Þjóðviljinn - 27.03.1976, Qupperneq 13
Laugardagur 27. mars 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
Framhaldsleikritiö ..L'pp á
kaut við kerfið" heldur áfram i
útvarpiuu og verður fjórði
þáttur þess fluttur á morgun kl.
16.33. Hlustendur ættu nú að
vera farnir að kynnast Davið og
vandamálum hans allvel.
Myndin hér að ofan sýnir þá
Traubert, vin Paviðs, og
Schmidt lækni, seni er til hægri
á myndinni.
Yiðureign
við
Þetta eru börnin, sem finna dularfullan pakka í sjónum á skemmti-
siglingu.
Keppendur i þættinum I kvöld: Á efri mynd eru Sigurveig Guðmundsdóttir, Pétur Gautur Kristjánsson
og Sigurður Ragnarsson, en á neðri myndinni, Jón Einarsson, Einar Eiriksson og Jóhannes Sigmunds-
son.
Kjördœmin keppa
Stjórnandi spurningakeppninnar er Jón Asgeirsson, cn dómari Ingi-
björg Guðmundsdóttir.
Nýr spurninga-
þáttur hefur
göngu i kvöld
I fyrsta þætti spurn-
ingakeppninnar milli
kjördæmanna i kvöld,
leiða saman hesta sína
mannvitssjóðir af
Reykjanesi og Suður-
landi.
Spurningar þáttarins semur
Helgi Skúli Kjartansson, sem
sjálfur hefur þótt vel hlutgengur
i spurningakeppnum. Þeir sem
svara eiga eru: Pétur Gautur
Kristjánsson, Keflavik, sem
reyndist skæður keppnismaður i
spurningaþáttum útvarpsins i
fyrra, Sigurveig Guðmunds-
dóttir frá Hafnarfirði og Sigurð-
ur Ragnarsson úr Kópavogi, en
þau keppa fyrir Reykjaneskjör-
dæmi. Fyrir Suðurland eru Jón
Einarsson, Skógaskóla, Einar
Eiriksson, Vestmannaeyjum og
Jóhannes Sigmundsson frá
Syðra-Langholti i Hrunamanna-
hreppi, en allt er þetta fólk
þekkt að fróðleik og bókvisi.
Það hefur flogið fyrir, að þeg-
ar spurningakeppni kjördæm-
anna lýkur, en hún verður sýnd i
sjónvarpinu á hverju laugar-
dagskvöldi næstu vikur, að þá
verði stigafjöldi hverrar keppn-
issveitar lagður til grundvallar
dreifingu uppbótarþingsæta á
kjördæmi, eftir næstu alþingis-
kosningar. Einnig hefur komið
til tals að hagnýta niðurstöðurn-
ar við útreikninga fjárlaga og
dreifingu raforku um landið.
' ráa
smyglara
Pollýanna hefur nú fengið far-
sælan endi i sjónvarpinu, svo að
seinnipartinn i dag er boðið upp
á nútima ævintýramynd i
staðinn, sem segir frá þvi er
þrjú áströlsk börn komast i tæri
■'ið hættulega smyglara. eftir að
þau finna böggul sem kastað
hefur verið i sjóinn.
Það er annars athyglisvert,
að myndir þær sem sjónvarpið
sýnir siðdegis á miðvikudögum
og laugardögum eru ýmist svo
skelfilegar, að börn undir sex
ára aldri þora ekki að horfa á
Nokkuð eru þau vafasöm á að
lita þessi skötuhjú.
þær, eða þær eru svo væmnar að
börn yfir sex ára aldri þola þær
ekki.
Spunastofa
amtmanns
Lýður Björnsson, sagnfræð-
ingur mun i kvöld kl. 19.33 flytja
fyrra erindi sitt uin nokkur at-
riði úr sögu siöari hluta 18. ald-
ar.
