Þjóðviljinn - 25.06.1975, Qupperneq 12
Miðvikudagur 25. júni 1975.
Munið Alþýðubandalagsferðina sunnudaginn 6. júlí
Opið til kl. 9 í kvöld, sími 28655. Tekið á móti pöntunum og miðar afhentir.
AMIN:
Hvikar hvergi
London 24/6 reuter — Forseti
Uganda, Idi Amin hershöfðingi,
sendi Elisabetu bretadrottningu
orðsendingu i dag þar sem hann
segir að skapsmunir sendiboða
hennar hafi orðið til þess að för
hans til Uganda bar engan árang-
ur.
Sendimaðurinn, sir Chandos
Blair herforingi, fór á fund
Amins, sem er gamall vopna-
bróðir hans i þeim tilgangi að fá
þennan duttlungafulla einræðis-
herra til að ógilda dauðadóm yfir
breska rithöfundinum Denis
Hills. Hafði hann ekki annað upp
úr krafsinu en að aftökunni yrði
frestað til 4. júli nk. en þá verður
hún framkvæmd nema James
Callaghan utanrikisráðherra
breta komi sjálfur til Uganda til
að ræða við Amin.
Eftir fundinn með Blair i gær
ásakaði Amin hann um að hafa
verið drukkinn. Blair neitaði þvi
og fréttamenn taka i sama
streng; hann hafi hins vegar verið
hvitur i framan af bræði er hann
fór af fundi Amins.
Ley ndarskj al
Republica
talið falsað
Paris 24/6 Reuter — Formaður
franska sósialistaflokksins,
Francois Mitterrand, lét i dag i
ljós efa um sannleiksgildi skjals
sem Parisarútgáfa portúgalska
blaðsins Republica birti i gær.
Skjal þetta á að vera komið frá
Kreml og var merkt sem
hemaðarleyndarmál. t þvl voru
ráöleggingar frá Kremlarbænd-
um til vestur-evrópskra
kommúnistaflokka um að ráðast
á blöð sem væru andvig
kommúnistum, læða sinum
mönnum inn i stjórnarstofnanir
og „útrýma” herforingjum.
Skjalið birtist i franska blaðinu
le Qoutidien de Paris en ritstjórn
þess bauðst til að birta efni frá
ritstjóm Republica meðan hún er
útilokuð frá skrifstofum blaðs
sins.
Mitterrand sagði við frétta-
menn að hann tryði þvi ekki að
sovésk leyndarskjöl fæm á slikt
flakk. — Ég hneigist til að trúa.
þvi að þetta skjal eigi sér enga
stoð i veruleikanum, sagði hann,
hlutirnir gerast ekki svona bætti
hann við.
Málgagn franskra
kommúnista, I’Humanité, réðst i
dagá portúgalska sósialista fyrir
að reyna að hafa áhrif á skoðana-
myndun frakka. — Að þessu sinni
skutu þeir yfir markið, sagði
blaðið. — Þeir hafa verið staðnir
að verki við að dreifa fölsuðum
skjölum.
Kvennaráðstefna SÞ:
Langar og þreytandi
áróðursrœður
Mexico City 24/6 ntb —
Sovéski geimfarinn
Valentína Tséreskova bar
fram þá tillögu á kvenna-
ráðstefnu SÞ í dag að
ráðstefnan ályktaði um
stöðvun vopnakapp-
hlaupsins ogaðallar þjóð-
ir drægju úr útgjöldum
sínum til hermála. Slík
álykfun væri mikilvægt
framlag til lausnar
vandamálum kvenna um
allan heim.
Aðrir ráðstefnufulltrúar voru
ekki sammála um svo einfalda
lausn. Fulltrúi Júgóslaviu kvað
stjórn sina vera andviga svo-
nefndri „feministahreyfingu”
þar sem hún legði málin ekki
rétt upp. — Konur verða að
sameinast hinni vinnandi stétt i
baráttu fyrir félagslegum fram-
förum, sagði fulltrúi Júgó-
slaviu, Vida Tomuic.
Annars eru fulltrúar margir
hverjir orðnir langþreyttir á
löngum áróðursræðum sem oft
snerta jafnréttismálin harla
litið. Það vakti þvi kátinu er
fulltrúi kinverja sagði að henni
fyndist hún hvergi njóta jafn-
réttis nema i sinu heimalandi. —
1 öllum öðrum löndum sem ég
hef heimsótt hefur fólk miklu
meiri áhuga fyrir manninum
minum en mér, sagði hún.
