Þjóðviljinn - 04.09.1975, Qupperneq 10
10 tÖA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 4. september 1975
Alþýðubandalagið:
Alþýðubandalagið Vestfjörðum
Abalfundur kjördæ mis rá ös
Alþýöubandalagsins I
VestfjarBakjördæmi veröur
haldinn i félagsheimilinu Suöur-
eyri Súgandafiröi dagana 6. og 7.
september n.k.
Fundurinn hefst laugardaginn
6. september kl. 2 eftir hádegi.
Ragnar Arnalds, formaöur
Alþýöubandalagsins, og Kjartan
Ólafsson, ritstjóri Þjóöviljans,
koma á fundinn. Dagskrá nánar
auglýst siöar.
Stjórn Kjördæmisráös Alþýöu-
Ragnar Kjartan bandalagsins á Vestjöröum.
F orstöðukona
Barnavinafélagið Sumargjöf óskar að
ráða forstöðukonu að leikskólanum Lækja
borg við Leirulæk. Fóstrumenntun áskil-
in. Laun samkvæmt kjarasamningum
Starfsmannafélags Reykjavikurborgar.
Umsóknir sendist stjórn Sumargjafar,
Fornhaga 8, fyrir 20, sept. nk.
Barnavinafélagið Sumargjöf.
Bókari óskast
Vanur bókari, kona eða karl óskast til
starfa i bókhaldsdeild hjá stóru fyrirtæki i
Reykjavik. Framtiðarstarf.
Nánari upplýsingar veitir
Endurskoðunarskrifstofa
Björns E. Árnasonar,
Tjarnargötu 16,
Reykjavík.
7. þing Verkamanna-
sambands Islands
verður haldið i Reykjavik dagana 21.—23.
nóvember n.k. Kosningu fulltrúa skal lok-
ið fyrir 14. nóvember.
Dagskrá auglýst siðar.
Stjórn Verkamannasambands íslands
Útsala! Útsala!
Karlmannabuxur (terelyne) kr. 1.980
Kvenbuxur (tveed) kr. 1.890
Karlmannaskyrtur frá kr. 700
Skólabuxur nr. 10—12 og 14 kr. 1.500
Gerið kjarakaup í
Laugavegi 71,
sími 20141
Faöir okkar
GUÐMUNDUR EYJÓLFSSON,
Þvottá
lést á Landakotsspitala þann 2. september. Minningar-
athöfn veröur I Fossvogskirkju laugardaginn 6. þ.m. kl.
10.30.
Börn hins látna.
Kjötið
Framhald af bls. 1.
Sláturfélaginu sagði aö þegar
væri mjög mikið selt af kjötinu og
væri útlit fyfir að 200 tonnin, sem
áætlað var að selja fyrir 14.
september yrðu uppurin fyrir
þann tima.
Kvaðst hann vilja benda litlum
fjölskyldum á að kaupa ekki heila
skrokka af þessu kjöti, þar sem
æskilegast væri að þaö væri notað
sem allra fyrst. Sömuleiðis sagði
hann að nauðsynlegt væri að fólk
sem þiðir skrokkana sjálft, léti þá
þiðna i köldum geymslum, þvi ef
kjötið er látið þiðna i hita, er hætt
við að ysta lagið verði orðið
skemmt, þegar innvöðvarnir eru
þíddir. Samkvæmt ráðleggingar-
bæklingi frá Kvenfélagasam-
bandinu um frystingu matvæla,
má kjötið helst ekki þiðna meira
en sem svarar 10 gráðu frost
(Celsius), þ.e. ekki þiðna alveg,
eigi að frysta það aftur, og ef
vond lykt er af kjötinu eftir
afþiðingu, má ekki frysta það
aftur. Ráðlagt er að frysta kjötið
annars strax aftur og geyma
siðan stutt.' —þs
Kissinger
Framhald af Í2 siðu
sætisráðherra, og bauð hann
egyptum endanlegan friðar-
samning en sagði um leið að
israelsmenn myndu ekki slaka á
vörnum sinum i Sinai. Meðan
þetta gerðist, gerðu Israelskar
flugvélar loftárás á búðir
palestinuaraba i Libanon. Litil
stúlka beið bana og 11 særðust.
Mikil ólga hefur verið i Libanon i
dag vegna bráðabirgðasamning-
anna og hefur komið til mikilla
óeirða viða um land.
Egyptar hafa lagt mikið kapp á
það i dag að fá stuðning annara
arabaleiðtoga til að styðja stefnu
þeirra og bráðabirgðasamning-
inn.
Ef israelska þingiö samþykkir
bráðabirgðasamninginn i kvöld,
er llklegt að hann verði undir-
ritaður endanlega við athöfn i
Genf á morgun.
Síöustu fréttir frá Jerúsalem
hermdu aö israelska þingiö heföi
samþykkt bráöabirgöasamning-
inn meö 70 atkvæöum gegn 43. Sjö
sátu hjá.
