Þjóðviljinn - 03.03.1976, Page 10

Þjóðviljinn - 03.03.1976, Page 10
1« SiÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur mars 1976. (H ÚTBOÐ (H Tilboð óskast i að bora og sprengja i grjótnáminu við Korpúlfsstaöi, ásamt akstri, fyrir Grjótnám Reykjavikur- borgar. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3, gegn 2.000.- kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað, fimmtudaginn 25. mars 1975, kl. 11,00 f.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800 Sovéskar bækur og tímarit (á ensku), hljómplötur og nótur. Opift frá kl. 10—12 og 14—18, föstudaga til kl. 19, laugardaga kl. 10—12. ERLEND TÍMARIT Hverfisgötu 50 v/Vatnsstig 2. hæft Umboðsmenn Þjóðviljans sjá um að dreifa blaðinu hver í sinni byggð, annast innheimtu áskriftargjalda, gera upp við blaðsölu- staði. Nýir áskrifendur gjöri svo vel að snúa sér til þeirra. UMBOÐSMENN ÞJÓÐVILJANS Umboðsmenn Þjóðviljans á Suðurlandi EYRARBAKKI: Pétur Gislason, Læknabústaðnum —- s. 3135 HVERAGERÐI: Helga Eiriksdóttir, Varmahlið 43 — s. 4317 SELFOSS: Halldóra Gunnarsdóttir, Sléttuvegi 7 — s. 1127 STOKKSEYRI: Frimann Sigurðsson, Jaðri — s. 3215 eða s. 3105 VESTMANNAEYJAR: Edda Tegeber, Hrauntúni 35 — s. 1864 ÞORLÁKSHÖFN: Franklin Benediktsson, Veitingast. Þorlh. — s. 3636 Umboðsmenn Þjóðviljans á Reykjanesi: GRINDAVIK: Ólafur Andrésson, Vikurbraut 50 GERÐAR: Ásta Tryggvadóttir, Skólabraut 2 — s. 7162 KEFLAVIK: Magnús Haraldsson, Sportvik Hafnargötu 36 — s. 2006 SANDGERÐI: Hjörtur Helgason, Kaupfélagsstjóri — s. 7446 Y-NJARÐVIK: Helga Sigurðardóttir, Hraunsvegi 8 — s. 2351 VOÐVIUINN Lektorsstaða í Uppsölum Lektorsstaöa i Islensku máli og bókmenntum I Uppsölum með kennsluskyldu i Stokkhólmi er laus til umsóknar. Laun eru 6.073 sænskar krónur á mánuði og er kennslu- skylda 395 stundir á ári. Ráðning er til þriggja ára frá 1. júli n.k. Umsækjcndur skili umsóknum til Heimspekideildar Ilá- skóla islands fyrir 20. mars n.k. Heimspekideild Háskóla Islands Bókasýning Bandariska bókaforlagið McGraw-Hill heldur bókasýningu á ýmsum tækni- og visindabókum á vegum Bóksölu stúdenta dagana 3., 4. og 5. mars. Sýningin er i Félagsstofnun stúdenta v/Hringbraut og er opin frá kl. 10.00 til ki. 18.00 þessa þrjá daga. Fulltrúi frá Mcfciraw-Hill verður viðstadd- ur sýninguna og veitir allar upplýsingar. Allir velkomnir. BÓKSALA STÚDENTA Verður ferðamála Umrœður um tilverurétt nefnda í borgarstjórn: Markús örn Antonsson; hann getur tekið það til mjög alvar- legrar athugunar að leggja ferða- málanefnd niður. Sigurjón Pétursson; hann vill sameina nokkrar nefndir borgar- innar og leggja eina niður. Elin Pálmadóttir; hún vill ekki leggja nefndirnar niður, hins vegar vill hún láta „skoða” mál- ið. ' nefnd lögð niður, „Stjórnskipan borgarinnar á að vera á sifelldri endurskoðun, og við eigum ekki að hika við að breyta henni, ef slíkar breytingar standa til bóta,” sagði Sigurjón Pétursson borgarráðsmaður þegar hann fylgdi úr hlaði tillögu sinni um samruna nokkurra nefnda á vegum borgarinnar og aflögn ferðamálanefndar. Þegar Sigurjón fylgdi tillögu sinni úr hlaði minnti hann á, að 4. des. sl. hefði hann flutt tillögu um stofnun sérstaks framkvæmda- ráðs, sem sett yrði yfir nokkrar sameinaðar deildir, sem nú vinna hver i sinu horni á vegum borgar- verkfræðings og sumar að sama verkefninu án vitundar hvorrar annarrar. Þessi tillaga var þá felld, og þvi ma. haldið fram, að Alþýðubandalagið væri eingöngu að þessu vegna þess, að það vildi sifelldlega vera að hlaða einni nefndinni á aðra ofan. Borgarfulltrúum til fróð- leiks, skýrði Sigurjón frá þvi, að þrátt fyrir að ihaldsmeirihlutinn hafi fellt þessa tillögu og talið hana aldeilis óþarfa, hefði borgarstjóri litið öðrum augum á málið, þvi 23. janúar sl. hefði hann ritað embættismönnum hjá borginni bréf og falið þeim að samræma starfsemi ákveðinna nefnda á vegum borgarinnar, rétt eins og hann hafði talið hinn mesta óþarfa hálfum öðrum mánuði fyrr! Þessu næst vék Sigurjón að til- lögunni, sem