við
gerðu samkomulagi
Laxárdeilan sæla kom
enn til umræðu í sölum
alþingis í fyrradag.
Tilefnið var fyrirspurn til
iðnaðarráðherra frá Oddi
ólafssyni um hvort ekki
væri grundvöllur til að
endurskoða samkomulagið
sem gert var á sínum tíma
við bændur í Laxárdal og
við Mývatn og fá þá til að
fallast á stíflubyggingu í
Laxá.
Gunnar Thoroddsen, iðnaðar-
ráðherra taldi ekki likur á neinu
samkomulagi um að brjóta upp
fyrri samning.
Tvö umdæmi
læknislaus
t svari Matthiasar Bjarna-
sonar, heilbrigðis- og trygginga-
ráðherra, i fyrirspurnartlhia
alþingis i fyrradag komu m.a.
fram þær upplýsingar, er hér
greinir. Ráðherrann var að svara
fyrirspurn frá Sigurlaugu
Bjarnadóttur.
Landsiminn er reiðubúinn til að
setja upp símabúnað til neyðar-
þjónustu i þeim byggðarlögum úti
um land, þar sem sliks er óskað.
Landsiminn ber kostnað af upp-
Prentsmiðja
Þjóðviljans
annast
allskonar
setningu
og prentun
Prentsmiðja
Þjóðviljans hf.
Skólavörðustíg 19. Sími
17505
setningu en ekki af rekstri.
„Oddvitum er i sjálfsvald sett að
semja við stöðvarstjóra um
gegningu”, eins og ráðherrann
orðaði það.
Til að fullnægja lágmarksf jölda
lækna við heilsugæslustöðvar
utan Reykjavikur og Akureyrar
samkvæmt hinum nýju lögum,
sem tóku gildi fyrir rúmu ári þarf
60 lækna. 58 læknar eru nú
starfandi við heilsugæslustöðv-
arnar, eða tveimur færri en lág-
markinu nemur. Tvö umdæmi
eru algerlega læknislaus og eru
það Flateyri i öndundarfirði og
Kópasker i Norður-Þingeyjar-
sýslu. Allmörg umdæmi, sem
samkvæmt lögunum eiga að hafa
a.m.k. 2 lækna hafa aðeins einn.
Þannig er ástatt i Stykkishólmi,
Hvammstanga, Dalvik, Þórshöfn
og á Höfn i Hornafirði.
26 hjúkrunarkonur og 10
ljósmæður eru starfandi við
heilsugæslustöðvar utan Reykja-
vikur og Akureyrar. Heimild er
fyrir 35 hjúkrunarkonum en ekki
fleiri en 10 ljósmæðrum. Matthias
Bjarnason sagði, að gifurleg
breyting hefði átt sér stað til bóta
á siðustu árum, hvað lækna-
þjónustu úti um landið snerti, en
þó þyrfti enn margt að komast i
betra horf.
Stefán Jónsson vitnaði i
ummæli Odds Ólafssonar um að
stiflugerð i Laxá myndi kosta
minna en árseyðsla af dieseloliu á
svæði Laxárvirkjunar og kvaðst
vilja minna Odd og aðra þingm.
á þá staðreynd, að ef fara ætti á
svig við það samkomulag, sem
gert var við bændur i tið vinstri
stjórnarinnar, þá kostaði slikt
annaðhvort lagabreytingu eða
lögbrot, og reyndar miklu meira,
þingsjá
þvi að af myndu hljótast slik
illindi, að ógerlegt væri að meta
skaða þeirra til fjár.
Bændur munu ekki veita
heimild til neinnar stiflugerðar,
sagði Stefán, en hins vegar hefur<
stjórn Laxárvirkjunar haldið
uppi tilraunum til að knýja
alþingi og rikisstjórn til að rjúfa
samning á bændum. Stefán
kvaðst vilja spyrja Odd, hvort
honum væri ljóst, að landsmenn
ættu vélar, sem notaðar væru til
að framleiða raforku i stórum stil
fyrir erlendan aðila, álverk-
smiðjuna i Straumsvik, sam-
kvæmt samningi.
Ef einhvern samning á að rjúfa
tilað tryggja landsmönnum orku,
þá væri það þessi samningur, en
ekki samkomulagið við þing-
eyska bændur. Slikt væri þá lika
ólikt stórmannlegra, þvi að vissu-
lega væri ekki við kotkarla að
eiga, þar sem Alusuisse auð-
hringurinn er.
Ingvar Gfslason kvaðst hissa á
fyrirspurn Odds ólafssonar og
taldi að hún hlyti að stafa af
ókunnugleika fyrirspyrjanda.
Hann kvað það ekki þarft mál, að
hefja nú enn umræður um stiflu-
gerð i Laxá. Ingvar kvaðst
mótmæla þvi, að Laxárdeilan
KOLOKFILM KALKIPAPPÍR
FYRIR ALLA VÉLRITUN
Smitar ekki — hreinar hendur — hrein afrit ^
Hagstætt verð — endist lengi — bestu gæði.
