Þjóðviljinn - 27.03.1976, Qupperneq 3
Laugardagur 27. mars 1976 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3
h'rá bluðamannaf'uiuli rannsóknarlagreglunnar i gœr:
Geirfinnur Einarsson
var myrtur í sjóferð
i gær boðaði rannsókn-
arlögreglan i Reykjavík
til blaðamanna f undar
þar sem nokkuð var skýrt
frá gangi mála í hinu svo-
kallaða „Geirfinnsmáli",
sem tengist spiramálinu
fræga, sem verið hefur í
rannsókn undanfarna
mánuði og fjölmargar
sögusagnir hafa spunnist
um manna á meðal.
Rannsóknarlögreglan skýrði
svo frá, að i haust er leið, hafi
hún verið að rannsaka fjár-
svikamál, þar sem sviknar voru
útúr Pósti og sima 950 þúsund
kr. i tvennu lagi. Meðal annars
kom þar við sögu pa-r, ungt sam-
býlisfólk. Mjög fljótlega skýrði
stúlkan frá hvernig hvarf
Guðmundar Einarssonar, sem
hvarf i Hafnarfirði i janúar 1974,
bar að og það mál upplýstist
mjög fljótt. Þrir menn sitja enn
i gæsluvarðhaldi vegna þess
máls, grunaðir um að hafa myrt
Guðmund og játning þeirra
liggur raunar fyrir. Hún hafði
komiðað þremenningunum, þar
sem þeir voru að pakka inn liki
Guðmundar Einarssonar. Hún
sagði rannsóknarlögreglunni
raunar margt fleira, sem þre-
menningarnir höfðu verið við-
riðnir og reyndist það siðar allt
saman 100% rétt.
Ofsóknir
t janúar sl. fór hún að kvarta
um það við rannsóknarlögregl-
una að hún yrði fyrir ónæði og
hún var orðin mjög hrædd um lif
sitt. Fyrst i stað gekk treglega
að fá það uppúr henni við hvað
hún værihrædd. bar kom þó, að
hún nefndi nöfn þriggja manna
og að það væri vegna vitneskju
hennar um hið svokallaða
„Geirfinnsmál”. Rannsóknar-
lögreglan spurði sambýlismann
hennar hvort hann hefði hug-
mynd um við hvað hún væri
hrædd og þá nefndi hann nöfn
sömu mannanna.
Þegar frekar var farið að
ræða við þau um þetta, sögðu
þau frá ferð sem þau höfðu farið
til Keflavikur i sama bilnum, á-
samt tveimur eða þremur öðr-
um, — um það eru þau ekki viss
hve margir voru i bilnum. Var
ekið rakleiðis niður i fjöru hjá
Dráttarbrautinni i Keflavik. A
leiðinni hafði verið rætt um það
að Geirfinnur Einarsson „væri
farinn að vera með stæla og
þyrfti að hverfa” — það væri
ekki hægt að koma vitinu fyrir
hann, þrátt fyrir mútuboð.
óttaðist um
líf sitt
Stúlkan segist hafa setið góða
stund i bilnum i fjörunni. Þar
voru samankomnir 11 menn og
bátur bundinn við bryggju. Hún
sat ein eftir i bilnum, smástund
en segist hafa verið „ofsalega”
hrædd og læddist i burtu og faldi
sig i yfirgefnu húsi rétt hjá, þar
til hún varð vör mannaferða
daginn eftir. Stúlkan telur að
hún hafi verið i lifshættu, það
hafi áttað láta hana hverfa lika.
Daginn eftir fór hún uppá veg og
fékk far með' eldri gerð af
Moskovitch-bifreið að Grinda-
vikurafleggjara. Segist hún
hafa sagt bilstjóranum að hún
starfaði i Grindavik. ökumað-
urinn var eldri maður. Þarna
beið hún svo smástund, uns að
kom stór vörubifreið, sem var i
malarflutningum og var á leið
til Reykjavikur og með honum
fékk hún far til Reykjavikur.
— ÞESSUM MÖNNUM VILL
IÍANNSÓKNARLÖGREGLAN
HAFA TAL AF. —
Þetta var að morgni 20.
nóvember 1974. En sem kunnugt
er hvarf Geirfinnur Einarsson
kvöldið áður.
