Þjóðviljinn - 03.03.1976, Qupperneq 16
Miðvikudagur 3. mars 1976,
Dagsbrúnarmenn á fundi um helgina.
Eðvarð Sigurðsson, formaður Dagsbrúnar:
V iðnámssamningar
— Þetta eru viðnámssam n-
ingar, þegar á heildina er litið,
sagði Eðvarð Sigurðsson, for-
maður Dagsbrúnar, þegar
Þjóðviljinn spurði hann álits á ný-
gerðum kjarasamningum. — Viö
höfum sett okkur það mark að
endurheimta eitthvað af þeirri
kjaraskerðingu, sem orðið hefur
frá samningunum 1974. Það tókst
ekki. Hinsvegar eiga þessir
samningar, að svo miklu leyti
sem nokkrir samningar geta það,
að tryggja kaupmátt, sem sam-
svarar meöalkaupmættinum á
s.I. ári.
Þetta er gert i fyrsta lagi með
þeirri kauphækkun, sem gekk i
gildi fyrsta mars, i öðru lagi með
þeim áfangahækkunum, sem
koma á timabilinu, og i þriðja lagi
með svokölluðum rauðum strik-
um. Ef sú verðlagsspá, sem þau
miðast við, ekki stenst, þá koma
sérstakar hækkanir fyrir hvert
það prósent, sem þar fer framyf-
ir.
Það er galli að minu viti, sagði
Eðvarð ennfremur, að þær verð-
lagsbætur, sem eiga að koma
samkvæmt rauðu strikunum,
koma sem prósentálag á allt
kaup, hátt og lágt. Atvinnurek-
endur vildu ekki fallast á krónu-
töluregluna, sem viðhöfð var á
s.l. ári, en ég hefði taliö að krónu-
talan hefði átt að vera hærri og
koma jafnt á allt kaup.
— Hvað má frekar telja samn-
ingunum til gildis?
— Það má nefna ýmsar lagfær-
ingar, svo sem 1500 króna mán-
aðaruppbótina á öll laun lægri en
54.000—57.000 krónur á mánuði.
Félög Verkamannasambandsins
fengu einnig nokkrar lagfæringar
á töxtum, tilfærslur milli taxta i
ýmsum störfum, sem hafa nokk-
urt gildi fyrir þá hópa, mismun-
andi mikið þó. Einnig fengust
fram lagfæringar á ýmsum
samningsatriðum, sem ekki er
Tveir bátar úr Reykjavlk gerö-
ust verkfallsbrjótar i sjómanna-
verkfallinu. Voru það
Guömundur RE og Helga RE.
Guðmundur RE er i eigu Páls
Guðmundssonar, fimmta manns
á framboðslista Framsóknar-
flokksins til borgarstjórnarkosn-
inganna síðustu.
Guðmundur RE sigldi út i
fyrradag, en óvist var um Helgu
RE, en þó talið að hún mundi
hægtað meta beint tii peninga, en
hafa talsvert gildi. Siðast en ekki
sist ber að geta lagfæringar, sem
varð á lifeyrissjóðakerfinu, og ef
frambúöarlausn þess máls
verður sú, sem hugur okkar i
verkalýðshreyfingunni stendur
til, teldi ég það eitt merkasta
atriöi þessara samninga.
En sem sagt, hér er engin
ástæða til verulegs sigurfagnað-
ar, þótt tekist hafi að spyrna eitt-
hvað við fótum, sagði Eðvarð að
lokum. dþ.
sigla út i gær. Trúnaöarmanna-
ráð Sjómannafélags Reykjavikur
kom saman til fundar i gærkveldi
klukkan 20:30 og átti þar að fjalla
um viðbrögð við verkfallsbrotum.