i þetta skipti felur það ekki i sér, að nefnd sé ofan á nefnd hlaðið, heldur séu þrjár og þrjár nefndir sameinaðar í eina? starfandi nefndir sameinaðar i eina. Tillagan hljóðar svo: Borgarstjórn samþykkir að fela borgarráði að undirbúa reglugerð um sameiningu umhverfismála- ráðs, veiði- og fiskiræktarráös og leikvallanefndar. Auk þess verði ferðamálanefnd lögð niður. Sigurjón sagði tilganginn með tillöguflutningnum þann ma. að færa kjörnum fulltrúum i hendur vald til þess að ákveða mörk þeirra umsvifa, sem embættis- menn hafa öfugt við það sem nú er, svo og það að freista þess að koma skipulagi á umsvif borgar- verkfræðings (fyrstu þrjár nefnd- irnar heyra undir embætti hans) að einhverjum hluta, þó svo eðli- legast hefði verið að gera það með samþykki tillögunnar frá 4. desember, og áður var frá sagt. Sigurjón sagði ma: „Ég er ekki að draga úr mikilvægi þeiéra þátta, sem nefndir þessar hafa haft með höndum. Hins vegar skarast verksmið nefndanna og þvi eðlilegt að samræma þau. Með þessu fæst betri nýting fjár- muna vegna hagkvæmari og já- kvæðari ráðstafana. Hins vegar viðurkenni ég, að það er hreint sparnaðarsjónar- mið hvað nefndarlaunum við- kemur að gera tillögu um að leggja ferðamálanefndina niður, þessa nefnd, sem enn hefur ekki fundið sér verkefni en var stofnuð eingöngu til þess að stofna nefnd. „Stjórnskipan borgarinnar á að vera i sifelldri endurskoðun, og við eigum ekki að hika við að breyía þvi, ef slikar breytingar standa til bóta." Elin Páimadóttir (D) sagðist yfirleitt vera þeirrar skoðunar, að nefndir ættu ekki að vera of margar. Það ætti þó ekki við nú, Framhald á bls. 14. Samnmgamir mæltust misjafnlega fyrir Skipstjórar og stýrimenn svo og félagar i Vélstjórafélagi tslands héldu fund um samningana i gær. óhætt er að segja, að samningarnir hafi mælst misjafnlega fyrir. Ætlun yfirmanna og vélstjóra, sem ekki eru i verkfalli, er að hafa allsherjaratkvæðagreiðslu um samningana. Verða atkvæði talin á laugardag, og þá sameiginlega frá öllum félögum yfirmanna á fiskiskipum.svo og at kvæði vélstjóra. _tfþ Umdeild veiting dómaraembættis Ólafur Jóhannesson dóms- málaráöherra hefur nú valið á milli umsækjenda um embætti hæstaréttardómara og skipað i það Þór Heimi Vilhjálmsson prófessor. Þessi embættisveiting mælist misjafnlega fyrir, enda er maðurinn umdeildur. Dóms- málaráðherra átti kost á þvi að haga vali sinu ööru vísi og skipa óumdeildan mann i embættið, þvi aö meðal umsækjenda voru ýmsir hæfir dómarar sem enginn styr stendur um. Til hæstaréttardómara er gerð sú krafa að þeir séu óhlutdrægir og pólitískt óvilhallir og standi ut- an stjórnmálaflokka. Nú má auðvitað segja að nýskipaður hæstaréttardómari geti breytt um liferni, en hingað til hefur það verið sjaldgæft að maður með „pólitiska fortið” væri skipaður dómari við hæstarétt og dæma- laust að velja mann sem á skipunartima er starfandi i innsta hring stjórnmálaflokks. Þór Heimir er fyrsti maðurinn sem nýtur sliks trausts. Þór Heimir var helsti maðurinn bakvið undirskriftaherferð „Var- ins lands” fyrir tveim árum og sá maðurinn sem tengdi það póli- tiska framtak við forystusveit Sjálfstæðisflokksins. Má undar- legt heita að formaður Fram- sóknarflokksins sjái ástæðu til að heiðra forgöngumann „Varins lands” og segir það sitt um af- stöðu formannsins til þessarar herferðar sem ætlað var að veikja vinstri stjórnina og gerði það. I annan stað er Þór Heimir for- göngumaður að umfangsmestu meiðyrðamálum íslenskrar sögu, og er það dálitið einkennileg dómsmálaaðgerð að láta manninn ganga inn i dómarasæti i hæstarétti um það bil sem fyrstu vl-málunum er visað þangað. Aðrir umsækjendur um em- bætti hæstaréttardómara voru: Bjarni Kr. Bjarnason borgar- dómari, Elias I. Eliasson bæjar- fógeti, Jóhann Salberg Guð- mundsson sýslumaður og fógeti, Halldór Þorbjörnsson yfirsaka- dómari, Sigurgeir Jónssön bæjar- fógeti og Sigurjón Sigurðsson lög- reglustjóri. hj —

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.