Þjóðviljinn - 07.09.1975, Síða 3
Sunnudagur 7. september 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
ÞORSTEINN JÓNSSON:
kvikmyndakompa
KvikmyndaA I smlðju. Lömpunum er komiö fyrir i ljósaloftinu yfir sviðinu
oftast eru léttir of fyrirferðarlitlir kvarslampar notaðir I lifandi umhverfi.
LYSING I KVIKMYNDUM
Eins og myndhöggvari mótar
úr leir mótar kvikmyndatöku-
maður viðfangsefni sitt með ljósi.
Með stefnu og styrk ljóssins, sem
hann beinir að viðfangsefni sínu
skapar hann ljósmynd af þvi.
Hann velur fjölda og tegundir
ljósgjafa, stöðu þeirra og hæð
miðað við viðfangsefnið, styrk-
leikahlutföll, dreifða eða skarpa
birtu, mýkt eða hörku, lit tónblæ
og fíeira. Eftir ljósopsstilling-
unni, tegund filmunnar og ljóssl-
um fer það hversu mikið af ljós-
inu og hver hluti litrófsins hafnar
að lokum á filmunni og fram-
kallast sem ljósmynd.
Ljósgjafar
Tökumaðurinn hefur um að
velja ýmsar tegundir ljósgjafa.
Hægt er að skipta þeim í tvo aðal-
flokka: annarsvegar ljóskastara,
sem gefa skarpa skugga og hægt
er að beina að takmörkuðu svæði,
og hins vegar dreifilampa, sem
gefa frá sér dreifða birtu á stóru
svæði og mjúka skugga, A slðustu
árum eru algengir lampar, þar
sem reynt er að sameina eigin-
leika beggja með þvl að hafa
skerpu ljóssins stillanlega. Hinir
slðastnefndu eru léttir og hand-
hægir og vinsælir við töku
heimildamynda eða þegar
myndað er I lifandi umhverfi.
Smiðjur (stúdló) hafa flestar ljós-
loft, þar sem hægt er að koma
fyrir öllum hugsanlegum lömpum
án þess að þeir trufli upptökuna.
Brautir liggja yfir öllu upptöku-
svæðinu og lömpum er venjulega
komið fyrir á fjaðurmögnuðum
útbúnaði, þannig að hægt er að
ráða hæö þeirra frá gólfi. Til að fá
mjög jafna og dreifða aðalbirtu
Ljós og myndstill
Hver kvikmynd hefur sinn
ákveðna myndstll og gegnir
lýsingin þar stóru hlutverki. í ein-
stökum myndköflum er lýsing-
unni gjarnan beitt til að kalla
fram ákveðnar tilfinningar, t.d.
spennu, ótta, gleði o.s.frv. í þeim
tilangi er hægt að setja saman
óendanlega marga möguleika af
mismunandi lýsingu, lengja
skugga eða láta þá falla á veggi,
láta ljósið endurkastast af vatns-
borði o.fl.o.fl.
Lýsingin mótar viðfangsefnið
þannig, að mismunandi dökkir
fletir og línur gefi hugmynd um
lögun þess. Ef andlit er lýst
framanfrá, birtist það á filmunni
sem hvltur flötur með tveim
punktum og einu striki. Um leið
og lampinn er færður til hliðar
koma skuggar af nefi, enni
o.s.frv. og lögun andlitsins kemui1
i ljós. Persónur eru gjarnan að-
greindar frá bakgrunni með
sterkari baklýsingu, þannig að
útllnur þeirra verða næstum eins
og hvlt strik. Þar með er fjar-
lægðin milli persónunnar og bak-
sviösins undirstrikað og mynd-
inni gefin dýpt. Sé viðfangsefnið
ein persóna I herbergi og lýsingin
sé miðuð við það I fyrsta lagi að
sýna lögun andlitsins (og
likamans) og I öðru lagi að að-
greina persónuna frá húsgögnum
og vegg I baksýn með fyrrgreind-
um hætti, er þar með búið að gefa
ákveðna tilfinningu fyrir rúminu I
herberginu. Það er einmitt eitt
höfuðmarkmið lýsingar I kvik-
myndum að skapa rúm og dýpt I
hinni flötu hreyfanlegu mynd á
tjaldinu.
Ljósflekar notaðir til aft mýkja skugga i sterku sólskini
eru oft notaðir ljósflekar, jafnvel
nokkrir fermetrar að stærð. 1
þeirra stað geta komið ýmis
endurkastsáhöld, sem ljósgjafan-
um er beint að. Ýmiskonar gagn-
sæir dúkar, skuggaspjöld
(maskar) gegna stóru hlutverki I
kvikmyndasmiðjunni.