yiðbörgð við verkfallsbrotun-
um voru tvenns konar. Annars
vegar varhugsað til þess, að afla-
verðmæti skipanna yrði gert upp-
tækt til verkfallssjóðs Sjómanna-
félags Rvikur. Hins vegar var
hugsað til algjörrar uppgjafar
vegna brotanna, og að aflýsa
verkfallinu. Voru það forsvars-
menn félagsins, þeir Hilmar
Jónsson, form., félagsins, Sigfús
Bjarnason og Pétur Sigurðsson,
alþingismaður, sem þeirri hug-
mynd mæltu með. — úþ
Stjórn og trúnaðar-
mannaráð Sjómanna-
félags Reykjavikur
samþykktu i gærkvöldi
að fresta áður boðaðri
vinnustöðvun, meðal
annars vegna dræmrar
þátttöku við atkvæða-
greiðslu um kjara-
samningana og vegna
siendurtekinna verk-
fallsbrota.
Suðurnesj amenn
fresta verkfalli
Sjómenn á Suðurnesjum, þeas.
i Keflavik, Garði og Sandgerði,
þar sem sjómannasamningarnir
höfðu verið felldir, hafa
samþykkt að fresta verkfalli
vegna þess að taliö hafi verið i
hverju sjómannafélagi fyrir sig
og þar með sumir sjómenn farnir
að róa en aðrir ekki, þar til annað
verði ákveöið.
Róa þvi bátar frá þessum stöð-
um.
Áskriftarsími
17505
Tekið verður við nýjum
áskrifendum í kvöld og
næstu kvöld til kl. 10.
Eitt símtal, og þú færð
blaðið sent heim næsta dag.
ÞJÓÐVILJINN
Verkfall sjómanna í Reykjavík
Frestað vegna
verkfallsbrota
VIÐBRÖGÐ SJÓMANNA:
Felldu annað með
121 atkv.gegn 12
Atkvæði um það, hvort
sjómenn á Snæfellsnesi skyldu
falla frá sérákvæðum i samn-
ingum sinum við útgerðarmenn/
voru greidd i gær og fellt að
gera svo i sameiginlegri at-
kvæðagreiðslu sjómannafélaga
á Snæfellsnesi með 121 atkvæði
gegn 12, en atkvæði voru talin i
gær.
Að sögn Sigurðar Lárussonar,
formanns Verkalýðs- og 'sjó-
mannafélagsins Stjörnunnar í
Grundarfirði, var talið sam-
eiginlega eftir atkvæðagreiöslu
i sjómannafélögum á Hellis-
sandi, Grundarfirði, Ólafsvik og
Stykkishólmi um það hvort sér-
ákvæði sjómanna á Snæfellsnesi
skyldu falla niður, en félögin
þar hafa samið sérstaklega við
Útvegsmannafélag Snæfells-
ness.
Sagði Sigurður, að viðræður
hefðu farið fram á milli sjó-
manna og útvegsmanna á
sunnudag og mánudag um sér-
ákvæði sjómanna á Snæfellsnesi
og hefði ekkert samkomulag
náðst i þeim viðræðum. Þvi var
það lagt fyrir fundi I sjómanna-
félögunum hvort sjómenn vildu
halda fast við það að snúa ekki
frá þessum sérákvæðum.
Samþykkt hafði verið i öllum
félögunum, að heildarsam-
komulagið yrði ekki lagt fyrir i
félögunum fyrr en atkvæða-
greiðsla um sérákvæðin hefði
farið fram, og ekki ef samþykkt
yrði að falía ekki frá sérákvæð-
um.
I atkvæðagreiðslunni voru
tveir seðlar ógildir og einn
auður.
1 Grundarfirði greiddu 43
starfandi sjómenn atkvæði og
mun það vera um 90% starfandi
sjómanna.
Sérákvæði þau, sem um ræð-
ir, snúa að beitingu, netafell-
ingu og annarri netavinnu, fleiri
fridögum en um er samið i
heildarsamkomulaginu og ann-
arri skiptaprósentu á dragnót
og skelfiski, en frá er greint i
heildarsamkomulaginu.
Verkfall verður þvf áfram hjá
sjómönnum á Snæfellsnesi.