Stúlkan segist ekki hafa þekkt
alla mennina sem voru við
Dráttarbrautina i Keflavik, en
þekkti suma þeirra siðar á
myndum, m.a. einn þeirra sem
við sögu kemur við hvarf
Guömundar Einarssonar.
Geirfinnur drepinn?
Sambýlismaöur stúlkunnar
skýrði einnig frá þessu kvöldi,
en ekki meiru en hann nauðsyn-
lega þurfti og hélt sjálfum sér
að mestu utan við þetta. Það
fékkst þó uppúr honum að hann
hafði farið þessa ferð með bátn-
um og annar hinna tveggja sem
sitja inni vegna morðsins á Guð-
mundi Einarssyni. Hann segir
að sér hefði verið sagt að það
hafi orðið slys, þegar Geirfinn-
ur lést um borð i bátnum. Hann
játaði þó siðar að i ferðinni hafi
Geirfinnur Einarsson látið lifið.
Hinn maðurinn, sem situr inni
vegna máls Guðmundar
Einarssonar, hefur einnig játað
að hafa orðið vitni að átökum
milli Geirfinns og annarra
manna og segist hann hafa
reynt að hjálpa Geirfinni, en
ekki tekist.
Þau segja öll að i fjörunni hafi
allir þeir fjórir menn, sem nú
sitja inni vegna hvarfs Geir-
finns Einarssonar, verið og þrir
af þeim hafi siðan verið um borð
i bátnum, einn hafi orðið eftir i
landi. Þegar þau skoðuðu
myndir hjá rannsóknarlögregl-
unni, urðu þau sammála um
suma meon, sem þau segja að
hafi verið þarna, en ekki um
aðra og þeir hafa enn verið látn-
ir i friði af rannsóknarlögregl-
unni. Fjórir menn, sem þau eru
öll sammála um að hafi verið
þarna, sitja i gæsluvarðhaldi.
Rannsóknarlögreglan telur að
enn vanti nokkra menn inni
myndina.
Ber ekki saman
Karlmennirnir segja að þeim
hafi verið hótað illu, ef þeir
segðu hið minnsta frá þessari
bátsferð. Þessu hótuðu þrir af
þeim sem nú sitja i gæsluvarð-
haldi. Þess ber þó að geta, að
ungu mönnunum tveimur ber
ekki alveg saman um hvernig
dauða Geirfinns bar að, annar
segist ekki hafa séð átökin, en
eru sammála um að til átaka
hafi komið. Þeir segjast ekki
vita hvað gert var við lik Geir-
finns Einarssonar, halda þó að
það hafi verið tekið með i land.
Rannsóknarlögreglan tók
mjög sterkt fram, að ailan
þennan framburð yrði að skoða i
þvi ljósi að mennirnir væru að
draga sem mest úr sinum hluta
að málinu. Þá tók hún einnig
fram, að það hafi ekki verið
hægt að rannsaka þetta mál
nema hreppa fjórmenningana,
sem þau þrjú eru sammála um
að hafi verið þarna, i gæslu-
varðhald, en að það segi ekkert
til um sekt eða sakleysi þeirra.
Það hefur verið staðfest að
Geirfinnur Einarsson hafði eim-
ingartæki undir höndum og þau
þrjú segja að hann hafi verið i
þvi að eima sjóblandaðan spiri-
tus.
Eins og menn muna var gerð
leirmynd af manni þeim sem
grunur lék á að hefði hringt i
Geirfinn frá Hafnarbúðinni i
Keflavik. Var hún gerð eftir lýs-
ingu tveggja afgreiðslukvenna i
búðinni. Þær hafa báðar skoðað
ljósmyndir af fjórmenningun-
um sem sitja i gæsluvarðhaldi,
og sagði önnur að einn þeirra
gæti átt við en var ekki viss og
dró siðan þau ummæli til baka
en hin vissi ekki neitt.
Varðandi framburð þessara
þriggja, má taka fram, að nær
útilokað er að piltarnir tveir
hafi getað sameinað framburð
sinn, þar eð þeir munu hafa set-
ið i fangelsi til skiptis allan tim-
ann frá þvi að þetta átti sér stað
og þar til þeir voru handteknir.
