Þjóðviljinn - 07.09.1975, Page 7

Þjóðviljinn - 07.09.1975, Page 7
Sunnudagur 7. september 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7 Papagalli leitar sambands. Kvenna- bósar deyja út Papagallovar sá maður nefnd- ur á ítaliu sem eltist við skandinaviskar og þýskar skvisur sem til þess lands komu i sumar- leyfum og voru fyrirfram (og ekki alveg að ástæðulausu) taldar auðfengnar til ástaleikja. Slikir menn voru alþekkt fyrirbæri og að ýmsu leyti talsverð plá^a. Þeir sátu fyrir leiguflugvélunum i bil- skrjóðum sinum og klöppuðu skvisum þegar þær stigu frá borði. Papagallar þessir höfðu ýmis- lega tækni við að koma á sam- bandi. Herra A á kunningja i toll- inum sem við köllum B. Þegar lagleg hnáta kom að tollinum læt- ur A vin sinn B opna allar hennar töskur. A kemur þá eins og ridd- ari á vettvang og upplýsir málið og bjargar stúlkunni útlendu — og þar með var komið á samband. Þeir sem grófgerðust vinnubrögð notuðu dreifðu blátt áfram heim- ilisfangi sinu og simanúmeri meðalkvennaá flugvellinum. Þvi var haldið fram, að tiunda hver stúlka biti á agnið. Nú eru gosar þessir úr sögunni — það er að segja, þeir hafa beint viðleitni sinni i aðra átt. Þeir elt- ust áður við útlendar stúlkur, vegna þess að þær voru frjálsari, höfðu ekki mömmu i eftirdragi sem varðhund og voru með pill- una i töskunni þar að auki. En nú eru itölsku stúlkurnar orðnar svo- til jafn „frjálsar” og þær erlendu, og þær hafa þann ágæta kost þar að auki, að þær tala itölsku. PAX hneigist aö skáldskap OSLÓ ntb Ráðamenn norska bókaútgáfufyrirtækisins PAX telja að almenningur hneigist nú frekar að skáldskap en áður og hafa þvi 6 bókmenntaverk meðal 22 útgáfubóka sinna i haust. Einn- ig eru gefnar út barnabækur al- varlegs eðlis sem eiga að opna augu barna fyrir ýmsum félags- legum vanda sem þau standa frammi fyrir i daglega lifinu. Umræðubækur um þjóðfélags- mál eru sem fyrr meginuppistað- an i útgáfunni. — Eins og kunnugt er fást islenskar bókaverslanir ekki til að hafa PAX-bækur á boð- stólum. „Líf og heilsa” í nýrri útgáfu Hörpuútgáfan á Akranesi hefur nú sent frá sér bókina „Lif og heilsa” eftir Benedikt Tómasson, lækni, i nýrri útgáfu. Breytingar hafa verið gerðar til samræmis við nútimakröfur i heilbrigðis- málum, og nýr kafli er um trygg- ingamál, sem Ingimar Sigurðs- son lögfræðingur tók saman. Bók- in er kennd i flestum framhalds- skólum landsins og einnig i ýms- um sérskólum. SIGURÐUR BLÖNDAL SKRIFAR: Það er lengi búið að ala okkur uppiþviaðbúa upp á peninga. t þeim skilningi að meta árangur af athöfnum okkar eftir þvi, hvort þær skili okkur meiri eða minni peningum en þeim, sem við höfum lagt i þær. Sem sagt: Tap eða gróði. Markaðsþjóð- félag Vesturlanda, þar sem gróðinn er látinn ráða férð okk- ar, en mannleg skynsemi sett i frystikistu, táknar æðsta stig þessa peningalega uppeldis. En verðgildi peninga er ekki föst stærð. 