Þjóðviljinn - 19.07.1975, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 19.07.1975, Qupperneq 5
Laugardagur 19. júll. 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Angólskur harmleikur Þaö á ekki af angólu- mönnum að ganga. í meira en áratug háðu sjálfstæðishreyf ingar þeirra styrjöld gegn portúgalska nýlenduveld- inu, og kostaði sú barátta meiri blóðfórnir og annað tjón en nokkrar áreiðan- legar heimildir eru til um. Og nú er ekki annað sýnna en að borgara- styrjöld taki við af frels- isstríðinu. Portúgalar eiga nokkra sök á þvi, að ekki horfir betur. Angóla er frá náttúrunnar hendi auðug- ust af hinum fyrrverandi þrem- ur Afrikunýlendum Portúgals og voru portúgalar tregastir til að sleppa af henni hendinni fyrir fullt og allt. Þessarar tegðu gætti verulega meðan Spinóla var við völd i Portúgal. Stjórn hans létAngóiu mæta afgangi, þegar samið var við sjálfstæðis hreyfingar nýlendnanna þriggja. Vestrænir auðhringar og rikisstjórnir, sem voru með i ráðum þegar stjórnarbyltingin var gerð með Spinola á oddin- um, hafa sjálfsagt stuðlað að þeim seinagangi, enda hafa auðhringarnir þegar fjárfest mikið i Angólu og vilja gera meira af svo góðu. Þegar Spinola-stjórnin kom sér loksins að þvi að semja við angólu- menn, samdi Mario Soares, þá- verandi utanrikisráðherra Portúgals, ekki við hinar þrjár sjáifstæðishreyfingar Angólu saman, heldur hverja i sinu lagi, alveg i anda þeirrar gömlu meginreglu að deila og drottna. Hvað þetta snerti varð ekki breyting á stefnu portúgölsku stjórnarinnar fyrr en Spinola hafði verið steypt af stóli haust- ið 1974. Þrjár sjálfstæðishreyfingar Þær þrjár sjálfstæðishreyf- ingar, sem allar gera kröfu til að teljast hin eina rétta frelsis- hreyfing angólumanna eru Al- þýðuhreyfingin til frelsunar Angólu (MPLA), Þjóðfylkingin til frelsunar Angólu (FNLA) og Þjóðarsambandið til algers sjálfstæðis Angólu (UNITA). MPLA er vinstrisinnuð hreyfing og virðist hafa miklu meiri og viðtækari stuðning i landinu sjálfu en hinar tvær, enda mun hún hafa borið hita og þunga frelsisbaráttunnar gegn portú- gölum þeim mun meir sem lengur leið á það strið. MPLA nýtur stuðnings Sovétrikjanna og fær að sögn vopn þaðan og frá fleiri Austur-Evrópurikjum. Skáldið Agostinho Neto, leiðtogi MPLA, hefur jafnframt þessu lagt áherslu á að.stefna hreyf- ingarinnar væri þjóðlegur, angólskur sósialismi, sem ekki standi nær einu sósialiska stór- veldinu fremur en öðru. (Ein af siðustu fregnunum frá Angólu var á þá leið að Neto hefði verið vikið frá völdum i hreyfingunni og að við hefði tekið yfirmaður hersveita MPLA.) Stuðningsaðilar FNLA FNLA er hægrisinnuð hreyf- ing og fylgi hennar að mestu takmarkað við Bakongó-þjóð- flokkinn, sem er fjölmennur i Angólu norðanverðri, vestast i Zaire og i suðurhluta alþýðulýð- veldisins Kongó. Þröngsýnnar ættbálks- og jafnvel kynþátta- hyggju þykir gæta i stefnu FNLA. Hve fylgi hennar i sjálfri Angólu er takmarkað má marka af þvi, að hún hefur aðal- bækistöðvar sinar i Zaire, og er Holden Roberto, leiðtogi hreyf- ingarinnar, mágur Mobutus valdsmanns þar i landi. Fer ekki leynt að Mobutu styður mág sinn með ráðum og dáð eft- ir þvi sem hann getur og þorir. FNLA er talin hafa meira lið undir vopnum en MPLA, en lið MPLA er hinsvegar talið standa framar hvað snertir þjálfun og vighæfni. * FNLA á sér fleiri hauka i horni erlendis en Mobutu einan. Sigurglaðir angólskir skæruliðar — nú berjast þeir hver viðannan. Vitað er að Bandarikin og vest- ræna auðvaldið yfirleitt hafa veitt hreyfingunni mikinn stuðning, I