Þjóðviljinn - 27.01.1976, Side 12

Þjóðviljinn - 27.01.1976, Side 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 27. janúar 1976. Greinargerð frá umferðarráði Leiðir til varnar gegn slysum Greinargerö þessi fjallar um hugsanlegar leiöir til varnar gegn slysum i umferö og er tekin sam- an aö beiöni dómsmálaráöherrá vegna hinna tiöu og alvarlegu umferöarslysa sem oröiö hafa aö undanförnu. Umferðarráð vekur athygli á þvi, að á siðasta ári biðu 33 veg- farendur bana i umferðarslysum og 697 slösuöust, þar af voru 376 lagðir á sjúkrahús. Umferðarráð telur nauðsynlegt að nú þegar verði hafist handa um samræmd- ar ráðstafanir sem liklegar eru til að stuðla að auknu umferðarör- yggi i landinu og fækkun um- ferðarslysa. í greinargerð þessari eru hug- myndir um leiðir til varnar gegn slysum i umferð flokkaðar i þrjá meginhluta. t fyrsta lagi eru til- greindar þær hugmyndir sem að mati ráðsins er unnt að fram- kvæma með skömmum fyrirvara og án lagabreytinga eða verulegs kostnaðar. 1 öðru lagi eru nefndar æskilegar breytingar á umferðar- löggjöf og lögum um meðferð opinberra mála. I þriðja lagi eru nefndar ýmsar aðrar hugmyndir sem ætla má að verði til varnar gegn slysum i umferð. I. Aðgerðir sem unnt er að framkvæma með stuttum fyrirvara og án lagabreyt- inga eða verulegs kostnað- ar. 1. ökuferilsskrá. Lagt er til að ákveðið verði að ökuferilsskrá i spjaldskrárformi skuli haldin i öllum lögsagnarum- dæmum. t skrána verði færð aðild að umferðarslysum og óhöppum, hvort sem aðili er talinn i sök eða ekki. Ennfremur verði færð i skrána alvarleg brot er varða umferðaröryggi, svo sem ölvun við akstur, of hraður akstur, brot á biðskyldu, stöðvunarskyldu eða almennum umferðarrétti og brot á reglum um umferðarljós. Kom- ið verði á fót ökuferilsskrá fyrir allt landið og reglur settar um hvaða tilvik skuli færð i ökuferils- skrá og með hverjum hætti, svo og hvernig haga skuli upplýsinga- skiptum milli aðalskrár og ein- stakra lögsagnarumdæma. öku- ferilsskrá verði notuð til leiðbein- ingar við endurnýjun ökuskir- teina, svo og við ákvörðun um það, hvort ástæða sé að kanna þekkingu manna á umferðarregl- um og aksturshæfni. 2. Könnun á þekkingu á um- ferðarreglum og aksturshæfni. Ef ökuferilsskrá leiðir i ljós að ökumaður hefur itrekað átt sök á umferðarslysi, itrekað gerst brot- legur gegn umferðaröryggisregl- um, eða á annan hátt sýnt at- hugaverða hegðun i umferð, ber að kanna þekkingu hans á um- ferðarreglum og eftir atvikum aksturshæfni hans sbr. 6. mgr. 27. gr. umferðarlaga og 48. gr. reglu- gerðar um ökukennslu, próf öku- manna o.fl. Æskilegt er að aðilum verði gefinn kostur á námskeiði til upprifjunar á helstu umferðar- reglum áður en til könnunar kem- ur. Leiðbeiningareglur um fram- kvæmd könnunarinnar verði gefnar út til þess að tryggja sam- ræmda framkvæmd i öllum lög- sagnarumdæmum. 3. ökuleyfissvipting. ökuleyfissviptingu verði beitt mun oftar en nú tiðkast við ein- stök alvarleg umferðarlagabrot, t.d. vitaverðan og gálausan akst- ur. bá veröi teknar upp ökuleyfis- sviptingar i vaxandi mæli gagn- vart þeim ökumönnum, sem oft eru staðnir að alvarlegum um- feröarlagabrotum, án þess að hvert einstakt þeirra hafi leitt til ökuleyfissviptingar. Verði stuðst við ökuferilsskrá við ákvörðun um bráðabirgðaökuleyfissvipt- ingu og kannað hvort setja megi leiðbeiningar um framkvæmd þessa. 