Þjóðviljinn - 27.03.1976, Síða 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 27. mars 1976
Dagskrármaður
Framhald af 16. siðu.
Frans Gislason, Guðbjörn
Björgólfsson, Gunnar Einarsson
Kvaran, Hallveig Thorlacius,
Helgi'Helgason, Ingibjörg Har-
aldsdóttir, Lucy Jóhannsdóttir,
Renata Kristjánsdóttir, Sigriður
Pétursdóttir, Sigurður Þór Jóns-
son, Stefán Halldórsson, Vigdis
Hansen og borsteinn Eggertsson.
Or þessum fimmtán manna
hópi var Helgi valinn skv. sam-
hljóða meðmælum útvarpsráðs,
að þvi er Pétur Guðfinnsson tjáði
blaðinu. Hér er ekki verið að
amast við ráðningu Helga, heldur
eingöngu þeim vinnubrögðum,
sem æ algengari virðast vera i
sambandi við ráðningar manna i
opinber störf, þ.e. að fyrirfram sé
búið að ráða i hlutverkið og þá oft
án tillits til hæfileika, kunnattu
eða menntunar.
Pétur sagðist aðspurður ekkert
hafa frétt um umsóknir vegna
auglýsingu eftir eftirlitsmanni
með iþróttaefni. Sér vitanlega
hefðu engar umsóknir borist enn,
enda kæmu þær yfirleitt ekki fyrr
en á siðustu stundu.
Colby Framhald af bls. 9.
æði skuggalegir. Eg er að tala um
morð á erlendum leiðtogum,
Colby.
C.: — Arið 1973, löngu áður en
allur þessi æsingur hófst, gaf ég
út fyrirskipun sem bannaði morð-
tilraunir. Ég hef komið i veg fyrir
þó nokkrar á ferli minum. Þeir
eru margir sem álita að ef Hitler
hefði verið myrtur árið 1939 liti
veröldin betur út.
F.: — Lumumba var enginn
Hitler, Coiby. Castro er enginn
Hitler.
C.: — En Castro leyfði Sovét-
rikjunum að koma upp kjarn-
orkueldflaugum á Kúbu sem ógn-
uðu öllum bandariskum borgum
austan Missisippi.
F.: — Og þess vegna vilduð þið
myrða Castro?
C.: — Ég get fullvissað þig um
að á timum Endurreisnarinnar
voru liflegar umræður innan
kirkjunnar um réttmæti þess að
myrða gerræðislega stjórnendur.
Og sú umræða hófst reyndar
löngu áður, hún er ekki ný. Og
morötilraunir hófust ekki i
Bandarikjunum heldur hefur
þeim verið beitt i pólitisku skyni
um aldaraðir. Hvernig dóu italsk-
ir fyrirmenn hér áður fyrr?
Hvernig dó Sesar? Sem itali ætt-
irðu ekki að vera með svona siða-
predikanir.
F.: — Sesar féll ekki fyrir hendi
bandarikjamanns, hann var
drepinn af rómverja.
C.: — En Sesar drap Vercinge-
torix. Þetta hefur alltaf verið að
gerast og það er erfitt fyrir eina
þjóð að siða aðra til i þessum efn-
um.
F.: — En Colby þó! Þaö ert þú
sem segistvera siðfágaðrien allir
aðrir. Þú stittir þér upp sem
Gbrlel erkiengill sem fórnar
sjálfum sér fyrir frelsiog lýðræði.
C.: — Verið getur að okkar
sköldur sé ekki hreinn en hann er
hreinni en annarra. Um allan
heim er stefna Bandarikjanna
álitin vera grundvöllur frelsis.
Hatur þitt á CIA stafar af löngun
tilað niðra Bandarikin. Á 28 árum
höfum við gert ýmsa hluti sem
við hefðum betur látið ógerða.
Eins og að opna bréf. Á timabili á
sjötta áratugnum opnuðum við
allan póst til og frá Sovétrikjun-
um. Það hefðum við ekki átt að
gera þó það sé skiljanlegt af
hverju það var gert. Sovéskir
njósnarar voru út um öll Banda-
rfcin.
F.: — Svona, Colby, ég er ekki
að tala um að hnýsast I póst. Ég
var að tala um morð á fólki.
C.: — CIA hefur aldrei myrt
neinn. Að Diem meðtöldum. Það
er ranglátt að segja að CIA sé
alltaf myröandi fólk. Það var
reynt nokkru sinnum en þær til-
raunir mistókust allar.
