Þjóðviljinn - 04.11.1975, Side 16

Þjóðviljinn - 04.11.1975, Side 16
myrtur myrtur nærri heimili sinu i Ostia i gær. Stuttu siðar viðurkenndi 17 ára piitur, Giuseppe Pelosi, að liafa orðið honum að bana. Pilturinn lýsti málsatvikum þannig að Pasolini hefði tekið hann upp i sportbil sinn i miðborg Rómar. Hefði hann boðið honum að borða og siðan ekið i áttina til Ostia. Stuttu áður en þangað var komið stöðvaði Pasolini bilinn og þeirfóru báðir út. Sagði pilturinn að Pasolini hefði viljað hafa kyn- mök við sig en hann neitað. bá varð mikið rifríldi sem lyktaði með þvi að Pasolini greip spýtu og barði piltinn i höfuðið. Hann greip þá lika barefli og barði á Pasolini þar til hann lá. Siðan ók hann af stað i bil Pasolini og fór yfir likama hans i leiðinni. Hann var handtekinn stuttu siðar vegna of hraðs aksturs. Pasolini var 53 ára gamall, hann hafði lýst þvi yfir opinber- lega að hann væri kynvilltur. Pasolini Neita að leggja flokk sinn niður Kissinger Sehlesinger Colby Kissinger styrkir stöðu sína Sprenging Washington 3/11 reuteri— í nótt átti Ford forseti að halda blaðamannaf und þar sem talið var víst að hann myndi tilkynna veigamiklar breytingar á stjórn sinni, breytingar sem enn munu efla völd Kissingers sem voru ærin fyrir. Samkvæmt fréttum frá Reuter eru breytingarnar fólgnar i þvi að James Schlesinger varnarmála- ráðherra verður látinn vikja úr embætti og sömuleiðis William Colby yfirmaður leyniþjónust- unnar CIA bá verður Kissing- er sviptur embætti sinu sem yfir- maður þjóðaröryggisráðsins. brátt fyrir þennan stöðumissi Kissingers er breytingin talinn sigur fyrir hann. Við embætti þvi sem hann missir er talið öruggt að taki Brent Scowcroft hershöfð- ingi en hann er tryggur stuðn- ingsmaður Kissingers. Brottvikn- ing Schlesingers er talin sigur Kissingers þar sem þeir höfðu lengi átt i útistöðum um stefnuna gagnvart Sovétrikjunum. Schlesinger var andvigur undan- slætti gagnvart Sovétrikjunum sem Kissinger vildi gera i þakk- lætisskyni fyrir undanslátt sovét- manna i Salt-viðræðunum og á öðrum vigstöðvum. Forseti fulltrúadeildar banda- riska þingsins, Carl Albert, skýrði frá þvi i dag og hafði Ford forseta fyrir þvi að eftirmaður Schlesinger yrði Donald Rumsfeld starfsmannastjóri Hvita hússins. Brottrekstur William Colbys úr stöðu yfirmanns CIA kom ekki á óvart þar sem leyniþjónustan hefur verið milli tannanna á þing- nefndum undanfarið og orðið uppvis að margskonar afglöpum. Albert sagði að eftirmaður hans yrði George Bush, sem er hæst setti fulltrúi Bandarikjanna i málefnum Kina. Eitt reiðarslagið enn féll á stjórn Fords nú um helgina er Nelson Rockefeller varaforseti kvaðst ekki mundu bjóða sig fram til þess embættis við forsetakosn- ingarnæsta haust. Hann ætlar þó að gegna embætti sinu fram að þeim tima. betta þýðir að Ford verður að leita sér að nýjum að- stoðarmanni sem hlýtur að verða hálfvandræðalegt fyrir hann. Gárungarnir hafa þegar gefið átökum helgarinnar nafn: „The Sunday Massacre” (Sunnudags- slátrunin). Stafangri 2/11 reuter — brir menn fórustog fjórir slösuðust al- varlega þegar sprenging varð i oliuborpalli á Ekofisk svæðinu undan ströndum Noregs. Talsmaður Philips oliufyrir- tækisins sem á borpallinn skýrði frá þvi að slysið á mönnunum hefði orðið við að björgunarbátur sem verið var að setja fram losn- aði úr böndunum og brotnaði á Osló 3/11 reuter — bing Norska kommúnistaflokksins samþykkti i dag með miklum meirihluta at- kvæða að leggja flokkinn ekki niður i þvi skyni að ganga i Sósialiska vinstriflokkinn. Ráðstefna SV i mars sl. hafði sett aðildarsamtökunum ákveð- inn frest til að leggja sjálf sig nið- ur en ákveðin öfl innan kommún- istaflokksins voru andvig þessu. Á þinginu voru þau öfl ofan á og formaðurinn Reidar T. Larson mátti vikja þar sem hann var hlynntur þvi að flokkurinn yrði lagður niður. I hans stað var kjör- inn „harðlinumaðurinn” Martin Knutsen. Að þinginu loknu sagði Larsen að þessi ákvörðun væri „skýr stefnubreyting i átt til einangr- unarstefnu”. á borpalli sjávarfletinum. Sex mannanna voru norðmenn en einn hinna látnu var bandariskur. Að sögn lögreglunnar er sennilegasta skýringin á spreng- ingunni sú að leki hafi komist að leiðslu sem flutti oliu og gas. Lög- reglan þvertók fyrir að um skemmdarverk hefði verið að ræða. Alls voru 72 manns á borpallin- um þegar sprengingin varð. Róm 3/11 reuter — Hinn heims- þekkti italski kvikmyndaleik- stjóri, Pier Paoio Pasoiini, fannst Pasolini DJOÐVIUINN ■ briðjudagur 4. nóvember 1975 Leyni- þjónustu- gögn frá YL? Greinaflokkur um persónuleynd og tölvutœkni i greinaflokki sem hefst i biaðinu i dag er fjallað um þá hættu, sem lýðfrelsi stafar af persónuskýrslum i höndum ó- hlutvandra aðila. Tilefnið er sá þátturinn i framferði ,,að- standenda Varins lands”, sem liklegt er að dragi lcngstan slóða á eftir sér: vélunnin skrásetning á öllum undir- skrifendum, en eintök af þeirri skrá eru einhversstaðar til, og án eftirlits af opinberri hálfu. Engínn þarf að efast um það hvar upplýsingar úr VL- skránni lenda — svo nákvæm- ar lýsingar berast nú vestan úr Ameriku um starfsaðferðir bandariskra stjórnvalda og leyniþjónustu þeirra. Hér skiptir engu þótt ein- stakir VL-ingar, eða þeir allir, kunni að vera i góðri trú. Brýna nauðsyn ber til að koma i veg fyrir að unnt verði i framtiðinni að endurtaka svona VL-leiki með persónu- og lýðréttindi íslendinga. Einmitt svo fámennri þjóð sem islendingum er persónu- verndandi löggjöf hin mesta nauðsyn á viðsjárverðum tölvutimum. —hj. Arangurs- laus samninga- fundur Samningafundur með full- trúum BSRB og rikisvaldsins var haldinn á föstudagskvöld. Fundurinn varð árangurslaus og hefur nýr fundur ekki verið boðaður. BSRB hefur samkvæmt yf- irlysingum eins og kunnugt er hætt þátttöku i kjaradómi og kjaranefnd. Mun rikisvaldið ekki hafa gert það upp við sig nú hvort kjaradómur fær mál- ið eftir sem áður til meðferð- ar. Munu lögfræðingar vera að skoða málið.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.