4. Próf I umferðarlöggjöf við end- urnýjun fuilnaðarskirteinis. Samkvæmt 6. mgr. 27. gr. um- feröarlaga er heimilt aö ákveöa að við endurnýjun fullnaðarskir- teinis skuli hlutaðeigandi gangast undir skriflegt próf i umferðar- löggjöf. 1 2. mgr. 47. gr. reglugerðar um ökukennslu, próf ökumanna o.fl. er mælt svo fyrir, að áður en ökuskirteini er endur- nýjað skuli umsækjendur ljúka skriflegu prófi i umferðarlöggjöf. Skal prófi hagað þannig að próf- taki merki við rétt svör á prófverk efnablöðum er dómsmálaráðu- neytið leggur til. Umferðarráð telur brýnt að ákvæði þetta komi til framkvæmda hið allra fyrsta. Verði hér um að ræða könnun á þekkingu umsækjenda á helstu reglum, er varða umferðarör- yggi. Æskilegt er, að þeim sem ætla að sækja um endurnýjun ökuskirteinis verði gefinn kostur á að sitja stutt námskeiö, eftir þvi sem aðstæður leyfa, þar sem rifj- aðar eru upp helstu umferðar- regiur. 5. Hækkun sekta. Sektir fyrir umferðarlagabrot verði endurskoðaðar og þær hækkaðar verulega frá þvi sem nú er. Umferðarráð telur æskilegt að samræmis gæti i ákvörðun um sektarupphæðir fyrir umferðar- lagabrot i öllum lögsagnarum- dæmum landsins og leggur þvi til, að rikissaksóknari tilgreini i leið- beiningaskrá, skv. 112. gr. laga um meðferð opinberra mála, á- kveðna sektarupphæð fyrir tiltek- ið brot sem lögreglustjórar geta þó vikið frá eftir málsatvikum. Verði leiðbeiningaskrá rikissak- sóknara birt opinberlega þar sem telja má liklegt að slik birting hafi talsverð varnaðaráhrif. II. Aðgerðir sem krefjast breytinga á lögum og reglugerðum. A. Breytingar á lögum um með- ferð opinberra mála. 1. Meðferð umferðarlagabrota. Meðferð mála vegna umferðar- lagabrota verði gerð einfaldari og afgreiðslu þeirra hraðað, þannig að ekki liði langur timi frá þvi brot er framið þar til meðferð málsins er lokið, hvort heldur er hjá lögreglustjóra eða fyrir dómi. Stefnt verði að þvi að sem flest umferðarlagabrot hljóti fullnað- arafgreiðslu með sektargerð lög- reglustjóra. í þvi sambandi verði athugaðar leiðir til þess að gera sektargerðir lögreglustjóra að- fararhæfar, enda verði sakborn- ingi gefinn kostur á að skjóta máli til dómstóla innan tiltekins frests. 2. Sektaheimild lögreglustjóra. Sektaheimild lögreglustjóra, skv. 112. gr. laga um meðferð opinberra mála, verði hækkuð i 60.000 króna sekt, þannig að hún geti náð til fleiri brota á um- ferðarlögum en nú er. B. Breyting á umferðarlögum og reglugerðum. 1. Námskeiö fyrir ökukennara- efni. Nýir ökukennarar hljóti ekki löggildingu til ökukennslu fyrr en þeir hafa staðist ökukennarapróf að undangengnu námskeiði eða skólagöngu. Sett verði reglu- gerðarákvæði um lágmarks- menntun ökukennaraefna. 2. Upprifjunarnámskeið fyrir ökukennara. Stöfnað verði til námskeiða i ökukennslu sem öllum núverandi ökukennurum i landinu verði gert að skyldu að sækja. 3. ökukennsluréttindi. Endurskoðaðar verði reglur um endurnýjun ökukennararéttinda. Verði tekið til athugunar hvort rétt sé að áskilja að ökukennarar, sem ekki hafa skilað til prófs til- teknum fjölda nemenda sæki upp- rifjunarnámskeið. 4. Starfsemi ökuskóla. Settar verði reglur um starf- semi ökuskóla og löggildingu for- stöðumanna þeirra. 