Þjóðviljinn - 19.07.1975, Blaðsíða 10
10 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 19. júlt. 1975.
Alþýðubandalagið
Styrktarmenn Alþýðubandalagsins eru minnt-
ir á árlegt framlag sitt til flokksins. Giróseðlar
hafa verið sendir út.
Nýir styrktarmenn sendi framlag sitt til skrif-
stofu flokksins Grettisgötu 3 eða á hlaupa-
reikning nr. 4790 i Alþýðubankanum.
Vegna sumarleyfa verður skrifstofa Alþýðu-
bandalagsins Grettisgötu 3 aðeins opin frá kl.
14 til 18 alla virka daga frá 7. júli til 15. ágúst.
Meinatæknar
Meinatæknir óskast frá 1. september nk.
Upplýsingar gefur priorinnan i sima 93-
8128.
St. Fransiskusspitalinn,
Stykkishólmi.
Tilkynning um
ísetningu
ökumæla
Með tilvisun til ákvæða i reglugerð nr.
282/1975 hefur fjármálaráðuneytið ákveð-
ið eftirfarandi fresti til isetningar öku-
mæla i þau ökutæki sem búin skulu öku-
mæli til þungaskattsákvörðunar.
I. Tengi og festivagnar sem eru 6 tonn
eða meira að leyfðri heildarþyngd
skulu frá og með 15. ágúst nk. búnir
ökumælum.
II. Disilknúnar vöru- og fólksflutninga-
bifreiðar sem eru 4 tonn eða meira að
leyfðri heildarþyngd skulu frá og með
1. september nk. búnar ökumælum.
III. Disilknúnar leigubifeiðar fyrir allt að
8 farþega skulu frá og með 25. septem-
ber nk. búnar ökumælum.
Gjaldskylda þungaskatts skv. ökumæli
hefst frá og með 15. ágúst, 1. september
eða 25. september eftir þvi hvaða ökutæki
eiga i hlut. Frá sama tima er óheimilt að
nota framangreind ökutæki hafi þau ekki
verið búin ökumæli af viðurkenndri gerð.
VDO verkstæðið Suðurlandsbraut 16,
Reykjavik, simi: 35200,veitir frekari upp-
lýsingar um isetningu mælanna.
Fjármálaráðuneytið, 18. júlí 1975.
Sérfræðingur
Staða sérfræðings við Slysadeild Borgarspltalans er laus
til umsóknar.
Umsækjandi skal hafa sérmenntun í bæklunarsjúkdómum
forthopedi) eða almennum skurðlækningum.
Reynsla i slysalækningum æskileg.
Staðan veitist frá 1. okt. eða eftir nánara samkomulagi.
Laun samkvæmt kjarasamningi Læknafélags Reykjavlk-
ur og Reykjavlkurborgar.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf
sendist stjórn sjúkrastofnana Reykjavíkurborgar fyrir 25.
ágústn.k. Nánari upplysingar um stöðuna veitir yfirlækn-
ir deildarinnar.
Reykjavík, 19. júlí 1975.
Stjórn Sjúkrastofnana Reykjavfkurborgar.
Yiðtalið
Framhald af bls. 5.
eða 200 milur út ef veiðiheimild
þeirra verður ekki breytt, þeir
hafa þessar heimildir eftir sem
áður.
— Menn tala um að stækka
friðuðu svæðin og er ekkert nema
gott um það að segja, en það sem
við þurfum að gera öðru fremur
er að finna svæðin sem smáfisk-
urinn heldur sig á á hverjum
tima, fylgja honum eftir og friða
hann þar sem hann er hverju
sinni. Ef við friðum svæði þar
sem mikill smáfiskur er i dag og
höldum þvi friðuðu i segjum tvo
mánuði, þá getur verið að smá-
fiskurinn sé genginn útaf svæði
löngu áður en timinn er útrunn-
inn. Menn mega ekki lita á smá-
fisk eins og ljón i búri i dýragarði.