1 þvi mannlega basli, sem er kjarnapunktur tilveru okkar: öflun eigin viðurværis, eru peningar einmitt ákaflega hverful stærð og tap og gróði á peningavisu segir ekki nema hálfa sögu. 1 fæðuöflun mannsins á jörð- inni er hins vegar til föst stærð, sem segir til um það til lang- frama, hvort búskapur okkar sé hagkvæmur eða ekki: Hitaein- ingin (kalórian). Ef við færumað búa upp á hitaeiningar i stað peninga, myndi mat á búskaparháttum heldur betur breytast. Það kæmi þá fyrst af öllu i ljós, að fæðuöflun hins iðnvædda heims er rekin með stórkostlegu tapi — mældu i hitaeiningum. Vélvæddur landbúnaður Vesturlanda notar i eldsneyti 5 hitaeiningar til þess að fram- leiða 1 hitaeiningu af fæðu. Þessu eldsneyti er dælt eða mokað úr iðrum jarðar og það er senn á þrotum. Við notum þetta eldsneyti til þess að knýja vélarnar, sem heyra búrekstr- inum til, til framleiðslu þeirra, Tvenns konar búskapur til málvinnslunnar til margvis- legrar efnaframleiðslu, til aðdrátta og afurðarflutninga. Sóun af þessu tagi er mann- kyninu skammgóður vermir og þegar kol og olia verða þrotin, gætu Vesturlönd sjálf staðið frammi fyrir matvælaskorti, sem þau hafa aldrei áður kynnst. Sú þróun, sem neysluþjóð- félagið hefir framkallað, að framleiða korn til þess að fóðra með búfé, sem menn slátra siðan sér til matar, er afskap- lega óhagkvæm krókaleið — mælt I hitaeiningum. Einu búhyggindin i þessum skilningi felast i þvi að neyta kornmatar beint, en fara ekki krókaleiðina um nautgripi, hæsni, svín eða sauðfé. Hagkvæmni kvikf járræktar byggist þannig algerlega á þvi að góðra gripina á grasi, en alls ekki á korni, sem hægt er að nota til manneldis, ef við hugs- um i hitaeiningum. Englendingur nokkur, Robert Rodale að nafni, komst svo að orði, er hann kom frá Kina fyrir nokkrum árum: „Mælt i orku (hitaeiningum), er hrisgrjónarækt Austurlanda langsamlega hagkvæmasta bú- skaparaðferð, sem þekkist á jörðinni. Ein hitaeining, sem þessi búskaparaðferð eyðir — fyrst og fremst i formi fæðu handa bóndanum — gefur um fjörutiu hitaeiningar af hris- grjónum. Okkur var sagt — — — að fjögurra manna fjölskylda gæti framfleytt sér á 3/4 hektara af ræktarlandi”. Besta sönnunin fyrir hinni miklu framleiðni við þennan búskap er það sáralitla ræktar- land, sem kinversk meðalfjöl- skylda kemst af með til þess að geta framfleytt sér. Séð i þessu ljósi er þannig sjálfsbjargarbúskapur i litlum einingum hinn eini, sem er hag- kvæmur, en ailt talið um vél- væddan stórbúskap sem alls- herjarlausn blekking, um leið og orkulindirnar þrjóta. Liklega yrði sama uppi á teningnum, er nútima fisk- veiðar yrðu skoðaðar niður i kjölinn. Litum aðeins á okkar eigin veiðar. Mér er sagt, að islendingar brenni um 200 þús. tonnum af oliu til þess að draga úr sjó um 800 þús tonn af fiski. Eitt kg. olia á móti fjórum af fiski. Gaman væri, ef einhver reikningshaus athugaði, hvernig þessi búskapur kæmi út — mælt i hitaeiningum. Auk þess er önnur hlið á veið- um okkar, sú er lýtur að fiski- mjölsframleiðslunni. Ég hugsa þá sérstaklega til sildveiðanna, eins og þær voru stundaðar áður fyrr — og hirði enn, ef ekki væri búið að ausa sildinni upp: Megnið af sildinni var notað i mjöl til skepnufóðurs. Kjötið, sem þannig var framleitt, var hins vegar miklu lélegri eggja- hvitufæða en sildin sjálf, ef hún hefði verið veidd á skikkanlegan hátt og notuð beint til manneld- is. Dýr krókaleið. Dæmigerð fyrir neysluþjóðfélag og mark- aðsþjóðfélag. Hliðstætt við dæmið, sem áðan var tekið um þá fjarstæðu að nota korn til skepnufóðurs. Auðvitað allt miðað við sveltandi mannkyn. Þetta er hlið á landbúnaðar- málunum, sem litt hefir verið til umræðu, flötur, sem markaðs- hagfræðingar geta vitaskuld ekki séð, en væri kannski gaman fyrir ritstjóra hins nýja Reykjavikurdagblaðs að velta ofurlitið fyrir sér. Sig. Blöndal.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.