5. Almennt bifreiðastjórapróf. Reglugerðarákvæði um fram- kvæmd prófa verði endurskoðuð og prófin gerð strangari. Til greina kemur aö löggilda sér- staka próftökustaði á landinu. Tekið verði upp valpróf við fræði- lega hluta prófsins. Námskeið i skyndihjálp verði gert að skilyrði fyrir almennu bifreiðastjóra- prófi. 6. Giidistimi ökuskirteina fyrir byrjendur. Gildistimi bráðabirgðaökuskir- teinis, sem nú er eitt ár, verði lengdur i tvö ár. 7. Endurskoðun umferðarlaga. Umferðarlög verði endurskoð- uð með hliðsjón af breytingum sem unnið hefur verið að annars staðar á Norðurlöndun. 8. óiöglegar stöður bifreiða. Sett verði i umferðarlög skýr á- kvæði er heimili lögreglu að f jar- lægja á kostnað eigenda ökutæki sem standa ólöglega. 9. öryggisbúnaður ökutækja. Reglugerð um gerð og búnað ökutækja verði endurskoðuð og tekin upp itarlegri ákvæði um ör- yggisbúnað þeirra. 10. Reglugerð um umferðar- merki. Umferðarráð vekur athygli á, að á vegum umferðarlaganefndar er senn lokið itarlegri endurskoð- un á regluaerð um umferðar- Framhald á 14. siðu Skjöldur Eiríksson: Dögun dýrðleg rís drottinhollum Þjóðrembing og kotungsbrag vér köstum og komum hér upp alþjóðlegum „trustum”, þvi stóriðjuna „ábyrgir” ætla vorri þjóð, þvi afdönkuðum starfsháttum skal varpa á fyrnskuslóð Úrelt menning islensk arð ei gefur og undan voru Mammonsriki grefur. Grefur hún. „Þrýstihópa” þyrfti að banna að lögum, þeirra frekja ógnar vorum högum. I landhelginni vilja þeir vart „Vinaþjóðir” sjá, þeir vilja jafnvel kasta trúnni Nató-guð vorn á. Sá rumpulýður ráðningu þarf stranga viö refsistörf á Velli og Grundartanga. Við refsistörf. „Vinaþjóðir” varast ber að styggja, þvi veldi þeirra okkur ber að tryggja. „Varnarherinn” dýrðlega við viljum efla hér, þvi „Varöa Landsins” hugsjón fögru allir dáum vér. Eflist her ameriskra dáta. Okkar land þeim i té skal láta. Okkar land. Landbúnaðinn leggjum skjótt að velli og látum sjósókn hljóta stóra skelli, svo upp þeir gefist allir, sem eiga hana við og afhendum svo „vinaþjóðum” islensk fiskimið. Aukum brask, eflum vora Herra. Auðsins völd mega aldrei þverra. Auðsins völd. Aö launum „Vinir” dýra oss dali gefa, þvi dauðans heimska um Islandsmið að þrefa. Alusviss og Karbitur ómælt efla hag, svo aisælir við skulum kirja nýjan Islandsbrag: Nató-guð, ó minn drottinn dýri, þin djúpu ráð okkar gjörðum stýri. Þin djúpu ráð. Þvi felum Nató framtið vora alla. Hann færði okkur áróðurinn snjalla, sem sanna skal að Island sé afar mikilsvert okkar kæra Nató, svo að völd hans verði ei skert. Vopnahringaboðskap við breiðum frá bækistöð á Suðurnssjaheiðum. Frá bækistöð. A islenskt framtak enginn skyldi trúa alteknu af þjóðrembingsins fúa. öllu sliku úreltu útskúfum við senn, þvi alþjóðlega hugsa þeir sem eru sölumenn. Islensk tunga heimsborgara ei hæfir, þvi hennar tilvist Kanans áhrif slævir. Kanans áhrif. Tölvuvinnslu „Varða Landsins” virkjum og veldi okkar ómælt þannig styrkjum, og áróðurinn eflum gegn andstöðu við her, þá alla stimpla komma og rússaþjóna ber. Auð og völd útvöldum til handa, svo eilift megi riki Nató standa. Að eilifu. (Lag: A Sprengisandi fullvel um mig færi)

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.