Aðspurðir um hversvegna
nýrri myndin af Geirfinni Ein-
arssyni, sem birt er á forsiðu
Þjóðviljans i dag, hafi ekki ver-
ið birt strax er hann hvarf, i stað
gömlu myndarinnar, sagði
rannsóknarlögreglan i Reykja-
vik að það hafi verið ákvörðun
Hauks Guðmundssonar i Kefla-
vik á sinum tima, en tekið var
fram, að það hefði liklega getað
auðveldað rannsóknina þá, ef
samtimamyndin hefði þá þegar
verið birt, svo ólikar sem þær
eru.
Dómsrannsókn hefst i þessu
máli nk. mánudag en lögreglu-
rannsókninni mun verða haldið
áfram af fullum krafti eftir sem
áður. Dómsrannsókninni mun
örn Höskuldsson, sakadómari
stjórna. —S.dór
Skifumálið
i Kópavogi:
Vilji
bœjarbúa
hunsaður
Þjóðviljinn hcfur að undan-
förnu sagt frá gangi atburðarrás-
ar i sambandi við „Skifumálið” i
Kópavogi, sem fengið hefur nafn
sitt af fyrirhugaðri bvggingu ein-
býlishúss við sjónskifu eða hring-
sjá á Vighólum i austurhluta bæj-
arins.
Undirskriftasafnanir, almennir
borgarafundir fjölmargir smærri
fundir og fleiri aðgerðir bæjarbúa
hafa leitt i ljós einlægan vilja fyr-
ir þvi, að framkvæmdum á um-
ræddri lóð verði frestað og fyrir-
bæjarstjórn hefur verið sannað,
að lóðaúthlutunin hafi i rauninni
aldrei farið formlega fram, enda
sé þarna verið að byggja á áður
áætluðu útivistarsvæði almenn-
ings.
Ólafur Jónssio n bæjarstjórnar-
fulltrúi Alþýðubandalagsins hef-
ur i tvigang borið fram tillögu um
frestun á framkvæmdum á með-
an allir þættir málsins væru betur
kannaðir og aðrir fulltrúar minni-
hlutans hafa gert slikt hið sama.
Alltaf hefur meirihluti sjálf-
stæðismanna og framsóknar fellt
þessar tillögur þrátt fyrir vilja
þorra bæjarbúa og núna siðast i
gær var ein slik tillaga i viðbót
felld.
Það var Björn Ölafsson frá Al-
þýðubandalaginu sem bar fram
ásamt Sigurjóni Inga Hilarius-
syni tillögu um að umrædd lóða-
úthiutun yrði afturköiluð. Ýtar-
legur rökstuðningur með tillög-
unni fór inn um annað eyrað og út
um hitt hjá meirihlutanum sem
afgreiddi þessar tillögur á sama
hátt og allar aðrar i sömu átt.
Ekki er heldur tekið tillit til nátt-
úruverndarnefndar bæjarins.
sem beðið hefur um afturköllun
úthlutunar þessarar umdeildu
byggingalóðar.
lbúar i nágrenni Vighóla munu
hafa i hyggju að fá dæmt lögbann
á framkvæmdir en sú beiðni var
ekki komin til bæjarfógeta i gær.
Húsbyggjandinn á Vighólum
hefur hraðað framkvæmdum eft-
ir mætti eftiraðóánægjuraddirnar
mögnuðust og hefur hann nú
steypt sökklana undir húsið.
—gsp
Syeitarfélagasamband
á Stórvíkursvæðinu
Búið er að gera drög að sam-
starfsreglum fyrir sveitarfélög á
Reykjavikursvæðinu. Er þar ma.
gert ráð fyrir nánu samstarfi
sveitarfélaga á sviði skipulags-
mála. Verða þessi drög væntan-
lega lögð fyrir sveitarstjórnir á
svæðinu nú næstu vikur til stað-
fcstingar, en hugmyndin er að
halda stofnfund samtakanna i
vor.
Forseti borgarstjórnar, ólafur
B. Thors ,sagöi blaðamanni i gær,
að um nokkurn tima hefði það
verið áhugamál ýmissa aðilja
innan sveitarstjórna á
Stór-Reykjavikursvæðinu, að
efna til samstarfs um ýmsa
málaflokka.enfyrstog fremst þó
um skipulagsmálin, en inn i þá
blandast i viöustu merkingu
atvinnumál og fl.