Fulltrúar kvennahreyfingar
Puerto Rico ásökuðu á blaða-
mannafundi i dag Bandarikin
um að nota púertórikanskar
konur sem tilraunadýr við
framþróun aðferða við getn-
aðarvarnir. Héldu þeir þvi fram
að á undanförnum árum hefðu
340 þúsund púertóriskar konur
verið gerðar ófrjóar i herferð
sem kostuð væri af Bandarikj-
unum og öðrum rikjum.
Þessi mynd er tekin i Kaupmannahöfn siðastliðinn iaugardag en þá
fóru kynvillingar af báðum kynjum í kröfugöngu til að leggja áherslu á
kröfur sinar um jafnrétti á við réttkynjaða og einnig til að minnast
merks áfanga sem félagar þeirra i Bandarikjunum unnu fyrir sex ár-
um er þeir hrundu af höndum sér árásum lögreglu á klúbba sem þeir
sóttu. Göngunni lauk i Fælledparken þar sem haldnar voru ræður og
sungnir baráttusöngvar.
COMECON:
Ræðir 5 ára áætlun
Búdapest 24/6 Reuter. í dag hófu
fulltrúar Comecon-rikjanna
viðraiður i Búdapest en þær snú-
ast um cfnahagssamvinnu land-
anna innan ramma næstu fimm
ára áætlunar en hún spannar árin
1976-80.
Innan Comecon eru nú niu riki:
Sovétrikin, Pólland, Þýska
alþýðulýðveldið, Tekkóslóvakia,
Ungver jala nd , Búlgaria,
Rúmenia, Mongólia og Kúba. 011
rikin sendu valdamikla ráðherra
á fundinn nema Kúba sem sendi
aöstoðarráðherra.
Búist er við að umræður um
orku og hráefni verði efst á baugi
á fundinum. Sovétmenn hækkuðu
verð á oliu sem þeir seldu til ann-
arra Comeconrikja um 130% i
janúar sl. Við þessa hækkun
versnuðu viðskiptakjör margra
aðildarlandanna mjög, þvi
verðhækkun á fullunnum
iðnaðarvörum og landbúnaðar-
vörum sem sovétmenn kaupa af
hinum rikjunum var óveruleg
miðað við oliuhækkunina. Einnig
má gera ráð fyrir að rúmenar
viðri þá kröfu sina að hinum
snauðari rikjum bandalagsins
verði leyft að hraða iðnþróun
sinni i sama mæli og t.d.
Tékkóslóvakia og Þýska alþýðu-
lýðveldið gera.
PORTÚGAL:
Allt með
kyrrum
kjörum
Lissabon 24/6 Reuter. — Allt var i
ró og spekt i Portúgal i dag eftir
að mikil spenna hafði rikt i
stjórnmáium landsins I rúma
viku. Ástæðan var fyrst og fremst
sú að svo til allir leiðtogar hersins
og flokkanna voru i Mósambik
vegna iýðveldisstofnunar þar i
landi.
Fréttabréf Herjahreyfingar-
innar, MFA, sem gefið er út
hálfsmánaðarlega fagnaði i dag
upplausn portúgalska heimsveld-
isins og sagði að hún ásamt
frábærum sigrum i Vietnam,
Kambodju og Laos væru hluti af
öflugri byltingarhreyfingu i
heiminum. Framsókn hreyfing-
arinnar ,,er trygging fyrir þvi að
endanleg úrslit heimsátakanna
verða fullkominn sigur sóslalism-
ans”.
Fulltrúi Portúgalsstjórnar i
Angóla, Antonio Silva Cardoso
hershöfðingja, sagði i dag að bar-
dagar hefðu brotist út að nýju i
Luanda, höfuðborg Angóla, milli
frelsishreyfinganna. Sakaði hann
hreyfingarnar um að brjóta gegn
þvi samkomulagi sem leiðtogar
þeirra hafa náð i Kenýa. Útvarpið
I Luanda greindi hins vegar ekki
frá neinum vopnaviðskiptum i
daglegri útsendingu þess til
Lissabon og engin opinber yfir-
lýsing hefur verið gefin út um slik
átök.
erlend
Árangursrikur
vasaþjófnaður
London 24/6 reuter — íranskur
ferðamaður i London varð i dag
fornarlamb vasaþjófa sem höfðu
af honum meira fé en vitað er til
að slikir náungar hafði haft upp
úr einum þjófnaði til þessa.
