Þjóðviljinn - 30.07.1975, Page 8
8 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 30. júli 1975.
Sundmeistaramót íslands í Laugardal:
Þórunn Alfreðsdóttir
kom með þrjú ísl.met
Sundfólkiö okkar er
ungt og lofar góöu
Meistaramót íslands í sundi tókst prýðiiega og gaf af
sér betri árangur en búast hefði mátt við eftir þeim öldu-
dal að dæma, sem íslenskt sundfólk virðist hafa verið í.
Á þessu móti kom þó i Ijós að sundfólk okkar er ungt og
lofar góðu í framtiðinni/ þ.e.a.s. ef það hættir ekki sund-
iðkun á besta aldri eins og svo margar stjörnur undan-
farinna ára.
Þórunn Alfreðsdóttir bar höfuð og herðar yfir aðra
keppendur og setti hvorki meira né minna en þrjú
íslandsmet. A hún þá islandsmet í fimm greinum og er
þó aðeins fjórtán ára gömul. Hún vann afreksbikar
mótsins og átti auk þess þriðja og fimmta besta afrekið.
Guðmundur ólafsson SH (Hafnarfirði) vakti einnig
athygli. Hann var einráður í bringusundunum og sigraði
þar bæði f 100 metrum og 200 metrum. Hann vann annað
og fjórða besta afrek mótsins.
betta mót var upphefð fyrir
sundiþróttina. Ahuginn virðist á
uppleið, það verður frisklegri
blær yfir mótunum fyrir bragðið
og um leið og met fara að fjúka
hverfur lognmollan og deyfðin.
bótt Meistaramótið sé ekki
stigakeppni milli félaga fór ekki á
milli mála að Ægir er yfirburðalið
i sundinu. bar er hver unglingur-
inn á fætur öðrum sem á eftir að
setja svip á sundmótin næstu ár-
in. bórunn Alfreðsdóttir er þar
fremst i flokki og metin sem hún
setti að þessu sinni voru i 800 m.
skriðsundi 400 m. skriðsundi og
200 m. flugsundi. Hún var ekki
langt frá meti i 200 m. fjórsundi
og sveit Ægis i 4x200 m. skrið-
sundi var aðeins sekúndubrotum
frá nýju íslandsmeti.
Leikstjóri á Meistaramótinu
var Siggeir Siggeirsson, ræsar
voru örn Geirsson og Flosi
Sigurðsson, yfirdómari Guðjón
Emiisson og dómarar þau Torfi
B. Tómasson, Trausti Guðlaugs-
son, Helga Gunnarsdóttir,
Sigurður b. Guðmundsson,
Erlingur b. Jóhannsson, Garðar
bórunn Alfreðsdóttir vann afreksbikarinn i sundi og ekki i fyrsta sinn
þvi þessi mynd af henni er gömul og sjáum viö ekki betur en að hún
hampi hér afreksbikarnum.
tslenska sundfþróttin hefur verið i öldudal undanfarið vegna þess hve margt af okkar besta sundfólki
hætti skyndilega keppni. Unga fólkið okkar lofar hins vegar góðu.og hver veit nema bjóðviljinn geti
skýrt frá Meistaramóti tslands á næstu árum eins og hér, en þessi iþróttasfða birtist árið 1971.
Sigurðsson og Jón Otti Jónsson.
Yfirtimavörður var Guðbrandur
Guðjónsson.