Þú getur gengiö að ljóninu visu á
sinum stað I dýragarðinum, en
það getur enginn gert svo smá-
fiskinn i hafinu. Ég held þvi að
fátt sé verðugra verkefni fyrir is-
lenskar hafrannsóknir heldur en
að fylgjast með smáfiskinum þar
sem hann er á hverjum tima og
þaö svæði þarf að friða hverju
sinni.
— Þess vegna er ég hrifinn af
þeim ummælum ráðamanna und-
anfarið að það verði gerð gang-
skör að þvi að vernda smáfiskinn
meira en gert hefur verið. Slik
ummæli gleðja mig mjög sagði
Ingvar Hallgrimsson að lokum.
—S.dór
Tölva
Framhald af bls. 9.
mörgum erum við búnir að greiða
margfalt verðgildi talvanna og
þar að auki fastir I neti vegna inn-
lendrar vinnu við kerfið. Þetta er
samsvarandi þvi að fyrirtæki eða
einstaklingur væri i leiguhúsnæði
og greiddi i ársleigu fjórung af
verðmæti húsnæðisins, þannig að
eftir fjögur ár væri greitt i leigu
sama verð og eignin kostaði.
Aftur á móti veitir það visst
öryggi I fyrirtækjum, sem versla
við IBM hringinn, hversu stór.
hann er og litil hætta á að hann
leggi niður starfsemi sina, en
þetta öryggi greiðir auðvitað
neitandinn og það með gifurlegu
verði.
IBM er risafyrirtæki, það
hentar vel stórþjóðum. Island er
fámennt land, fyrirtæki þess og
stofnanir þess eru litlar, og I dag
bjóðast margar gerðir af marg-
'alt ódýrari og þagilegri tölvum,
sem henta betur okkar fjárhags-
getu, tölvur með stækkunar-
möguleika eftir þörfum hvers
fyrirtækis þannig að hlaup á milli
stofnana vegna tölvuvinnslu eru
óþörf.
Ég vik aftur að upphafsorðum
minum: Svo mikið má auglýsa að
það fari að virka öfugt. Varla
opnar maður svo útvarp, og sjón-
varp eða litur I dagblöðin aö ekki
sé IBM þar annaðhvort með aug-
lýsingar eða stórfréttir af afrek-
um sölumanna sinna, sem enn
hafi bætt við áður unnin söluafrek
og leigt okkur islendingum eina
tölvuna enn, fyrir þetta og þetta
margar tugmiljónir á ári.
Forráðamenn stofnana, fyrir-
tækja og skattgreiðendur, er
þetta ekkert farið að vekja spurn-
ingar ykkur um hvort IBM sé
virkilega eina tölvufyrirtækið i
heiminum?
örn Jónsson.
Meiri
niðurskurð
Verslunarráð Islands sendi frá
sér ályktun I gær þar sem það
lýsir yfir, að það telji rikisstjórn-
ina hafa verið á réttri leið til
lausnar fjárhagsvanda rikissjóðs,
þegar niðurskuröurinn var á-
kveðinn.
Siðan segir: Verslunarráðið
telur að rikisstjórnin hefði ekki
átt að hvika frá þeirri stefnu að
skera niður 3.500 miljónir af fyr-
irhuguðum rikisútgjöldum og að
rangt hafi verið að setja á 12%
vörugjald.”
I lok ályktunarinnar fer ráðið
fram á að rikisstjórnin hafi sam-
ráð við samtök viðskiptalifsins
við undirbúning laga um nýjar
tekjuöflunarleiðir.
ÞURRKAR í
Hinir gifurlegu burrkar. sem
staðið hafa yfir i Sómaliu undan-
farin fjögur ár, eru nú loksins á
enda, en þær miklu eyðilegging-
ar, sem þeir hafa haft i för með
sér, mun taka mörg ár að bæta.
Samkvæmt opinberum tölum er
áætlað að yfir 20 þúsund manns
hafi látist og um fjórðungur hús-
dýra landsmanna hafi fallið.