Iraninn stóð á brautarpalli
neðanjarðarstöðvarinnar á
Piccadilly Circus er tveir náung-
ar komu aðvifandi. Annar ýtti við
honum meðan hinn fiskaði jafn-
virði sjö þúsund sterlingspunda
(tæplega 2.5 miljónir isl. kr.) upp
úr vösum hans. traninn slóst við
þjófana og fékk liðsstyrk tveggja
vina sinna en þjofarnir komust á
brott með fenginn.
Talsmaður lögreglunnar sagði
er hann frétti af þessu: —
Þrjótarnir hafa eflaust orðið
steinhissa þvi venjulega hafa þeir
ekki nema um 20 pund af hverjum
manni.
Samningur um
bann við
veðurhernaði
Washington 24/6 ntb — Bandarik-
in og Sovétrikin hafa komist að
samkomulagi um að raska ekki
hlutleysi veðurguðanna ef til
átaka kæmi milli rikjanna.
Rikin hafa komið sér saman um
höfuðatriðin i samningi um að
beita ekki veðurfarsbreytingum
sem vopni i hugsanlegum átök-
um. Er talið að leiðtogar rikj-
anna, F'ord og Brésjnef, muni
undirrita samninginn á fundi sem
halda á i Washington i haust.
Embættismennirnir sem þátt
tóku i umræðum um samninginn
segja að ekki hafi verið erfitt að
komast að samkomulagi um
þetta atriði þar sem báðum aðil-
um séu ljósar þær ógnvænlegu af-
leiðingar sem veðurhernaður
gæti haft i för með sér.
Aftur barist
í Líbanon
Beirut 24/5 reuter — Skotbardag-
ar hófust aftur i úthverfum Beirut
i Libanon i dag eftir að vopnahléð
milli falangista og palestinu-
araba hafði verið virt i þrjár vik-
ur.
Ekki er vitað hvernig átökin
hófust en liklegt þykir að þau hafi
byrjað með smáskærum, jafnvel
slagsmálum út af kvenmanni.
Andrúmsloftið i borginni er svo
hlaðið spennu að þar má ekkert út
af bera. Eingöngu falangistar
áttu hlut að máli i átökunum en
þau kostuðu 2 menn lifið og 16
særðust.
Rashid Karami sem Suleiman
forseti fól að mynda rikisstjórn
fyrir fjórum vikum reynir enn að
koma saman starfshæfri stjórn en
miðarlitið. Eftir að átökin hófust
i dag mættu leiðtogar hinna ýmsu
hagsmuna- og trúarhópa á fund
Karamis til þess að finna leiðir til
að stöðva þau. Meðan Karami
reynir, annast átta manna
ráðunéyti undir stjorn 83 ára her-
foringja á eftirlaunum dagleg
stjdrnarstörf.
Spánn:
Aðgerðir gegn
kommúnistum
hertar?
Madrid 24/6 reuter ntb —
Spænska stjórnin skýrði frá þvi i
dag að hún myndi herða enn að-
gerðir sinar og eftirlit með starf-
semi kommúnista i landinu.
Þetta kom fram i ræðu sem
Carlos Arias Navarro forsætis-
ráðherra hélt i þingi Spánar i
dag. Þar sagði hann ma. að hann
áliti landflótta kommúnista
stærstu hindrunina i vegi þróunar
stjórnarhátta i landinu frá ein-
veldi til konungdóms. Hann réðst
ennfremur á aðrar andófs-
hreyfingar þeirra á meðal ETA,
frelsishreyfingu baska.
Fréttamenn lita svo á að með
þessum ummælum hafi Arias
verið að róa æstustu hægri-öfl
landsins en þeim finnst nú mjög
að sér þrengt eftir velgengni
kommúnista i nágrannalöndun-
um Portúgal og Italiu. Létu
margir fréttamenn i ljós ugg um
að ræðan boðaði auknar lögreglu-
aðgerðir gegn kommúnistum,
verkalýðshreyfingunni sem er
bönnuð og samtökunum Junta
Democratico sem eru breiðfylk-
ing fjölmargra andfasiskra
hreyfinga og flokka.