F.: —Þó þú værir að segja satt,
Colby, sem ég dreg mjög i efa,
finnst þér það samt ekki
skammarlegt fyrir CIA að hug-
leiða slika hluti, alveg eins og A1
Capone.
C.: — Þetta er gert um allan
heim. I hinum ýmsu löndum,
hvort sem það er viturlegt eða
ekki. Ég. hef persónulega alltaf
verið andvigur svona vinnu-'
brögðum. En ég er minnugur
oröa Jeffersons: „Frelsistréð
þarf að vökva á tuttugu ára fresti
með blóði þjóðkúgara.”
F.: —Meðöðrum orðum: þetta
er allt i lagi öðru hvoru. Segðu
mér annars, Colby, ertu trúaður?
C.: — Vissulega. Ég er
kaþólikki, heitttrúaður.
F.: — Einn þeirra sem alltaf
fara i kirkju á sunnudögum?
C.: - Já.
F.: — Og trúir á himnariki og
helviti?
C.: — Já, ég trúi öllu sem kirkj-
an segir.
F.: — Einn þeirra sem elskar
náunga þinn eins og Jesús Kristur
boðaði?
C.:.— Vissulea, ég elska mann-
fólkið.
F.: — Égskil. En segðu mér frá
Mafiunni, ég meina hvernig CIA
notfærir sér Mafiuna.
C.: — Það hefur aðeins gerst
einusinni. Aöeinseinu sinni. Eftir
að Castro komst til valda á Kúbu
voru hugmyndir á lofti um sam-
starf við fólk sem... sem enn átti
vini á Kúbu. Vini sem höfðu verið
i Mafiunni og langaði til að drepa
Castro. Og... ja / það tókst ekki.
F.: — Þú segir að CIA sé besta
leyniþjónusta heims. Er það rétt?
Hefur KGB ekki náð betri árangri
en þið?
C.: — Alls ekki. Þar að auki eru
þessar stofnanir svo ólikar að
gerð að allur samanburður er út i
hött. Til dæmis fer mestur hlut
starfs KGB fram innan landa-
mæra Sovétrikjanna. Þeir eru
FBI, CIA, rikislögreglan og her-
lögreglan, allt undir einum hatti.
Þegar þeir njósnuðu hjá okkur
gerðu þeir oft snjalla hluti, aðdá-
unarverða. Ég á við kjarnorku-
njósnarana. Eins og þegar þeir
réðu stúlku úr gagnnjósandeild-
inni okkar til dæmis. Hún sagði
þeim.allt sem við vissum um þá,
þetta var velheppnuð aðgerð. Eða
þegar þeir settu hlerunartækið i
skóinn hjá einum af diplómötun-
um okkar. Það var snjallt, mjög
snjallt. Serðu, þessir menn starfa
fyrir sina stjórn og ég er á móti
lifsskoðun þeirra. En ég verð að
viðurkenna að faglega eru þeir oft
mjög færir.
F.: — En fróðlegt. Ég finn að þú
dáist að þeim sem fagmönnum.
C.: — Ja... maður verður að
greina á milli hæfileika og mark-
miða. Við höfum góða heimspeki-
lega réttlætingu á okkar starfi,
við erum að verja land okkar.
Þeir hins vegar...
F.: — ...eru að verja sitt land.
Segðu mér Colby, hver vildi losna
við þig úr CIA? Var það Kissing-
er?
C.: — Nei, Kissinger hefur allt-
af stutt leyniþjónustuna dyggi-
lega... Ég fór frá CIA vegna þess
að forsetinn vildi setja mig i ann-
að starf og ...forsetinn getur haft
ýmsar ástæður fyrir þvi af hverju
hann vill fá einhvern annan i for-
ystu fyrir CIA. Það eru hans for-
réttindi.
F.: — Og þú ert ekkert bitur?
C.: — Alls ekki.
F.: — Er þér þá létt?
V.: Ekki heldur.
F.: — Vitanlega ekki. Hvað
gæti svo sem haggað þinu iskalda
rólyndi? Þú gefur þig aldrei til-
finningunum á vald, eða hvað?
C.: — Nei, ég er ekki tilfinn-
ingasamur. Það eru aðeins örfáir
hlutir sem fara í taugarnar á
mér. Eins og þegar eitthvað fólk
hengdi upp veggspjöld með mynd
af mér um alla Wsahington. Þar
var ég kallaður morðingi. Og
börnin min máttu þola þetta....