von um að koma með þvi i veg fyrir að vinstrimenn- irnir i MPLA komist til valda i Angólu. Einnig hefur þvi verið fleygt að Kina væri hlynnt FNLA, liklega þá vegna þess að kinverjar gruni framámenn MPLA um að hallast að Sovétrikjunum. UNITA Þriðja hreyfingin, UNITA, er enginn bógur á móts við hinar og hefur að mestu staðið utan við átökin milli þeirra. Fylgi hennar er að mestu takmarkað við svæði syðst i landinu. Heldur mun hún vera hægrisinnuð og herma sumar blaðafregnir að vestræna auðvaldið renni til hennar stöðugt hýraraauga og styrki hana með vopnum og fjárframlögum. Mikil þykkja er nú milli Bandarikjanna og Zaire sökum þess að siðarnefnda rikið telur að bandariska leyniþjón- ustan, CIA, hafi staðið að sam- særi gegn Mobutu, og dregurvist enginn sennileika þeirrar ásök- unar i efa eftir að bandarískir framámenn hafa nú sjálfir stað- fest fjölmargar þær sakir, sem aðrir höfðu borið á CIA svo ár- um eða jafnvel áratugum skipti. Vera kann að þessi deila hafi valdið þvi að einhver snurða hafi hlaupið á þráðinn milli Vesturlandaauðvaldsins og FNLA i bili, og hafi auðvaldið þvi i bráðina tekið það ráð að efla itök sin i Angólu gegnum UNITA. Allir girnast Cabinda Af Afrikurikjum er vitað að Kongó, sem lýsti sig alþýðulýð- veldi fyrir nokkrum árum, styð- ur MPLA, en það er máttlitið smáriki svo varla munar mikið um stuðning þess. Samkomulag Kongó við stóra nágrannann Zaire er hið versta, svo að hvað eftir annað hefur legið við striði milli rikjanna. Bæði þessi riki hafa ágirnd á landskikanum Cabinda, sem heyrir til Angólu en er skilinn frá angólsku landi af norðurbakka Kongófljóts, sem heyrir undir Zaire. Þar er mikil olia i jörðu, og mun ekki ofmælt að Cabinda sé nú sá skiki i Afriku sem athygli jafnt af- rikumanna sem annarra beinist hvað mest að. Þótt Kongó og Zaire styðji hvort sina sjálf- stæðishreyfinguna i Angólu, þá hafa þau bæði i Cabinda á sinum snærum hreyfingar, sem vinna að skilnaði skikans frá Angólu. Angólumenn sjálfir taka það auðvitað ekki i mál að sleppa hendinni af þessum oliuauðuga bletti, hvar i flokki sem þeir standa. Varla þarf að taka fram að vestræna oliuauðvaldið iðar i skinninu eftir að klófesta Ca- binda-oliuna með einhverju móti og stefna Vesturlanda gagnvart Angólu og grannrikj- um hennar i norðri mun vænt- anlega á næstunni fyrst og fremst miðast við það. Sýndarsætt i Nakuru Ekki eru nema þrjár vikur siðan leiðtogar sjálfstæðis- hreyfinganna þriggja i Angólu kysstust og föðmuðust i Nakuru i Keniu, þar sem þeir i orði kveðnu höfðu gert út um deilu- mál sin undir leiðsögn Jomos Kenyatta. Það hefur nú komið á daginn, sem marga grunaði, að sú sætt var fyrst og fremst á yf- irborðinu. Kannski ekki hvað sist vegna þess, að i Angólu eru að verki öfl, sem leiðtogarnir ráða aðeins að takmörkuðu leyti eða alls ekki við. Þar á meðal má nefna rótgróna tortryggni milli hreyfinganna, tortryggni sem á rætur sinar i valdabar- áttu, ættbálkahyggju og mis- munandi pólitiskum viðhorfum. Engu minni friðarspillar eru sennilega auðhringarnir og stórveldin, sem vilja að visu frið i Angólu, en aðeins með eigin skilyrðum. Hversu sem fer i Angólu er ljóst að hin blóðugu átök þar hafa þegar valdið miklu og margvislegu tjóni. Fólk af portúgöslskum ættum, sem bjó þar svo hundruðum þúsunda skipti, flýr nú i látlausum straumi til Portúgals. Þar á meðal er fjöldi fólks með menntun og tækniþekkingu, sem vanþróað land eins og Angóla hefur sára þörf fyrir. dþ. Hvar sem smáfiskur finnst þarf að friða það svæði sagði Ingvar Hallgrímsson fiskifrœðingur