Þjóðviljinn - 27.03.1976, Side 1
SJÁ 3. SÍÐU
Geirfinnsmálið:
Rannsókn-
arlögreglan
opnar gætt-
ÞESSI LÖG
ERU
BROTTN
- BAKSÍÐA
Engin slys urðu á mönnum og
óverulegar skemmdir á skipinu
t gærmorgun sigldi breska trei-
gátan Galathea F 18 á varðskipií
Baldur. Kom höggið á bakborðs-
horn Baldurs og urðu skemmdir
óverulegar. Enginn meiddist.
Hins vegar virtist varðskips-
mönnum sem nokkrar skemmdir
hefðu orðið á freigátunni.
Þetta gerðist á alfriðaða
svæðinu. fy-ir Norðausturlandi
um 14 sjómilur 245 gráður austur
af Langanesi. Skammt undan
voru 3 breskir togarar að veiði-
þjófnaði og hifðu þeir allir er
varðskipið nálgaðist.
t gær voru 24 breskir veiði-
þjófar á miðunum, þar af 18 á
alfriðaða svæðinu. Meðþeim voru
10 fylgdarskip, 4 freigátur, 3
dráttarbátar, 2 aðstoðarskip og
oliubirgðaskip. Getur hver sem er
reiknað út hlutfallið milli veiði-
þjófa og verndara þeirra sem eru
auk þess mun mannfleiri en tog-
ararnir.
ina örlítið
Rannsóknarlögreglan í
Reykjavík hélt i gær
blaðamannaf und þar sem
Eldri myndin — til vinstri — hefur oft áður verið birt
af Gejrfinni Einarssyni, eins og menn kannast við.
Myndin er gömul. Hins vegar hefur nýrri myndin af
honum — til hægri — aldrei verið birt áður. Hvers
vegna? Við því hafa ekki fengist svör.
skýrt var nokkuð frá Frá þeim f undi er skýrt á
gangi Geirfinnsmálsins. 3. síðu blaðsins í dag.
Björn Jónsson,
forseti ASÍ\ um
landbúnaðar
vöruhœkkanirnar
Björn Jónsson.
UOÐVIUINN
Laugardagur 27. mars 1976 — 41. árg. — 69. tbl.
Samningar í Straumsvík Samningar hafa tekist á milli fulltrúa 11 stéttarfélaga, sem eiga félagsmenn i vinnu hjá Alverinu i Straumsvík, um kaup og kjör. Samningar þess- ir verða teknir fyrir i verka- lýðsfélögunum næstu daga.
Baldur hefur orðið fyrir mörgum ásiglingum og hér er mynd af einni
þeirra.
Ásigling
á Baldur
Skýlaus lagafyrirmæli
eru brotin
• Rikisstjórnin notar ýmisst svindl
eða lögbrot til þess að koma fram
verðhœkkunarstefnu sinni:
„Okkur sýnist að rikisstjórnin
gangi svo hart fram i verð-
hækkunarstefnu sinni, að hún og
hennar apparöt, skirrast ekki
við að brjóta skýlaus lagafyrir-
mæli til þess að koma sinum
hækkunum fram. Þaðeru ýmist
svindl eða hrein lögbrot, sem
eru notuð i sambandi við þessar
hækkanir.”
Þannig fórust Birni Jónssyni,
forseta Alþýðusambandsins,
orð i gær, er blaðið spurði hann
álits á þeim kúnstum, sem uppi
hafa verið hafðar varðandi
verðlagshækkanir þær, sem nú
dynja yfir landslýð.
Við spurðum Björn að þvi
hvort ASl ætlaði að kæra þessa
verðlagshækkun, sem svo aug-
ljóslega virðist vera bort á
lögum. Þvi svaraði Björn til,
að hækkunin „virtist vera ský-
laust brot á 9. grein fram-
leiðsluráðslagánna en þar segir
að breyta megi búvöruverðinu
1. des., 1. mars og 1. júni og
þá míðað við þær kaupgjalds-
breytingar, sem orðið hafa á
siðustu þremur mánuðum.
Kauphækkanir verða ekki fyrr
en 1. mars þannig að lögin
heimila ekki hækkun á launa-
liðum fyrr en 1. júni.”