Það sem hér er upptalið er I
rauninni ekki annað en hluti
venjulegrar ljósmyndunar. Mun-
urinn er annars vegar fólginn I
þvi,,að tökumaðurinn þarf að
miða lýsinguna við hreyfingar
persónanna I leikmyndinni og
hins vegar að hann getur lítil
áhrif haft á ljósmyndina eftir að
hún hefur verið framkölluð á
filmuna. Hann getur ekki eins og
ljósmyndarinn gert leiðréttingar
við stækkun myndarinnar á
papplr. Það er þvi mikilvægt að
tökumaðurinn hafi sem allra
mesta stjórn á ljósi og birtu. Það
er t.d. aðeins i hluta heimilda-
mynda, skýrslum (reportage) og
utangarðs kvikmyndagerð að
notast er við sólarljós eins og það
kemur fyrir. Annars eru hafðir
sterkir lampar til að mynda
skugga eða mýkja þá eftir þvi
hvort skýjað er eða sólskin.
AFERLENDUM
BÓKAMARKAÐI
Articles of Faith
Ronald Harwood. Secker &
Warburg 1973.
Höfundurinn fæddist i Suður-
Afriku 1934, fluttist til Englands
1951. Hann hefur lagt stund á leik-
list og leikritagerð ásamt skáld-
sagnagerð. Þetta er ættarsaga,
sem hefst á 18. öld og sviðið er
Suður-Afrika, henni lýkur 1972.
Höfundur segir sögu þessarar
fyrrum nýlendu, baráttu gull-
gráðugra breta og hollenskra bú-
andkarla, sem voru hinir verstu
þrælahaldarar, sem um getur,
meðan þeir sátu einir að vinnuafli
frumbyggja landsins og þrælkuðu
þá óspart undir yfirskini kalv-
inskrar guðhræðslu.
Höfundurinn hefur hér sett
saman lipurlega skrifaða bók,
sem er vel þess virði að lesast.
Der Neue Brockhaus.
Lexikon und Wörterbuch in Funi
Banden und Einen Atlas. Funfte,
völiig neubearbeitete Auflage.
Dritter Band. F.A. Brockhaus
Wiesbaden 1974.
Stafróf þessa bindis er frá J til
Neu. Bindið er 688 blaðsiður,
tveggja dálka siður, myndir eru i
texta, bæði svart hvitar og lit-
myndir, litkort- einnig gegnsæ
myndamappa um mannslikam-f
ann, bandið er vandað og allur
frágangur góður. Næstu bindi
munu koma út á næstunni.
Eins og áður hefur verið tekið
fram um þetta verk, þá er það að
ýmsu leyti handhægara heldur en
viðameiri lexikonar, þar sem
þarf að fletta upp i registri til þess
að finna það sem fletta má upp
beint hér, upplýsingar um mjög
sérhæfð efni er ekki að finna hér
fremur en i viðameiri almennum
lexikonum, svo að slikt verk sem
þetta er nægilegt til almennra
nota, sérhæfðra efna verður að
leita i faglexikonum.
1 þessu bindi er m.a. að finna
þokkalegar upplýsingar um
Mexikó, Kogga, skip þau sem
koma hér við land, þegar Hansa-
borgirnar hófu verslun hérlendis,
máninn er hér upplýstur og i þeim
kafla eru ýmsar nýjar upplýsing-
ar, og svo framvegis. Letrið á rit-
inu er fremur smátt, en skýrt.
Dreimal Schwarzer Kater
Aberglaube, Sitten und Gewohn
heiten und ihre incrkwurdigei:
Ursprunge. R. Brasch. Deutschei
Taschenbuch V’erlag 1973.
Höfundurinn hefur starfað við
enska og bandariska háskóla,
bókin er þýdd af Heinz Kotthaus,
með nokkrum styttingum. Hér
segir frá ýmsri hjátrú og hjátrú-
arsiöum, sem virðast hafa breiðst
út um vesturlönd og viðar á und-
anförnum öldum, sumir þessir
siðir hafa tekið breytingum.
vegna ytri aðstæðna, og aðrir eru
nýrri af nálinni. Kver þetta fjall-
ar um hjátrú hversdagsins og for-
sendur siðanna eru raktir til upp-
hafsins, þar sem slikt er gjörlegt.
Þetta er skemmtileg bók.