Þurrkarnir höfðu áhrif á um 2/3
landsins, sem er stærra en
Frakkland, Sviss og Hoiland til
samans, og telur Sómaliustjórn
að þetta hafi kostað landið um
227,7 milj. sterlingspunda.
Árið 1966 var talið að húsdýra-
eign sómaliumanna væri um 22
miljónir. Talið er að um 5 milj.
sauðfjár og geita, 1 miljón naut-
gripa og 300 þús. úlfaldar hafi dá-
ið á þessum fjórum árum, sem
ekki hefur rignt. Aðalfram-
leiðsluvaran i landbúnaði, banan-
arnir, fóru mjög illa og er fram-
leiðsla þeirra talin vera 10%
minni en árið 1972. Korn fyrir um
8,5 miljónir sterlingspunda er tal-
ið ónýtt.
Núna, þegar regnið hefur loks-
ins komið, ætlar sómaliustjórn að
hefja félagslegar tilraunir, sem
taldar eru einstakar i sinni röð, en
það er að fá hriðingja til að gerast
bændur og fiskimenn.
Tilraun þessi á að ná til 200 þús.
manns, en forfeður þeirra hafa
veriö hirðingjar eins langt aftur
og vitað er, og á að flytja þá frá
búðum þar sem þeir hafa verið
yfir þurrkatimann til frjósamra
akuryrkjusvæða og niður til
Landsliðið
Framhald af bls 8.
Óskar Jakobsson spjótkast og
kúluvarp
Konur:
Ingunn Einarsdóttir 400 m hlaup
Þórdis Gisladóttir hástökk
Lilja Guðmundsdóttir 1500 og 800
m hlaup
María Guðjohnsen 100 m hlaup.
Svanbjörg Pálsdóttir spjótkast
Asta Gunnlaugsdóttir 200 m hlaup
Erna Guðmundsdóttir 100, 200 m
hlaup, langstökk, 100 m grindahl.
Ingunn L. Bjarnadóttir 3000 m
hlaup
Lára Sveinsdóttir langstökk, há-
stökk og 100 m grindahlaup
Sigrún Sveinsdóttir 800 og 400 m
hlaup
Arndis Björnsdóttir spjótkast.
Ragnhildur Pálsdóttir 1500 m og
3000 m hlaup
Guðrún Ingólfsdóttir.Kúluvarp og
kringlukast,
AÐALFARARSTJÓRI verður
Sigurður Ilelgason.
Fundur verður með landsliðsfólk-
inu I íþróttamiðstöðinni á mánu-
dag kl. 8. Áriðandi að allir mæti.
Frjálsiþróttasamband tslands.
Ráðstefna
Framhald af bls. 9.
ráðstefnunni s.s. um „Kvenna-
árið”. stöðu kvenna i atvinnu-
lifinu, skóla- og uppeldismál og
baráttuna fyrir friði.
Nefndarkonur fengu tækifæri til
að kynnast stofnunum og starf-
semi I D.D.R. og vináttufundur
var haldinn með konum frá
Vestur-Þýskalandi.
a) Það er álit okkar islensku
kvennanna, að undraverðum
árangri þafi verið náð i Þýska
Alþýðulýðveldinu, á þeim 30
árum sem liðin eru siðan friður
komst á i Evrópu, á sviði
félagsmála og við uppbyggingu
atvinnulifsins.
b) Nefndinni virtist augljóst, að
konur eru virkar á öllum
sviðum atvinnulifsins, og að
þærhafa sömu laun fyrir sömu
vinnu.
c) Nefndin álitur, að konur i
Þýska Alþýðulýðveldinu hafi i
framkvæmd, möguleika til
menntunar og til stjórnmála-
starfa.
d) Islenska kvennanefndin á
Eystrasaltsvikunni 1975 telur
það megin-markmið Eystra-
saltsvikunnar, að tryggja frið.
við Eystrasalt. Þetta stórmál
hljóta allar konur við Esytra-
salt og á Norðurlöndum, að
vera sammála um, og að
Kvennaráðstefnan I Rostock sé
mikilvægur liður i samstarfi
friðelskandi þjóða.
Nefndin.
