Þjóðviljinn - 03.03.1976, Síða 2

Þjóðviljinn - 03.03.1976, Síða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 3. mars 1976. Bjóðum bretum skipti á þorski fyrir þorska Guðjón nokkur hringdi til bæjarpóstsins meðan verkfallið stóð og hól Hattersleys hins breska um Geir Hallgrimsson var fréttaefni. Hann lét i ljós þá skoðun sína aö það væri vafa- samur heiður fyrir islendinga að eiga forsætisráðherra, sem fengi slik ummæli af hendi eins aðalandstæðingsins, en úr þvi að hann og þá væntanlega einnig aðrir bretar væru svo hrifnir af manninum mætti gera þeim tilboð. Þeim yrði þá boðið að fá manninn með alvarlegu augun i skiptum fyrir jafningja hans með þorskaugun. Sem sagt: Bjóðum bretum Geir Hallgrimsson til starfa (eða Ætli það mætti ekki bjóða Hattersley skipti á þessum tveim? skrauts, ef hann reynist þeim einnig ómögulegur starfs- kraftur) gegn þvi að fá i staðinn að halda þorskinum i friði. Þetta eru sanngjörn skipti, eða grunar einhver islendinga um að þeir láti af hendi svikna vöru? Einn stórþorskur hlýtur þó að segja nokkuð upp i marga smátitti á friðaða svæðinum fyrir norðaustan? Ráðherra víttur A fundi námsmanna í Stokkhólmi A fundi Félags isi. námsmanna i Stokkhólmi nýlega var sam- þykkt eftirfarandi ályktun um kjaramál námsmanna: Othlutun almennra námslána hefur nú dregist úr hófi, og fyrir- sjáanleg er stórfelld kjörum námsfólks. skerðing á Fundurhaldinn iFINÍS (Félagi islenskra námsmanna i Stokk- hólmi) 14/2 1976 vitir mennta- málaráðherra harðlega fyrir skeytingarleysi um málefni námsfólks og rikisstjórnina i heild fyrir skort á ábyrgð gagn- vart minnihlutahóp, sem á undir högg að sækja i kjarabaráttu sinni. Við teljum að vinnubrögð og framkoma rikisstjórnarinnar i þessu máli sé ósæmandi lýðræðis- riki og hvetjum fulltrúa íslenskra námsmanna, SHl og SINE, aö hefjast nú handa með raunhæfar aðgerðir. Dansflokkurinn. Þjóðleikhúsið: Frumsýning á nýjum íslenskum ballett Annað kvöld (4/3) verður frumsýning i Þjóöleikhúsinu á nokkrum listdönsum, þar á meöal frumuppfærsla á nýjum islensk- um ballett eftir Unni Guöjóns- dóttur, listdansara og dansahöf- und. Listdanssýningin er þriskipt: fyrs t verður fluttur ballett Unnar, sem nefnist UH BORGAR- LIFINU og er hann saminn við tónlist eftir Þorkel Sigurbjörns- son aö viðbættri pop-tónlist. Leik- mynd og búningar eru eftir Unni sjálfa. Þá verður fluttur ballett- inn Dauðinn og stiílkan við tónlist Schuberts undir stjórn breska ballettmeistarans Alexanders Bennett, sem samið hefur dans- inn, en Bennett hefur starfað sem gestaballettmeistari við Þjóð leikhúsið frá áramótum. Bennett hefur einnig æft og stjórnað þriðja liö sýningarinnar, sem eru atriði úr Þyrnirósu við tónlist Tsjaikovskis. Það eru Islenski dansflokkurinn og nemendur úr Listdansskóla Þjóðleikhússins, sem dansa en alls koma um 30 manns fram i sýningunni. Ballett Unnar Guðjónsdóttur, Or borgarllfinu, lýsir vandamáli nútimafjölskyldu, þegar faöirinn fer að heiman og móðir og dóttir standa andspænis breyttum kringumstæðum. Nanna Ólafs- dóttir dansar móðurina, Auður Bjarnadóttir dótturina og Rand- ver Þorláksson fer með hlutverk föðurins. Auk þess dansar islenski dansflokkurinn en í hon- um eru nú 8 stúlkur: Auöur Bjarnadóttir, Asdis Magnúsdótt- ir, Guðmunda H. Jóhannesdóttir, Guðrún Pálsdóttir, Helga Bernhard, Ingibjörg Pálsdóttir, Nanna ólafsdóttir og Ólafia Bjarnleifsdóttir. Dauöinn og stúlkan greinir frá ungri súlku, sem mætir örlögum sinum i liki dauöans. Ungu stúlk- una dansa þær Helga Bernhard Hvenær hentar þér að fara í bankann þinn? Er hann opinn þá? Allan daginn er einhver frá klukkan 9-30að morgni til klukkan 7-00aÖ kvöldi opin, V AÐALBANKINN s\ BANKASTRÆTI 5 SÍMI 27200 :íji; ;iii;iiiiii jijiiiiiiiii i;i;iiiii;i útibúið tt 1 LAUGAVEG1172 SÍMI 2 0120 ji;ii :jiiiiii;iii iijiiijijij ijijijijiji 1 I AFGREIÐSLAN // UMFERÐARMIOSTÖÐ SÍMI 2 25 85 íí;í; v.v.vi .v/lv! ijijii;i;ii ijijijijiji iiiiii;i;i;i *Æ BREIÐHOLTSÚTIBÚ f ARNARBAKKA2 SÍMI74600 :i;i:i ijiiijiiii; jijijijijiji pi;i iii;iiiii;i XvX;! iiiiii Veldu þér banka sem er opinn þegar þér hentar. VíRZLUNflRBflNKINN Nanna ólafsdóttir og Auður Bjarnadóttir á æfingu. og Guðmunda H. Jóhannesdóttir til skiptis, dauðann dansar örn Guðmundsson. I atriðunum úr Þyrnurósu skiptast Auður, Asdis og Ingibjörg á að dánsa Aróru en auk þess koma þar fram örn Guðmundsson, aðrar stúlkur dansflokksins, Asmundur Asmundsson, Gunnlaugur Jónas- son, Björn Sveinsson, Edda Scheving, Hjálmar Sverrisson, Alfreð Gunnarsson auk nemenda Listdansskólans. Flutt veröa þrjú atriði úr Þyrnurósu. Alexander Bennetter viðkunn- ur dansari og ballettmeistari, var um skeið aðaldansari við konung- lega breska ballettinn og ballett- meistari óperunnar i Lond- on.Hann hefur starfað sem ballettmeistari viða um Banda- rikin, i Suður-Afriku og slðustu tvö árin í Brasiliu, þar sem hann var ballettmeistari I RIó de Janeró. Bennett kom hingað til lands árið 1970 og stjórnaði þá listdanssýningu á vegum Félags Isl. listdansara. Hann hefur verið gestaballettmeistari Þjóöleik- hússins frá þvf um áramót. Hundsbit fyrir lífgjöf Dómari nokkur i Bedford á Englandi var bitinn af risastórum veiðihundi nokkrum minútum eftir að hann hafði bjargað lífi hundsins. Dómarinn haföi fellt úr gildi ákvörðun undirréttar um aö skjóta bæri hund þennan vegna þess að hann hafði ráðist á lögregluþjón, tvo drengi og geit. Að réttarhöldum loknum var dómaranum sýndur hundurinn, sem heitir Kalifi. Hann klappaði hundinum, sem lét ekki á sér standa og beit tvisvar i hönd hans.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.