Horfðu ekki svona á mig. Þú ert
að leita að einhverju baksviði
sem ekki er til. Ég er allur þar
sem ég er séöur, trúðu mér. Það
er ekkert sem heitir bakvið eöa
hulið, ég er ekki tvöfaldur i
roðinu. Eins og ég sagði áðan þá
er ég trúaður og ihaldssamur.
F.: — Kalla börnin þin þig
aldrei afturhaldsmann eða eitt-
hvað enn verra?
C.: — Nei. Við höfum ólikar
skoðanir. Þau voru td. andvig
Vietnamstriðinu og við rífumst
við matarborðið. Ég viðurkenni
lika að....
F.: — ....þér likar vel við Nix-
on?
C.: — Ég kaus hann og hann
skipaði mig i embætti. Ég tel að
hann hafi unnið mjög gott starf á
alþjóðavettvangi. Littu á Kina,
eða SALT-viðræðurnar.
F.: —Eða Chile, eða Kýpur. Ég
er útkeyrð, Colby. Ég hef aldrei
lagt eins mikið á mig nema þegar
ég ræddi við Cunhal.
C.: — Segðu mér, hvers konar
náungi er hann?
F.: — Eins og ég sagði: þegar
allt kemur til alls er hann mjög
svipuð manngerð og þú.
C.: — Ha?
F.: — Já, predikari eins og þú.
0, Colby, þú getur ekki Imyndað
þér hve likir þið eruð. Hefðir þú
fæðst hinum megin viglinunnar
værir þú eflaust hinn fullkomni
stalinisti núna.
C.: — Þessu hafna ég gersam-
lega. Og þó... það gæti verið. Nei
annars, það kæmi aldrei til
greina. Og ég er enginn vandlæt-
ari, I mesta lagi dálitið siðavand-
ur. Fleiri spurningar?
F.: — Aðeinsein, Colby. Get ég
fengið að sjá spjaldið mitt á
spjaldskrá CIA?
C.: — Bandarisk lög heimila
þér aðsenda CIA bréf og biðja um
allt sem þeirhafa sem snertir þig.
Þú færð dálitla rukkun en siðan
láta þeir allt af hendi.' Nema þeir
hafi einhverja ástæðu til að halda
i það.
F.: — Mér finnst þetta rugl-
ingslegt. En allt sem þú sagðir
var reyndar ruglingslegt, Colby.
Og mjög dapurlegt. ÞHþýddi.
Leikhús
Framhald af bls. 2.
kunnarlausari en stjórnir
þeirra, með þeim afleiðingum
að listamennirnir neyðast til að
setja sjálfum sér takmörk.
Vei þeirri andstöðu, sem ött-
ast gagnrýni, og vei þeim lista-
mönnum sem i nafni svokall-
aðra bytlingar- eða gagnbylt-
ingarhugsjóna hindra að sköp-
unargleðin fái útrás og imynd-
unaraflið geti notið sin. Hverj-
um einstökum borgara er heim-
ilt að aðhyllast þær pólitisku
skoðanir sem honum sýnist. En
listamaðurinn, sem tekur engu
sem sjálfsögðum hlut, þarf að
vera frjáls. Þessvegna er svo
áriðandi fyrir leiklistarmenn og
rithöfunda hvar sem er að losa
leikhúsið undan áhrifum stjórn-
málanna, eða öllu'heldur skeyta
hvorki um rfkisvald né sjálf-
skipaða spekinga, sem vilja
tryggja sig i sessi.
Sagt er, að listin þekki engin
landamæri. Leikhúsið ætti held-
ur ekki að skorða sig innan á-
kveðinna landamerkja. Það á
að vera hafið yfir hugsjónaá-
greining, stéttaskiptingu, kyn-
þáttamismun, þjóðernisremb-
ing og hagsmuni einstakra
landa. Það á að verða alþjóðleg-
ur vettvangur allra þeirra, er
ala i brjósti sömu vonir og bera
sömu áhyggjur, allar þær til-
finningar sem imyndunaraflið
vekur. Það ætti að verða hvorki
gerræðislegt né raunsætt, held-
ur lýsa þvi sem sameinar okkur,
gerir okkur að einni heild.
Skapandi listamönnum verð-
ur ekki skipað fyrir! Látumþá
ekki taka við neinum fyrirmæl-
um frá rikisstjórnum! óiþýddi.