Fyrstu menn i hverri grein urðu
þessir:
100 m bringusund:
Sonja Hreiðarsdóttir UMFN
1:27.7
bórunn Magnúsdóttir UMFN
1:31.1
Björg Helgadóttir SH, 1:32.0
100 m. skriðsund karla:
Sigurður Ólafsson Æ, 57.9
Arni Eyþórsson A, 1:00.1
Guðjón Guðnason SH, 1:03.8
100 m baksund kvenna:
Vilborg Sverrisdóttir SH, 1:21.0
Guðrún Halldórsdóttir 1A
1:23.1
Sonja Hreiðarsdóttir UMFN,
1:29.4
200 m flugsund karla:
Axel Alfreðsson Æ, 2:28.1
Arni Eyþórsson A, 2:39.0
Brynjólfur Björnsson A, 2:42,7
200 m fjórsund kvenna:
bórunn Alfreðsdóttir Æ, 2:39.0
Bára ólafsdóttir Á, 2:54.4
Hrefna Rúnarsdóttir Æ, 2:56.5
4x100 m fjórsund karla:
A-sveit Ægis 4:34,9
A-sveit Armanns 4:40.6
Sveit SH 4:47.2
4xl00m skriðsund kvenna:
Sveit Ægis 4:59.3
Sveit Armanns 5:09.6
100 m flugsund karia:
Sigurður Ólafsson Æ 1:06.7
Guðjón Guðnason SH 1:06.9
Arni Eyþórsson A 1:07.4
200 m baksund kvenna:
Vilborg Sverrisdóttir SH 2:52.3
Bára ólafsdóttir Á, 2:55.2
Guðrún Halldórsdóttir 1A, 2:57.7
Sonja Hreiðarsdóttir UMFN
3:05.6 (telpnamet)
400 m skriðsund karla:
Sigurður Ólafsson Æ, 4:32.9
Axel Alfreðsson Æ, 4:33.0
Brynjólfur Björnsson Á, 4:40.9
200 m bringusund kvenna:
Sonja Hreiðarsdóttir UMFN,
3:10.5.
Björg Halldórsdóttir SH, 3:18.4
bórunn Magnúsd. UMFN, 3:20.4
100 m bringusund karla:
Guðmundur Ólafsson SH, 1:11.3
100 metra flugsund kvenna:
Hrefna Rúnarsdóttir Æ, 1:18.4
Elin Gunnarsdóttir HSK, 1:24.6
Björg Halldórsdóttir SH, 1:30.8
200 metra baksund karla
Bjarni Björnsson Æ, 2:27.9
(drengjamet)
Axel Alfreðsson Æ, 2:36.3
Hermann Alfreðsson Æ, 2:38.9
400 m skriðsund kvenna:
bórunn Alfreðsdóttir Æ, 4:50,1
(Islandsmet)
Vilborg Sverrisdóttir SH, 5:01.3
Bára ólafsdóttir A, 5:05.6
200 m bringusund karla:
Guðm. Ólafsson SH, 2:38.4
örn Ólafsson SH, 2:44.9
Guðm. Rúnarsson Æ, 2.50.3
Orn Ólafsson SH, 1:13.9
Guðm. Rúnarsson Æ, 1:18.4
100 m skriðsund kvenna:
Vilborg Sverrisdóttir SH, 1:05.4
Bára ólafsdóttir Á, 1:06.0
Guðrún Halldórsd. 1A, 1:15.0
100 m baksund karla:
Bjarni Björnsson Æ, 1:08.5
borsteinn Hjartars. HSK, 1:10.1
Guðjón Guðnason SH, 1:13.4
200 m flugsund kvenna:
bórunn Alfreðsdóttir Æ, 2:30.1
(Islandsmet)
Hrefna Rúnarsdóttir Æ, 3:04.6
200 m fjórsund karla:
Axel Alfreðsson Æ, 2127.3
Árni Eyþórsson Á, 2:28.0
Guðm. Ólafsson SH, 2:32.2
4x100 m fjórsund kvenna:
Sveit Ægis 5:34.2
Sveit Ármanns 5:55.3
Sveit HSK 6:23.2
4x200 m skriðsund karla:
A-sveit Ægis 8:54.8
A-sveit Ármanns 9:39.9
B-sveit Ægis 10:03.5
Bestu afrekin á sundmeistara-
mótinu:
Framhald á bls. 10.