Þjóðviljinn - 04.09.1975, Side 7
Fimmtudagur 4. september 1975 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7
Þaö er heilmikiö nostur viö einn karfa.
Séö yfir flökunarsal frystihúss Fiskvinnsluskólans, en salinn lét skólinn innrétta sérstaklega meö tilliti
til þess aö þar færi fram kennsla I verkun fisks. (Ljósm. -hm)
Þann 25. ágúst hófu
nemendur fyrsta bekkjar
Fiskvinnsluskólans nám aö
þessu sinni, en þetta er
fimmta námsár skólans.
Annar og þriðji bekkur svo
og fimmti bekkur munu
taka til starfa 15. septem-
ber, en í vetur verður ekki
starfandi f jórði bekkur við
skólann því enginn þeirra
tólf nemenda, sem skólinn
útskrifaði úr þriðja bekk
sl. sumar munu ætla sér,
að svo stöddu að minnsta
kosti, eð sitja tvö ár enn í
skólanum og hljóta þar
með menntun, sem fengið
hefur heitið fisktæknir,
enda hefur ennþá engin á-
kvörðun verið tekin um
faglega stöðu þeirra né
heldur um rétt þeirra til
háskólanáms.
Þjóðviljamenn brugðu sér i
Hafnarfjörð, en þar hefur skólinn
fengið leigt húsnæði hjá Bæjarút-
gerð Hafnarfjarðar og innréttað
frystihús, eins konar kennslu-
frystihús, þar sem fram fer verk-
leg kennsla.
Að sögn þeirra Sigurðar
Haraldssonar og Birgis Finnsson-
ar verða 18 nemendur i fyrsta
bekk þetta árið, og voru þeir ein-
mitt i verklegri kennslu er okkur
bar að. Var unnið að flökun
karfa, en fisk kaupir skólinn til
verkunar, sem siðan er seldur á
vegum Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna. Af 18 fyrstubekk-
ingum að þessu sinni eru þrjár
stúlkur.
Fimmti bekkur verður i fyrsta
sinn starfræktur við skólann i vet-
ur, þótt ekki sé enn vitaö til hvers
nám i f jórða og fimmta bekk leið-
ir, eins og að framan getur. 1
fimmta bekk verða 14 nemendur
og útskrifast þeir á næsta ári sem
fisktæknar, þeir fyrstu hérlendis.
Bóklega kennslan fer einnig
fram i Hafnarfirði, nánar tiltekið
við Trönuhraun. Þrátt fyrir það,
að nemendur skólans séu viða að
af landinu hefur þó skólinn ekki
neina aðstöðu til þess að koma
þeim i hús, heldur verður hver að
bjarga sér.
Hér ættu að vera
fleiri nemendur
ölver Guömundsson frá Eski-
firði verður aldursforseti i nem-
endahópnum i vetur, en hann
varð 48 ára 1. september.
Olver hefur verið sjómaður, en
vegna slæmsku i hendi varð hann
að hætta sjómennsku. Þvi var það
að hann dreif sig i Fiskvinnslu-
skólann. Er ætlun hans að vera i
skólanum i a.m.k. þrjá vetur og
hefur hug á að vinna við fiskmat
að námi loknu.
ölver sagði að langt væri nú um
liðið siðan hann hefði lært á bók
og sagðist ekki vita hvernig sér
mundi ganga bóknámib, en við
verklega námið sagðist hann
hvergi smeykur.
— Mér þykir vænt um að ég gat
komist i þennan skóla, sagði
Olver. — Mér finnst að hér ættu
að vera fleiri nemendur og er
reyndar hissa á þvi að svo skuli
ekki vera. Sennilega stafar það af
þvi, að hingaö til hafa stutt nám-
skeið dugað fólki til þess aö kom-
ast i þau störf, sem við veröum i
þrjú ár að læra til.
Af skrifstofu
i fiskinn
Torfhildur Stefánsdóttir vann
siðastliðið eitt og hálft ár á skrif-
stofu hjá Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna. Sagðist hún hafa verið
orðin þreytt á þeirri vinnu og þrá-
setu á skrifstofu. Ekki er Torf-
hildur algjörlega ókunn fiskinum,
þvi fyrir fimm árum siðan vann
hún eitt sumar i fiski.
Sagði hún, að sér virtist sem
námið við skólann væri fjölbreytt,
og að þriggja ára námi loknu,
sem hún kvaðst stefna að að ljúka
eins og hún hugsaði i dag byðust
fjölbreyttstörf. Nefndi hún meðál
annars störf eftirlitsmanna, en
þvifylgja mikil ferðalög um land-
ið.
— Það skilja allir vel að ég skuli
hafa yfirgefið skrifstofuna, sagði
Torfhildur. — Við erum þrjár,
sem nú erum i fyrsta bekk, en i
öðrum og þriðja bekk eru einnig
þrjár stúlkurvið nám. Vonandier
að sú tala haldist og hún mætti
reyndar stækka þvi hér er lært til
starfa, sem ekki eru siður fyrir
konur en karla.
Þykir blaðamanni sjálfsagt að
taka undir þaö með Torfhildi.
—úþ
Birgir Finnsson, kennari.
Siguröur Haraldsson, skólastjóri
Torfhildur Stefánsdóttir öiver Guömundsson,
' 0'
aldursforseti nemenda.