Einnig Kolok leturborðar i allar rit- og reikni-
vélar.
KOLOKFILM KF10
HEILDVERZLUN AGNAR K. HREINSSON
Bankastræti 10 — sími 16382 — pósthólf 654
Áskrifendur Þjóðviljans
sem fá blaðið sent beint i pósti út um landið, eru vinsamlegast hvattir til að
senda áskriftargjöldin, vegna mikils kostnaðar við að senda póstkröfur.
Einnig erum við þakklátir þeim, sem sjá sér fært að greiða fyrirfram árið,
eða skemmri tima, en áskriftargjaldið er nú kr. 600.- á mánuði. Velja má
um 4 aðferðir til að senda gjaldið;
1. bréflega — 2. 1 póstávisun. — 3. Með giróseðli, beint eða á hlr. 276 i
Vegamótaútibúi Landsbankans i Rvk. og 4. með millifærslu frá næsta útibúi
Landsbankans á áðurnefndan bankareikning, en það kostar ekkert.
Kröfur verða sendar öllum áskrifendum fyrir fyrsta ársfjórðung um næstu
mánaðamót, öðrum en þeim, sem þá hafa gert skil.
Þess er vænst að sem flestir greiði án kröfu og haldi þeirri reglu framvegis.
Geymið auglýsinguna.
DJOÐVIUINN
hafi veriö deila milli Akureyringa
og þingeyskra bænda við Laxá og
Mývatn. Skoðanir Akureyringa
hafi verið mjög skiptar og hann
kvaðst telja, að meirihluti
Akureyringa væri þvi andvigur
að vekja nú upp þetta viðkvæma
deilumál.
Oddur ólafssonkvaðst telja það
furðulegt, ef ekki væri hægt að
leita nýs samkomulags og skyn-
samlegra, þótt „eitthvað hafi
hlaupið i skapið” á bændum.
Heimir Hannesson kvaðst teija
fyrirspurn Odds Ólafssonar mjög
eðlilega.
Leyfum fleiörunum
að gróa
Stefán Jónsson talaði aftur og
sagði Odd mæla af miklum
Framhald á 11. siðu.
115 kenn-
arar á fjór-
um árum
Vilhjálmur Hjálm-
arsson, menntamála-
ráðherra svaraði á alþingi
í fyrradag fyrirspurn frá
Jóni Hannibalssyni, en
Magnús Torfi Ölafsson
mælti fyrir fyrirspurninni,
þar sem Jón situr ekki
lengur á þingi. Spurt var
um kennaraþörf á skyldu-
námsstigi á næstu árum og
f leira.
I svari ráðherrans kom m.a.
fram eftirfarandi: Þörfin á
brautskráðum kennurum frá
Kennaraháskóla Islands er nú
talin 50-70 á ári vegna skyldu-
námsins. Reiknað er með að á
árunum 1974-1977 að báðum
meðtöldum, muni útskrifast frá
Kennaraháskólanum alls 115
kennarar, „en sú tala heimilar
engar ályktanir lengra fram i
timann”, sagði ráðherrann. Á
árunum 1974-1983 er áætlað að
alls muni útskrifast 575 kennarar
á 10 árum.
Skólavörðustig 19 Rvk.
Atvinna ■ Atvinna
H j úkr un ar konur
óskast nú þegar
að Sjúkrahúsinu á Selfossi — Upplýsingar
gefur yfirhjúkrunarkona i sima 99-1300.
Sjúkrahússtjórn.
Starf ljósmóður
i Eyrarsveit Snæfellsnesi er laust til
umsóknar. Starfið veitist frá 1. mai 1975.
Umsóknir sendist sýsluskrifstofunni i
Stykkishólmi fyrir 1. april n.k.
Sýslumaðurinn i Snæfellsnes- og Hnappa-
dalssýslu
Afgreiðslumaður
Viljum ráða vanan afgreiðslumann i
byggingavöruverslun. Upplýsingar á
skrifstofu vorri.
Kaupfélag Hafnfirðinga,
Strandgötu 28, simi 50200.
Hagfræðingar —
V iðskiptaf ræðingur
Seðlabankinn óskar eftir að ráða á næst-
unni hagfræðing eða viðskiptafræðing til
þess að vinna að athugunum á fjármálum
fyrirtækja, einkum i sjávarútvegi og
iðnaði, svo og að almennum athugunum á
fjármálum þessara atvinnugreina. Starfs-
reynsla á þessu sviði er æskileg.
Hafið samband við starfsmannastjóra
bankans i Landsbankahúsinu, Austur-
stræti 11, III. hæð. Skriflegar umsóknir
stilist til bankastjórnarinnar.
Seðlabanki íslands