Þjóðviljinn - 10.01.1976, Blaðsíða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 10. janúar 1976.
Ég ætlaói
varla að
trúa þessu
— sagði íþróttamaður ársins:
JÓHANNES EÐVALDSSON
— Auðvitað er ég i sjöunda himni; ég ætlaði varla
að trúa þessu þegar hringt var í mig og mér tilkynnt
að ég hefði verið valinn íþróttamaður ársins. Þetta
ér svo mikill heiður að maður á varla orð, sagði
Jóhannes Eðvaldsson, landsliðsfyrirliðinn í
knattspyrnu, sem i gær var valinn íþróttamaður
ársins 1975 af islenskum iþróttafréttamönnum,
þegar Þjóðviljinn náði simasambandi við hann á
heimili hans í Glasgow, rétt áður en hann fór á æf-
ingu hjá félagi sinu Celtic í gær.
— Kom þetta þér mjög á
óvart?
— Já, svo sannarlega, ég
varð i 2. sæti i fyrra og það hef-
ur ekki verið þannig undanfarin
ár að sá sem verður númer tvö
eitt árið vinni svo titilinn næsta
ár, þannig að ég gerði mér ekki
nokkrar minnstu vonir.
Hinsvegar skal ég játa það að
ég vonaði að ég lenti meðal 10
efstu, en það var nú bara svona
óskhyggja eins og svo oft hjá
mönnum; en að vera kjörinn
tþrottamaður ársins það datt
mér aldrei i hug, lét mig ekki
einu sinni dreyma um það.
— Þú hefur auðvitað ekki átt
nokkurn möguleika á að koma
heim i dag og veita bikarnum
viðtöku?
— Nei, þvi er nú verr, ég verð
að leika á morgun, laugardag og
hefði varla getað náð þeim leik
ef ég hefði farið heim. Það
verður álveg eins gaman að fá
bikárinn afhentan i sumar
þegar maður kemur heim; ég
man hvað það var skemmtileg
athöfn þegar Ásgeir fékk bikar-
inn afhentan i fyrra sumar áður
en landsleikurinn við frakka
hófst.
— En svo við snúum okkur að
öðru, llkar þér vel i Skotlandi.
— Alveg ljómandi vel. Það er
alltaf mikið um að vera hjá
manni við æfingar og leiki að
timinn flýgur áfram. Ég kom
hingað i júli sl. og mér finnst
eins og að ég hefði verið að
koma i gær. Þetta lif er manni
auðvitað framandi, eða var það
fyrstu mánuðina, bara æfa og
leika knattspyrnu, en þetta er
mjög skemmtilegt, ég get varla
hugsað mér neitt skemmtilegra,
eins og er að minnsta kosti.
— Og engin heimþrá?
— Ég segi það nú kannski
ekki, en ég kom heim um jólin
og það íangaði mann mikið, en
annars er langt frá þvi að manni
leiðist hérna.
— Það gengur sæmilega hjá
ykkur i Celtic?
— Það hefur gengið vel, þar
til núna í siðustu leikjunum, þá
höfum við verið að tapa leikjum
sem við áttum mun meira I. og
þótt við séum i efsta sætinu
ásamt Rangers, þá er ég ekki
ánægður með þá útkomu; við
ættum að vera með 3ja til 4ra
stiga forystu ef allt hefði verið
eðlilegt. Á morgun eigum við
leik við Motherwell á útivelli og
það er leikur sem við verðum að
vinna.
— Ertu bjartsýnn á að þið
vinnið titilinn?
— Já, mikil ósköp, ég er það,
við erum með besta liðið, bara
að óheppnin hætti að elta okkur
eins og hún hefur gert i allra
siðustu leikjum, þá vinnum við
deildina. —s.dór.
íþróttamaður ársins
á íslandi valinn í
í 20. sinn í gær
mikilli eftirvæntingu, að kunn-
gerð séu úrslit i skoðanakönnun I-
þróttafréttamanna, og Iþrótta-
maður ársins tilnefndur. Þetta
verður nú gert i tuttugasta skipti,
en allt frá stofnun Samtakanna
árið 1956 hefur Iþróttamaður árs-
ins verið útnefndur, og þá hefur
viðkomandi verið afhentur
farandgripur sá er hér sést. Hann
hefur þvi verið i umferð i tuttugu
ár, þessi veglegi gripur. Fyrsta
árið, árið 1956, hlaut Vilhjálmur
Einarsson gripinn. Hann var
kjorinn íþróttamaður ársins
næstu tvö árin lika, en 1959 varð
Valbjörn Þorláksson hlutskarp-
astur. Næstu tvö ár fékk Vil-
hjálmur svo titilinn og bikarinn
aftur, og hefur enginn annar hlot-
ið hann jafnoft, en Vilhjálmur
fékk titilinn Iþróttamaður ársins
alls fimm sinnum.
Framhald á 1:0. siðu.