í viðtali við Þjóðviljann Símagjöld hækka ekki Ritstjóri Þjóðviljans. I grein um talsambandið við út- lönd, sem birtist i blaði yðar i gær/sunnudaginn 13. júli 1975, er haft eftir mér, að bygging jarð- stöðvar á Islandi fyrir fjarskifti um gervihnetti muni óhjákvæmi- lega leiða til lækkaðra sima- gjalda til útlanda. Hér hefur ein- hver misskilningur orðið milli blaðamannsins og min, þvi að at- huganir þær, sem gerðar hafa verið á stofn- og reksturskostnaði slikrar stöðvar, benda alls ekki til þess, að bygging hennar hafi i för með sér hækkuð gjöld. Hins vegar spurði blaðamaður- inn, hvort uppbygging simakerf- isins innanlands og þá einkum langlinukerfisins gengi að minum dómi nógu hratt fyrir sig. Svaraði ég þvi neitandi en til þess að svo gæti orðið þyrfti meira fram- kvæmdarfé. Þar eð Póstur og simi fjármagnar allar fram- kvæmdir sinar sjálfur, fæst slikt fé ekki nema með hækkun sima- gjalda. Þar eð meint ummæli min i greininni gætu hæglega valdið neikvæðri afstöðu lesenda.yðar og ráðamanna gagnvart byggingu jarðstöðvar hér á landi, en stöðin er þjóðinni hið mesta þarfaþing bið ég yður vinsamlegast að birta þessa leiðréttingu. Virðingarfyolst, Gústav Arnar. — Auðvitað fagna ég útfærslu landhelginnar i 200 mllur eins og allir islendingar, en alveg eins og þcgar við færðum út I 50 milurnar á sinum tima hef ég áhyggjur af þvi hvað tekur við þegar þessi svæði komast undir stjórn okkar sjálfra og þessi ótti minn hefur ekki minnkað og ég sé ástæðu til að endurtaka þetta nú, en þessari skoðun minni lýsti ég yfir sem forstjóri Hafrannsóknarstofnun- arinnar 1972, sagði Ingvar Hall- grlmsson fiskifræðingur er við spurðum hann álits á útfærslunni i 200 milur, og væntanlegum samningum við aðrar þjóðir um veiðiheimildir. — Hvað er það þá sem þú ótt- ast? — Ég óttast mikið að við veið- um óskynsamlega, að við göngum of mikið á fiskistofnana og sér- staklega óttast ég það að aðal nytjafiskur okkar, þorskurinn, fari illa, nema sérstakar ráðstaf- anir verði gerðar. — Finnst þér að það sem þú óttaðist við útfærsluna I 50 milur hafi komið i ljós? — Að vissu marki. En það hef- ur ýmislegt áunnist við út- færsluna i 50 milur,eins og til að mynda það að bresk skip veiða minna hér en áður. Þeir voru miklir smáfiskadráparar bretar og það hefur minnkað, en hins- vegar hafa smáfiskveiðar islend- inga aukist stórum og þegar mað- ur athugar þróun mála, þá hlaut þetta að gerast eftir að allir þeir stóru bátar sem áður veiddu sild voru settir á togveiðar i kringum landið. — Eitt er það sem gleður mig mjög en það er að tekið hefur ver- ið aukið tillit til þeirra tillagna sem við fiskifræðingarnir lögðum til við útfærsluna i 50 milur. Sem dæmi má nefna að við lögðum til að 12milna friðunarsvæði yrði við Kolbeinsey, það er komið á, en það hefði þurft að breyta friðaða svæðinu á Selvogsbankanum. Það svæði snýr ekki rétt, það gengur norður og suður en þyrfti að snúa i austur og vestur. Eins og það er nú liggur það að hluta til fyrir ut- an það dýpi sem hægt er að toga á, en ef það lægi i austur og vest- ur, lægi það eftir kantinum. — Hvað vilt þú leggja til I sam- bandi við undanþágusamninga sem virðast vcra fyrirhugaðir um veiðiheimild innan 200 milnanna? — Það liggur i augum uppi að núverandi veiðiheimild þarf að breyta ef þessi útfærsla á að færa okkur einhvern hagnað. Það skiptir ekki máii fyrir til að mynda belgiumenn og breta, sem þegar hafa hér veiðiheimildir, hvort við látum landhelgina ná 50 Framhald á bls. 10

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.