Einar Karl
Framhald af bls. 7.
verja, varð lögfræðingur út-
varpsins á ný bitbein i pólitiskri
umræðu. Fundurinn var haldinn
27. nóvember i fyrra og tóku
verkalýðsfélög að birta auglýs-
ingar um hann þriðjudaginn 25.
nóv. Fyrir tilstilli lögmannsins
var sett auglý§ingabann og rit-
skoðun á verkalýðshreyfinguna,
þannig að á miðvikudag og
fundardaginn fékk hún ekki að
minnast á fundarefnið, heldur
aðeins brýna fólk um að koma á
fundinn. Þetta vakti almenna
reiði i verkalýðshreyfingunni,
m.a. vegna þess að lagatúlkun
prófessorsins var ekki látin ná
til auglýsinga fyrir kvennaverk-
fall og i áróðursauglýsingum
Varins lands. Það lá þvi nærri
að ætla að annarlegar ástæður
lægju aö baki skynditúikun út-
varpslögmannsins á reglugerð
auglýsingadeiidar rikisútvarps-
ins.
Enn frekar styrktist sá grun-
ur þegar lesa mátti i málgagni
Bandalags háskóiamanna, 1.
tölublaði6, árgangs, 1976, bls. 10
i fréttaklausu frá Lögfræðinga-
félagi Islands, að Þór
Vilhjálmsson hefði fyrir hönd
félagsins sótt alþjóðlega ráð-
stefnu i Amsterdam 26.-28.
september, þar sem fjallað var
um efnið „The Use of Legiti-
mate Force to Control Civil Dis-
order.” (Hagnýting löglegrar
valdbeitingar til þess að hafa
hemil á þjóðfélagslegum óróa
eða upplausn).
Auglýsingabannið á verka-
lýðshreyfinguna, sem skipu-
lagði friðsamleg mótmæli gegn
stjórnarstefnunni i landhelgis-
málunum, er einmitt skólabók-
ardæmi hvernig pólitiskir em-
bættismenn reyna að verja
stjórnvöld gegn löglegum mót-
mælaaðgerðum með löglegri
valdbeitingu.
Ekki verða að sinni rakin
fleiri dæmi af umdeildum af-
skiptum prófessorsins af lands-
málunum. Það sem upp hefur
verið talið i þessari grein er ær-
inn grundvöllur til þess að gagn-
rýna þá ákvörðun Ólafs-
Jóhannessonar að skipa i em-
bætti hæstaréttardómara eins
og raunin hefur orðið á. Ekki
skal getum að þvi leitt hér
hvaða pólitiskar ástæður lágu
að baki þessari ráðstöfun ráð-
herra. Ef til vill hefði honum
farnast betur, ef hann hefði
bara haldið áfram að skipa sina
eigin flokksmenn i dómaraem-
bætti.
En hvað segja hæstaréttar-
dómarar um þann óróa sem nú
er kominn upp i kringum
Hæstarétt? Þegar skrif Frjálsr-
ar þjóðar voru á döfinni brugð-
ust þeir ókvæða við og vörðu
virðingu stofnunarinnar. Hvað
hefur breyst?
—ekh.
Ragnar Arnalds
Framhald af bls. 7.
Að öðru leyti væri hér gifurleg-
ur munur á. Alþýðubandalags-
menn vilja ekki nota tekjuauka
rikissjóðs, þann tekjuauka sem
fengist af betri framkvæmd
skattalaganna, til að lækka skatta
á hátekjufólki, eins og felst i
tillögu Gylfa, heldur tilað lækka
óbeina skatta, td. söluskatt, ef
rikissjóður er þá aflögufær.
Tekjuskattsálagning sam-
kvæmt núverandi skattalögum er
hreint hneyksli, sagði Ragnar
Arnalds. 1 fyrra voru 430 félög i
Reykjavik með samtals 20 milj-
arða kr. i veltu sem ekki greiddu
neinn tekjuskatt. Mörg félög eru
með mjög lágan skatt og geysi-
mikla veltu. Þetta væri nærtækt
vandamál til að hugsa um og
reyna að ráða bot á.
Fyrstur?
Gylfi mælti nokkur orð i lokin
og hrósaði sér af þvi að riða á
vaðið með þessar róttæku tillögur
i skattamálum. Aðrir jafnaðar-
mannaflokkar mundu koma á
eftir! Ekki ansaði hann i neinu
þeirri gagnrýni sem fram hafði
komið á virðisaukaskattinn
(Halldór Ásgrimsson sagði að til-
lögur Gylfa færðu hækkun soiu-
skatts upp i 28%, en samsvaraði
allt að 40% virðisaukaskatti. Sá
skattur legðist allur á heimilin en
að engu á atvinnurekstur sem
söluskatturinn þó gerði að hluta.
