Þjóðviljinn - 07.09.1975, Side 15
Sunnudagur 7. september 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15
Umsjón:
Ilalldór
Andrésson
Jakob og Stellina McCarthy.
Alan Murphy, gitaristinn fimi.1
Preston Rose Hayman.
Stubmannakjarnarnir.
A Sögu með Stubmönnum.
Þreyttir Stuömenn!
Um siðustu helgi var
haldin skemmtun á
vegum Demant hf á Hótel
Sögu. Á þessari skemmt-
un komu fram Baldur
Brjánsson, White Back-
mann Tríó og Stuðmenn.
Byrjað var að hleypa inn
klukkan 9 og flykktist þarna að
fjöldi fólks af öllum tegundum!
Og þar sem við mættum
snemma kom þjónn aðvifandi
(kurteist ef þörf hefði verið) og
lét það i ljós að við yrðum að
versla við hann ef við ætluðum
að sitja. Þá komst ég að þvi að
kók í litlu glasi, sem tekur ekki
einu sinni litla kók þegar klaki
er kominn út i, kostar orðið 175
kr! Rúmlega hálf ellefu,
heyrðum við svo að fólkið fór að
klappa svo Baldur Brjánsson
hlaut að vera að koma, en þvi
miður var okkur úthlutað borði
nr. 70 i Súlnasalnum en einmitt
það borð er á bak við súlu, til
hliðar, og reyndar tvö borð fyrir
framan ! Ég fékk pantað borð
korter fyrir fjögur og bað um
borð með góðu útsýni! Jæja, en
þegar Baldur birtist, þyrptist
fólkið fram fyrir og stóð frá súlu
til súlu! Ef Demant hf hefði
staðið i sinu stykki hefði fólkið
verið beðið um að sýna
menningarbrag og taka tillit til
annarra og hella ekki .niður á
fólk og ganga upp á borðum og
stólum. Lætur fólkið svona
heima hjá sér?
Svo var klappað, Baldur
greinilega búinn. Næst var hlé i
u.þ.b. fimmtán minútur, en þá
fóru meðlimir White Backmann
Trió að týnast upp á sviðið.
Hvitárbakkatrió (sem Kobbi er
nú reyndar að hugsa um að
breyta i nafnið sem River Band
áti upprunalega að hafa White
River Band) er mun betri
hljómsveit en River Band ef við
undanskiljum Long John
Baldry. Þeir fjórir Jakob, John
Gibling- Preston Ross Hayman
og Alan Murphy byrjuðu á þræl-
góðu frumsömdu lagi i stil
Santana og kemur vel i ljós að
allir eru þeir góðir hljóðfæra-
leikarar og Jakob mjög efni-
legur söngvari. Blökkustúlk-
urnar þær Stellina McCarthy og
Lorenza Johnson eru reyndar
ekki i sama hæfileikagæða-
flokki, og er það miður,þvi þær
vekja greinilega mesta athygli
hér. „Harrow” ,kappreiðalagið
hans Jakobs.er eitt af þeim betri
lögum i sinum stil (t.d. i stil við
rólegu lögin hjá Procol Harum).
Alan Murphy, sem var hér fyrr i
sumar með River Band.er einn
af betri gitarleikurum, hann
minnir einna helst á Mick
Taylor (Stones fyrrv.). John
Gibling bassaleikari var með
Kobba og Preston i Flash
hljómsveit Peter Banks, hann
erskemmtilegurbassistiog ansi
stór! Preston er góður lika og
hann var bæði i Flash og River
Band. Astæðan fyrir þvi að ég sá
White Backmann Trió er sú að
ég fór i Tónabæ þrem kvöldum
Lorenza Johnson og John Gibling.
áður, en þar hagaði fólkið
(krakkarnir) sér mun, mun
betur!
Stuðmenn birtust svo á
sviðinu nokkru eftir að Back-
mann bandið hætti og var þá
alveg vita-vonlaust að sjá
nokkuð. Finar dömur, jafnt sem
subbulegir rónar kröngluðust nú
upp á borð og lætin voru ekki
minni en ef Bitlarnir hefðu verið
komnir (en þess má geta að þá,
þegar Bitlarnir voru upp á sitt
besta'Um 64-65, voru aödáend-
urnir yfirleitt frá 12-16 ára, en á
Sögu var 20 ára aldurstak-
mark). Ég sá þá ekki sjálfur
með berum augum, enda heföi
ég liklega þurft að slást til þess
en Ijósmyndarinn minn sem er
lipur á fæti k om sér einhvern
veginn upp á sviðið og tók
margar góðar myndir sem
koma i ljós nú og siðar. En ég
heyrði i Stuðmönnum. Þeir
byrjuðu á ,,Tætum og tryllum”
og tóku svo svona helminginn af
súpunni á plötunni (bestu plötu
ársins, enn) og þar á meðal söng
Steinka stuð „Strax i dag”,
mjög vel flutt.
En öllum hinum lögunum var
klúðrað á allt of mikilli hrað-
ferð! Bassaleikarinn var sá
Framhald á 22. siðu.
TOP 30
í Radio Luxembourg
1. ( 1) SAILING
2. ( 5) THAT’S THE WAY I LIKE IT
3. (20) SUMMER TIME CITY
4. (15) A CHILD’S PRAYER
5. (— ) MOONLIGHTIN’
6. ( 4) ICAN’TGIVE YOU ANYTHING
7. ( 2) IT’SBEEN SOLONG
8. (19) JULIE-ANNE
9. ( 3) THE LAST FAREWELL
10. (ll)FAME
11. (12) SUPER WOMBLE
12. (13) DON’T THROW IT ALL AWAY
13. (17) LOVE IN THE SUN
14. ( 6) BLANKET ON THE GROUND
Rod Stewart
K.C.&Sunshine Band
Mike Batt
HotChocolate
Leo Sayer
Stylistics
Gorge McCrae
Kenny
Roger Whittaker
David Bowie
Wombles
Gary Benson
Glitter Band
Billie Jo Spears
15.
16.
17.
18.
19.
20.
21.
22.
23.
24.
25.
27.
28.
29.
30.
(— ) FUNKY MOPED Jasper Carrott
( 7) IF YOU THINK YOU KNOW HOW TO LOVE ME Smokey
(28) MOTORBIKING Chris Spedding
( 8) BEST THING THAT EVER HAPPENED
* Gladys Knight & The Pips
(26) PANDORAS BOX
(21) ONE OF THESE NIGHTS
(24) THIS FOOL
(22) SOLITAIRE
(27) BRAZIL
( 9) DOLLY MY LOVE
(— ) SING A LITTLE SONG
(29) LIKE A BUTTERFLY
(30) THE SNAKE
(— ) UNA PALOMA BLANCA (WHITE
(— ) IM ON FIRE
Procol Harum
Eagles
A1 Matthews
Carpenters
Crispy&Co
Moments
Desmond Dekker
Mac & Kathie Kissoon
A1 Wilson
DUCK) JonathanKing
Guys & Colls
Þau sem duttu voru: Bimbo Jet með E1 Bimbo (no. 10), Mike
Harding með „Rochdale Cowboy” (16), Glitter Band með „Love In
The Sun” (17), Susan Cadogan með „Love Me Baby” (18), Eric
Clapton með Dylan lagið „Knocking On Heaven’s Door” (23) og Bay
City Rollers með „Give A Little Love” (25). Lúxembúrgarlistinn er
skemmtilegur fyrir þaö að hann er nokkuð á undan sölulistum og
lögin fara yfirleitt hraðar upp og niður.