Þjóðviljinn - 27.01.1976, Síða 16
ítalia:
Moro
reynir
enn
RÓM 26/1 reuter ntb — Aldo Moro
sem falin hefur verið stjórnar-
myndun á italiu gerði i dag enn
eina tilraunina tii að koma á
starfhæfri stjórn i landinu en þar
hefur nú rikt stjórnarkreppa i 19
daga.
Tilraunir hans snerust i dag um
að koma á bráðabirgðastjórn
næstu tvo mán. með þátttöku
kristilegra demókrata, sósialista,
sósialdemókrata og Lýðveldis-
flokksins. Sósialdemókratar
kváðust i dag reiðubúnir að veita
slikri stjórn skilyrðislausan
stuðning en Lýðveldisflokkurinn
kvaðstekki mundu taka ákvörðun
um stuðning fyrr en stefnuræða
stjórnarinnar yrði flutt á þingi.
Fréttamenn hermdu að Moro
stæði i simasambandi við leiðtoga
sósialista, de Martino, sem er i
Napóli. Sagt er að kristilega og
sósialista greini aðeins á um
smáatriði á sviði neyðarráðstaf-
ana til bjargar efnahags landsins.
Slik bráðabirgðastjórn gæfi
sósialistum og kristilegum tæki-
færi til að móta sér ákveðna
stefnu á þingum fiokkanna sem
haldin verða í febrúar og mars.
Opinberum gjaldeyrismörkuð-
um var lokað snemma i dag eftir
að liran hafði orðið fyrir miklum
þrýstingi sem olli þvi að verja
þurfti heimingi gjaldeyrsisvara-
sjóða landsins til að halda gengi
hennar óbreyttu. Raunverulegt
gengisfall lirunnar mun vera um
6% gagnvart dollar og 4.5% gagn-
vart helstu gjaldmiðlum Evrópu.
Við þetta óglæsilega ástand i
stjórn- og efnahagsmálum ítaliu
bættist i dag skýrsla frá OECD
um horfur i éfnahagsmálum
landsins á þessu ári. Þar segir að
vaxtarmöguleikar efnahagslifs-
ins séu af mjög skornum skammti
þessa stundina, greiðslujöfnuður
við útlönd má ekki við neinum á-
föllum og verðbólga og atvinnu-
leysi gæti aukist á árinu.
Karpov
skákmaður
ársins
Moskvu 26/1 — Sovéski skák-
meistarinn Anatoli Karpov
var i dag kjörinn skákmaður
ársins 1975 i kosningum þar
sem skákfréttamenn viða að
úr heiminum tóku þátt i.
Þetta er i þriöja skiptið i röð
sem Karpov hlýtur þessa veg-
semd en hann er eins og allir
vita heimsmeistari i skák eftir
að Bobby Fischer spilaði þeim
titli út úr höndunum á sér i
fyrra.
Að sögn fréttastofunnar
Tass tóku 72 fréttamenn frá 29
löndum þátt i kjörinu og var
ákvörðun þeirra gerð ein-
róma.
FJÖLMENNI HEIÐRAÐI
DAGSBRÚN í GÆR
Það var opið hús hjá Dagsbrún í gær síðdegis í til-
efni 70 ára afmælisins. Þangað kom fjölmenni til
þess að árna Dagsbrúnarmönnum heilla og færa
þeim gjafir góðar. Á myndunum sjáum við Eðvarð
Sigurðsson bjóða gesti velkomna í upphafi hófsins.
Þá má sjá Guðmund J. Guðmundsson rabba við
Pálma Eyþórsson, og við kaffiborðið sitja f jórir af
elstu núlifandi Dagsbrúnarmönnum, sem létu sig
ekki heldur vanta.
Enn er gengið á
rétt flugvirkja
Árleg skoðun tveggja Flugfélagsvéla
skyndilega flutt úr landi án skýringa
t gær héldu flugvirkjar á
Reykjavikursvæðinu félagsfund
þar sem samþykkt var að leita
fullnægjandi skýringa á þeirri
skyndiiegu ákvörðun Flugleiða,
aðsetja tvær vélar Flugfélagsins,
Boeing 727, i sinar árlegu skoðan-
ir erlendis.
Frá árinu 1967 hafa flugvirkjar
hér heima framkvæmt þessa
skoðun og sóst eftir þvi að fá mun
fleiri flugvélar til skoðunar hér-
lendis. Hafa þeir réttilega bent á
það, að mikinn gjaldeyri mætti
spara ef skoðanirnar yrðu færðar
inn til lansins en málflutningur
þeirra fengið litinn hljómgrunn til
þessa hjá forráðamönnum flugfé-
laganna.
Nú á hins vegar að senda enn
fleiri vélar út til skoðunar og er
giskað á að kostnaðurinn við
skoðun vélanna verði um 34
miliónir króna á hvora vél. „Dýr-
mætur gjaldeyrir a tarna, sem fer
til spillis,” segja flugvirkjarnir.