ÆpLElKFELAfí^jl
BC^YKJAVÍKUgE?
SKJALDHAMRAR
i kvöld. — Uppselt.
Kolrassa
sunnudag kl. 15
EQUUS
sunnudag. — Uppseit.
SAUMASTOFAN
þriðjudag kl. 20,30.
VILLIÖNDIN v
miðvikudag kl. 20,30.
6. sýning. Gul kort gilda.
SKJALDHAMRAR
fimmtudag kl. 20,30.
SAUMASTOFAN
föstudag kl. 20,30.
Miðasalan i Iðnó opin kl. 14 til
20,30. — Simi 1-66-20.
#ÞJÓ0LEIKHÚSIfl
NATTBÓLID
i kvöld kl. 20.
miðvikudag kl. 20.
ÞJÓÐDANSAFÉLAG
REYKJAVÍKUR
i dag kl. 15.
mánudag kl. 20. Siðasta sinn.
KARLINN A ÞAKINU
sunnudag kl. 15
þriðjudag kl. 17. Uppselt.
CARMEN
sunnudag kl. 20.
Litla sviðið:
INUK
sunnudag kl. 15.
Miðasala 13,15—20.
Simi 1-1200.
Björn
Framhald af bls. 1.
ina fyrr en 1. júni.
Varðandi hækkunina erum við
ekki enn búnir að fá svo
tæmandi upplýsingar, að við
séum enn búnir að ákveða að
kæra þessa hækkun”.
— Hvemig kæmi það út, ef
þið kærðuð og ynnuð málið?
Hvemig er hægt að bæta fólki
ólöglega hátt verð?
„Það er hægt að bæta þetta
eftirá og leiðrétta það i verð-
laginu. Það ætti að vera auðvelt
þannig að næsta hækkun kæmi
þeim mun seinna til fram-
kvæmda, eða sem svaraði þeim
tima, sem ólöglega verðið hefur
verið greitt af fólki.
Að lokum sagði Björn:
„Við litum þetta að sjálfsögðu
„mjög alvarlegum agum”.
Okkur sýnist, að rikisstjórnin
gangi svo hart fram i verð-
hækkunarstefnusinni, að hún og
hennar apparöt skirrast ekki við
aðbrjóta skýlaus iagafyrirmæli
til þess að koma sinum hækk-
unum fram. Það er ýmist svindl
eða hrein lögbrot, sem eru notuð
i sambandi við þessar verð-
hækkanir.” —úþ
ALÞÝÐUBANDALAG
Alþýðubandalagið Vestmannaeyjum
Fundur sunnudaginn 4. april n.k. kl. 2 e.h. að Bárugötu 9. Fundarefni:
Barátta verkalýðshreyfingarinnar við rikisstjórn peningavaldsins.
Málshefjandi er Kjartan Ólafsson, ritstjóri Þjóðviljans. — Stjórnin.
Miðstjórnarfundur
Fundur verður haldinn i miðstjórn Alþýðubandalagsins næst-
komandi föstudag 2. apr. Til umræðu verður staðan i sjávarútvegs-
roálum ogönnurmáleftirþvisem timivinnsttil.
Fundurinn verður haldinn að Grettisgötu 3 og hefst kl. 20.30
Alþýðubandalagið ísafirði
Aðalfundur Alþýðubandalagsins tsafirði verður haldinn föstudaginn 2.
april n.k. iSjómannastofunni Alþýðuhúsinu og hefst kl. 20:30. Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. önnur mál. Kjartan ólafsson, ritstjóri
Þjóðviljans verður á fundinum. — Stjórnin.
Alþýðubandalagið Kópavogi
Mánudaginn 29. mars kemur ólafur Proppé á fund skólamálahópsins
og ræðir um framkvæmd prófa i islenskum skólum, núverandi náms-
mat og hvernig unnt sé að breyta þvi til að gera skólann betri.
Fundurinn verður i Þinghól og hefst kl. 20.30. Hann er öllum opinn, og
eru kennarar og aðrir skólamenn einkum hvattir til að koma.
Skólamálahópurinn
Alþýðubandalagið Akranesi
Félagsfundur I Rein mánudaginn 29. mars 1976 kl. 21
Dagskrá: 1. inntaka nýrra féiaga. 2. Bæjarmál, frummælandi Jóhann
Ársælsson 3. önnur mál — BÆJARMÁLARAÐ