Björn sagði einnig um þetta:
„A hinn bóginn hefur skapast
venja i sex manna nefndinni
þannig, að visitala hefur oft
verið tekin inn, og var það gert
td. 1974, en þá mældi visitala
einnig laun verkafólks, en. á
grunnlaun hefur þetta ekki
verið gert með þessum hætti
fyrr.
Við vorum i þeirri góðu trú, við
samningsgerðina, að kaup-
gjaldsliðurinn kæmi ekki inn i
landbúnaðarvöruverðshækkun-
Framhald á bls. 14.
Framsóknarfélag Hveragerðis og Ölfuss
Harma að framsókn skuli
vera með í slíkri stjórn
Framsóknarfélag Hvera-
gerðis og ölfuss lýsir yfir furðu
á hinum miklu verðhækkunum
strax i kjölfar samninga og tel-
ur að rikisstjórnin hafi með
þessu komið aftan að launþeg-
um landsins og eigi eftir að
koma i Ijós að sliku unir verka-
lýðshreyfingin alls ekki, enda
trúlega einsdæmi að umsamdar
kjarabætur fengnar með erfiðu
verkfalli séu horfnar einum
mánuði eftir gerð samninga.
Ennfremur lætur fundurinn i
ljós furðu sina á skilningi
stjórnvalda á merkingu orðsins
verðstöðvun. Fundurinn harm-
ar að Framsóknarflokkurinn
skuli eiga aðild að rikisstjórn,
sem þannig kemur fram við
lægstlaunuðu þegna þjóðfélags-
ins og varar forustu flokksins
eindregið við þvi að samþykkja
slik vinnubrögð núverandi rikis-
stjórnar.
Samþykkt þessi var gerð
samhljóða á fundi i Hveragerði i
gærkvöldi. Fundinn sóttu um
helmingur félagsmanna.
Óhappið á Keflavíkurflugvelli sveipað þagnarhulu
Tveir mánuðir þár til rannsókn lýkur!
Flugmálastjóri neitar að tala, flugstjórinn tekur ekki síma og Flugleiðir segjast ekkert vita
Að sögn Flugmálastjóra hefur
ÖII áhöfn Loftleiöaþotunnar sem
hlekktist á á Kefla vikurflugvelli i
fyrradag verið yfirheyrð, en ekk-
ert verður gefið upp um niður-
stöður rannsóknar fyrr en erlend-
is frá hafa fengist þær upplýsing-
ar, sem siriti um borð í vélinni
skráði á meðan óhappið átti sér
stað. Siritinn verður i ca. tvo
mánuði í skoðun i útlöndum.
Flugstjórinn, Björn B. Karls-
son, neitaði að taka sima þegar
Þjv. reyndi að ná i hann hjá Flug-
leiðum i gær og vill hann þvi ekk-
ert um málið segja að svo stöddu.
Blaðafulltrúi Flugleiða, Sveinn
Sæmundsson, vildi heldur ekki tjá
sigum málið en sagðiþó að lýsing
fjölmiðla i gær, sem höfð var eftir
slökkviliðsstjóranum á Kefla-
vikurflugvelli, virtist nokkuð
dramatisk og orðum aukin, eftir
þvi’ sem aðrir sjónarvottar
hermdu.
Sveinn sagði að Flugmálastjóri
hefði ekki leyft að fulltrúi Flug-
leiða væri viðstaddur yfirheyrsl-
urnar yfir áhöfninni.
Eftir þvi sem Þjv. hefur fregn-
að skv. frásögn sjónarvotta og á-
lits fróðra manna, hefur þotan,
sem var að koma frá Luxemborg
með 123 farþega innanborðs,
breytt skyndilega um flugbraut
til þess að lenda á skv. breyttri
vindátt.
Þotan kom niður úr skýjunum i
stefnu að braut 21 en beygði siðan
ýfir að braut 25 og lendir á henni.
Sviptingasamt veður var þarna
og mun vélin hafa fengið vind-
sveip undir hægri vænginn með
þeim afleiðingum að ytri mótor
straukst við flugbrautina, en
mjög óverulega. Skemmdir urðu
smávægilegar en vélinni verður
flogið út til viðgerðar eða hreyfil-
skipta.
Ekki mun óalgengt að flugvélar
skipti þannig um braut, en i þessu
tilfelli virðist beygjan, sem taka
varð hafa verið ansi kröpp og
a.m.k. nóg til þess að slökkviliðs-
stjóranum var illilega brugðið.