Þjóðviljinn - 27.03.1976, Blaðsíða 11
Laugardagur 27. mars 1976 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
Fréttabréf
eftir Gísla
Guömundsson
á Súgandafirði
Yfirlit um
aflabrögð
Engin ánægja með
iskiptaprósentuna
Sumir álita, að þegar fólk eld-
ist, já, t.d. þegar komiö er yfir
sjötugt, verði maður værukær og
máski latur og nenni ekki að
hugsa eða skrifa. Þetta vil ég ekki
viðurkenna að öllu leyti. Ég við-
urkenni það, að ég er ekki eins
viljugur að skrifa og áður, en það
er ekki ellin, heldur það að mér
likar ekki sá.mikli dráttur, sem er
á þvi, að fréttabréfin komi út.
Stundum liða um og yfir 3 vikur.
Ég tel það of langt. — Og þar sem
ég er nú sestur niður núna, þá er
best að ég skýri frá og færi i letur
aflatölur þeirra skipa, sem hér
stunda róðra i vetur.
Og þá er það fyrst janúarmán-
uður:
Togskipið Trausti aflaði 158,7
tonn i 3 löndunum. Togvinda hans
bilaði 16. janúar. Hann komst á
veiðar aftur 6.2. m/s Kristján
Guðm. fiskaði 163,1 tonn i 22 róðr-
um. Meðalverð á kiló var kr. 39,53
og hlutur kr. 187,444, — án orlofs.
m/s Sigurvon aflaði 149,6 tonn i
22 róðrum. Meðalverð hjá henni
var kr. 40,32 kg.
m/s Ólafur Friðbertsson fékk
124,9 tonn i 21 róðri.
Þess skal getið, að afli Trausta
er slægður, en afli hinna bátanna
er óslægður.
Tiðarfar i janúar var mjög
stirt, en það hefur ekkert að
segja. Það er farið á sjóinn sem
sagt i hverju sem er, nema
kannski i fárviöri.
Febrúarmánuður var að ýmsu
leyti rysjóttur, bæði til orðs og
æðis, sjós og lands.
Samþykkt var af Verkalýðs- og
sjómannafélagi Súganda að hefja
skyldi verkfall þann 19. febrúar.
Blómabúðin MÍRA
Suðurveri við Stigahlið 45—47, simi 82430
Miðbæ við Háaleitisbraut simi 83590
Bióm og gjafavörur i úrvali
Þjóðviljann
vantar sendil
STRAX.
Þarf að hafa vélhjól.
Hringið i sima 1-75-00
DJODVIUINN
Félagið samanstendur nú mest-
megnis af sjómönnum. Land-
verkafólk er hér ekki svo margt.
27, eða sem næst þvi, eru hér nú
frá ýmsum heimsálfum.
Landróðrabátar fóru ekki á sjó
18.2. (?) m/s Ólafur Friðbertsson
fór á sjó þann 19.og réri allt verk-
fallið. Beitt var i landi, en afli is-
aður um borð. Verkfallstimaafl-
anum var svo landað á Flateyri.
Nálægt 42 tonn slægð i 8 róðrum.
Mánaðarafli hans miðað við ó-
slægt varð 133,5 tonn i 13+8 róðr-
um.
Kristján Guðm. Skipstjóranum
þar, Bjarna Kjartans, leið
bölvanlega. Fjórum dögum áður
en verkfallið leystist, hóf hann
róðra frá landi með sömu fram-
komu og m/s Ólafur Friðberts-
son. Mánaðarafli hans varð 113,2
tonn i 13+4 róðrum. Aflinn er
reiknaður sem óslægður.
A m/s Sigurvon er skipstjóri
Einar Guðnason. Það var ber-
sýnilegt, að honum leið illa, en
hann stóð sig mjög vel. Afli Sigur-
vonar varð 84,7 tonn i 13+1 róðri.
Óslægt.
Togskipið Trausti landaði hér
13. febrúar 43,8 tonnum. Hann var
úti á veiðum allan verkfallstim-
ann og landaði svo 29. febrúar
101,9 tonnum. Núna 10. mars er
verið að setja þann fisk að nokkru
leyti á hjall sem skreið. Heildar-
afli Trausta var i febrúar 145,7
tonn og að sjálfsögðu var aflinn
slægður. A sama tima og ofan-
skráð undur gerðust fékk ég ekki
leyfi til þess að taka niður loft-
netsstöng, sem ég þurfti að lag-
færa litilsháttar. Þeir eru strang-
ir hér, foringjar Verkalýðs- og
sjómannafélagsins Súganda. Lof
sé þeim og dýrð.
Ekki virðast landmenn á linu-
bátunum hér vera ánægðir með
skiptaprósentuna. Sömu sögu má
heyra frá sjómönnum yfirleitt.