Samþykkt hefur verið, að sam-
komulag sem hugsanlega næst,
verði þannig borið upp, að öll
félögin greiði atkvæði um þaö
sameiginlega. —úþ
Undanþága veitt til
sjóróðra eystra
Sjómenn á Austfjöröum hafa
veitt undanþágu til sjóróðra
eystra nema á Seyðisfirði.
Austf jarðafélögin eru ekki
aðilar að heildarsamkomulagi
þvi sem gert var með sjómönn-
um og útvegsmönnum á dögun-
um heldur semja þeir sérstak-
lega við Útvegsmannafélag
Austf jarða um kaup sin og kjör.
Þjóöviljinn hafði tal af Sig-
finni Karlssyni.en hann tók þátt
i samningsgerðinni hér syðra.
Sigfinnur var þá nýkominn
austur á Norðfjörð, en þar
ætlaði hann að halda fund i gær-
kveldi til þess að kynna
samningana.
Sem samninganefndarmaður
hér syðra skrifaöi Sigfinnur
ekki undir heildarsamningana
fyrir hönd Alþýðusambands
Austurlands, heldur undir sér-
staka samninga við stjórn Llú,
þar sem aðeins er kveöið á um
hlutaskiptin þau nýju og
kauptrygginguna. Að öllu öðru
leyti er gengið frá sjómanna-
samningum eystra við Útvegs-
mannafélag Austurlands, en
Llú sendir mann á þann fund.
Ætlunin er að sá fundur verði
um næstu helgi.
Austfjarðafélögin hafa veitt
öllum bátum undanþágu til sjó-
róöra að sögn Sigfinns, allt frá
Vopnafirði að Hornafirði,
meðan gengið er frá samning-
um. Seyðisfjarðarfélagið er þó
undanskilið. Sagði Sigfinnur að
það tæki svo langan tima að ná
mönnum saman, að ekki væri
hægt að láta flotann liggja inni
þess vegna.
Sigfinnur sagði að sér virtist
sem óánægjan eystra beindist
helst gegn samningunum fyrir
minni skuttogarana, og þá hinni
nýju skiptaprósentu.
-úþ
Sjómenn munu
verja löndun
sagði Oskar Vig-
fússon, form.
Sjómannafélags
Hafnarfjarðar
„Aðallega fettu menn fingur
út I skiptaprósentuna”, sagði
Óskar Vigfússon, formaður Sjó-
mannafélags Hafnarfjarðar, en
þar felldu sjómenn nýgerða
kjarasamninga með miklum
meirihluta atkvæða.
— Hvað telur þú, að nú taki
við?
— Það er undir sjómönnum
sjálfum komið. Þar á ég viö, að
á sama tima og sjómenn eru að
fella samninga eru þeir aö fara
út á sjó, og þar með að brjóta
verkfallið. Slikt kann ekki góðri
lukku að stýra.
— Hafa orðið verkfallsbrot i
Hafnarfiröi?
— Nei. í Hafnarfirði verða
ekki verkfallsbrot. Það er sama
hversu lengi við þurfum að
standa i verkfalli, við stöndum
við það, sem við ætlum okkur,
og höfum ákveðið.
— Munduð þið verja að loðnu-
skip landi i Hafnarfiröi?
—;,Já. Það munum við gera.
—úþ
Vestfirðingar tvístíga
vegna sjómannasamninga
Að sögn Péturs Sigurðssonar
forseta Alþýöusambands Vest-
fjarða, eru sjómenn vestra tvi-
stigandi i afstöðu sinni til ný-
gerðra kjarasamninga millisjó-
manna og útgerðarmanna.
Vestfirðingar gera sérsamninga
viö útgerðarmenn þar vestra,
og er sú samningsgerð ekki
hafin.
Pétur sagði, að samningar
vestfirskra sjómanna hefðu
ekki veriö lausir nema gagnvart
skiptaprósentunni, sem er bein
afleiðing af lagabreytingum,
Framhald á bls. 14