Nefnist erindið Spunastofa
Stefáns - amtmanns Þórarins-
sonar, og er án efa afar fróð-
legt á að hlýða, en Lýður
Björnsson kann einmitt lag á að
segja svo frá, að frásagnir um
sagnfræðileg efni vekja forvitni
áheyrenda, fyrir utan að vera
jafnan smellnar og skemmtileg-
ar • ráa
l.ýður Björnsson, sagnfræðing-
ur.
útvarp
Laugardagur
27. mars
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnirkl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Eyvindur Eiriksson
heldur áfram sögunni af
„Söfnurunum” eftir Mary
Norton (4). Tilkynningar kl.
9.30. Óskalög sjúklinga kl.
10.25: Kristin Sveinbjörns-
dóttir kynnir.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.30 íþróttir. Umsjón: Jón
Asgeirsson.
14.00 Tónskáldakynning Atla
Heimis Sveinssonar.
15.00 Vikan framundan. Björn
Baldursson kynnir dagskrá
útvarps og sjónvarps.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir. lslenzkt
mál. Jón Aðalsteinn Jóns-
son cand.mag. flytur þátt-
inn.
16.40 Popp á laugardegi.
17.30 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Spunastofa Stefáns amt-
manns Þórarinssonar. Lýð-
ur Björnsson sagnfræðingur
flytur fyrra erindi sitt um
nokkur atriði úr sögu siðari
hluta 18. aldar.
20.00 Hljómplöturabb Þor-
steins Hannessonar.
20.45 i tveimur bandariskum
mcnningarmiðstöðvum.
Kennedy Cultural Center
for the Performing Arts i
Washington og Lincoln
Center i New York. — Um-
sjón Páll Heiðar Jónsson.
21.45 Létt tónlist frá ný-sjá-
lenzka útvarpinu.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Lestur
Passiusálma (34). Danslög.
23.55 Fréttir. Dagskrárlok.
# sjónvarp
Laugardagur
27. mars
17.00 íþróttir Umsjónarmaður
Omar Ragnarsson.
18.30 Viðureign við smyglara
Aströlsk kvikmynd. Þrjú
börn á skemmtisiglingu
finna böggul, sem skipverji
á flutningaskipi hefur varp-
að i sjóinn. Þeir, sem
böggulinn er ætlaður, sjá er
krakkarnir hirða hann.
Þýðandi Ellert Sigurbjörns-
son.
19.00 Enska knattspyrnan
Illé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Kjördæmin keppa Nýr
spurningaþáttur, sem verð-
ur á dagskrá sjö laugar-
dagskvöld i röð. t fyrsta
þætti keppa Reykjanes og
Suðurland. Að auki i hléi
leikur hljómsveitin Glitbrá
frá Rangárvallasýslu lög
eftir Gylfa Ægisson. Stjórn-
andi þáttarins er Jón As-
geirsson, en dómari Ingi-
björg Guðmundsdóttir.
Spurningarnar samdi Helgi
Skúli Kjartansson. Stjórn
upptöku Tage Ammendrup.
21.05 Læknir til sjós Breskur
gamanmyndaflokkur. Sjó-
veiki er ekki sjúkdómur
Þýðandi Stefán Jökulsson.
22.00 Vatnið er þeirra land
Fræðslumynd um fólk i
Hong Kong, Makó og Tai-
landi, sem býr i bátum i
höfnum og sikjum. Þryð-
andi og þulur Ingi Karl Jó-
hannesson.
22.25 Ast (Luv) Bandarisk
gamanmynd frá árinu 1967.
Aðalhlutverk Jack
Lemmon, Peter Falk og
Elaine May. Harry Berlin
er að þvi kominn að drekkja
sér, er gamlan skólafélaga
ber að og fær hann ofan af
fyrirætlun sinni. Hann býð-
ur Harry heim til sin og
kynnir hann fyrir konu
sinni. Þýðandi Dóra Haf-
steinsdóttir.
23.55 Dagskráriok
Útvarp
á morgun 0
Útvarp í kvöld