Bæði frá togveiðiskipum og linu-
bátum. Það er heldur ekki að á-
stæðuiausu, að svo er. Skiptapró-
senta var hér vestra 35 i 15 staði á
öllum skuttogurum, en á að lækka
niður i 29,3% i jafnmarga staði og
áður.
A linubátum lækkar prósentan
úr 32 i 11 staði i 28,2 i 11 staði.
Þetta telja sjómenn freklega
gengið á hlut sinn. Þegar flotinn
sigldi i höfn i haust, þá gerði hann
það vegna sjóðakerfisins marg-
umtalaða. Sjómenn vildu fá lag-
færingu þar á. Jú rétt, það fékkst
umtalsverð rétting og fiskverð
hækkaði að mun. En hvað gerist.
Skiptaprósentan á skuttogurum
hér vestra er'lækkuðúr 35 i 29,3%.
Og á linubátum úr 32 i 28,2. Frek-
lega er þarna gengið á hlut sjó-
manna. Það má teljast einsdæmi
ef sjómenn mótmæla ekki þessum
aðförum kröftuglega.
Að lokum er það svo marsafli
súgfirðinga að kvöldi dags hins 9.
Sigurvon fékk 67,2 tonn i 7 róðr-
um. Besti róður hennar hingað til
var 17,7 tonn. Kristján Guð-
mundsson fékk 64,8 tonn i 7 róðr-
um. Besti róður hans 16,2 tonn.
Ólafur Friðbertsson 42,0 tonn i 5
róðrum. Mest 12,6 tonn i róðri.Var
bilaður i tvo daga. m/s Trausti
hefur enn ekki landað i mars, en
er væntanlegur bráðlega. Mestur
hluti aflans er nú steinbitur.
Skrifað 10.3. ’76.
Gisli.
LESENDAKÖNNUN
Skilafrestur hefur verið ákveðinn 26.
mars fyrir þá lesendakönnun, sem Þjóð-
viljinn birti i sunnudagsblaðinu 14. mars
(bls. 11). Þessi könnun verður ekki birt
aftur i sama formi, þar eð endurtekning
mundi gera okkur ókleift að finna út les-
endafjölda á hvert eintak blaðsins.
Mjög mörg svör hafa borist, en samt
sýnist okkur að menn af tilteknum starfs-
stéttum hafi látið sitt eftir liggja. Verið
með!
Vinsamlega merkið umslagið þannig:
„Lesendakönnun” Þjóðviljinn
Skólavörðustig 19 Reykjavik
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
LANDSPÍTALINN
AÐSTOÐARLÆKNIR óskast til
starfa á taugalækningadeild frá 1.
mai n.k. i sex mánuði. Vaktaþjón-
usta læknisins verður samkvæmt
vaktaþjónustu lyflækningadeildar.
Umsóknir, er greini aldur, menntun
og fyrri störf ber að senda skrifstofu
rikisspitalanna fyrir 20. april n.k..
Nánari upplýsingar veitir yfirlæknir
ta ugalækninga deildar.
AÐSTOÐARLÆKNIR óskast til
starfa á lyflækningadeild hið fyrsta.
Upplýsingar m.a. um ráðningar-
tima og umsóknarfrest veitir yfir-
læknir deildarinnar.
MEINATÆKNAR óskast til starfa á
rannsóknardeild nú þegar eða eftir
samkomulagi. Einnig óskast meina-
tæknir til afleysinga i vor og sumar.
Nánari upplýsingar veitir yfirlæknir
deildarinnar, simi: 24160.
KÓPAVOGSHÆLIÐ
IÐJUÞJÁLFI (ergoteherapeut)
óskast til starfa nú þegar eða eftir
samkomulagi. Nánari upplýsingar
veitir forstöðumaður hælisins.
KRISTNESHÆLIÐ
SJÚKRALIÐAR óskast til starfa nú
þegar eða eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir forstöðu-
konan, simi: (96) 22300.
KLEPPSSPÍTALINN
FÉLAGSRAÐGJAFI óskast á deild
spitalans fyrir áfengissjúklinga,
Vifilsstaðadeild, frá 1. mai n.k., eða
fyrr. Nánari upplýsingar veitir yfir-
læknirinn, simi: 16630. Umsóknum,
er greini aldur, menntun og fyrri
störf, ber að senda skrifstofu rikis-
spitalanna fyrir 20. april n.k.
Reykjavik, 26. mars 1976
SKRIFSTOFA
RÍKISSPÍTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5.SÍM111765
Sumarbústaðir —
íbúðir
Bandalag háskólamanna óskar eftir að
taka á leigu sumarbústaði eða ibúðir úti á
landi til afnota fyrir félagsmenn sina i
sumar. Þeir sem vilja sinna þessu hafi
samband við skrifstofu Bandalags há-
skólamanna, Hverfisgötu 26, simi 21173.
Trilla óskast
Óska eftir að kaupa 11/2 til 3 tonna trillu.
Þarf að vera með góða vél. Upplýsingar i
sima 23762.