Akvörðun Flugleiða var til-
kynnt á föstudag og sendu flug-
virkjar strax harðort mótmæla-
skeyti. Svar við þvi barst frá
aðalforstjóra Flugleiða á sunnu-
dag og rökstuddi hann ákvörðun-
ina með þvi, að vinnuálag á flug-
virkjana hérlendis væri ákaflega
mikið og einnig bæri að hafa i
huga að skoðun erlendis tæki ekki
nema tvær vikur á meðan skoð-
unin hér tæki þrjár.
Flugvirkjar benda á það á móti
að þeir séu reiðubúnir til þess að
vinna mikið ef verkefni séu næg,
þeir vilji gjarnan bæta enn fleiri
verkefnum við. í kjölfar nægrar
vinnu stækki stéttin og sömuleiðis
ætti vinnuaðstaðan að lagast i
réttu hlutfalli. Draga þeir einnig i
efa að tveggja og þriggja vikna
kenning aðalforstjórans sé rétt,
a.m.k. sé furðulegt að þessi sann-
leikur liti svo skyndilega dagsins
ljós.
Flugvirkjar benda einnig á
þann möguleika til úrbóta, ef for-
ráðamenn eru farnir að óttast
vinnuálagið sem á stéttinni er, að
auðvelt sé að bæta við mannskap,
t.d. munu vera nokkuð margir is-
lenskir flugvirkjar starfandi er-
lendis, sem gjarnan vilja koma
heim til íslands aftur.
—gsp
Kveðja frá rikisstjórninni til sjómanna
Fiskverð lækkað
Ufsi lœkkar i verði um 33-35%
og janúarróðrar farnir
á fölskum forsendum
Rikisstjórn framsóknarmanna
og sjálfstæðismanna hefur sent
islenskum sjómönnum rétt eina
kveðjuna til. i þetta sinn er inni-
haldið tilkynning um verðlækkun
á fiski þrátt fyrir yfirlýsingar um
hið gagnstæða!
1 fréttatilkynningu frá Verð-
lagsráði segir, að samkomulag
hafi náðst um verð á ufsa. Verð á
ufsa i 1. flokki er óbreytt, en á
annars flokks ufsa lækkar verðið
úr 21.20 kr. pr. kg i 14 krónur og á
óslægðum annars flokks ufsa
lækkar verðið úr 18.70 i 12.30
krónur fyrir kilóið.
Þriðja flokks ufsi, slægður með
haus, lækkar úr 14.30 krónum
hvert kiló i 9.40 og óslægður lækk-
ar úr 12.40 i 8.30 hvert kiló.
Þessi verðlækkun mælist að
vonum vægast sagt illa fyrir hjá
sjómönnum. Formaður Sjó-
mannafélags Hafnarf jarðar,
óskar Vigfússon, sagði, að þetta
kæmi sem reiðarslag yfir sjó-
menn, sérstaklega bátasjómenn,
en uppistaðan i janúarafla bát-
anna væri þvi miður annars
flokks ufsi.
Óskar sagði, að það hefði verið
almennur skilningur sjómanna á
yfirlýsingu eða fréttatilkynningu
frá Verðlagsráði i ársbyrjun, að
aðrar breytingar yrðu ekki á fisk-
verði i janúar en sú, sem kynni að
stafa af breyttum stærðarmörk-
um, og svo, að þorskur mundi
hækka um 1% sem jafnan i janúar
vegna hrognafisks. Vegna þessa
skilnings hefðu sjómenn hafið
róðra i janúar.
Samstarfsnefnd sjómanna mun
koma saman i vikunni og ræða
viðbrögð við þessari siðustu
kjaraskerðingu rikisvaldsins.
Það skal tekið fram að lokum,
að umrætt verð á fiski gildir ein-
vörðungu fyrir janúarmánuð, og
þótt það hafi ekki verið birt fyrr
en 24. janúar á fiskverð sam-
kvæmtislenskum lögum að liggja
fyrir áður 1. janúar rennur upp.
—úþ
Boeing þotur Fí verða sendar ut-
an til ársskoðunar.
Friðrik/Kurajica:
Jafntefli
Friðrik gerði jafntefli við júgó-
slavann Bojan Kurajica á skák-
mótinu i Hollandi i gær. Tvær um-
ferðir eru nú eftir af mótinu og er
staðan þannig, að Ljubowitjs er
efstur með 6 1/2 vinning, en
Friðrik i 2.-4. sæt: ásamt Tal og
Kurajica, með 5 1/2 vinning.
Smejkal er með 4 1/2 vinning,
Anderson með 4 vinninga og bið-
skák og Brown með 4 vinninga.
Friðrik á eins og fyrr segir tvær
skákir ótefldar.
—ráa
Alþingi
hefur
störf
á ný
1 gær 26. janúar kom aiþingi
saman á ný tii framhaldsfunda að
loknu þinghléi frá 20. des. s.l. t
fjarveru forsætisráðherra las
Gunnar Thoroddsen, ráðherra
upp forsetabréf i fundarbyrjun
um að aiþingi skuii koma saman.
Siðan var minnst Hermanns
Jónassonar, fyrrverandi for-
sætisráðherra og rætt um jarð-
skjálftana á norðausturlandi.
SJÁ 6. SÍÐU