Vatn
Framhald af 12 siðu
nóg að sprauta einangrunarplasti
innan á tanka skipsins en ég er
frekar svartsýnn á það þvi gufan
af vatninu myndi liklega setjast I
plastið og þétta það. önnur leið er
að setja annan tank innan i þann
sem fyrir er en þá kemur upp
spurningin um kostnaðinn, það er
hætt við að það yrði of dýrt.
— Hefur þetta verið gert áður?
— Ekki svo mér sé kunnugt. Ég
sá hins vegar i sænsku blaði fyrir
skömmu að stúdentar við háskól-
ann I Lundi höfðu verið að leika
sér á pappirnum með þá hug-
mynd að flytja heitt vatn milli
borga I Sviþjóð. Komust þeir að
þeirri niðurstöðu að það væri
framkvæmanlegt en það á nú
eftir að sýna sig i verki. Einnig
hef ég heyrt að einhverjir hefðu
verið að ræða hvort hægt væri að
koma upp hitaveitu á ísafirði með
þvi að flytja vatn i tankskipum
innan úr Reykjanesi.
— En hvað með aðstöðu fyrir
skipin hér á landi?
—' Við þyrftum sjálfsagt að
leggja i kostnað við að leggja
pipur til sjávar. Það hefur verið
bent áaðsvona stór skip (250 þús.
tonn) gætu lagstuppað landi öðru
hvoru megin við Viðey og þá
þyrftum við að leggja pipur
þangað ofan frá Reykjum. En
þetta er nú bara hugmynd og hef-
ur ekkert verið rætt við hafnar-
yfirvöld, sagði Gunnar að lokum.
Skólarnir
Framhald af bls. 1.
vera ógert I Fossvogsskóla. En
þegar þetta húsnæði verður tilbú-
ið ættu húsnæðismál skólanna að
vera I sæmilegu lagi nema hvað
nokkur þrengsli eru i skólunum i
Breiðholti.
— Verða teknar upp einhverjar
nýjungar i skólastarfinu i vetur?
— Fjölbrautaskólinn er stærsta
nýjiingin. Einnig má nefna að við
hyggjumst færa 0pna skólann
nokkuð út, ætlunin er að láta hann
ná til yngstu nemenda Hóla-
brekkuskólans en hingað til hefur
hann aðeins starfað i Fossvogs-
skóla.
— Hvernig hefur gengið að
ráða kennara?
— Það hefur gengið þolanlega.
Fjölbreytt og
skemmtilegt
tungumálanám
ENSKA, ÞÝSKA, FRANSKA,
SPÁNSKA, NORÐURLANDAMÁLIN.
ISLENSKA fyrir útlendinga.
Áhersla er lögð á létt og skemmtileg
samtöl í kennslustundum. Samtölin
fara f ram á þvi máli sem nemandinn er
að læra, svo að hann æfist í TALMÁLI
Síðdegistímar — kvöldtímar. sími 10004
og 11109 (kl. 1-7 e.h.)
Málaskólinn MÍMIR
Brautarholti 4.
Til styrktarfélaga
íslenska dansflokksins
Vegna endursýningar á ballettinum
Coppelia skal styrktarfélögum dans-
flokksins bent á, að nauðsynlegt er að þeir
hafi greitt árgjöld 1975 eigi siðar en föstu-
daginn 5. sept. á skrifstofu Þjóðleikhúss-
ins, en þá hefst sala forkaupsréttarmiða
gegn framvisun félagsskirteina.
Söngskólinn í
Reykjavík auglýsir
Söngskólinn i Reykjavik tekur til starfa 6.
okt. Umsóknareyðublöð fást i Bóka-
verslun Eymundssonar i Austurstræti og
er umsóknarfrestur til 10. sept. n.k.
Inntökupróf nýrra nemenda verða haldin
1. okt. kl. 5. Upplýsingar um nám og inn-
tökuskilyrði gefnar á skrifstofu skólans að
Laufásvegi 8, og i sima 21942.
Skólastjóri.
HAFNARFJÖRÐUR
- OLÍUSTYRKUR
Greiðsla oliustyrks fyrir timabilið
mars-mai ’75 fer fram á bæjar-
skrifstofunum, Strandgötu 6.
Styrkurinn greiðist þeim framtelj-
endum til skatts, sem búið hafa við
oliuupphitun ofangreint timabil.
Framvisa þarf persónuskilrikjum
til að fá styrkinn greiddan.
Greiðslum verður hagað þannig:
Til framteljenda hverra nafn byrj-
ar á:
A-F mánudaginn 8. sept. kl. 10-12
og 13-16.
G-H þriðjudaginn 9. sept. kl. 10-12
og 13-16.
I-M miðvikudaginn 10. sept. kl.
10-12 og 13-16.
N-S fimmtudaginn 11. sept. kl.
10-12 og 13-16.
----föstudaginn 12. sept. engin út-
borgun.
T-ö mánudaginn 15. sept. kl. 10-12
og 13-16.
Bæjarritarinn i Hafnarfirði.