SÓMALÍU
strandarinnar. Tilraun þessi
verður bæði erfið og kostnaðar-
söm og hefur forseti Sómaliu,
Siad Barre, farið fram á aðstoð
viðsvegar að úr heiminum, og
hefur m.a. verið farið fram á
tæki, hús, skóla, sjúkrahús o.fl.
Fyrsta rikið til að svara hjálpar-
beiðninni voru sovétmenn og hafa
þeir þegar sent 12 risaþotur af
Antonov-gerð og um 165 flutn-
ingabila til að flytja hirðingjana
tilsinna nýju heimkynna. Þá hafa
sovétmenn sent báta, viðgerðar-
verkstæði fyrir báta, æfingabúðir
og timbur til húsbygginga.
Aðalvandamálið við þessa
áæflun er það, að taiið er að um
65% þeirra, sem verða fluttir, eru
konur og börn, þar sem karl-
mennirnir hafa haldið sig frá búð-
unum.
Kirkjukór í
tónleikaför
Laugardaginn 19. júli kom
hingað til lands kór frá Lurup-
er Kantorei i Hamborg. 1 ferð-
inni eru um 40 kórfélagar og
byrja þeir söngför sina með
þvi að syngja við samkomu á
Skálholtshátið sunnudaginn
20. júli. Næsta dag verður ekið
að Gullfossi, Geysi og Þing-
völlum og siðan á Akranes, en
þar syngur kórinn i Akra-
neskirkju þriðjudaginn 22. júli
kl. 21. A Akranesi munu kór-
félagar skoða m.a. Byggða-
safnið i Görðum og Sements-
verksmiðjuna.
Þá verða tónleikar i Akur-
eyrarkirkju firnmtudaginn 24.
júli kl. 21, og siðan föstudaginn
25. júli i Skjólbrekku i
Mývatnssveit, en þar verður
meira veraldleg efnisskrá.
Á kirkjutónleikunum kemur
einnig fram organleikarinn
Jiirgen Henschen, einnig
sópransöngkonan Angelika
Borns og altsöngkonan Meta
Richter. Stjórnandi er Ekke-
hard Richter.
Að loknum söng i Skjól-
brekku heldur kórinn suður
Sprengisand og syngur að
þeirri ferð lokinni i Reykja-
vik, eða föstudaginn 1. ágúst i
Háteigskirkju.
Stjórnandi kórsins var
nemandi hins blinda orgel-
snillings M.G. Förstemann
prófessors, er heimsótti Island
fjórum sinnum. Ekkehard
Richter var um likt leyti við
nám og fjórir islendingar er
stunduðu orgelnám hjá
Förstemann i Hamborg, en
þeir eru Guðmundur Gilsson,
Haukur Guðlaugsson, Máni
Sigurjónsson og Jón G.
Þórarinsson. Hafa þeir að
miklu leyti séð um skipu-
lagningu ferðarinnar hér
heima.
•
Heimilt að
veiða 1100
hreindýr
Samkvæmt fréttatilkynn-
ingu frá menntamálaráðu-
neytinu verður heimilað að
veiða 1100 hreindýr á Austur-
landi I ár. Ekki er þó hverjum
sem er heimiit að stunda þess-
ar veiðar, heldur fá vissir
hreppar hlutdeild I veiðinni
sem svo ákveða hverjir fá
veiðileyfi.
1 fyrra var heildarfjöldi
hreindýra um 3700 og heimilað
var að drepa 850 dýr Talning
hefur ekki farið fram I ár.
Talið er nauðsynlegt að j
stofninn sé 2-3000 dýr svo ekki1
sé hætta á útffýmingu. En
hins vegar má hann ekki
verða svo stór að hreindýrin
valdi verulegum ágangi á
heimalönd.
Undanfarin ár hefur borið á
þvi að sums staðar hafa hrein-
dýr veslast upp. Reynt verður
að koma I veg fyrir það með
þvi að hafa. fóður tiltækt á
þeim stöðum.
Veiðitimi hreindýra 1975 er
frá 1. ágúst til 15. september.