15 fundir
Haldnir hafa verið fimmtán
sáttafundir með sjómönnum á
mijlilandaskipum og öðrum vöru-
flutningaskipum og eigendum
skipafélaga. Samningum miðar
hægt áfram, en áfram þó, að sögn
eins fulltrúa sjómanna i samn-
inganefndinni, Jóns Guðmunds-
sonar.
Fyrsti fundur um betta var
haldinn að tilhlutan kópavogs-
manna fyrir svo sem ári siðan.
Siðan hafa verið haldnir fundir
undirbúningsnefndar niu sveitar-
félaga. Þessi sveitarfélög eru:
Hafnarfjörður, Garðabær, Bessa-
staðahreppur, Kópavogur,
Reykjavik, Seltjarnarnes, Mos-
fcllssveit, Kjalarneshreppur, og
Kjósarhreppur. Þaö sem undir-
búningsnefndin hefur orðið ásátt
um, er að leggja fyrir sveitar-
félögin drög, þar sem gert er ráð
fyrir að stofnuð séu samtök
sveitarfélaga á fyrrgreindu
svæði, hverra tilgangur sé að
beita sér fyrir samstarfi um
skipulag og þróun byggðarinnar á
svæðinu og að vinna að öðrum
sameiginlegum hagsmunum
sveitarfélaganna.
Ólafur lagði áherslu á, að með
þessu væri ekki veriðað stofna til
einhverrar viðtækrar valdastofn-
unar, heldur væri verið að skapa
grundvöll fyrir þvi, að sveitar-
félögin geti annað hvort sameig-
inlega eitt eða fleiri, gert meö sér
samkomulag um einhvem ákveð-
inn málaflokk. Samtökin eiga
ekki að geta bundið neitt sveitar-
félaganna fjárhagslega eða á
annan hátt, öðruvisi en
viðkomandi sveitarstjórn vilji
það sjálf fyrir hönd sins sveitar-
félags.
Gerter ráð fyrir þvi, að á aöal-
fundi slikra samtaka eigi sæti
allir kjörnir sveitarstjórnarmenn
auk framkvæmdastjóra sveitar-
félaganna, eigi þeir ekki sæti i
sveitarstjórnum. Gert er ráð fyrir
niu manna stjórn.
Ólafur sagði, að höfuðáherslan
yrði lögð á það, að samningar
ættu sér stað milli sveitarfélag-
anna á þessum vettvangi um hina
ýmsu málaflokka, sem siðan væri
hægt að hugsasér að kosnar yrðu
einstakar nefndir til að stjórna,
og jafnvel, að ráðinn yrði sér-
stakur framkvæmdastjóri að
verkefnum meðan þau væru i
vinnslu.
Þá sagöi Ólafur, að málið væri
á þvi stigi nú, að sveitarstjórn-
irnar tækju afstöðu til þeirra
draga, sem fyrir liggja, og hefi
málið td. verið kynnt á siðasl
borgarráðsfundi I Rvik. Verð
afstaða sveitarstjórnanna jákvæö
verða allir kjörnir sveitar-
stjórnarmenn af svæðinu boðaðir
til stofnfundar samtakanna sem
væntanlega verður haldinn i vor.
úþ
Rikissjóður hefur greitt
370 miljónir í
Grundartanga
Eins og fram kom i frétt i
Þjóðviljanum i gær hefur nú
verið greitt inn 16% af hlutafé
tslenska járnblendi - félagsins.
Samtals á hlutaféð að nema 24
miljónum dollara, þaraf eru 3.2
miljónir greiddar sem tækni-
þekking Union Carbide. Alls
eiga þvi peningagreiðslur til
fyrirtækisins að nema 20.8
miljónum dollara, þar af er
hlutur Union Carbide 7.6
míljónir en rikissjóðs 13,2
miljónir dollara eða
um 2.3 miljarðar islenskra
króna á núverandi gengi. Af þvi
er innborgaö 16% i þrem
skömmtum — fyrst 1% i april,
þá 5% i júli og loks 10% i sept. Á
þessum tima var gengi isl.
krónunnar nokkru hærra gagn-
vart dollarnuip en nú er, en ekki
er fjarri lagi að áætla að þessar
greiðslur islenska rikisins nemi
á núverandi gengi um 370
miljónum króna. Það er dágóð
upphæð, en kannski munar
rikisstjórnina ekki um einn
kepp i sláturtiðinni.
erl