1 gær kunngerðu iþróttafrétta-
menn val sitt á iþróttamanni árs-
ins 1975 á Islandi og er þetta i 20.
sinn sem iþróttamaður ársins er
valinn hér á landi. Eins og ann-
arsstaðar er sagt frá hér á siðunni
varð Jóhannes Eðvaldsson, fyrir-
liði landsliðsins i knattspyrnu,
fyrirvalinu að þessu sinni. Hlaut
hann 63 stig af 80 mögulegum. 1 2.
sæti varð kúluvarparinn Hreinn
Halldórsson með 60 stig, og eins
og stigataian gefur til kynna var
baráttan milli þessara tveggja
kappa mjög hörð. Aðrir voru
nokkuð langt á eftir þeim.
Jón Ásgeirsson, formaður sam-
taka iþróttafréttamanna, kunn-
gerði úrslitin i hófi sem efnt var
til af þessu tilefni i gær. Þar voru
mættir 5 af þeim 10 iþróttamönn-
um sem viðurkenningu hlutu.
Hinir 5 dveljast erlendis eða sáu
sér þess ekki kost að mæta ein-
hverra hluta vegna, sem og
nokkrir formenn þeirra sérsam-
banda sem þarna áttu menn á
listanum, en þeim var öllum boð-
ið.
Röð 10 efstu manna varð sem
hér segir.
1. Jóhannes Eðvaldsson 63 stig.
2. Ilreinn Haildórsson 60 stig.
3. Stefán Hallgrimsson 47 stig.
4. Skúli H. óskarsson 44 stig.
5. Ásgeir Sigurvinsson 37 stig.
6. Óiafur H. Jónsson 27 stig.
7. Viðar Guðjónsen 22 stig.
8. Arni Stefánsson 20 stig.
9. Lilja Guðmundsdóttir 18 stig.
10. Jón Alfreðsson 14 stig.
Jón gerði nokkra grein fyrir
fyrri veitingum þessa titils og
sagði m.a.:
Fyrir hönd Samtaka iþrótta-
fréttamanna, og Veltis h.f. býð ég
ykkur öll velkomin til þessa hófs.
Þess er venjulega beðið með all-
Jóhannes Eðvaldsson, fyrirliði landsliðsins I knattspyrnu var valinn
iþróttamaður ársins 1975 af Islenskum Iþróttafréttamönnum.
íþróttir
um
helgina
Alimikið verður um að vera
á iþróttasviðinu um þessa
helgi. Þar verður þetta helst:
★
HANHKNATTLEIKUR:
i 1. deild karla fara fram
tveir leikir á sunnudagskvöld,
báðir i Ilafnarfirði. Kl. 20 hefst
lcikur Hauka og Þróttar, en
strax á eftir leikur FH og Ar-
manns. i dag kl. 16.30 hefst I 2.
deild karla leikur KR og UBK
og strax á eftir leikur Leiknis
og ÍBK. i 1. deiid kvenna fara
fram tveir leikir á morgun,
sunnudag; kl. 18 hefst leikur
UBK og ÍBK i Garðahreppi og
kl. 19.00 hefst leikur FH og Ár-
manns i Hafnarfirði.
★
BLAK:
Tveir blakleikir verða um
helgina, og eru það leikir
landsliðsins og Reykjavikur-
úrvals.og Laugarvatnsúrvals,
sem er lokaundirbúningur
landsliðsins fyrir undankeppni
ÓL i næstu viku. Fyrri leikur-
inn fer fram I dag I fþróttahúsi
Kcnnaraháskólans og hefst kl.
14, en sá siðari hcfst kl. 17 á
morgun á sama stað gegn
Laugarvatnsúrvali.
★
KNATTSPYRNA:
Reykjavikurmótið i innan-
hússknattspyrnu fer fram i
Laugardalshöllinni á morgun
og hefst kl. 10 f.h. Keppt
veröur i tveimur riðlum og er
riðlaskipting þannig:
A-RIÐILL:
Ármann
Lciknir
Fram
Hrönn
Fylkir
B-RIÐILL:
Þróttur
Valur
KR
Víkingur
Áætlað er að úrslitaleikirnir
hefjist kl. 17.40.
★
KÖRFUKN ATTLEIKUR:
UMFN og KR leika i dag i
Njarðvik og hefst ieikurinn kl.
14. A Seltjarnarnesi leika I dag
ÍR — Fram I 1. dcild og Valur
— Snæfell og hefst fyrri ieikur-
inn kl. 14 Á morgun leika á
Akranesi Snæfell og ÍS.
Landsleikur í blaki
við englendinga
Eftir forkeppni ólympiu-
leikanna i blaki sem islenska
landsliðið tekur þátt i næstu
viku heldur liðið til Englands,
þar sem það mun leika lands-
leik við englcndinga, en scm
kunnugt er kom enska lands-
liðið hingað til lands I haust er
leið og lck hér tvo leiki.
Þetta verður því bæði langt
og strangt keppnisferðalag
sem blak-landsliðiö leggur af
stað i nk. þriðjudag.