Þjóðviljinn - 03.03.1976, Page 3

Þjóðviljinn - 03.03.1976, Page 3
MiOvikudagur 3. mars 1976. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Fri í skólum vegna öskudagsins: Megn óánægjavegna þeirrar ákvörðunar — eftir að skólahald hefur legið niðri í meira en viku vegna verkfalls ástæða til að breyta útaf nú. Sá sem rætt var við i ráðuneytinu kannaðist hinsvegar við þær Margir aðilar hafa haft sam- band við Þjóðviljann vegna þess að börn komu heim úr skólanum i gær með þá frétt að fri væri gefið i skólum i dag, öskudag, eins og venja hefur verið um árabil. En ástæðan fyrir þvi, að fólk er óánægt með þetta fri nú, er sú, að skólahald um land allt hcfur legið niðri i meira en viku vegna verkfallsins, og nú á að bæta einum frideginum við. Þjóðviljinn hafði samband við menntamálaráðuneytið i gær og spulrðist fyrir um þetta mál. bar var okkur tjáð, að frl i skól- um á öskudag væri lögboðinn gamall siður sem ekki þætti þær skiljanlegar eftir það sem á undan er gengið. Þá spurðumst við fyrir um hin svo kölluðu mánaðarfri og var okkur sagt að þau hefðu á sinum tima komist á til að hvila nemendur, ekki kennara, sem eiga ekki að eiga fri þá daga sem mánaðarfri er i skólum, þótt svo sé allviða. — S.dór. Sovéska flokksþingið: Áætlanir útskýrðar, Brésjnéf nijög hælt MOSKVU 2/3 Reuter-APN. 25ta flokksþing Kommúnistaflokks Sovétrikjanna hefur nú staðið i viku. í gær var lokið umræðu um skýrsiu miöstjórnar, sem Brésjnéf flutti, og byrjað er að ræða efnahagsmál, en um þau hafði Kosigin forsætisráðherra framsögu. Kosigin sagði að sl. fimm ár hefðu verið þau bestu i sovésku efnahagslifi og hefðu meðaltekjur manna aukist um 20-25%. Hann gerði grein fyrir áöur birtum markmiðum nýrrar fimm ára áætlunar, með fyrirheitum um 16- 18% launahækkun á þeim tima til verkafólks og 24-28% aukningu þjóðartekna. Hann sagði og að á næstu árum mundi hlutdeild Sovétrikjanna i alþjóðlegri verkaskiptingu aukast. 1 lokaræðu um skýrslu mið- stjórnar sagði Brésjnef að um- ræður hefðu verið málefnalegar, sjálfsgagnrýnar og þó bjartsýnar. Það hefur verið eftir þvi tekið hve mjög sovéskir þing- fulltrúar hafa lofað Brésjnéf, m.a. kallað hann „heitlandi persónuleika” og „fremsta stjórnmálamann samtimans.” Hafa slik ummæli um flokks- foringja ekki heyrst siðan á dögum Krúsjofs Af ræðum erlendra fulltrúa á þinginu hafa vakið mesta athygli ræður fulltrúa júgóslavneskra kommúnista, Dolanc, og foringja italska flokksins, Berlinguers. Þeir lögðu báðir sterka áherslu á nauðsyn sjálfstæðis hvers flokks en minntust alls ekki á þá „al- þjóðakyggju öreyga” sem sovéskir hafa mjög á lofti. Berlinguer lagði miklar áherslu á Solsjenitsin svartsýnn á vesturlönd LONDON 2/3 Rithöfundurinn Solzjenitsin kvaðst mjög svart- sýnn á framtið Vesturlanda i viðtali við breska sjónvarpið BBC. Taldi hann að þau hefðu gefið upp hverja vigstöðu af annarri og römbuðu á barmi hruns. Ekki væri lengur spurt að þvi hvort alræðið mundi hrynja i Sovétrikjunum, heldur að þvi, hvort Vesturlönd gætu komisthjá þvi að fara sömu leið og heimaland rithöfundarins. Brésnéf að flokkur sinn berðist fyrir sósialisma sem virti til fulls menningarlegt frelsi, trúfrelsi og þátttöku mismunandi pólitiskra afla i stjórnmálalifi. Fulltrúar frakka, breska og spænska kommúnistaflokksins hafa tekið i sama streng, en þetta er allt mjög i skjön við hugmyndir sovét- manna um forystuhlutverk og forræði kommúnistaflokks. Af sovéskum forystumönnum hefur Masjerof andmælt þessum viðhorfum án þess þó að nefna nokkurn flokk með nafni. Hann andmælti tilraunum til að „módernisera” marxisma og „troða honum inn i þjóðernis- hyggjubása” og kvað sovétmenn sem hefðu á sinu valdi „alla auð- legð byltingarreynslu” vita vel hvers virði slikar tilraunir væru. Vtför Sverris á föstudaginn A föstudaginn kemur verður útför Sverris Kristjánssonar sagnfræðings gcrð frá Dóm- kirkjunni í Reykjavik. Hann lést föstudaginn, 26. febrúar, 68 ára að aldri. Sverrir Kristjánsson var þjóðkunnur sagnfræðingur og einhver ágætastur penni okkar tiöar. Hann var fæddur i Reykjavik árið 1908, lauk stúdentsprófi 1928 og nam sagnfræði við háskólann i Kaupmannahöfn og siðar i Berlin. Sverrir ritaði margt um sagnfræði (Siðskiptamenn og trúarstyrjaldir, Mannkyns- saga 300-630) stjórnmál og menningarmál (Ræður og riss), islenska örlagaþætti setti hann saman á margar bækur. Hann var og þýðandi ágætur og gaf út með merkum formálum jafnt Kommúnista- ávarpið sem verk Jóns Sigurðssonar. Hann starfaði einnig við skrásetningu bréfa og skjala er varða islenska sögu i helstu söfnum Dan- merkur. Sverrir var þrikvæntur, eftirlifandi kona hans er Guð- Sverrir Kristjánsson. munda Eliasdóttir söngkona. Sverrir Kristjánsson lagði Þjóðviljanum mikið og gott lið með fjölda ágætra ritgeröa og greina. Hans verður nánar getið i blaðinu siðar. I l; Bóka mark aður inn Góöar bækur Gamalt Miðvikudaginn Fimmtudaginn Föstudaginn Laugardaginn Mánudaginn Þriðjudaginn Miðvikudaginn Fimmtudaginn Föstudaginn Laugardaginn 3. marz 4. marz 5. marz 6. marz 8. marz 9. marz 10. marz 11. marz 12. marz 13. marz frá kl. frá kl. frá kl. frá kl. frá kl. frá kl frá kl. frá kl. frá kl. frá kl. 9—18 9—18 9—22 9—18 9—18 9—18 9—18 9—18 9—22 9—18 Bókamarkaóurinn Í HÚSI IÐNAÐARINS VIÐ INGÓLFSSTRÆTI

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.